Morgunblaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 70
70 Jólablað Morgunblaðsins 2005 NÚ LÍÐUR að fyrstu jólunum í ára- tugi sem þau Magni R. Magnússon kaupmaður og kona hans Steinunn Guðlaugsdóttir geta um frjálst höfuð strokið fyrir verslunarönnum. Þau seldu búð sína við Laugaveginn, Hjá Magna, og hættu verslunarrekstri 1. október sl. Við versluninni tók ungt og áhugsamt fólk en vikurnar sem liðnar eru síðan hafa þau Magni og Steinunn að eigin sögn notað til að taka til á loftinu á Laugaveginum og koma öllu því sem þar var geymt í íbúð sem þau hafa keypt sem geymslu. Það mun víst ekki af veita því Magni er einn öflugasti safnari landsins. En hvernig skyldu allir des- embermánuðirnir sem liðnir eru líta út í minningunni? „Desember var bæði skemmti- legur og stundum ansi erfiður, sér- staklega eftir að afgreiðslutíminn lengdist,“ segir Magni. Blaðamaður situr við borðstofuborðið á glæsilegu heimili þeirra hjóna inn við Laug- arnesveg og gerir sér gott af kaffi og meðlæti því sem frú Steinunn hefur borið á borð. „Fyrst var bannað að hafa opið á laugardögum. Fyrst eftir að við byrj- uðum að versla á Laugaveginum kom lögreglan og sagði: „Því miður, Magni, það má ekki vera opið á laug- ardögum nema fyrir minjagripaversl- anir og blómabúðir.“ Skömmu seinna opnaði Kringlan og þá mátti vera opið liggur við allan sólarhringinn og þá komu líka sunnu- dagsopnanir til skjalanna. Það hefur farið illa með marga einyrkja að hafa opið frá 10 að morgni til 10 að kvöldi stóran hluta desember og sunnudaga líka. Áttu marga góða viðskiptavini En í þessa áratugi sem við höfum verið með verslun höfum við haft skemmtilega og góða viðskiptavini sem við söknum að sjálfsögðu en vit- um jafnframt að þeir verða áfram hjá ungu hjónunum sem tóku við versl- uninni. Þetta gekk nú svoleiðis fyrir sig áð- ur í desember að á morgnana kl 9 fór- um við Steinunn til heildsalanna til að velja og kaupa inn og eins pöntuðum við beint, þá gátum við skroppið á sýningar erlendis og valið hluti. Síðan var ös allan daginn, frá morgni til kvölds. Það var mjög gaman þegar við sáum jól eftir jól sömu andlitin, mér eru minnisstæð mæðgin sem komu ár eftir ár með lista yfir jóla- gjafir, maður sá drenginn vaxa upp.“ Breyttust ekki jólagjafirnar á þessu tímabili? „Jú, á hverju ári komu nýir leikir sem slógu í gegn. Lengi vel gátum við keypt það sem var á markaðnum en svo snerist dæmið við þegar leik- urinn; Viltu vinna milljón, kom út. Ég ætlaði að panta hann en Baugur sem dreifði spilinu neitaði, þeir sögðu að spilið færi aðeins í þeirra búðir. Það er besta auglýsing sem ég hef fengið þegar þetta komst í blöðin, þau sögu: Magni fær ekki Viltu vinna milljón – ekki einu sinni hálfa milljón. Þá streymdu til okkar viðskiptavinir sem voru að mótmæla þessum yfirgangi. Tölvuspilin sem komu út 1982 voru vinsæl og eru enn í sölu. Töfratening- inn fengum við og seldum 8.200 stykki af honum áður en aðrir fengu hann í sölu. Strákurinn okkar leysti hann á tveimur mínútum, stóð úti á götu og rétti teninginn að fólki allan ruglaðan. Spilin hans Muggs seldust alltaf vel og eins fornmannaspilin. Hillary Clinton fékk sér t.d. forn- mannaspil handa Bill, það hefur von- andi haft ofan af fyrir honum. Skemmtilegt var líka þegar þeir sem komu til okkar sem börn að komu með eigin börn til að sýna þeim manninn sem seldi þeim spil í gamla daga.“ Hóf safnaraferilinn 7 ára Magni hóf feril sinn sem safnari 7 ára gamall þegar föðurbróðir hans gaf honum þvottaefnispakka fullan af frímerkjum. Árið 1964 stofnaði hann Frímerkjamiðstöðina með tveimur félögum og var með þeim í 15 ár, þá seldi hann sinn hlut og fór að versla með konu sinni, það var árið 1980. „Smám saman vatt þetta upp á sig og við fórum að selja spil af öllu tagi, það var nauðsynlegt, þegar sjón- varpið kom eyðilagði það endurnýjun á safnarastofninum.“ En hvernig leggst hin nýja skipan mála í Magna? „Mér finnst þetta jólastand byrja alltof snemma. Áður fyrr þegar opið var fyrsta laugardag til 4 þá hlökkuðu allir til að fara í bæinn, en opn- unartíminn varð svona langur alla daga og þá breyttist allt og tilhlökk- unin varð minni. Undanfarin jól hefur dóttir okkar boðið okkur heim á jól- unum, síðan höfum við farið heim og ekki farið úr náttsloppunum, reynt bara að hvíla okkur. En það var til- valið að hætta fyrir þessi jól, ég á sjö- tugsafmæli um þessar mundir.“ En hvað segir Steinunn um breyt- ingarnar? „Börnin okkar þrjú, Oddný Elín, Guðmundur Haukur og Ingibjörg ól- ust upp í þessu verslunarandr- úmslofti fyrir jólin en það kom minna að sök því maður var svo duglegur í þá daga. Ég hélt í hina hefðbundnu jólasiði, bakaði, bjó til konfekt og gerði allt hreint út úr dyrum, gerði allt eins og mamma.“ Steinunn er ekki óvön verslunar- annríki í desember, faðir hennar var hinn kunni kaupmaður Guðlaugur Pálsson sem afar lengi verslaði á Eyrarbakka. „Við höfðum alltaf með svínasteik eða pekingendur meðan börnin voru heima og svo eplaköku á eftir, eins og mamma hafði. Áður en börnin okkar fæddust vorum við boðin til móður Magna. Elsta dóttirin fæddist 1964, 29. desember,“ segir Steinunn. „Hún kom mátulega inn í skatt- skýrsluna,“ skýtur Magni inn í. „Heimilið var mikið skreytt meðan börnin voru lítil. Á jóladag vorum við hjá Ingveldi systur minni sem hafði jólatré á miðju gólfi sem allir gengu í kringum. En svo fjölgaði börnum og barnabörnum svo þessi siður lagðist af.“ En skyldu þau hjónin og fjölskylda þeirra spila mikið um jólin? „Já, það hefur alltaf verið eitthvert spil sem við höfum verið að spila, í fyrra hjá dóttur okkar var spilað Jenga,“ segir Magni. „Oft kom fólk inn og vildi fá Lúdó fyrir unglinginn sinn, en þá benti ég gjarnan á önnur spil og svo kom við- komandi kannski milli jóla og nýárs til að segja hvað nýja spilið hefði sleg- ið í gegn. Oft létum við spilastokk detta í pokann hjá eldri konum og sögðum: „Þetta er fyrir þig til að leggja kapal.“ Notaleg jól hjá ömmu og afa Það er greinilega margs skemmti- legs að minnast frá verslunarárunum en hvað skyldi koma upp úr dúrnum ef spurt er um bernskujólin? „Ég er alinn upp hjá afa og ömmu, Guðmundi Gíslasyni og Oddnýju El- ínu Jónasdóttur,“ segir Magni. „Hjá þeim átti ég róleg og notaleg jól. Það var skreytt jólatré með lifandi ljósum og svo borðuðum við lambahrygg. Amma var dugleg og ráðagóð, ég man að einu sinni kviknaði í jóla- trénu, húm greip það og hljóp með það fram á milligang og sló því utan í þar til eldurinn slokknaði. Það var aldrei panik í ömmu. Afi sagði mér um hver jól söguna um manninn sem öll áramót fór í helli, þar var pottur fullur af gullpeningum og hann mátti aðeins taka einn gullpening um hver áramót. En ein áramótin hugsaði maðurinn: „Það sér mig enginn hérna,“ svo hann tók hnefafylli af gullpeningum og þá breyttist gullið í glóandi blý og brenndi höndina á hon- um. Þetta gerði græðgin. Ég bjó hjá ömmu og afa þar til ég var 28 ára og giftist Steinunni. Lengi bjuggum við á Laugavegi 70B, þetta var lítil íbúð, ein stofa og eldhús, ég svaf inni hjá ömmu og afa og var þar með lítið skrifborð þar til ég gifti mig og leið mikið vel. Þá voru afi og amma á níræðisaldri. Þau voru síðast á Elli- heimilinu Grund. Amma bað mig þess lengstra orða að vera góðan við Stein- unni.“ Og var hann góður við þig? spyr ég Steinunni. „Já, mjög góður,“ segir hún og brosir. Magni segist snemma hafa farið að selja blöð og fljótt átt sinn viðskipta- mannahóp. „Skattskrána seldi ég líka, hún var gefin út og var rándýr, ég fékk eina fría fyrir hver 20 eintök. Ég fór í fyr- irtæki og tók áskrift fyrirfram og náði þannig mikilli sölu.“ Það hefur sem sagt snemma beygst krókurinn. Eftir að hafa unnið á Símanum fór Magni í Samvinnuskólann 17 ára. „Þeir vildu gera mig að kaupfélags- stjóra að loknum prófum en ég kvaðst ekki aðhyllast samvinnustefn- una og fór í skurðgröft, kennurunum til hrellingar.“ Magni fór því næst að vinna í Landsbankanum og starfaði þar í nokkur ár. „Þeir buðu mér að verða útibús- stjóri en ég hafði meiri áhuga á eigin viðskiptum,“ segir Magni. Þetta eru rúsínurnar okkar! Bernskujól Steinunnar voru að hennar sögn yndisleg. „En ég var að hjálpa pabba í búð- inni fyrir jólin,“ segir Steinunn. Hún kemur úr stórum systkinahópi, næst- yngst af 5 alsystkinum og líka eina hálfsystur, sem er elst af hópnum. „Ég man að einu sinni kom maður inn í búð fyrir jólin að spyrja um rús- ínur. „Nei, því miður, það eru engar rús- ínur til,“ sagði pabbi. Þá opnaði ég skúffu og sagði: „Þetta eru rúsínurnar okkar!“ Pabbi varð að láta hann hafa kíló af rús- ínum. Alltaf fyrir jólin lét pabbi mig fara með sveskjur og súkkulaði til fá- tæks fólks, ég man sérstaklega eftir þýskum flóttahjónum sem voru ný- lega búin að eignast barn. Konan gaf mér að drekka ávaxtasafa, rauðan, sem mér fannst svo góður að ég hef aldrei gleymt honum. Þegar ég var 8 ára byggði pabbi of- an á búðina og þar bjuggum við svo eftir það. Þá voru eldri systkinin öll farin, bara einn bróðir og við tvær systur vorum eftir. Svo fór bróðir okkar og við systurnar vorum tvær eftir, sváfum saman í herbergi. Við fengum óskaplega fallegar jólagjafir frá elstu alsystur okkar, minnisstæðar eru mér dúkkur sem hún hafði saumað og heklað föt á. Við máttum aldrei hafa lifandi ljós á jólunum, pabbi var svo eldhræddur. Við fórum í kirkju, jólin voru guð- rækilegri en þau eru nú.“ Jólin í ár verða með öðrum hætti en vant er hjá þeim Magna R. Magnússyni og Steinunni Guð- laugsdóttur. Guðrún Guðlaugsdóttir ræddi við þau um lok verslunarreksturs þeirra við Laugaveginn, jólahald og margt annað úr lífshlaupinu. Nú verða öðruvísi jól hjá þeim Steinunni og Magna. Myndin er tekin á heimili þeirra við Laugarnesveg. Magni og Steinunn nýgift árið 1964 á Eyrarbakka. Öðruvísi jól
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.