Morgunblaðið - 25.11.2005, Síða 89
Jólablað Morgunblaðsins 2005 89
ástandið virðist sérlega gott hjá öll-
um hinum. Þess vegna er starfið hjá
okkur í Hjálpræðishernum hér mik-
ilvægt og líka það mikla starf sem
unnið er á vegum hersins í 111 lönd-
um, þar sem m.a. eru auk dval-
arheimila reknir skólar og líkn-
arstofnanir og neyðaraðstoð fyrir þá
sem lenda í hamförum. Hjálpræð-
isherinn stendur fyrir hjálparstarfi
m.a. í Pakistan, herinn miðlar því
sem almenningur gefur til starfsins
og skipuleggur.
Veita lán og styrki til náms
Alþjóðaheimasíða Hjálpræð-
ishersins er salvationarmy.org, þar
er hægt að fræðast um starf Hjálp-
ræðishersins. Það nýjasta sem her-
inn fæst við er svokallað „fair trade“,
eða sanngjörn viðskipti. Það byrjaði
með því að herinn veitti vænd-
iskonum í Bangladesh lán eða styrk
til þess að hefja nám eða störf.
Áhersla er lögð á mannsæmandi at-
vinnukjör og kaup og varan er svo
seld á réttlátu verði í útlöndum. Ver-
ið er að vinna gegn fátækt og man-
sali og reynt að spyrna gegn þeirri
þróun að fátækar þjóðir séu arð-
rændar. Nú er þetta starf hafið í
Tanzaníu og Perú og er að breiðast
meira út. Hjálpræðisherinn hér hef-
ur fengið hingað ungt fólk frá Perú
og Noregi sem er að kynna þetta
starf í skólum og vörurnar fást hér
hjá okkur í Hjálpræðishershúsinu,
fyrirtæki geta líka sérpantað þessa
hluti. Mest er verið að selja töskur,
veski, ýmiss konar pappírsunnar
vörur, handofna silkipúða sem lengi
er verið að búa til og fleira af þessu
tagi.“
Þess má geta að launaðir starfs-
menn Hjálpræðishersins á Íslandi
eru nú 7 talsins en talsvert fleiri
starfsmenn starfa hjá hernum eða
koma að starfinu sem sjálfboðaliðar.
Fatabúðin í Garðastræti er t.d. rekin
af sjálfboðaliðum og líka fatabúðin
að Hvannavöllum 10 á Akureyri.
Peningarnir sem þar koma inn fara í
hið almenna starf Hjálpræðishersins
og einnig til gjafa.
Morgunblaðið/Þorkell
Gengið í kringum jólatréð á hátíðasamkomu hjá Hjálpræðishernum.
Jólin nálgast
Gefðu hlýju
Laugavegi 87
s. 511 2004 – 511 8740
Kringlunni og Smáralind • S. 553 7010 og 554 5408
FALKE
Þekjandi barnanælonsokkabuxur með fínlegu munstri.
Hvítar, drapplitaðar, fölbleikar og svartar.
Stærðir 80-164 (svartar frá 122)
Kr. 990.
Í allar lúgur
á höfuðborgarsvæðinu