Morgunblaðið - 25.11.2005, Page 75
Jólablað Morgunblaðsins 2005 75
FYRIR jólin býður Hafliði upp á
kryddlagköku sem hann er mjög
hrifinn af.
„Hún gæti alveg átt við allt árið
en best er að geyma hana alveg
fram að jólum og nota hana bara þá.
Eins og flestar okkar uppskriftir
kemur lagkakan að heiman,“ segir
hann. „Við höldum í gamlar fjöl-
skylduuppskriftir með því að velja í
þær réttu hráefnin. Við notum til
dæmis smjör þar sem við á. Við velj-
um ekki sérstaklega ódýrari hrá-
efni, því bragðið verður að skila
sér.“
Föðurforeldrar Hafliða ráku bak-
arí á Ísafirði og þaðan koma margar
uppskriftir.
„Uppskriftirnar eru alveg upp-
runalegar,“ segir hann. „Ég var
mikið í sveit hjá móðurömmu minni
þegar ég var lítill og hún var alltaf
að baka. Í hvert einasta skipti sem
maður kom í heimsókn voru kökur í
skápnum. Þaðan koma uppskriftir,
tilbrigði og áhugi.“
Jólalagkaka (randalína)
350 g sykur
350 g smjör
350 g egg
35 g kakó
420 g hveiti
2 tsk. hunangskrydd
1 tsk. kanill
½ tsk. engifer
½ tsk. negull
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. brúnkökukrydd
2 tsk. vanilludropar
Hrærið sykur og smjör saman og
bætið 2⁄3 af eggjunum saman við
hægt og rólega. Sigtið þurrefnin
saman í skál og bætið þeim svo ró-
lega saman við blönduna ásamt
restinni af eggjunum. Skiptið jafnt
niður í tvo hluta á bökunarpappír og
smyrjið jafnt út tvær ofnskúffur.
Bakið við 230°C í 12–15 mín.
Leggið saman með smjörkremi og
einu lagi af jarðarberjasultu í miðj-
unni.
Smjörkrem
250 g smjör
250 g flórsykur
Vanilludropar til að bragðbæta
Bræðið 100 g af smjörinu og kælið
örlítið, hrærið rólega saman restinni
af smjörinu og flórsykrinum og hell-
ið svo brædda smjörinu saman við
og hrærið upp. Bragðbætið með
vanilludropum.
Upprunalega
lagkakan að heiman
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sígild randalína eða lagkaka sem
gott er að grípa til.
Nýtt meistarastykki úr smiðju
Gunnhildar Hrólfsdóttur
Áleitin
og einlæg.
Saga um samkyn
hneigða stúlku og
fjölskyldu hennar.
F a x a f e n i 1 0 – S í m i 5 6 8 1 0 0 0 – w w w . f r u m . i s
Fr
u
m
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Hágæða
ítalskar
kápur
Mikið úrval af
fallegum
aðventukrönsum
Laugavegi 63
(Vitastígsmegin)
sími 551 2040Silkitré og silkiblóm
Fréttir á SMS
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111