Morgunblaðið - 25.11.2005, Qupperneq 30
„ÉG HELD að fólk sé almennt að
verða miklu meðvitaðra um líf-
rænar afurðir,“ segir Helga Mog-
ensen, verkefnastjóri hjá versl-
uninni Maður lifandi, sem er
sérverslun með lífrænt ræktaðar
og vistvænar afurðir. „Það er orð-
in aukin vitund og krafa fólks,
ekki bara á Íslandi, heldur víða í
heiminum, um lífræna ræktun.
Þótt uppruninn hafi verið hjá
hippunum, hefur þessi hug-
myndafræði þróast mjög og náð
almennri hylli.“
En hvers vegna lífrænt?
„Þar má fyrst nefna löngun til
að bæta framboðið fyrir þá sem
eru að leita að hollustu og bættri
heilsu,“ segir Helga. „Þetta hefur
með heilsu að gera, bæði fólks og
lands. Krafan um lífræn matvæli
er orðin svo mikil hjá fólki í ljósi
heilsunnar. Þar má nefna áhyggj-
ur fólks af sýklalyfjum, tilbúnum
áburði, skordýraeitri, horm-
ónalyfjum og fleiri efnum sem
koma í snertingu við framleiðsl-
una.
Í dag er mikið verið að tala svo
mikið um óþol og ofnæmi hjá fólki
gegn hinu og þessu. Og við spyrj-
um hvort það geti verið vegna
þessara atriða sem hér eru talin
upp.“
Helga segir algerlega ólíka
reynslu að borða lífrænt ræktað
og ólífrænt ræktað. „Gæðin og
bragðið eru allt önnur. Afurðirnar
verða mun bragðmeiri og næring-
arríkari.“
Ekkert mál að
elda grænt
Stefna Maður lifandi er að
stuðla að uppbyggingu og bættri
heilsu fólks með því að miðla bæði
fróðleik um næringarfræði og líf-
ræna ræktun og lífrænt ræktuðum
matvörum. „Undirtektirnar hafa
verið rosalega góðar,“ segir
Helga. „Fyrir rúmu ári síðan opn-
uðum við verslun í Borgartúninu
og nú erum við búin að opna aðra
verslun í Hæðarsmára 6.“
Stór hluti lífrænnar framleiðslu
er svonefnt „Fair Trade“ hefð, þar
sem áherslan er lögð á að allir fái
sitt fyrir framleiðsluna. Helga
segir að þótt framleiðslan sé enn
sem komið er dýrari en fram-
leiðsla sem ekki er unnin eftir
þeim ströngu gæðastöðlum sem
lífræn ræktun gerir kröfur um, sé
það allt að breytast. „Það er held-
ur enginn sem heldur í hundr-
aðkallinn til að fá bætta heilsu,“
segir Helga.
Að mati Helgu ætti ekki að vera
neitt mál fyrir Íslendinga að halda
„lífræn“ jól með öllum þeim góm-
sætu krásum sem þeim dettur í
hug. „Það er til full búð af lífrænt
ræktuðum matvörum, hvort sem
eru matvörur eða sætindi,“ segir
Helga. „Það er enginn að segja að
fólk megi ekki flippa út á jólunum
en það er hægt að halda fullkomin
jól með öllu lífrænu. Þú fyndir
bara muninn á heilsunni. Það er
engin fyrirhöfn að búa til „græna“
máltíð. Fólk miklar þetta fyrir
sér. Þessi lífræni lífsstíll er ekki
bara fyrir grænmetisætur.
„Minnsta brotið sem kemur hing-
að eru grænmetisætur, þetta eru
bara neytendur af öllu landinu.“
Jólin á lífrænu
nótunum
Morgunblaðið/Sverrir
Ekkert mál að halda lífræn jól, að mati Helgu Mogensen.
Fyrir þá sem vilja ekki missa af bragðgóðri jólamáltíð en vilja engu að síður gæta að heilsunni gæti verið áhugavert að
skyggnast í kokkabók Helgu Mogensen og félaga í versluninni Manni lifandi. Svavar Knútur Kristinsson átti létt spjall við
Helgu um það að snæða umhverfisvæna og heilnæma vöru sem ræktuð er í sátt við náttúruna.
30 Jólablað Morgunblaðsins 2005
Rósmarin/hvítlauks
lambalæri
1 lambalæri
ferskt rósmarin
gróft salt og mulinn pipar
ólífuolía
Byrjið á því að olíubera lærið og stráið
síðan grófu salti yfir og pipar ásamt
rósmarin, helst fersku.
Síðan er þetta alltaf spurning um
hversu vel steikt lesandinn vill hafa
lambið. Viðmiðunin getur verið u.þ.b.
40 mín. á hvert kíló við 180°C.
Blandað grænmeti
Með lambinu býður Helga upp á
bakað blandað grænmeti sem sam-
anstendur af sætum kartöflum og
gulrófum, tómatachutney, graskers-
biggottó, vínlegið og létt soðnir
þurrkaðir ávextir t.d. fíkjur og apr-
íkósur, ferskt aricula mangósalat og
tvær tegundir af sósu.
Tómatachutney frá Marokkó
4 grænar paprikur skornar í
strimla
6 stórir tómatar skornir í báta
1 msk hnetuolía
1 msk ólífuolía
2 hvítlauksrif
Salt eftir smekk
Smá cayennepipar
Handfylli af steinselju smátt
skorin
1 tsk broddkúmen
Handfylli af rúsínum
Olíu er hellt á pönnu og krydd sett
saman við og hitað. Því næst fara
grænmetið og steinseljan út í og öllu
leyft að malla á vægum hita. Kryddum
bætt við eftir smekk. Að lokum er
blandan kæld niður.
Byggottó með graskersfræjum
3 dl Bankabygg frá Móður jörð
1 msk GEO gróft salt
150-300 gr sólþurrkaðir tómatar
frá Bode
3-5 msk graskerspestó
9 dl vatn
Byggið er soðið með GEO-salti í u.þ.b.
15 mínútur t.d. að kvöldi. Suðunni leyft
að koma upp. Þá er slökkt undir og lát-
ið standa á hellunni yfir nóttina. Þegar
tekið skal til við eldamennskuna að
fullu eru sólþurrkuðu tómatarnir
skornir smátt og blandað í byggið
ásamt tilbúna graskerspestóinu. Fal-
legt getur verið að skreyta með basil-
blöðum og ristuðum graskersfræjum.
Meðlæti
Leyfið bragðlaukunum að velja
hvaða þurrkaðir ávextir verða með
lambinu.
Sjálf notar Helga lífrænt rækt-
aðar fíkjur og apríkósur.
Ávextirnir eru skornir niður í litla
munnbita og leyft að standa í rauð-
víni í 15 mín. Síðan er rauðvínið með
ávöxtunum soðið í 5 mínútur og kælt
niður áður en borið er fram.
Bakað grænmeti
Sætar kartöflur skornar í strimla
Þrjár sætar gulrætur skornar í
strimla
Olía
Salt og pipar
Örlítil soyasósa.
Olía sett á bökunarplötu og önnur
krydd sett saman við og bakað þar til
grænmetið verður dásamlega sætt.
Það eru u.þ.b. 40 mín. við 180°.
Mangó/arucula salat
4 stk ferskt mangó skorin frá
steininum í strimla
Ein paprika skorin í þunna strimla
Gróft kókósmjöl frá Bode.
Olía
Agavesíróp
Öllu blandað saman og örlítið af olíu og
agavesírópi sett saman við.
Ferskt og fallegt.
Lesandi ákveður síðan sjálfur sósuna,
fyrir utan villisveppasósu, er mjög gott
að hafa karrýsósu og/eða paprikusósu.
Lífræn jólamáltíð að
hætti Helgu MogensenListaselið
Íslensk list
Skólavörðustíg 17 b
Sími: 551 5675
Opið virka daga frá kl. 12 - 18
Laugardaga frá kl. 11 - 16