Morgunblaðið - 25.11.2005, Qupperneq 47
„Minna og minna hefur verið lagt í
jólaskreytingar undanfarin ár. Það
er helst að einstaka kaupmenn
skreyti hjá sér en stóru götuljósin
verða æ sjaldgæfari, líklega vegna
þess að það er svo dýrt. Það væri
skemmtilegt að lýsa meira upp með
jólaljósum eins og gert er á Íslandi
og á Írlandi,“ segir Siobhon. Hún
segir Íra skreyta heimili sín fyrr en
Frakka og ef hún fengi að ráða þá
væru þau löngu búin að setja upp
jólatré í stofunni. Í þessu kemur
Siggi inn í stofuna og spyr spenntur
hvort þau ætli að fara að kaupa
jólatré í dag. Hann verður svekktur
þegar honum er sagt að það verði
ekki fyrr en aðra helgina í desem-
ber og spurður um hvort hann trúi á
jólasveininn segir hann svo ekki
vera. „Nei, jólasveinninn er ekki
til,“ segir hann en er þó ekki full-
komlega sannfærður. Í ljós kemur
að hann hefur skrifað jólasveininum
langt bréf með óskum sínum fyrir
jólapakkana í ár. Tilhlökkunin
leynir sér ekki enda jólin hátíð
barnanna. Árlega er jólaball haldið í
íslensku-skólanum sem Sive og
Siggi ganga í annan hvern laug-
ardag, þar syngja þau íslensk jóla-
lög og hitta íslenska jólasveina. Það
er þó nokkuð ljóst að jólasveinninn
sem hefur mestan trúverðugleikann
hér, er með rauða húfu og mikið
hvítt skegg. Það er í því gervi sem
Siggi kveður blaðamann, með
tuskudúkku fyrir hreindýr og
hvítan koll fyrir sleða. Hverjar sem
matarvenjurnar kunna að vera og
hvaðan sem börnin koma, þá eru
engin jól án jólasveinsins.
aðfangadag
Bréf á leið til sveinka. Er heimilisfangið ekki örugglega Norðurpóllinn 1?
Jólablað Morgunblaðsins 2005 47
smáauglýsingar mbl.is
Gjöf sem
gefur yl
og gleði
Glæsilegt úrval
Minkapelsar
loðskins-vendikápur
loðskins húfur
loðskins hattar
Skólavörðustíg 2 • sími 544 8880
Opið
mánudaga-föstudaga 12:00-18:00,
laugardaga 12:00-15:00.
Gefðu konunni góða gjöf
sem hressir og gleður hana.
Áhrifarík andlitsmeðferð.
! Betri en bótox ! Árangur strax.
Snyrtisetrið húðfegrunarstofa
s. 533-3100, Dómus Medica,
inngangur frá Snorrabraut.
Snyrtisetrið ehf JÓLIN KOMA!
Jón Karl Einarsson, sjö ára
Hvað er skemmtilegt við jólin?
Þá fær maður pakka og þá
koma áramótin. Á áramótunum
sprengir maður flugelda.
Manstu hvað gerðist á jól-
unum?
Já, Jesú dó þá. Eða nei, hann
fæddist. En af hverju er þetta
kallað jól?
Ég veit það ekki. En hvað
finnst þér mikilvægast á jól-
unum?
Að vera góður því að ef mað-
ur er óþægur fær maður kart-
öflur í skóinn. Ég hef samt aldr-
ei fengið þannig á ævinni.
Hver er uppáhaldsjólasveinn-
inn þinn?
Gáttaþefur og Stúfur, því að
brauðið sem hann Gáttaþefur
borðar og finnur lyktina af. Og
Stúfur er svo lítill og svo mikið
krútt.
Hvað langar þig mest í núna?
Zorro-búning. Mig langar
mikið í hann og amma sagði að
hún ætlaði að prjóna hann.
Morgunblaðið/Þorkell
Gáttaþefur
í uppáhaldi