Morgunblaðið - 25.11.2005, Qupperneq 40
40 Jólablað Morgunblaðsins 2005
ALHEIMSHREINGJÖRNINGUR
er viðfangsefni Önnu Richardsdóttur
dansara á Akureyri, en fyrir nokkr-
um árum tók hún sér fyrir hendur að
gera hreinan í dansi miðbæ Akureyr-
ar í heilt ár einu sinni í viku og endaði
á jólahreingjörningi.
„Ég hef með mér þrifáhöld í dans-
gjörninginn og tónlist, svo spinn ég
upp eftir aðstæðum dansverkið,“
segir Anna.
„Stundum hef ég klifrað og hangið
eins og ég t.d. hékk utan á jólasvein-
inum, stundum hef ég notað orð og
talað eða ég beiti þrifáhöldunum á
mjög óhefðbundinn hátt. Kústurinn
verður t.d. elskhuginn og straubrett-
ið verður hvíldarstaðurinn sem
pompar svo niður og jólasveinninn
minn besti vinur sem ég hangi í eins
og í síðasta hálmstráinu. Ég varð
raunar fræg á Akureyri fyrir að
hanga efst í fánastönginni fyrir fram-
an Pennann – Bókval og veifa rykk-
lútnum þar. Þau eru mörg hálmstrá-
in í tilverunni.
Í framhaldi af þessu ársþrifn-
aðarverkefni fór ég að þrífa allan
heiminn og lít á það sem lífstíð-
arverkefni, síðast þreif ég í Bodö fyr-
ir norðan heimskautsbaug, það var í
vor, og í haust tók ég til inni í sjálfri
mér,“ bætir Anna við.
Hefur þegar þrifið mörg lönd
„Ég hef nú þegar þrifið mörg lönd,
m.a. Japan og Suður-Afríku, í dans-
gjörningi.“
En hvernig kom þetta þrifn-
aðarverkefni til upphaflega?
„Ég bjó aðeins utan við bæinn og
var heima með tvö lítil börn og lang-
aði rosalega til að vera starfandi
listakona en fann ekki leiðir til þess
við þær aðstæður sem ég bjó við,“
svarar Anna.
„Svo kynntist ég norskri konu sem
fór með dansverk sín til fólksins út á
götuna og þá fékk ég þá hugmynd að
fara með það sem ég var að fást við
alla daga til fólksins á Akureyri en
um leið að búa mér til tækifæri til að
sýna þetta listform. Fólk hafði svo
val um hvort það stansaði og horfði
eða héldi áfram. Þannig náði ég til
miklu breiðari áhorfendahóps en ef
ég hefði haldið sýningu í lokuðu rými
eins og ég hafði svo oft gert áður.
Ég alltaf haft áhuga á innri þrif-
um, – leitinni að hamingju og friði og
sátt við mig, mitt, mína og allan
heiminn. Verkið er þannig á mörgum
plönum.
Þegar ég var búin að flytja það oft
kynntist ég því líka betur. Þá skildi
ég að það fjallaði líka um feminíska
og pólistíska þætti eins og kúgun í
aldaraðir, um hlutverk og ímynd
konunnar – og okkar allra – líka á því
hversdagslega plani að taka til í
kringum okkur. En ég hef einmitt
alltaf staðið mig mjög illa sem hús-
móðir á því sviði. Nú hef ég miklu
meiri ánægju af að þrífa en ég hafði
áður.“
Ertu búin með eldhússkápana?
En hvernig kom jólasveinninn inn
í þetta allt saman?
„Síminn á Akureyri keypti af mér
jólahreingjörning í miðbænum eftir
að þessu ári lauk. Mér finnst mjög
skemmtilegt að fjalla um jóla-
hreingerningar af því að það hefur
einfaldlega verið þema í lífi mínu eins
og annarra kvenna og manna. Þetta
er spurning um til hvers er ætlast af
manni og hvað við veljum að gera í
því. Hver kannast ekki við spurn-
inguna: „Ertu búin að taka skápana í
eldhúsinu?“ En allt sé ég þetta sem
frekar táknrænt en raunverulegt.
Þeir sem eiga hreinustu jólaskápana
eiga ekki endilega hreinistu sál-
arskápana, það er miklu auðveldara
að taka til í skápunum í húsinu sínu
en þrífa t.d. til í hjónabandinu eða
öðrum mannlegum samböndum.
Ógnvænleg þrif
Það getur búið óskapleg ógnun í
þrifum, t.d. þegar ein þjóð ræðst inn í
aðra og lagar þar til með hernaði.
Þessi kraftur býr líka innra með mér
þegar ég dansa „hernaðarþrif“ sem
part af gjörningum mínum. Um
þetta mætti nefna ótal dæmi.
Alheimshreingjörningur í tíu ár
Lesandinn sjálfur veit hvaða dæmi
eru mikilvæg í hans lífi – og þá erum
við komin í alheimshreingjörninginn.
Ég býð öllum í heiminum að taka
þátt í að þrífa með mér í „Aheims-
hreingjörningi í tíu ár“.
Það verkefni byrjaði í fyrra og það
voru rösklega þrjátíu manns sem
tóku þátt í því, m.a. margir finnskir
og fleiri skandinavískir dansarar,
breskur umhverfissinni og rússnesk
gjörningalistakona. Það er ekki bara
listafólk sem er boðið að taka þátt í
alheimshreingjörningi heldur allir –
við höfum öll þörf og getu til að tjá
okkur, m.a. tóku akureyrsk feðgin og
eitt barn þátt í alheimsgjörningnum.
Þátttakendur fremja einhvern gjörn-
ing 10. október árlega (það er afmæl-
isdagurinn minn) og skrásetja hann
t.d. með ljósmynd. Ljósmyndina fæ
ég svo senda sem pakka og set upp
myndlistarsýningu með verkum allra
þátttakenda sem hafa þrifið eitthvað
sem þeim er mikilvægt hinn 10. októ-
ber á þann hátt sem þau kusu. Sumir
kusu þó annað form og sendu mér
hljóðverk og vídeóverk. Sýning á
þessum verkum verður snemma á
næsta ári.“
Hollt hnetujólakex
250 g heilhveiti, lífrænt ræktað,
helst nýmalað
150 g smjör
75 g hunang
eggjarauða
hnífsoddur af salti, kanil og vanillu
125 g grófmalaðar heslihnetur
Blandið ferskmöluðu heilhveitinu
saman við salt og krydd. Gerið dæld í
miðjuna fyrir eggjarauðuna, hun-
angið og hneturnar. Skerið kalt
smjörið í sneiðar yfir hveitið og
þrýstið öllu mjög hratt saman með
köldum höndum í klump. Rúllið deig-
inu í rúllu sem hefur fjóra sentimetra
í þvermál, setjið í álpappír einn
klukkutíma í ísskáp. Skerið í hálfs
sentimetra þykkar sneiðar og leggið
á bökunarpappír á bökunarplötuna,
bakist í forhituðum ofni í 10 til 15
mínútur við 200° á Celsíus.
Með þessu er gott að drekka hreins-
andi te.
Hreinsandi te
Skerið niður tvo sentimetra af
meðalþykkri engiferrót í mjóar
sneiðar, hellið einum lítra af vatni yf-
ir, látið suðu koma upp og sjóðið við
lágan hita í 5 til 10 mínútur. Síið í
drykkjarílát og bætið við ferskum sí-
trónusafa og hunangi eftir smekk.
Ef sett eru einnig nokkur saltkorn
út í teið hefur fólk drykk sem er bæði
sætur, súr, beiskur og saltur, það
ætti að vinna að því að koma á
nokkru jafnvægi í heiminum.
Hér er gamla góða Nilfisk-ryksugan sem er þarfaþing við alheimshreingjörninginn. Anna María Richardsdóttir tekur húsið í gegn af mikilli nákvæmni, hátt sem lágt.
Jólasveinninn
síðasta
hálmstráið!
Alheimshreingjörningur í tíu ár hófst í fyrra
sem framhald af vikulegum dansgjörningi
Önnu Richardsdóttur dansara í miðbæ
Akureyrar fyrir nokkrum árum. Guðrún
Guðlaugsdóttir ræddi við Önnu um
gjörninga hennar og jólahreingerningar.
Morgunblaðið/Kristján
Anna Richards sýnir hér hvernig á að bera sig að við jólahreingerninguna.
Gluggana pússar hún með fjaðurkústi svo birtan komist inn.