Morgunblaðið - 25.11.2005, Page 14
14 Jólablað Morgunblaðsins 2005
Hér er jólapoki með
mynd af frú Dóru
Þórhallsdóttur,
fyrrverandi for-
setafrú.
þjófgefnir, dæmi um slíka jóla-
sveina eru Kertasníkir, sem át tólg-
arkerti sem hann komst í tæri við,
og Kjötkrókur, sem nældi sér í
hangikjötið sem hékk yfir hlóð-
unum meðan verið var að reykja
það til jólanna.“
En hvað með veitingar og sölu-
búðina?
„Í Krambúð og miðasölu verður
boðið upp á jólavarning af ýmsu
tagi. Og svo geta gestir fengið sér
ilmandi og heitt súkkulaði og með-
læti í Dillonshúsi.“
Mikið til af gömlu jólaskrauti
og heimagerðum jólatrjám
Er ekki til mikið af hlutum sem
tengjast jólunum hjá ykkur í Ár-
bæjarsafni?
„Jú, safnið á þó nokkuð af jóla-
skrauti ýmiskonar, sem og jóla-
trjám, einkum heimagerðum jóla-
trjám.“
Hversu gamalt er þetta skraut?
„Það er frá mismunandi tíma,
mestur hlutinn er þó frá tímabilinu
um og eftir seinni heimsstyrjöld, þá
hafði fólk mun meira á milli hand-
anna en áður var og vöruúrvalið
jókst mjög.
Við eigum talsvert til af heima-
gerðu jólaskrauti af ýmsu tagi,
t.d. jólasveinum og kertastjökum,
en mestmegnis er um að ræða
jólaskraut á jólatré, kúlur og
toppa. Við eigum einnig
nokkuð af jóladúkum sem
konur saumuðu út.“
Laufabrauð
frá Tjörn í
Svarfaðardal
1 kg hveiti
2–300 g
rúgmjöl
1 tsk lyftiduft
2 tsk salt
1–2 msk sykur
50 g smjörlíki
7–8 dl mjólk
3–4 msk kúmen
Mjólkin er hituð með smjörlíki
og kúmeni allt upp í 80–90°C.
Blandast í mjölið með kryddinu í.
Hnoðist hratt og vel. Breitt út og
skorið. Steikist í tólg eða plöntufeiti.
Kökurnar eru pressaðar með sléttu
loki meðan þær eru sjóðheitar.
Hallgerður Gísladóttir: Íslensk mat-
arhefð, bls. 224. Reykjavík 1999
ÁRBÆJARSAFN tekur virkan
þátt í jólahaldi á höfuðborgarsvæð-
inu með því að opna húsakynni sín í
desember. Nú í ár verður jóla-
dagskrá þar sunnudagana 4. des-
ember og 11. desember.
„Opið verður hjá okkur milli
13.00 og 17.00 báða dagana og
verður þá ýmislegt á boðstólum
sem viðkemur jólahaldi frá fornu
fari,“ sagði Helga Gylfadóttir, safn-
vörður í Árbæjarsafni.
Aðventumessa í
Silfrastaðakirkju
„Í gömlu torfkirkjunni hér á Ár-
bæjarsafni, sem áður stóð á Silfra-
stöðum í Skagafirði, verður að-
ventumessa kl. tvö báða dagana
sem opið verður hjá okkur hér. Þar
getur fólk notið ljúfrar og góðrar
stundar þar sem uppruna jólanna
verður minnst. Messan stendur yfir
í um 40 mínútur. Gestir geta komið
og farið meðan á messugjörð stend-
ur.
Af öðru sem verður á dagskrá
hjá okkur má nefna að skorið verð-
ur út laufabrauð og gestum boðið
að smakka, jólatré heimasmíðað og
vafið úr lyngi verður til sýnis á bað-
stofulofti. Í Miðhúsi verða prentuð
kort með jólakveðju fyrir alla sem
vilja. Kertasteypa verður til sýnis
og í Kornhúsinu verður gestum
leyft að spreyta sig á að gera músa-
stiga, sem er gamalt og vinsælt
jólaskraut,“ sagði Helga.
Jólahald heldra fólks
í Suðurgötu 7
Í Suðurgötu 7 verða svo að henn-
ar sögn jólahaldi heldra fólks
snemma á 20. öld gerð skil.
„Hjá heldra fólkinu var meira um
pakka, gjarnan lifandi jólatré sem
líklega hafa komið hingað helst frá
Danmörku.
Raunar er það svo með dönsku
jólasiðina að þeir koma margir frá
Þýskalandi og hingað til lands til
betri borgara frá Danmörku,“ segir
Helga ennfremur.
„Jólatrésskemmtun verður kl.
þrjú báða sunnudagana sem opið er
hjá okkur í desember. Jólatrés-
skemmtunin verður úti og gömlu
jólasveinarnir íslensku munu koma
í heimsókn. Þeir eru eins og margir
vita ekki sérstaklega góðviljaðir,
andstætt því sem gerist með út-
lenda jólasveina. Hinir íslensku
áttu það til að vera hrekkjóttir og
Lummur
1 lítri mjólk
2 egg
1 tsk salt
1 tsk lyftiduft
1 bolli sykur
1½ bolli hafragrautur
125 g bráðið smjörlíki
7–8 bollar hveiti
1 bolli rúsínur
nokkrir vanilludropar
Smjörið brætt á pönnu. Öllu blandað í
skál, þurrefni fyrst, en grauturinn,
mjólk og smjörlíki síðast. Matskeiðar
eru notaðar til að setja deig á pönn-
una, bakist í smástund á hvorri hlið
þar til ljósbrúnt (þegar loftbólur
koma upp má snúa lummunni við). At-
hugið að nota feiti til steikingar,
smjör eða smjörlíki er best, til að
lummurnar festist síður við pönnuna.
Berið fram með sykri.
Jól í Árbæjarsafni
Jólahaldið í Árbæjarsafni gleður margan
í desember. Þar er vakin athygli á gömlum
jólasiðum og jólamunum. Guðrún Guðlaugsdóttir
ræddi við Helgu Gylfadóttur, safnvörð í
Árbæjarsafni, um jólamuni safnsins og
það sem verður gert af safnsins hálfu til að
skapa gamla jólastemningu.
Laufabrauðsskurður í Árbæjarsafni verður að venju fyrir jólin.
Aðventumessa verður í Silfrastaðakirkju í Árbæjarsafni.
Jólasveinar af skandinavískum uppruna en eru þó í íslensku fánalitunum.
Jóladúkar í miklu úrvali
Cube blandarinn frá
ViceVERSA á Ítalíu.
Hannaður af Luca Trazzi.
Verð kr.13.900.
Tix blandarinn kemur líka
frá VICE VERSA á Ítalíu.
Hannaður af Luca Trazzi.
Verð kr. 12.500.
Öflugur blandari frá
Waring Pro. Brýtur ísinn
auðveldlega og er
auðveldur í notkun.
Sérlega auðvelt að þrífa
blandarann, könnuna má
setja í uppþvottavél
Waring blandarinn er
framleiddur í USA.
Verð kr. 19.900.
Hrist & hrært!
CUBE
TIX
Fyrir nýja árið! og jólin