Morgunblaðið - 25.11.2005, Page 102
102 Jólablað Morgunblaðsins 2005
var ekki nema von að jólasveinn-
inn væri örlítið skjálfhentur enda
orðinn 1920 ára þegar fyrstu bréf-
in fara að berast. Eitt árið klifraði
Ísbjörninn (North Polar Bear)
upp á Norðurpólinn sem er stór
ísnál sem stendur nærri íshöll
jólasveinsins og ekki vildi betur til
en svo að Norðurpóllinn brotnaði
og lenti Ísbjörninn með brauki og
bramli á þakinu á íshöllinni og
þurfti Jólasveinninn að byggja sér
nýja höll. Í næsta bréfi var síðan
var síðan sagt frá því þegar Ís-
björninn var að snuðra í rústunum
JOHN Ronald Reuel
Tolkien hét þessi frægi
höfundur fullu nafni en
vinir og fjölskylda köll-
uðu hann Ronald, trúleg-
ast hefði það þótt und-
arlegt ef þau hefðu kallað
hann til kvöldverðar með
orðunum „J.R.R. Tolkien,
það er kominn matur!“
Tolkien og kona hans
Edith eignuðust fjögur
börn og Tolkien las ávallt
fyrir þau fyrir svefninn.
Oftar en ekki sagði hann
þeim sögur sem hann
skáldaði fyrir þau og
smám saman varð þannig
til sá ævintýraheimur
sem kynnast má í sögum
hans um hobbitann Bilbo
Baggins og síðar hina
geysivinsælu Hringa-
dróttinssögu. Upp úr
1920 fór Tolkien að skrifa börn-
unum bréf frá jólasveininum, fyrst
voru það John og Michael sem
fengu sendibréfin frá Norð-
urpólnum og síðar bættust Chri-
stopher og loks Priscilla í hópinn.
Sendibréf frá Norðurpólnum
Bréfin voru að sjálfsögðu hand-
skrifuð með skjálfandi rithönd
hins aldna jólasveins (Father
Christmas) og á hverju ári sagði
hann þeim frá því sem á daga
hans hafði drifið á Norðurpólnum
og þeim prakkarastrikum og
óhöppum sem hans helsti aðstoð-
armaður Ísbjörninn lenti í. Það
á gamla húsinu og fann þar krana
í kjallaranum og skrúfaði frá norð-
urljósunum. En það má alls ekki
gera nema eitthvað mikið standi
til eins og jólin. Kláruðust norður-
ljósin í einum herfilegum hvelli,
sem hristi stjörnurnar úr himn-
inum og braut tunglið í marga
mola Karlinn sem býr í tunglinu
datt niður í bakgarð jólasveinsins
og þurfti marga súkkulaðimola áð-
ur en hann hresstist við og gat
tekið til við að laga tunglið og
koma skipulagi á stjörnurnar.
Óþekkur ísbjörn
Þetta slys varð líka til þess að
myrkur féll yfir Norðurpólinn og
norðurljósin kláruðust alveg
næstu tvö árin. Hreindýrunum brá
svo við hvellinn að þau fældust út
um allar trissur og við það þeytt-
ust gjafirnar, sem voru tilbúnar til
dreifingar út um allt. Ísbjörninn
hélt því fram að þetta hefði verið
slys, hann hélt að það væri búið
að loka fyrir þennan krana eftir
flutningana. Þannig varð Ísbjörn-
inn ávallt valdur að einhverjum
óskunda á hverju ári og oftast lá
við að engin jól yrðu en það bjarg-
aðist samt alltaf á síðustu stundu.
Oft brotnuðu jólagjafir og eyði-
lögðust og þá þurftu jólasveinninn
og álfarnir hans að leggja nótt við
nýtan dag til að vinna upp tapið
svo að allir krakkar gætu fengið
gjafirnar sínar.
Það kemur lesendum Tolkiens
kannski ekki svo mjög á óvart að
hann skuli hafa getað skapað
heillandi töfraheim á Norð-
urpólnum með ævintýralegum fí-
gúrum en hitt sem kemur kannski
meira á óvart er að hann skuli
hafa verið svona flinkur að teikna.
Á hverju ári komu ýtarlegar skýr-
ingarmyndir með bréfunum frá
jólasveininum. Stundum voru
þetta litlar teiknimyndasögur sem
skýrðu atburðarásina fyrir börn-
unum og stundum vandlega litaðar
skrautmyndir í fullri stærð. Frí-
merkin voru líka handgerð og sér-
stakir stimplar voru hannaðir því
bréfin bárust að sjálfsögðu með
sérlegum hreindýrapósti eða voru
borin út af duglegum snjóálfum.
Sendibréf frá jólasveininum
J.R.R. Tolkien er mörgum kunnur sem höfundur Hringadróttins
sögu og Hobbit en það er kannski ekki á allra vitorði að upphafið
að þessum sögum má rekja til jólasveinsins.
Jólasveinninn sendi Tolkien-börnunum fallega myndskreytt bréf
með frásögnum af skammarstrikum ísbjarnarins.
Bréfin frá jólasveininum voru rituð með skjálfandi hendi því hann var orðinn nokkuð hrumur 1920 ára.
Bréfin frá jólasveininum komu út í
fallegri bók árið 1976.