Morgunblaðið - 25.11.2005, Side 50

Morgunblaðið - 25.11.2005, Side 50
50 Jólablað Morgunblaðsins 2005 ÞRÁTT fyrir að jólatréð sé ein af táknmyndum jólanna í okkar huga þá er ekki langt síðan það nam land á Íslandi. Það var ekki fyrr en um 1850 sem fyrstu jólatrén munu hafa borist til Íslands og þá sáust þau að- eins hjá dönskum eða danskmennt- uðum fjölskyldum í kaupstöðum. Siðurinn breiðist síðan afar hægt út og mun ekki hafa orðið algengur að nokkru marki, fyrr en komið var vel fram yfir aldamótin 1900. Að sið- urinn hafi ekki fest rætur hér eins fljótt og annars staðar er eðlilegt því ógerlegt hefur víðast hvar verið að verða sér úti um grenitré og sigl- ingar til landsins tóku langan tíma. En eins og íslendingum er einum lagið fundu þeir lausn á þeim vanda. Eftir aldamótin 1900 fóru menn að smíða gervijólatré. Var þá notaður mjór staur, sívalur eða strendur, sem stóð á stöðugum fæti. Á staur- inn voru negldar álmur eða boraðar hokur í hann og álmunum stungið í. Voru þær lengstar neðst, en styttust uppeftir. Á þeim voru jólakertin lát- in standa. Oftast var tínt sortulyng, beitilyng eða einir og trén skreytt með því. Sumstaðar var útbúið eitt stórt tré fyrir heila sveit eða þorp á vegum ungmennafélags, kvenfélags eða stúku, og stóð það í samkomu- húsi eða kirkju. Þetta voru ýmist grenitré eða tilbúin jólatré. Heimatilbúnu gervijólatrén voru mest notuð þar til um 1940, þegar farið var að flytja grenitré inn að einhverju marki. Fyrstu auglýsingar um innflutt jólatré höfðu þó birst þegar árið 1896 en þau tóku samt ekki að selj- ast í stórum stíl fyrr en um miðja 20. öldina. Á síðustu árum hafa svo ís- lensk jólatré sést í ríkari mæli. Í dag eru um 40.000 jólatré seld fyrir hver jól á Íslandi og eru um 25% þeirra íslensk. Um 75% er flutt inn frá Danmörku og er það yfirleitt nor- mannsþinur, hann er mest selda jólatréð hérlendis. Af íslensku jóla- trjánum er mest selt af rauðgreni. Talið er að um helmingur þeirra sem setji upp jólatré yfir hátíðirnar hafi gervitré. Árni Björnsson, þjóðháttafræð- ingur, segir í Sögu dagana að ís- lenskur almenningur hafi ekki feng- ið jólatré sín miklu seinna en almúgafólk í öðrum löndum. Hvaðan kom jólatréð? Fyrsta heimild, sem þekkt er um einskonar jólatré, er frá Strassburg árið 1605. Á seinni hluta 17. aldar og þó einkum á 18. öld tekur jólatréð að breiðast út meðal aðalsmanna og kóngafólks víða um Evrópu. Þá er einnig farið að festa logandi kerti á greinarnar. Fram yfir miðja 19. öld þekktist jólatré naumast hjá öðrum en aðalsfólki og oddborgurum enda þurfti rúmgóð húsakynni. Hinir efnaminni létu sér nægja litla píra- mída eða krónur sem fengust á jóla- markaði. Eftir 1800 tóku jólatré að breiðast til Norðurlandanna og er fyrsta jóla- tréð talið hafa komið til Kaup- mannahafnar um 1806. Þótt nokk- urn veginn sé vitað um dreifingu jólatrésins er lítið vitað um uppruna þess. Jólatréð, eins og við þekkjum það, er ekki gamalt í heiminum en ýmiskonar trjádýrkun er ævagömul. Árni Björnsson segir í bók sinni Jól á Íslandi um uppruna jólatrésins: „Vafalaust má rekja elstu rætur þess til einhvers konar trjádýrk- unar, en í Róm var t.d siður í forn- öld að skreyta hús sín um nýárið grænum greinum eða gefa þær hver öðrum, og þótti það gæfu- merki. Sama er að segja um mistilteininn á jólunum í Eng- landi. Frá því um 1100 var tekið að leika helgileiki bæði inn- an kirkju og utan, þar á meðal söguna um sköpun mannsins, syndafallið og burtreksturinn úr ald- ingarðinum Eden. Stóð skilnings- tréð þá tíðast á miðju sviðinu, það var grænt tré og héngu á því epli og borðar. Líktist það tals- vert jólatré, nema kertin vantaði, en svo var einnig um þau jólatré, sem fyrst eru spurnir um. Þá hefur það verið algengur siður á Norðurlöndunum, sérstaklega í Svíþjóð, og í Þýskalandi, að reisa græn tré „maí-stöngina“, fyrir utan hús um jólin, sem tákn hins sílifandi gróðurs.“ Auk þess er til fjöldinn allur af goðsögum og sögnum, þar sem al- heimstré er látið tákna heiminn. Það ber ýmis nöfn, eftir því hvaðan vitn- eskjan er runnin, en alltaf er það sama uppi á teningnum: kenn- ingin um tréð sem „miðjuna“. Eitt þessara trjáa er Askur Yggdrasils, úr trúarbrögðum norrænna manna, og annað er Lífsins tré í Eden. Nokkrar helgisagnir eru líka til um uppruna jólatrésins. Þekkt- ust þeirra er líklega sagan um engl- ana þrjá, sem Guð bað um að fara til jarðarinnar, þegar halda átti jól í fyrsta sinn, og velja þar tré, sem best hentaði tilefninu, og allir völdu þeir grenitré. Heimildir: Árni Björnsson. 1963. Jól á Íslandi. Ísafoldarprentsmiðja H.F – Reykjavík. Árni Björnsson. 1993. Saga daganna. Mál og menning, Reykjavík. Hjá flestum íslenskum fjölskyldum er jólatré ómissandi partur af jóla- haldinu. Ingveldur Geirsdóttir kynnti sér sögu jólatrésins á Íslandi og komst að því að ekki eru hundrað ár síðan það varð algengt hér á landi. Morgunblaðið/Þorkell Þetta gamla heimasmíðaða jólatré, sem er nú á Byggðasafni Árnesinga, þarf ekki mikið skraut, enda lýsa kertin það fallega upp. Jólatré eins og við þekkjum það í dag, vel skreytt og skrautlegt. Jólatréð í stofu stendur RÓSA Pálsdóttir, sem búsett er á Akureyri, er í jólaskapi flesta daga en hún situr árið um kring og saum- ar jólamyndir, sem límdar eru á eld- spýtustokka. Rósa sagði að þetta hefði byrjað allt saman árið 1996, þegar Þóra dóttir hennar hringdi í hana og tjáði henni að hún væri að fara opna verslunina Jólahúsið í Kópavogi. Þóra vildi bjóða vandað íslenskt handverk til sölu í verslun sinni og leitaði því til móður sinnar. „Ég byrjaði á því að sauma jóla- svuntur fyrir börn, klukkustrengi og jólamyndir í ramma. Einnig fór ég að sauma jólamyndir á eldspýtu- stokka og þar sem stokkarnir nutu mikilla vinsælda hef ég aðeins saum- að slíkar myndir undanfarin ár. Þóra teiknaði fyrst nokkrar jólasveina- myndir, sem ég saumaði eftir, svo bætti hún við myndum af öðrum í jólasveinafjölskyldunni og fleiri jóla- myndum. Ég sit því við og sauma ár- ið um kring og oft úti í sólinni að sumarlagi ef veðrið er gott,“ sagði Rósa. Hún sagði að þessi handavinna kæmi sér afskaplega vel fyrir sig, þar sem hún þurfti að fara af vinnu- markaðnum vegna veikinda en vant- aði samt eitthvað að gera. „Ég hef alltaf verið mikið jólabarn og leiðist því aldrei.“ Rósa er búin að sauma myndir á tæplega 1.000 eldspýtu- stokka á þessum árum og hafa þeir runnið út. Þóra hefur flutt verslun sína úr Kópavoginum yfir á Skóla- vörðustíginn í Reykjavík. Rósa sagði að erlendir ferðamenn sýndu þessari vöru mikinn áhuga, enda væri tölu- vert um að fólk sem ferðaðist um heiminn leitaði uppi verslanir eins og Jólahúsið og keypti sér minja- gripi af ýmsu tagi. Jólamyndirnar eru saumaðar með krosssaumi og sagðist Rósa vera misjafnlega lengi með hverja mynd, það væri t.d. mun fljótlegra að sauma jólaköttinn en jólasvein eða engil. „Ég er ekki að þessu fyrir peninginn, heldur skiptir máli að hafa eitthvað fyrir stafni og vissu- lega hef ég gaman af þessum sauma- skap.“ Rósa saumar líka fermingarkort sem hún lætur fylgja með gjöfum innan fjölskyldunnar og einnig saumar hún jólamerkimiða, sem fylgja pökkunum frá henni og Arnóri Þorgeirssyni manni hennar. Á fermingarkortið saumar hún m.a. nafn fermingarbarnsins og ferming- ardaginn. Rósa er í jólaskapi flesta daga ársins Rósa Pálsdóttir myndarleg við saumaskapinn í eldhús- inu heima í Norðurgötu á Akureyri. Morgunblaðið/Kristján Jólamyndirnar sem Rósa saumar á eldspýtustokkana eru fjölbreyttar enda eru þær vinsælar árið um kring. Metsölubók um allan heim Allan og Barbara Pease hafa selt yfir 19 milljón eintaka af bókum sínum Bókin sem varpar ljósi á samskipti kynjanna. Stórkostleg bók, er samdóma álit lesenda. Og ekki að ástæðulausu! Vikan 19. okt. 2005 BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR Gildir til 30. nóvember 2005 30% afsláttur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.