Morgunblaðið - 25.11.2005, Qupperneq 83
Jólablað Morgunblaðsins 2005 83
ýmis mismunandi efni eru í tann-
kremi sem sum geta eytt og skemmt
silfrið, tannkrem er ekki annað en
slípimassi fyrir tennur og hentar ekki
fyrir silfur.
Gulir trefjaklútar viðhalda gljáa
En auk þess sem fyrr greinir get
ég nefnt að ég eignaðist tuskur frá
Enjo, náttúruvænar, sem hafa reynst
mér vel. Þær eru í ýmsum litum og ég
gerði tilraun með gular trefjatuskur,
sem eru fægituskur. Engin efni eru í
þessum trefjatuskum en ég get hald-
ið við nokkuð lengi gljáa á silfri án
þess að fægja það með því að þurrka
léttilega yfir.
Silver Wipes og trefjatuskur
spila vel saman
Mín 36 ára reynsla af silfri hefur
kennt mér að best er að nota Silver
Wipes í upphafi og halda svo gljáan-
um við með trefjastuskum frá Enjo.“
Er hitaveituvatnið hættulegur
óvinur silfurs?
„Ekki vatnið kannski sem slíkt,
það er ekki hitaveituvatnið sjálft sem
er að ergja okkur, það er brenni-
steinninn. Oft þegar maður kemur út
má finna brennisteinslykt í loftinu, þá
má beinlínis horfa á hvernig fellur á
silfrið inni í hillu. Einnig hefur reykur
af kertaljósum þau áhrif að það fellur
á silfrið.“
Hvernig best er að geyma silfur
En hvernig er best að geyma silfur
til að sem minnst falli á það?
„Aldrei að hafa plast næst því. Ef
maður á ekki poka utan um silfrið,
sérsaumaða, þá er best að vefja það í
hreinan klút og síðan í plast eða
pappír.“
Er hægt að hrúga silfri saman og
geyma það svo í klút inni í plasti?
„Nei, þá fer fíni glansinn. Betra er
að hafa hlutina aðskilda. Nota má t.d.
eldhúsrúllur, vefja hvern gaffal, te-
skeið og hníf sér inn í pappír og síðan
setja klút utan um allt saman og svo
plast. Ég endurtek að plast má ekki
liggja næst silfrinu.“
Hvers vegna?
„Ástæðan er ofureinföld. Ég og
maðurinn minn Logi Magnússon, en
við rekum saman fyrirtækið Silf-
urhúðun, höfum séð ótrúlega hluti,
komið hefur verið með til okkar hluti
sem vafðir voru inn í plast og búið var
að geyma einhvern tíma. Það virkaði
eins og ysta lagið á silfrinu hefði bein-
línis bráðnað. Plastið getur greini-
lega valdið einhverjum efnabreyt-
ingum sem ég kann ekki skil á en hef
séð áhrifin af. Þessar efnabreytingar
valda sem sagt skemmdum á ysta
laginu og þar með á gljáanum.“
Silfurplett á að geyma
eins og silfur
En á að geyma silfurplett eins og
silfur?
„Silfurplett er hlutur húðaður með
hreinu silfri svo það er nákvæmlega
sama aðferðin sem hentar til geymslu
á því.“
Hvenær er ástæða til að hlutir fari
til silfurhúðunar?
„Þegar silfurhúðin er farin af í
blettum eða hefur eyðst
verulega. Þá koma fram
málmar í ýmsum litum.“
Flesta málma er
hægt að endurhúða
Er hægt að húða alla
hluti upp á nýtt?
„Nei, ekki alla. Ekki er
t.d. alltaf hægt að end-
urhúða tin en oftast er það
þó hægt. Aðra málma er í
flestum tilvikum hægt að
húða aftur.“
Er silfur á undanhaldi?
„Við höfum séð ýmislegt í þeim
efnum í gegnum árum, notkun silfurs
dettur niður og kemur upp aftur.
Núna er notkun á silfri orðin almenn-
ari og jafnari en áður var, enda er
fólk í ríkara mæli að erfa fallega hluti
sem hafa tilfinningagildi fyrir það,
sem þess vegna er haldið upp á og
þeir varðveittir og endurnýjaðir eftir
þörfum.“
Gljáfægð silfurkanna er augnayndi.
Klapparstíg 44 - sími 562 3614
SÆNSK
JÓLAVARA
Silfur servíettuhringur
Holtasóley
Gull- og Silfursmiðjan Erna
Skipholti 3 • sími 552 0775 • www.erna.is
Servíettuhringur verður, ef guð lofar,
smíðaður eftir nýrri teikningu fyrir hver jól.
Hann leysir af hólmi jólasveinaskeiðina, en
allar 13 skeiðarnar verða fáanlegar áfram.
Kr. 4.900
Áttu leið í bæinn?
– stæði fyrir alla
... svo í borg sé leggjandi
Nú er einnig hægt að greiða
fyrir stæði við stöðu- og miða-
mæla í gegnum gsm-síma.
Upplýsingar um skráningu
á www.rvk.is/bilast
Á bíl í jólaösinni í miðborg Reykjavíkur.
Hvað má bjóða þér? Miðastæði,
stöðumæli eða bílahús. Viltu greiða
með korti eða krónum, eða kannski
gsm símanum þínum?
Tímamiðar úr miðamælum gilda
áfram þegar lagt er við stöðumæli
innan sama gjaldsvæðis.
Ótakmarkaður tími býðst á stöðu-
mælum í miðborginni.
Í desember verða bílahúsin opin
klukkustund lengur en verslanir
í miðborginni. Gleðilega aðventu!
N
æ
st