Morgunblaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 31 MINNSTAÐUR AKUREYRI SUÐURNES Njarðvík | Hús Íþróttaakademíunn- ar í Reykjanesbæ var afhent og formlega tekið í notkun við athöfn í fyrrakvöld. Fulltrúi Eignarhalds- félagsins Fasteignar hf. afhenti Geir Sveinssyni framkvæmdastjóra aka- demíunnar og Árna Sigfússyni bæj- arstjóra lyklavöldin. Hér sjást þeir harla ánægðir á svip. Fasteign hf. byggir húsið en leigir Reykjanesbæ til langs tíma. Reykja- nesbær endurleigir það síðan sjálfs- eignarfélagi um Íþróttaakademíuna. Starfsemi Íþróttaakademíunnar hófst í haust. Þar er kennsla í íþróttafræðum á háskólastigi í sam- vinnu við Háskólann í Reykjavík, kennsla á afreksmannabraut í sam- vinnu við Fjölbrautaskóla Suð- urnesja og námskeiðahald. Þá hafa fjarnemendur við háskóla þar að- stöðu. Við athöfnina afhenti Íþrótta- samband Íslands akademíunni vísi að íþróttabókasafni auk þess sem nokkur sérsambönd afhentu gjafir. Ljósmynd/Páll Ketilsson Hús Íþróttaakademí- unnar afhent formlega Grindavík | Ný smábátabryggja við Grindavíkurhöfn var formlega tekin í notkun í gær. Bryggjan er smíðuð af fyrirtækinu Króla. Forstjóri fyr- irtækisins afhenti stjórnendum hafnarinnar og Grindavíkurbæjar mannvirkin við athöfn sem fram fór við höfnina í gær. Nýja smábátabryggjan er sam- ansett af tveimur 25 metra einingum og á enda þeirra er 15 metra eining þvert. Gert er ráð fyrir að hægt sé að koma fyrir olíudælum á endanum. Áætlað er að kostnaður við bryggj- una verði nálægt 17 milljónum, þeg- ar allt er talið, að sögn forsvars- manna. „Þessi nýja smábátabryggja er með öflugum festingum og hugsuð fyrir þá gerð smábáta sem nú er að ryðja sér til rúms, það er að segja stærri yfirbyggða báta sem taka á sig meiri vind,“ sagði Sverrir Vil- bergsson hafnarstjóri í samtali við Morgunblaðið. Þá er þessa dagana verið að ljúka við fyrsta hluta á endurgerð Svíra- bryggju en það er bryggjan við loðnuverksmiðjuna. Búið er að reka niður 160 metra langt stálþil og á næsta ári verður gengið frá þekj- unni ásamt rafmagni og vatni. Þá er hafin vinna við nýja bryggju sem er staðsett gegnt Svírabryggj- unni, framan við fiskverkunarhús Vísis, og með því stækkar enn við- leguplássið í höfninni. Tengir hún saman bryggjurnar í vesturhöfninni. Ákveðið var að fara í þá framkvæmd í stað þess að endurbyggja Miðgarð þar sem er trébryggja og notuð er til löndunar úr smábátum. Gríðarlegar framkvæmdir hafa verið við Grindavíkurhöfn á und- anförnum árum. Lagður hefur verið um það bil milljarður í höfnina á ára- tug. Byggðir voru miklir brimvarna- garðar og innsiglingin dýpkuð. Síð- ustu árin hefur verið unnið að dýpkun innan hafnar til þess að auka öryggi skipanna, auk bryggjusmíð- innar. Ný smábátabryggja tekin í notkun við Grindavíkurhöfn Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Afhending Margrét Gunnarsdóttir, formaður hafnarstjórnar, og Kristján Óli Hjaltason hjá Króla takast í hendur. Hugsuð fyrir stærri báta Lesbókarljóð | Jón Laxdal Hall- dórsson opnar myndlistarsýningu á Café Karólínu í dag, laugardaginn 3. desember kl. 14. Á sýningunni eru verk unnin að mestu upp úr ljóðum sem birst hafa í Lesbók Morg- unblaðsins auk einnar eldhússkúffu. Jón hefur haldið eða tekið þátt í um 30 myndlistarsýningum á Ak- ureyri, í Reykjavík og erlendis.Sýn- ing Jóns á Karólínu stendur til 6. janúar næstkomandi. Skákmót | Skákfélag Akureyrar verður með 15 mínútna mót á sunnu- daginn, 4. desember kl. 14, í KEA salnum í Sunnuhlíð. Þór Valtýsson sigraði á nóvemberhraðskákmótinu hjá Skákfélagi Akureyrar sem var háð sl. fimmtudag, hann hlaut 8,5 vinninga af 12.       Kynning | Þrír höfundar frá Hafn- arfirði og Akureyri koma á Amts- bókasafnið á Akureyri kl. 15 í dag, laugardag, og kynna nýjar bækur sínar. Þetta eru þeir Birgir Svan Símonarson með Áningarstað augnabliksins, Björn Þorláksson með Lífslogann og Símon Jón Jó- hannsson, Kaffið í aldingarðinum.    Til heiðurs Hannesi | Dagskrá til heiðurs Hannesi Hafstein verður í Samkomuhúsinu á Akureyri á morg- un, sunnudaginn 4. desember, kl. 15 á afmælisdegi hans í tilefni af út- komu nýrrar ævisögu Hannesar Hafstein, Ég elska þig stormur, eftir Guðjón Friðriksson. Þar syngur Örn Birgisson lög við kvæði Hannesar, leikararnir Þráinn Karlsson og Álf- rún Örnólfsdóttir lesa kvæði hans og úr bréfum hans og Guðjón Frið- riksson flytur erindi um skáldið, ráð- herrann, þingmanninn og sýslu- manninn Hannes Hafstein. Bókin er tilnefnd til Íslensku bók- menntaverðlaunanna sem ein besta fræðibók ársins 2005. SLÖKKVILIÐ Akureyrar er 100 ára um þessar mundir en 6. desem- ber 1905 skipaði bæjarstjórn Ak- ureyrar fyrsta slökkviliðsstjórann, Ragnar Ólafsson. Í tilefni þessara merku tímamóta er Slökkvilið Ak- ureyrar með opið hús í höfuð- stöðvum sínum við Árstíg í dag, laugardag á milli kl. 13.30 og 16. Þar verður ný heimasíða, slokkvilid.is kynnt, sem og nýr bæklingur fyrir þolendur áfalla af völdum elds eða vatns. Einnig verður búnaður slökkviliðsins sýndur og ýmislegt fleira. Þá verða á boðstólum veit- ingar í boði nokkurra fyrirtækja á Akureyri. Afmælisdagskráin hófst sl. fimmtudag en þá var sviðsett umferð- arslys, þar sem bæjarbúum gafst kostur á að fylgjast með störfum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á vettvangi. Þar varð „harður árekst- ur“ þriggja bíla og valt einn þeirra við „áreksturinn“ og fólk „slasaðist“. Beita þurfti klippum til að ná fólkinu út úr bílunum. Í gær var hópakstur allra tækja slökkviliðsins sem endaði við Torfunesbryggju þar sem sett var upp vatnssýning. Slökkvilið Akureyrar 100 ára Morgunblaðið/Kristján Slysaæfing Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn við æfingar þar sem svið- sett hafði verið umferðarslys á gatnamótum Hjalteyrargötu og Óseyrar. Opið hús í höfuð- stöðvunum Dalvíkurbyggð | Fræðsluráð telur að samþykkt rammafjárhagsáætlun fyr- ir skólana muni ekki standast eftir yfirferð með skólastjórnendum á fundi sínum í vikunni. Skólastjórnendur Árskógarskóla og Dalvíkurskóla, leik- skólanna Krílakots og Leikbæjar og Tónlistarskólans mættu á fund ráðs- ins. Guðbjörg Inga Ragnarsdóttir, formaður fræðsluráðs, sagði að frá því að fjárhagsramminn var ákveðinn í vor hefði verið ákveðið að taka inn fleiri þætti og að það m.a. þýddi aukinn kostnað. Tæp 60% af tekjum sveitarfélagsins fara í þennan málaflokk og sagði Guðbjörg að stefnt væri að því að lækka það hlutfall. Hún sagði að fjár- hagsramminn sem samþykktur var í vor hafi verið upp á um 345 milljónir króna og að 26 milljónir króna vanti nú til viðbótar. Vegna þess hve mikill munur er á áður samþykktum fjárhagsramma og tillögum skólastjórn- enda, telur fræðsluráð nauðsynlegt að farið verði í gagngera endurskoðun á rekstri skólanna fyrir næsta skólaár og verði endurskoðuninni lokið fyrir 1. júní. Samhliða endurskoðuninni verði markaðar ákveðnar reglur um stöðugildi og starfsmannafjölda eins og kveðið er á um í reglum um vinnu- ferli við fjárhagsáætlanir. Fræðsluráð leggur því til að fjárhagsrammi skólanna verði samþykktur eins og skólastjórnendur leggja til, segir í bókun ráðsins. Endurskoða þarf rekstur skólanna AÐVENTUVEISLA verður í Íþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn 10. desember næstkomandi kl. 18. Um er að ræða samstarf Sinfóníuhljóm- sveitar Norðurlands og Knattspyrnudeildar Þórs. Dagskráin hefst með tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sem leikur undir stjórn Guð- mundar Óla Gunnarssonar. Með hljómsveitinni koma fram Björg Þórhalls- dóttir, Óskar Pétursson og Stúlknakór Akureyrarkirkju. Kynnir á tónleik- unum er Margrét Blöndal. Á efnisskránni er jóla- og aðventutónlist m.a. eftir Tchaikowsky, P. Mascagni, Áskel Jónsson, Sigvalda Kaldalóns og Leroy Anderson svo eitthvað sé nefnt. Að tónleikum loknum verður boðið upp á jólahlaðborð frá Bautanum. Miðasala er í Pennanum Bókval í Hafnarstræti og Pennanum /Eymunds- son á Glerártorgi en einnig er hægt að kaupa miða við innganginn sem gilda aðeins á tónleikana. Aðventuveisla TÓNLEIKAR verða í Brekkuskóla á sunnudag kl. 15 til styrktar Mæðra- styrksnefnd Akureyrar. Kvennakór Akureyrar heldur tónleikana ásamt Stúlknakór Akureyrarkirkju og Karlakór Eyjafjarðar. Á efnisskrá kór- anna verða jólalög og önnur þekkt lög sem eiga vel við á þessum árstíma. Þetta er í þriðja skiptið sem tónleikar sem þessir eru haldnir, í fyrra safn- aðist vel og er það einlæg von kóranna að fólk sjái sér fært að eiga nota- lega stund í Brekkuskóla og styrki um leið mjög gott málefni segir í frétt um tónleikana. Kynnir er Snorri Guðvarðsson. Verð aðgöngumiða er að lágmarki 1000 kr. fyrir fullorðna en ekkert gjald er fyrir börn. Frjáls framlög eru einnig vel þegin. Í lok tónleikanna verður afraksturinn óskiptur færður Mæðra- styrksnefnd, því allt tónlistarfólkið og auglýsendur leggja sitt af mörkum til að styrkja þetta málefni. Styðja Mæðrastyrksnefnd Ný tt! + Staðgreiðsluverð + Lægri vextir + Lægri kostnaður + Til allt að 36 mánaða + Framlengdur ábyrgðartími + Flutningstrygging + Vildarpunktar VISALán er ný og hagstæð leið til greiðsludreifingar við kaup á vörum eða þjónustu. – HAGSTÆÐAR AFBORGANIR Spurðu um ENNE M M / S ÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.