Morgunblaðið - 25.11.2005, Qupperneq 38
38 Jólablað Morgunblaðsins 2005
ÞEGAR föndur er annars vegar er um að gera að nota hugmynda-
flugið og við jólakortagerð er hægt að nýta alls konar efni. Helga
klippti útlínur kortanna sem sjást á myndinni með skrautskærum til
þess að fá fallegt yfirbragð. Þegar hún rekst á fallegar jólamyndir
klippir hún þær út og geymir og engilinn fékk hún til dæmis af kon-
fektkassa. Eng-
ilinn og hvít
snjókorn, sem
má kaupa tilbú-
in, límdi hún á
hvítan pappa.
Síðan penslaði
hún kortið með
límlakki og
stráði glimmeri
yfir.
Helga hefur
geymt alls kon-
ar jólaefni og á
kortið með jóla-
trjánum límdi
hún gamlan efn-
isbút. Síðan
klippti hún út
pappírsrenn-
inga, litaði þá með límpenna og dreifði grænu sérstöku glimmeri yfir.
Þetta sérstaka glimmer hitaði hún með hitablásara og þá kom falleg
áferð á renningana sem hún límdi í kringum efnisbútinn. Á hornin
festi hún gylltar stjörnur sem má kaupa tilbúnar og neðst skrifaði
hún gleðileg jól með límpenna, dreifði glimmeri yfir og hitaði með
hitablásara.
Á kortið með jólasveininum límdi Helga grænan pappír á hvítt kart-
on, litaði svo kantinn með límpenna, stráði glimmeri yfir og hitaði.
Rauðu doppurnar eru gerðar með glimmerlími úr túbum sem þornar.
Jólasveinninn er stimpill sem hún setur á límpúða, stimplar á kortið,
stráir glimmeri yfir og hitar svo. Loks litaði Helga andlit og húfu jóla-
sveinsins með vatnstússlitum.
Öll ofantalin efni til föndurgerðarinnar má fá í föndurbúðum og rit-
fangaverslunum.
Hitablásarann má líka fá í verkfærabúðum. Það er ekki hægt að
nota venjulega hárblásara í stað hitablásara því þá fýkur allt út um
allt, en það má halda kortinu fyrir ofan heita brauðrist og nota hitann
frá henni til að bræða glimmerið.
Jólakortin
hennar Helgu
Morgunblaðið/Ásdís
Hinar alræmdu lakkrískurlkökur
„Þetta er ekkert sérstaklega jóla-
leg eða flókin uppskrift en þetta er sú
tegund sem við bökum mest af fyrir
jólin,“ segir Helga. „Þetta klárast
líka fyrst af öllu. Við mæðgur erum
búnar að stækka skammtinn af
lakkrískurli, enda eru nú bara jól
einu sinni á ári.“
3 stk eggjahvítur
200 g púðursykur
150 g rjómasúkkulaði
200 g lakkrískurl … eða aðeins
meira
Hitið ofninn í 170°C. Saxið súkkulaðið
niður og setjið í skál og blandið lakkr-
ískurlinu saman við. Þeytið síðan eggja-
hvíturnar vel og bætið púðursykrinum
smám saman út í. Blandið síðan súkku-
laði- og lakkrískurlblöndunni út í og
hrærið ofurvarlega saman svo að þeyttu
eggjahvíturnar fari ekki forgörðum.
Mótið síðan litlar kökur með tveimur te-
skeiðum og setjið á bökunarpappír á
bökunarplötu. Bakið í u.þ.b. 10 mín. en
fylgist vel með kökunum á meðan.
Súkkulaðibitakökur
„Þessi uppskrift er einföld og fljótleg
og útkoman er hreinasta hnossgæti. Ég
er ekki mjög nákvæm þegar ég blanda
hráefnunum saman og uppskriftin er
mjög sveigjanleg,“ segir Helga. „Þetta
er dálítið merkileg uppskrift og var það
var einn kennarinn í Hússtjórnarskól-
anum sem gaukaði henni að okkur
stelpunum þar. Við skulum bara segja
að hún sé frá fyrirheitna landinu og að
hún var fengin eftir krókaleiðum, að
sögn kennarans.“
1 bolli smjör
1 bolli sykur
1 bolli púðursykur
2 egg
1 tsk vanillusykur
2 bollar hveiti
2 bollar haframjöl
½ tsk salt
1 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
200 g suðusúkkulaði (sparið ekk-
ert súkkulaðið)
1½ bolli saxaðar hnetur
Saxið súkkulaðið og blandið hnetunum
við það. Blandið hveiti, haframjöli, salti,
lyftidufti, matarsóda, vanillusykri og
eggjum í aðra skál. Þeytið smjör, sykur
og púðursykur létt og ljóst saman.
Hrærið síðan þurrefnunum saman við
hin og skellið súkkulaðinu og hnetunum
út í. Búið svo til kúlur á stærð við golf-
kúlur og raðið á bökunarpappír. Bakið
við 190°C í um 10 mín. Fylgist vel með á
meðan bakast.
Fljótlegt brauð í jólaamstrinu
„Þetta brauð heitir víst upprunalega
páskabrauð en þar sem flestir hafa mik-
ið að gera á aðventunni finnst mér til-
valið að gefa þessa uppskrift því hún er
svo einföld. Hver sem er getur rúllað
þessu upp með annarri hendi,“ segir
Helga. „Þetta er afar ljúffengur kostur
inn á milli í allri sykurneyslunni.“
3½ dl hveiti
3½ dl haframjöl
1 dl hveitiklíð
1 msk sykur
4 tsk lyftiduft
½ l súrmjólk
Hitið ofninn í 200°C . Blandið þurr-
efnum saman í skál og hrærið. Blandið
síðan súrmjólkinni út í. (Í upphaflegu
uppskriftinni var ½ dl hörfræ en það er
allt í lagi að nota þau fræ sem til eru og
ríflega. Síðan er gott að setja duglega af
fræjum ofan á brauðið.) Setjið deigið í
vel smurt form og korn ofan á. Stingið í
ofninn og bakið í um 50 mín. Fylgist vel
með á meðan bakast.
Jólauppskriftir Helgu
Morgunblaðið/Kristinn
ÁGÚSTA Pétursdóttir Snæland er
fædd og uppalin í Reykjavík og seg-
ist eiga sér rætur djúpt í Kvosinni.
„Mín jól voru þannig sem barn að
pabbi var að vinna í Bókabúð Sigfús-
ar Eymundssonar og þar var opið til
fjögur á aðfangadag. Jólin byrjuðu
þegar pabbi kom heim úr vinnunni,“
segir Ágústa. „Ég man þegar farið
var til dyra og opnað fyrir honum. Þá
voru mamma og stúlkurnar tvær, því
það voru vinnukonurnar kallaðar þá,
búnar að gera allt fínt.“
Ágústa minnist æskujólanna
greinilega með hlýju.
„Amma bjó á heimilinu og hún las
jólaguðspjallið. Svo borðuðum við og
eftir það var opnað inn þangað sem
jólatréð var með pökkunum undir,“
segir Ágústa. „Þetta var alveg klass-
ískt og jólin voru yndisleg. Svo fór
maður með pakkana á borðstofu-
borðið, opnaði þá og naut þessa alls.“
Faðir Ágústu var framfarasinn-
aður og þegar togararnir komu tók
hann þátt í útgerð.
„Einhverjir menn tóku sig saman
um að kaupa togara en útgerðin fór á
hausinn. Við krakkarnir fylgdumst
ekkert með þessu en þau jól var
fyrirkomulagið orðið þannig að við
áttum að sitja við borðstofuborðið og
þangað var komið með pakkana til
okkar. Þessi jól var það fyrsta sem
blasti við okkur vaðstígvél,“ segir
Ágústa skellihlæjandi. „Okkur
systkinin vantaði þau en skúffelsið
að sjá þau var mikið. Það voru samt
fleiri gjafir. Þetta var nytsöm jóla-
gjöf en ekkert prjál.“
Jólin tengjast ljósinu
Ágústa segist annars ekki vera
mikil jólakona.
„Ég loka augunum fyrir öllu þessu
jólaskrauti. Þegar jólin koma er ég
búin að fá nóg en vil ekki hafa það
þannig. Ég skreyti lítið hjá mér og
mér er nóg að hafa eitt kerti,“ segir
hún. Ágústa segist samt hafa haldið
hefðbundin jól þegar hún rak heimili,
en hún á fjóra stráka. Jólin hafi verið
í takt við að eintómir karlmenn voru
á heimilinu en það hafi verið voða
gaman.
„Hjá mömmu voru alltaf
fjölskylduboðin, húsið var einhvern
veginn þannig. Það var kallað harm-
onikkuhúsið, því það var hægt að
draga það út í huga fólks ef vantaði
pláss. Ef gestir komu var alltaf sjálf-
sagt að fá að gista þar,“ rifjar Ágústa
upp. „Þessu tók ég við og það þótti
mér sko ekki gaman, því ég er ekkert
fyrir húsmóðurstörf. Ég tók við
þeirri hefð að bjóða gömlum töntum
sem voru einstæðar í mat um jólin,
en svo þegar ég fékk að ráða voru jól-
in eftir mínu höfði, því ég er dálítið
ráðrík.“
Ágústa telur að hún sé mínimalisti
og að nú þegar hún sé komin á Grund
komi jólin samt til hennar þótt ekki
sé allt fullt af skrauti.
„Ég hef bara kertastjaka á vissum
stöðum, rauða litinn og greinar í
vasa. Ég er auglýsingateiknari og
geri þetta eins og mynd, en ekki eins
og hrúgu. Mér finnst jólin dálítið of-
hlaðin hjá fólki, eins og þau gangi út
á að hafa allt eins fínt og hægt er,“
segir þessi heillandi kona að lokum.
Skúffelsi að fá
vaðstígvél í jólagjöf
Morgunblaðið/Ásdís
Ágústa Pétursdóttir Snæland