Morgunblaðið - 25.11.2005, Qupperneq 60
60 Jólablað Morgunblaðsins 2005
sem margar eru eftir Gunnvöru
Brögu yngri.
Hún les áfram:
„Hér er t.d. um jólin 1966. Þá
skrifar mamma: „Gott er að taka jól-
in snemma, svo byrja hreingerning-
arnar með öllu því umstangi sem því
fylgir. Bóndinn stynur og stingur af
og afsakar með fundi. Þá segir frúin
við spegilmynd:
Úfin, grett og yggld á brún,
greppatrýnið,
engan þráir né elskar hún
leiðindasvínið.
Þessa frýjun stenst bóndaræfillinn
ekki þegar heim kemur og segir:
Ef þú sæir sjálfa þig
alltaf svona
því ertu þá að mana mig
makann, kona?
Braga les kveðju frá sjálfri sér frá
jólum 1976:
„Þakka ykkur báðum fyrir sólina
sem umvefur mig alltaf þegar ég kem
hingað heim. Braga.“
Bjartar minningar
um foreldrana
„Mamma skrifaði í síðasta skipti í
bókina jólin 1988. Þá var pabbi orð-
inn lamaður og hún var mjög kvíðin.
Þá voru foreldar mínir að flytja úr
Meltröðinni í litla íbúð í Vogatungu.
Forsaga þess var að pabbi var
mjög framkvæmdaglaður, hann of-
fjárfesti og veðsetti húsið og varð
gjaldþrota, litlu síðar fékk hann
heilablóðfall og til að reka endahnút-
inn á þessi áföll þá skar Útvarpið nið-
ur hjá barnadeildinni sem mamma
veitti forstöðu. Það var henni áfall of-
an á þær miklu raunir sem hún varð
að bera. Ég held að þessar hugraunir
allar hafi átt sinn þátt í að hún fékk
krabbamein og dó litlu síðar. Hálfu
ári seinna dó pabbi. Þetta var mikið
áfall fyrir okkur systkinin en það
merkilega er að þegar maður hefur
átt svona skemmtilega foreldra eins
og þau voru, bóhemar og á kafi í leik-
list og félagsmálum, þá eru minning-
arnar bjartar. Við lærðum að bjarga
okkur jafnframt því sem fjölskyldan
var stór, samheldin og lífsglöð.
Mamma hélt stór boð með öllum fjöl-
skyldumeðlimum og henni varð svo
mikið úr litlu. Henni tókst að búa til
hátíðarétti nánast eins og úr nagla-
súpu, hún skreytti svo fallega og af
mikilli umhyggju. Ég átti yndislega
foreldra hvort sem var í meðlæti eða
mótlæti.
Húsið heima var algjört stuðhús,
allt fullt af börnum og félögum
þeirra, reglurnar voru ekkert of
strangar, við máttum vera með
handavinnu og lita á stofuborðinu
nema á laugardögum, þá var því fylgt
vel eftir að tekið væri rækilega til í
öllu húsinu – fyrir dansleikinn og
kvöldvökuna. Foreldrar mínir sögðu
alltaf: „Bönn fyrir ungt fólk eru bara
til að brjóta þau – það á ekki að
banna.“
Hildur systir mín kenndi mér lær-
dóm sem hún dró af foreldrum okk-
ar: „Ekki banna barni strax sem bið-
ur um eitthvað, gefðu þér tíma og
hugsaðu málið og ræddu það svo.
Ekki segja strax nei.“
Þegar ég var 7 ára og Stubba syst-
ir var mikið veik (Halldóra Kristín
sem dó smábarn) þá vissi ég af katta-
fjölskyldu sem bjó á Álfhólsveginum
og ákvað að gefa mömmu kettling í
afmælisgjöf 13. júlí. Ég pakkaði hon-
um fallega inn í pappír og setti á
hann slaufu og skrifaði kort: „Til þín,
elsku mamma, frá mér, Brögu. Þú
veist að það má aldrei skila afmæl-
isgjöfum.“ Þar með kom fyrsti kött-
urinn og eftir það var heimilið aldrei
kattlaust. Það, að leyfa börnum að
alast upp með dýrum er mikilvægt,
það kennir þeim að hugsa um eitt-
hvað annað en sjálf sig. Ég á fallegan
sjóð af minningum og er að skrifa
þær sumar niður.
Ég varð fyrir miklu andlegu áfalli
á vinnustað mínum í fyrra og hef ekki
beðið þess bætur fyrr en nú að ég er
farin að læra á tölvu og skrifa. Ég er
að komast í gang og takast á við já-
kvæða hluti.“
Hippar í Danmörku
En hvernig skyldi jólahald Gunn-
varar Brögu og Gests eignmanns
hennar hafa byrjað?
„Við Gestur héldum okkar fyrstu
jól í Danmörku þar sem við bjuggum
þá. Ég var 22 ára og nýbúin að eign-
ast dótturina Irpu Sjöfn. Við bjugg-
um okkur strax til siði og venjur. Við
hjónin höfðum þá nýlega kynnst
jurtafæðu og settum jólamatseðilinn
saman með tilliti til þess. Gestir sem
komu fengu smákökur úr heilhveiti
og hráskyri með engu lyftidufti.
Þeim fannst kökurnar ekki til-
komumiklar en við borðuðum þær
allar með miklu af döðlum og rús-
ínum.
Við Gestur vorum hippar og vild-
um eins og aðrir á hippatímanum lifa
einfaldara lífi, vera nær náttúrunni
en áður þekktist. Við vorum ákaflega
passasöm með hvað við létum ofan í
okkur og oft tók marga klukkutíma
að elda kvöldmatinn, en það var bara
gaman. Maður óx með þessu, fyrsta
árið fengum við allskonar kveisur af
jurtafæðinu en smám saman vandist
líkaminn þessu fæði. Irpa dóttir okk-
ar smakkaði ekki kjöt fyrr en hún fór
fullorðin að borða kjúklinga og kal-
kúna, hún borðar ekkert annað kjöt
en hinir krakkarnir tveir borða allt
kjöt í dag. En í 25 ár var ekki borðað
neitt kjöt á heimili okkar Gests, bara
íslenskur fiskur.
Hangikjöt í minningu móður
Eftir að mamma var dáin saknaði
ég þess svo mjög að finna ekki hangi-
kjötslyktina á Þorláksmessu að ég
fór að sjóða hangikjöt, það geri í ég
minningu hennar. Ég fæ ekta sauða-
kjöt með nánast engri fitu hjá mági
mínum. Það elda ég og Gestur er
bara glaður yfir þessu. Stundum get-
ur líkaminn fundið nýtt jafnvægi, það
var kominn tími á hangikjötið.
Eftir lát mömmu tók ég líka upp á
því að elda villigæsir á jólum. Ég
bauð 25 manns fyrir utan mína 5
manna fjölskyldu og setti upp lang-
borð. Gestirnir ráku upp stór augu
þegar ég bar fram villigæsirnar með
ýmsum ávöxtum inni í, því bjuggust
þeir ekki við.
Ég fékk góðar leiðbeiningar hjá
veitingamönnum sem ég þekki og
sem sögðu mér að elda gæsirnar dag-
inn áður og bera þær fram nið-
urskornar og kaldar með heitu með-
læti. Þetta var sælgæti.
Í fimmtán ár hefur annars verið
hefð hjá okkur að borða hnetusteik á
aðfangadagskvöld. Uppskriftina fékk
ég í bókinni: „Hátíðamatur jurta-
ætunnar“, þetta er dönsk bók sem
tengdamóðir mín gaf mér ungri
stúlku. Með hnetusteikinni hef ég
rjómasósu sem svolítil kokteilsósa
gefur bleikan lit. Hún kallast Pamela
eftir Pamelu Anderson. Krakkarnir
eru alltaf spennt að smakka hvernig
Pamelan er á hverjum jólum. Með
þessu ber ég fram hrátt rauðkál og
grænar baunir sem ég legg sjálf í
bleyti og kartöflur í paprikufeiti. Í
eftirrétt hef ég osta- og ávaxtasalat.
Matseðilinn okkar er ólíkur því
sem gerðist á æskuheimilum okkar
hjóna, en ég hef tekið ýmislegt annað
inn, laufabrauðið, föndrið og jóla-
kortin. En fyrst og fremst gefum við
okkur tíma til að eiga stundir saman
á aðventunni og njóta þeirra stunda.“
Irpa Sjöfn Gestsdóttir gaf mömmu sinni englana þrjá – systkinin þrjú – bakk-
ann gerði hún sjálf. Portúgalska rauðvínshundinn gáfu þau Vífill Magnússon
arkitekt og kona hans Halla Hannesdóttir Gesti og Brögu fyrir nokkru.
JÓHANN Gunnar Guðmundsson er
mikill herramaður og fer fram á að
fá að sýna blaðakonunni herbergið
sitt á Grund og spjalla við hana þar.
Hann segist vera dálítið jólabarn í
sér.
„Ég man að þegar ég var lítill
hlakkaði ég mikið til jólanna,“ segir
hann. „Þau byrjuðu alltaf á því að
mamma var að laga til. Svo þegar ég
varð eldri var ég ekki alltaf heima á
jólunum, því ég var á sjó í ein þrjátíu
til fjörutíu ár.“
Jóhann segir að hefðir tengdar
jólunum hafi ekki verið mjög sterkar
í hans fjölskyldu.
„Við bjuggum nú fyrstu árin í
torfkofa og þá var moldargólfið á
ganginum inni þrifið fyrir jólin. Allt
var þrifið hátt og lágt áður en jóla-
tréð kom,“ segir hann. „Ég man líka
að ég hlakkaði alltaf mikið til að fá
epli, en þau fékk ég bara á jólunum.
Það var ekki svona mikið góðgæti
eins og í dag.“
Boðskapur jólanna týnist
í neyslubrjálæðinu
Jóhann segist ekki hafa haldið í
neinar jólahefðir en honum finnst
margt hafa breyst við jólahaldið.
„Það er miklu meira skraut núna
og miklu meira farið í verslanir,“
segir hann og er greinilega hissa á
verslunaræðinu sem heltekur marga
þegar jólahátíðin nálgast. „Þegar ég
var unglingur var bara farið í versl-
un einu sinni fyrir jólin en nú er jafn-
vel farið á hverjum degi í fullt af
búðum.“
Jóhann segir að nú geti maður
fengið allt til alls, en þannig hafi það
ekki verið í gamla daga.
„Ég man þá tíð að vörurnar voru
skammtaðar,“ segir hann. „Þá var
ég sendur út í búð með miða sem
maður fékk vörur fyrir.“
Jóhann segist fara lítið í kirkju, en
að messað sé í hátíðarsalnum á
Grund og hann hlusti á það. En ætli
boðskapur jólanna eigi það til að
týnast í neysluæðinu?
„Já, það finnst mér nefnilega,“
segir Jóhann að lokum og kveður
kumpánlega.
Bjó í torfkofa og
hlakkaði til að fá
epli á jólunum
Morgunblaðið/Ásdís
Jóhann Gunnar Guðmundsson