Morgunblaðið - 25.11.2005, Page 63
Jólablað Morgunblaðsins 2005 63
ÞAÐ er skemmtilegur og
notalegur jólasiður að senda
kort til ættingja og vina. Sum-
ir gera jólakortin sín sjálfir og
leggja jafnvel í það mikla
vinnu. Guðrún Arnfinnsdóttir
er snjöll hannyrðamanneskja
og hefur gert jólakort af
ýmsu tagi. Guðrún Guðlaugs-
dóttir heimsótti hana og fékk
leiðbeiningar um hvernig á að
gera þau kort sem hún ætlar
að senda í ár.
Jólakortagerð
Guðrúnar Arnfinnsdóttur
Það sem til þarf í efni:
kortapappír A4 (Skólavörubúðin)
litir (Fabric Transfer Paint) (Skóla-
vörubúðin)
lím sem límir saman pappír og tau
og skemmir hvorugt
pólýesterefni með glanshúð
eða silkiefnisbútar
vatt
Verkfæri/tæki:
beittur oddmjór skurð-
arhnífur (Föndra)
skapalón (Föndra)
strauborð
straujárn
Fyrst er A4-örkin tekin
og skorin í tvennt (A5), síð-
an brotið saman og þannig fæst kort
(hluti 1). Síðan er skapalónið sett á
annan hlutann og skorið úr með hnífn-
um (kominn rammi fyrir myndina).
Skerið hinn hlutann af A4-örkinni
aftur í tvennt (A6), verður það hluti 2.
Takið hvítt A4-blað og merkið flöt í
miðjuna eins stóran og þið viljið hafa.
Litið þennan flöt með þeim litum sem
þið viljið hafa, einum eða fleiri. Látið
litina þorna á blaðinu.
Klippið efnið hæfilega stórt (best
er að hafa efnið aðeins rúmlega
hringinn á kortinu).
Setjið efnið sem nota á á strau-
borðið, passið að láta réttuna á efninu
snúa upp.
Klippið út úr pappír bjöllu eða hvað
sem þið viljið og látið ofan á efnið.
Leggið pappírinn sem búið var að
mála og er orðinn þurr ofan á efnið og
bjölluna sem er ofan á efninu. Passið
að láta málninguna snúa að efninu.
Hitið straujárnið. Notið heitt
straujárnið til þess að strauja litinn af
blaðinu á efnið.
Klippið efnið síðan passandi inn í
kortið (hluta 1), límið það þannig að
litaða efnið snúi út og verði framan á
kortinu. Setjið smávatt undir bakhlið
efnisins og lokið kortinu að innan með
því að líma hluta 2 yfir vattið og efnið.
Síðan skreytir hver fyrir sig eins
og hann vill.
Heimagerð jólakort
Jólakortin sem Guðrún hefur hannað og gefur leiðbeiningar um vinnslu á.
Guðrún
Arnfinnsdóttir
Ein áskrift...
...mörg blöð
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141