Morgunblaðið - 25.11.2005, Síða 64
64 Jólablað Morgunblaðsins 2005
ÞETTA skemmtilega kvöld varð
meðal annars til ein syndsamlega
góð súkkulaðiterta sem hreinlega
bráðnar uppi í manni og nokkrar
tegundir af smákökum. Þar á með-
al eru litlir snjóboltar með kanil
sem gefur þeim skemmtilegt jóla-
bragð, ljósar og dökkar samlokur
með silkimjúkri súkkulaðifyllingu,
appelsínublúndur með rjómasúkk-
ulaðikremi, skemmtileg jólatré
með hlynsírópi sem gefur þeim ný-
stárlegan keim og stökkir súkku-
laðibitar sem minna á hraunmola
sem gægjast upp úr snjónum.
Appelsínublúndur
50 g ljós púðursykur
1½ msk appelsínusafi
1 msk brætt smjör
2½ msk hveiti
½ tsk fínt rifinn
appelsínubörkur
Hitið ofninn í 200°C. Blandið saman
púðursykri, appelsínusafa og bræddu
smjöri. Hrærið saman við hveiti og
rifnum appelsínuberki.
Þegar frost er í lofti, ný-
fallinn snjór leggur
breiðu sína yfir borg og
bæ og jólin nálgast er
tilvalið að koma saman
og baka fyrir jólin.
Vinkonurnar Harpa
Grímsdóttir og Sigur-
björg Arnarsdóttir hitt-
ust eina kvöldstund,
bökuðu kökur og góð-
gæti og komust í gott
jólaskap í leiðinni.
Morgunblaðið/Kristinn
Jól í hverjum bita
ofan á pappírinn og bakið við 180 °C í
10 mín., fjarlægið baunirnar og
pappírinn og setjið aftur í ofninn í
aðrar 10 mínútur. Kælið nú botninn.
Fylling
5 dl rjómi
2 dl rifsberjahlaup tært
300 g suðusúkkulaði
Setjið rjómann og rifsberjahlaupið í
pott og hitið að suðu, takið af
hellunni og brytjið súkkulaðið út í,
hrærið vel og látið kólna í u.þ.b. 15
mín. Hellið fyllingunni í botninn og
látið standa í ísskáp í um tvær klst.
Þá má taka tertuna út og skreyta
með berjum ef vill.
í ísskáp í að minnsta kosti fjórar klst.
eða yfir nótt. Setjið um eina tsk. af
kremi á flötu hliðina á kökunni og
leggið hinn helminginn á og þrýstið
lítllega þannig að myndist samloka.
Súkkulaðiterta
Botn
300 g smjör (við stofuhita)
100 g hrásykur
1 tsk vanilludropar
60 g kakó
330 g hveiti
Setjið smjör, sykur og vanilludropa í
hrærivélarskál og hrærið vel saman
þar til blandan verður létt og ljós.
Bætið kakóinu út í og hrærið, hveiti
bætt út í og hrært vel saman.
Setjið deigið á smjörpappír og mótið
í hring, geymið í ísskáp í u.þ.b. eina
klst.
Takið deigið úr ísskápnum og látið
það bíða í u.þ.b. 10 mín. Setjið einnig
smjörpappír ofan á deigið og fletjið
út í stærri hring með kökukefli.
Fjarlægið efri pappírinn, takið út-
flatt deigið upp á neðri pappírnum og
setjið ofan í formið. Aðlagið deigið að
köntunum á forminu, má standa upp
fyrir kantinn. Leggið nú hinn papp-
írinn aftur yfir deigið í forminu og
setjið þurrkaðar baunir eða hrísgrjón
Setjið á bökunarplötuna með teskeið
og hafið um 5 sm á milli. Bakið þang-
ið til kökurnar eru orðnar ljósbrúnar
eða í um 12–14 mínútur.
Látið kökurnar kólna í nokkrar mín-
útur áður en þær eru teknar af bök-
unarplötunni.
Krem
100 g rjómasúkkulaði
1 dl rjómi
Brytjið súkkulaðið í bita og setjið í
skál. Hitið rjómann í litum potti að
suðumarki. Hellið yfir súkkulaðið og
látið standa í hálfa mínútu áður en
blandan er hrærð saman þar til hún
verður mjúk og samfelld. Látið kólna
Appelsínublúndur
Stökkir súkkulaðibitar
125 g smjör
60 g suðusúkkulaði
125 g ljós púðursykur
1 egg
1 tsk vanilludropar
100 g hveiti
3 msk kakó
½ tsk matarsódi
75 g bolli flórsykur
Setjið smjör og súkkulaði í lítinn
pott og bræðið saman við lágan hita
þangað til blandan er komin vel
saman.
Hellið súkkulaðiblöndunni í stærri
skál og látið kólna lítillega, setjið
púðursykurinn saman við og hrærið
vel saman. Egg og vanilludropar síð-
an sett út í blönduna og allt þeytt
saman þangað til blandan er orðin
létt og ljós.
Sigtið saman hveiti, kakó og mat-
arsóda. Blandið hveitiblöndu í
skömmtum varlega saman við
súkkulaðiblönduna og hrærið var-
lega saman.
Setjið filmu yfir deigið og inn í ís-
skáp 1 klst. eða þangað til deigið er
orðið stíft.
Hitið ofninn í 190°C. Mótið litlar
kúlur úr deiginu og veltið þeim upp
úr flórsykri þannig að öll kúlan hylj-
ist vel.
Setjið kúlurnar á bökunarplötuna
með u.þ.b. 5 cm millibili.
Bakið kökurnar þangað til þær hafa
lyft sér og flórsykurshúðin hefur
sprungið, u.þ.b. 12 mínútur.
Látið kökurnar kólna í nokkrar mín-
útur á plötunni áður en þær eru
færðar yfir á rist.
Svart og hvítt
330 g hveiti
100 g sykur
240 g smjör
1 eggjarauða + eitt egg
½ tsk vanilludropar
3 msk kakó
Hveiti og sykur sett í hrærivél-
arskál, smjörinu bætt út í í tvennu
lagi og hrært vel á milli, þar til deig-
ið fer í mylsnu.
Bætið út í eggjarauðunni og van-
illudropunum, hrærið vel saman.
Skiptið deiginu til helminga, og
setjið kakóið út í annan þeirra.
Hnoðið hvorn helminginn fyrir sig og
mótið í aflangan ferning, gott að
setja deigið í plastfilmu og móta
það þannig. Setjið í ísskáp í u.þ.b.
30 mín.
Takið ferningana út og kljúfið þá í
fernt, þannig að úr verði fjórar dökk-
ar og fjórar ljósar ræmur.
Takið eggið og pískið í bolla, pensl-
ið nú þá helminga sem eiga að
leggjast saman, ljós, dökkur og
dökkur, ljós (eins og taflborð) þann-
ig að úr verða tveir ferningar. Setjið
þá í ísskáp í 30 mín.
Skerið ferningana í sneiðar með
beittum hníf, raðið á plötu og bakið
í 12–15 mínútur við 170°C.
Hlynsírópskökur
150 g hrásykur
240 g smjör (við stofuhita)
½ bolli hlynsíróp
2 tsk vanilludropar
1 eggjarauða
400 g hveiti
Sykur og smjör hrært saman þar til
það verður létt og ljóst.
Bætið þá við sírópi, vanillu og
eggjarauðu og hrærið vel saman.
Bætið hveitinu út í og hrærið vel.
Setjið deigið í skál og geymið í ís-
skáp, þar til það er vel kalt, helst yf-
ir nótt.
Hnoðið deigið og fletjið út, skerið út
kökur og bakið í 10–12 mín. við
175 °C.
Stökkir súkkulaðibitar. Svart og hvítt.
Morgunblaðið/Kristinn
Hlynsírópskökur.