Morgunblaðið - 25.11.2005, Page 54

Morgunblaðið - 25.11.2005, Page 54
54 Jólablað Morgunblaðsins 2005 Sinnepshjúpur 4 msk sænskt sinnep 2 msk dökkt franskt sinnep 1 msk kartöflumjöl 2 eggjarauður (í seinni tíð höfum við sleppt þeim) 2 – 3 msk brauðmylsna, t.d sykurlausar tvíbökur. Sinnepi og kartöflumjöli hrært saman, smurt á, brauðmylsnunni stráð yfir eins og áður segir. Þegar skinkan er búin að grillast er hún færð upp á fat og prjóni með einhverju fallegu og jólalegu stungið í hana og hún borin fram. Skinkan er bæði góð hvort sem hún er heit eða köld og passar köld afbragðsvel á jólahlaðborð, sem Svíar eru snillingar í að setja fram. Sósa Freistandi er að nota soðið sem myndast af skinkunni en stundum er það of salt og ein- göngu hægt að nota lítið af því. Jón er lítill sós- umaður, en kemst ekki undan þeirri nauð að laga sósu með skinkunni. Hér kemur eitt til- brigðið: Gerð var tilraun með að nota tilbúinn sósu- kraft sem heitir Tasty koníaks sósugrunnur. Þessir sósugrunnar eru hannaðir af landsliði matreiðslumanna. Þar sem sósugrunnurinn er svolítið kröftugur tók Jón á það ráð að tóna hann aðeins niður með hvítvíni. Byrjunin fólst í því að fara ekki alveg eftir leiðbeiningum á umbúðum, heldur setja kraftinn út í 4 dl af sjóðandi vatni. Þarnæst fór ½ l af mat- reiðslurjóma ásamt 5 – 7 negulnöglum og væn- um kvisti af fersku timjan. Þetta fékk að malla svona í 15 – 20 mínútur, þá var allt síað og sett aftur í pott og sósan smökkuð til og 2 dl af hvítvíni sett út í ásamt matskeið rifsberjahlaupi. Að lokum eru fersk rifsber sett út í rétt áður en hún er borin fram. Reiknið með u.þ.b. 1 - 1 ½ dl af sósu á mann. Meðlæti Það má spila eftir braðlaukum hvers og eins, en Svíarnir eru mikið með brúnkál eða rauð- kál, kartöflur og gott sinnep. Það höfum við einnig verið með eða ofnbak- aða rótarávexti, gljáð rósakál eða annað gott sem okkur dettur í hug. Ofnbakaðir rótarávextir 2 – 3 msk olífuolía 2 rauðlaukar 2 gulir laukar 3 paprikur, gul og rauðar 2 púrrulaukar 8 gulrætur ½ sellerírót 1 fennel Hvítlaukur eftir smekk. Nokkrir stilkar ferskt timjan eða matskeið þurrkað. Ofurlítið Maldon salt og hvítur pipar 2-3 msk sesamfræ (sett yfir síðustu mínúturnar). Olíunni er helt í ofnskúffu og rótarávextirnir sett- ir í eftir að búið er að afhýða, þvo og skera í bita, sem eru ekki of smáir. Kryddað og saltað. Sett í 200 gráða heitan ofn í 50 – 60 mín eða þar til það er orðið gullið og steikt. Þá er sesamfræjunum stráð yfir síðustu 5 mín- úturnar. Að sjálfsögðu má spila magn og tegundir rót- arávaxtanna af fingrum fram. Einnig er upplagt að vera tímanlega með skink- una í ofninn, þannig að þegar hún er tilbúin geti hún staðið úti í álpappírnum á meðan rótarávextirnir fara inn í ofninn og þegar þeir eru tilbúnir er skinkan sett undir grillið með sinnepshjúpnum. Sósan og rósakálið eru löguð á meðan rótarávext- irnir eru inni. Kalt rósakál 500 g rósakál er snyrt og þvegið. 5 dl vatni með 1 tsk af salti látið sjóða. Rósakálið sett út í og látið sjóða í 5 mínútur undir loki. Þá er lokið tekið af og kálið látið sjóða í aðrar fimm mínútur, eða þar til það er orðið mjúkt. Hellið vatninu af og látið renna ískalt vatn í pottinn þannig að kálið kólni alveg. Skerið hausana í tvennt og setið í skál og hellið yfir blöndu af: 2 msk vatn 2 msk olívuolía 2 msk balsamikedik. Smá gróft salt og pipar. 1/2 tsk timjan Blandan pískuð eða hrist vel saman. Ferskir timjanstilkar til skrauts. Eftirréttur Í gegnum tíðina hafa Jón og Jóhanna verið með mismunandi eftirrétti, að þessu sinni eru þau með ferska ávexti. (það er smekksatriði hvort sykri stráð er yfir berin og þau látin taka sig áður en þeirra er neytt). Jarðarber, hindber og rifsber borin fram með ís, þeyttum rjóma og möndlukökum. Ávextirnir standa alltaf fyrir sínu og eru frá- bærir með heimalöguðum vanilluís, og einu staupi af góðu dessertvíni til dæmis Castello Di Querceto 2001 Vin Santo del Chianti Class- ico sem passar það mjög vel með jarð- arberjum. Möndlukökur 15 kökur. 50 g sætar möndlur ¾ dl sykur 50 g smjör ½ msk hveiti 1 msk mjólk Afhýðið möndlurnar og hakkið ekki allt of fínt. Setjið möndlurnar, sykurinn, smjörið, hveitið, og mjólkina í pott og sjóðið og hrærið í þar til deigið þykknar , deigið má ekki sjóða. Setjið með teskeið með góðu millibili, á bökunar- plötu með bökunarpappír undir og bakið við 175 gráðu hita í 10 – 12 mínútur eða þar til að kök- urnar hafa fengið gullinn lit. Látið kökurnar kólna á pappírnum. Þær eru góð- ar með berjunum og ísnum. Einfalt og fallegt jólaskraut. Morgunblaðið/Kristinn Eftirrétturinn hjá Jóni og Jóhönnu og í bakgrunni tignarlegur hjörtur með ljós og epli í krónunni. Ljósbrot og speglun í borðbúnaðinum. Jón Reykdal sneiðir skinkuna fyrir gesti sína, hann segir að betra sé að hafa sneiðarnar þunnar og margar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.