Morgunblaðið - 25.11.2005, Page 100

Morgunblaðið - 25.11.2005, Page 100
Í HALLGRÍMSKIRKJU er efnt til tónlistarhátíðar á jólaföstu. Fyrst verður boðið upp á árlega jólatónleika Mótettukórsins, sem verða að þessu sinni jafnframt út- gáfutónleikar geisladisksins Jóla- gjafarinnar sem inniheldur hugljúf íslensk jólalög. Síðan leiðir Björn Steinar Sólbergsson hátíðargesti inn í heim orgeljólatónlistar með hjálp stóra Klais-orgelsins. Að lok- um hljómar Jólaóratóría Jóhanns Sebastians Bachs eins og í fyrra, en nú verður bætt um betur og verkið flutt í heild, allar sex kant- öturnar. Hinn rómaði kammerkór Schola cantorum lætur í sér heyra eftir nokkurt hlé og hinir ungu virtúósar í Alþjóðlegu barokk- sveitinni í Haag koma til Íslands á ný eftir að hafa slegið í gegn í Matteusarpassíunni á Kirkju- listahátíð í ágúst. Þess má geta að þetta verður fyrsti heildarflutn- ingur á Jólaóratóríunni í barokk- stíl hér á landi. Dagskráin í Hallgrímskirkju er á þessa leið: Þriðjudagur 29. nóv. kl. 20. Jólatónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju Mótettukór Hallgrímskirkju, Ísak Ríkharðsson drengjasópran, Sigurður Flosason saxófónleikari og Björn Steinar Sólbergsson org- anisti flytja aðventu- og jólatónlist. Efnisskráin er að þessu sinni byggð á íslenskum jólalögum í við- hafnarbúningi, bæði nýjum og gömlum. Ísak Ríkharðsson syngur meðal annars Hátíð fer að höndum ein og Nóttin var sú ágæt ein ásamt kór, saxófóni og orgeli. Sigurður Flosason og Mót- ettukórinn spinna jólalegan hljóm- vef úr þekktum jóla- og aðventu- sálmum. Stjórnandi: Hörður Áskelsson. Laugardagur 3. des. kl. 17 Jólatónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju endurteknir. Sunnudagur 4. des. kl. 17 Orgeljól Glæsileg jólatónlist fyrir orgel eftir Bach, Daquin, og fleiri. Björn Steinar Sólbergsson, org- anisti Akureyrarkirkju, leikur. Laugardagur 10. des. kl. 17 Jólaóratorían eftir Bach 1.–3. hluti. Einsöngvarar: Hulda Björk Garðarsdóttir sópran, Sesselja Kristjánsdóttir alt, Eyjólfur Eyj- ólfsson tenór, Ágúst Ólafsson bassi, Schola cantorum og The Hague International Baroque Orchestra. Hörður Áskelsson stjórnar. Eitt fegursta og vinsælasta jóla- verk allra tíma hljómar nú í fimmta sinn á vegum Listvina- félagsins, en nú í annað sinn á Ís- landi í flutningi kammerkórs með fullskipaðri barokkhljómsveit. Einsöngvarar koma allir úr röð- um fyrrverandi og núverandi fé- laga Schola cantorum. Alþjóðleg barokksveit frá Haag í Hollandi er skipuð hljóðfæraleikurum frá tutt- ugu þjóðlöndum, sem allir hafa stundað nám við hinn viðurkennda Tónlistarháskóla í borginni. Sunnudagur 11. des. kl. 11 Aðventumessa með Karlakór Reykjavíkur. Sunnudagur 11. des. kl. 20 Jólaóratórían eftir Bach 4.–6. hluti. Flytjendur: sjá að ofan. Hátíð í Hallgrímskirkju Sigurður Flosason og Hörður Áskelsson ásamt Mótettukórnum. 100 Jólablað Morgunblaðsins 2005 ardóttir. Jón Stefánsson stjórnar. Frumflutt verður lag sem Eivör samdi fyrir tónleikana. Laugardag 17. desember Háskólabíó kl. 14 og 17. Jólatónleikar Sinfóníu- hljómsveitar Íslands Fjölskyldutónleikar með blönduðu efni sem að mestu tengist jólunum. Einleikari: Arngunnur Árnadóttir. Sameinaðir barnakórar úr upp- sveitum Árnessýslu og nemendur úr Listdansskóla Íslands. Kynnir er Halldór Gylfason. Bernarður Wilk- inson stjórnar. Aðventkirkjan kl. 16 Dagamunur í desember Jólatónleikar Óperukórsins í Reykjavík. Kl. 15.30 syngur kórinn fyrir gangandi vegfarendur við Ramma- gerðina á horni Bankastrætis og Laugavegar og gengur síðan syngj- andi að kirkjunni. Efnisskráin er mestmegnis helguð jólum; íslensk og erlend hátíðatónlist. Salurinn kl. 16 Sembalvígsla Jory Vinicour vígir nýjan sembal Salarins og Tónlistarskóla Kópavogs með verkum eftir Bull, Byrd, Scar- latti og fleiri. Hallgrímskirkja kl. 17 og 22 Jólatónleikar Karlakórs Reykjavíkur Einsöngur: Ísak Ríkharðsson. Flautuleikur: Guðrún S. Birg- isdóttir. Trompetleikur: Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Páls- son. Organisti: Björn Steinar Sól- bergsson. Drengjakór Reykjavíkur kemur fram á tónleikunum. Friðrik S. Kristinsson stjórnar. Hefðbundir aðventu- og jólatónlist, og eiga gestir syngja með í nokkrum lögum. Langholtskirkja kl. 20 og 23 Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju Kór Langholtskirkju, Graduale- kórinn, Eivör Pálsdóttir, Garðar Thór Cortes og Ólöf Kolbrún Harð- ardóttir. Jón Stefánsson stjórnar. Flutt verður lag sem Eivör samdi fyrir tónleikana. Sunnudag 18. desember Áskirkja kl. 17 Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur Verk eftir Leopold Mozart, föður undrabarnsins Wolfgangs Amadeus- ar. Einleikarar: Jósef Ognibene, Emil Friðfinnsson, Stefán Jón Bern- harðsson, Þorkell Jóelsson, Una Sveinbjarnardóttir og Eiríkur Örn Pálsson. Glerárkirkja kl. 17 Jólatónleikar Kórs Glerárkirkju Undirleikari á píanó og orgel: Daníel Þorsteinsson. Stjórnandi: Hjörtur Steinbergsson. Aðventu- og jólatónlist. Hallgrímskirkja kl. 17 og 22 Jólatónleikar Karlakórs Reykjavíkur Einsöngur: Ísak Ríkharðsson. Flautuleikur: Guðrún S. Birg- isdóttir. Trompetleikur: Ásgeir H. Stein- grímsson og Eiríkur Örn Pálsson. Organisti: Björn Steinar Sólbergs- son. Drengjakór Reykjavíkur kemur einnig fram á tónleikunum. Friðrik S. Kristinsson stjórnar. Hefðbundin aðventu- og jólatónlist, og gestir syngja með í nokkrum lögum. Langholtskirkja kl. 20 Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju Kór Langholtskirkju, Graduale- kórinn, Eivör Pálsdóttir, Garðar Thór Cortes og Ólöf Kolbrún Harð- ardóttir. Jón Stefánsson stjórnar. Flutt verður lag sem Eivör samdi fyrir tónleikana. Fella- og Hólakirkja kl. 20 Jólatónleikar Breiðfirðingakórsins Aðventu- og jólatónlist. Þriðjudag 20. desember Hafnarfjarðarkirkja kl. 21 Mozart við kertaljós Camerarctica leikur hugljúfa kammertónlist eftir Mozart. Miðvikudag 21. desember Kópavogskirkja kl. 21 Mozart við kertaljós Camerarctica leikur hugljúfa kammertónlist eftir Mozart. Fríkirkjan í Reykjavík kl. 21 Aðventuvaka Alla, Ása og Anna Sigga flytja jólalög og jólasálma og lesa úr helgi- bókum. Hátíðleg stund í jólaamstr- inu. Fimmtudag 22. desember Neskirkja kl. 21 Kyrrðar- og íhugunartónleikar Lágstemmd aðventutónlist og Maríukvæði í flutningi Hallveigar Rúnarsdóttur sóprans og Steingríms Þórhallssonar organista. Dómkirkjan kl. 21 Mozart við kertaljós Camerarctica leikur hugljúfa kammertónlist eftir Mozart. Föstudag 30. desember Fríkirkjan í Reykjavík kl. 20 Puddings and Pies Barrokktónleikar með enskri tón- list. Reykjavík Brokk heitir sveitin sem leikur, en tónlistin veitir innsýn í hið blómlega tónlistarlíf Lund- únaborgar á barrokktímanum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.