Morgunblaðið - 25.11.2005, Page 97
Jólablað Morgunblaðsins 2005 97
Í SKÓLUM landsins fer nú fram
mikið starf sem tengist jólunum.
Börnin föndra og baka, allt til að æfa
sig áður en haldið er á móti fullorð-
insjólunum sem bíða í fjarska í langri
röð með margvíslegum skyldum en
vonandi líka einlægum gleðistundum.
Í Árbæjarskóla ræður ríkjum í
kennslueldhúsinu, annar af tveimur
heimilisfræðikennurum skólans, frú
Anna Margrét Þorsteinsdóttir. Hvað
skyldu nemendurnir vera að gera
núna undir hennar handarjaðri?
„Við vorum að enda við að baka
engiferkökur. Þetta eru piparkökur
sem eru mjög góðar og með-
færilegar. Deigið er bara sett með
skeið á plötu og látið bakast í um 10
mínútur.
Þessi uppskrift er orðin um 30 til
40 ára gömul, ég fékk hana þegar ég
var ráðskona á barnaheimilinu í
Steinahlíð,“ segir Anna.
„Þessi piparkökubakstur er ótví-
rætt vinsælastur af því sem við ger-
um hér í skólaeldhúsinu fyrir jólin.
Það kemur jólailmur í húsið. Eftir að
kökurnar eru bakaðar fara bak-
arameistararnir með þær heim til
foreldranna.“
En hvað með þín eigin jól?
„Mín jól eru þannig að þau byrja
þegar ég fer austur í Grímsnes þar
sem ég er búin að eiga hús alla mína
ævi. Þetta hús stendur á Mosfelli í
Grímsnesi og tók við af öðru eldra
sem var með torfþaki. Við hjónin
förum austur á Þorláksmessu og er-
um eins lengi og frídagarnir leyfa,
það hefur gerst að við höfum getað
verið þarna fram yfir áramót.
Kyrrð, myrkur, stjörnur
og norðurljós
Að vera í sveit að vetri til er ómet-
anlegt, myrkrið, kyrrðin, stjörnu-
ljósin og norðurljósin. Við förum
með jólamatinn og jólatréð með okk-
ur og útbúum okkur jólastemmn-
ingu. Börnin okkar tvö komu með
okkur eða heimsóttu okkur á árum
áður. Við skemmum ekki sveitasæl-
una með því að fara suður í jólaboð,
það er frekar að fjölskyldan komi til
okkar.
Mér finnst ég finna fyrst fyrir
jólahelginni þegar ég er komin í
kyrrðina fyrir austan, þótt nú sé
ekki lengur messað í kirkjunni yfir
jólin. Jólamessan er á Borg í Gríms-
nesi.“
Hver eru tengsl þín við Grímsnes?
„Afi minn Guðmundur Einarsson
var prestur á Mosfelli til árins 1948,
þá dó hann en húsið sem hann hafði
reist þarna til elliáranna hafði hann
ánafnað mér, ég fékk það þegar ég
var sex ára.
Á jólunum borðum við hamborg-
arhrygg með meðlæti á aðfanga-
dagskvöld, nartar í hangikjöt á jóla-
dag. Ef veðrið er gott göngum við
úti. Ég á tvær góðar vinkonur á ná-
grannabæjum og reyni að hitta þær
yfir hátíðisdagna og kem svo endur-
nærð eftir sveitaveruna til kennsl-
unnar aftur.“
Engiferkökur
250 g hveiti
250 g púðursykur
125 g smjörlíki
1 egg
½ tsk lyftiduft
½ tsk natron
1 tsk engifer
½ tsk kanell
½ tsk negull
Sykur og smjörlíki hrært ljóst og létt.
Eggið sett út í og hrært mjög vel.
Kryddi og lyftiefnum blandað saman
við hveitið og sett út í eggjahræruna.
Ef deigið er þurrt þá eru búnar til kúl-
ur með höndunum.
Ef deigið er blautt þá er það sett á
plötu með skeið. Bakað við 200°C í um
12 til 15 mínútur.
Jól í sveit
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Anna Margrét í hópi nemenda sinna við engiferkökubakstur.
Hún kennir heimilisfræði
í Árbæjarskóla en heldur
jólin í Grímsnesi. Anna
Margrét Þorsteinsdóttir
segir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur hér frá
jólahaldi sínu í sveitinni
og gefur uppskrift
að engiferkökum.
Full búð af nýjum vörum, frábært verð.
Munið jólaleikinn, glæsilegur vinningur dreginn út á
Þorláksmessu.
Í allar lúgur
á höfuðborgarsvæðinu