Morgunblaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 73
MENNING
TÓNLEIKAR í tilefni af útgáfu
geislaplötunnar Malarastúlkan
fagra með þeim Hlöðveri Sigurðs-
syni tenórsöngvara og Antoníu He-
vesi píanóleikara verða haldnir í
Salnum á morgun, sunnudaginn 4.
desember, kl. 16. Á plötunni er að
finna samnefnt verk, Malarastúlk-
una fögru eða Die Schöne Müllerin
eftir Franz Schubert við texta Wil-
helms Müller, en Guðmundur Han-
sen Friðriksson þýddi ljóðin yfir á
íslensku, fyrir réttum tuttugu árum
og er það sú útgáfa sem hljómar á
plötunni.
Árin tuttugu eru einmitt tildrög
þess að geislaplatan kemur út, en
Gunnsteinn Ólafsson, sem sér um
Þjóðlagahátíðina á Siglufirði, fór
þess á leit við Hlöðver að hann tæki
að sér að flytja ljóðaflokkinn á ís-
lensku á hátíðinni í sumar.
„Ég var dálítið efins í fyrstu vegna
þess að textinn var á íslensku. En
þegar ég var búinn að skoða þetta og
fara yfir með kennaranum mínum í
Mozarteum-tónlistarháskólanum í
Salzburg, fór mér að lítast vel á það.
Ég var að vinna verkið samhliða á
þýsku og sá að textinn var mjög vel
þýddur, og kennarinn minn var
mjög ánægður með hvernig þetta
hljómaði,“ segir Hlöðver í samtali
við Morgunblaðið.
Textinn fínpússaður
Í kjölfarið kom upp sú hugmynd
að gefa tónlistina út á geisladiski,
jafnvel tvöföldum með bæði ís-
lenskri og þýskri útgáfu þó fallið hafi
verið frá því, sem nú er orðin að
veruleika. „Túlkunin liggur að svo
miklu leyti í textanum, þannig að ég
gæti trúað að þetta skilaði sér til enn
fleira fólks hér á Íslandi en ef þetta
væri bara á þýsku,“ segir Hlöðver.
„Að hafa textann að frægum tón-
verkum á íslensku er aðferð sem
stundum hefur verið reynd, til dæm-
is í Íslensku óperunni í Töfraflaut-
unni og Sweeney Todd svo dæmi séu
tekin. Þannig að þetta er ekkert
óvanalegt, en engu að síður hljómar
kannski undarlega að það sé búið að
þýða þetta fræga verk yfir á ís-
lensku. Sjálfum finnst mér íslenski
textinn fara mjög vel við þessa tón-
list Schuberts.“
Malarastúlka Müllers er mikill
ljóðabálkur – skyldi ekki vera flókið
að læra svona mikinn texta? „Ég er
nú ekki viss um að ég syngi þetta allt
blaðlaust á tónleikunum; verð lík-
lega með ljóðin að einhverju leyti hjá
mér,“ svarar Hlöðver. „Ég lærði
þetta samhliða á þýsku, þannig að
auðvitað er dálítið mál að læra tvo
ólíka texta um leið. En ég hef verið
að fínpússa textann fyrir plötuna og
hann hefur gengið í gegnum dálitlar
breytingar frá því að hann var þýdd-
ur fyrir 20 árum, bæði af minni hálfu
og Guðmundar sjálfs.“
Snillingurinn Schubert
Hlöðver segist vera undir miklum
áhrifum frá kennara sínum, barí-
tónsöngvaranum Wolfgang Holz-
meier, þegar kemur að túlkun tón-
listarinnar. „Hann leggur mikið upp
úr túlkun; það er ekki nóg að skila
þessu frá sér þannig að það sé vel
sungið, heldur þarf textinn að skila
sér og túlka hvað er í gangi á hverj-
um tíma. Þess hef ég mest horft til.“
Malarastúlkan fagra eftir Schu-
bert er eitt þekktasta ljóðasöngs-
verk sem samið hefur verið. Að mati
Hlöðvers er þarna um afburðagóða
tónlist að ræða, þar sem texti og tón-
list spila afar vel saman. „Schubert
er snillingur. Reyndar hefur verið
sagt að tónlistin beri höfuð og
herðar yfir textann, en ég held að
Schubert hafi verið undir miklum
áhrifum frá honum og haft í huga að
skrifa tónlist sem passaði einmitt
fyrir þennan texta. Hann gerir það
meistaralega, enda var hann eitt
fremsta tónskáld heims.“
Tónlist | Malarastúlkan fagra á íslensku í Salnum á morgun
Túlkunin liggur í textanum
Morgunblaðið/Sverrir
Hlöðver Sigurðsson tenórsöngvari og Antonía Hevesi píanóleikari flytja
Malarastúlkuna fögru eftir Schubert við íslenskan texta í Salnum.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
ÚT ER kominn
geisladiskurinn
Faðmur … sorgin
og lífið. Flytjendur
tónlistar eru Kirst-
ín Erna Blöndal
söngkona, Gunn-
ar Gunnarsson, píanó- og orgelleik-
ari, Jón Rafnsson bassaleikari og
Örn Arnarson gítarleikari.
„Tilgangur geisladisksins er að
gefa fólki kost á að hlusta á fallega
tónlist með bænum og sálmum sem
tjá það sem oft er erfitt að segja með
eigin orðum. Þannig er hægt að minn-
ast þeirra sem farnir eru og hugsa á
uppbyggilegan hátt um eigin lífs-
göngu,“ segir í kynningu.
Á diskinum eru lög eftir Jón Nordal,
Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sig-
urbjörnsson, Hörð Áskelsson o.fl.
Einnig er þar að finna bænina Láttu
nú ljósið þitt loga við rúmið mitt.
Diskurinn er til sölu í Kirkjuhúsinu
við Laugaveg, Hallgrímskirkju, og hjá
útgefanda á netfanginu: erna-
blondal@simnet.is. Útgefandi er
Kirstín Erna Blöndal.
Ný plata
Ævintýri og spenna
Símar: 660 4753 • 462 4250
www.tindur.is • tindur@tindur.is
Draumar marglyttunnar segir frá baráttu góðs
og ills. Óþokkinn Syrtir berst gegn konungi sínum
og ætlar sér að taka völdin og segja mönnum stríð
á hendur. En það er Fráinn litli sem reynir að koma
vinum sínum til bjargar.
Herdís Egilsdóttir er fyrrverandi kennari og
þjóðþekktur rithöfundur.
Glæsilegar litmyndir eru eftir Erlu Sigurðardóttur,
myndlistarmann.
Hér er á ferðinni einstaklega falleg bók fyrir börn
á öllum aldri.
Hér kemur 9. bókin í hinum geysivinsæla
bókaflokki GÆSAHÚÐ eftir Helga Jónsson.
Í könnun sem Landskerfi bókasafna gerði
fyrir árið 2004 lenti Gæsahúð í 3. sæti yfir
mest lesnu bækurnar í öllum flokkum. Í flokki
barna- og unglingabóka var Gæsahúð í
1. sæti.
Bókin sem allar stelpur verða að lesa!
Bryndís Jóna Magnúsdóttir, 24 ára frá
Keflavík, er ný og fersk rödd í íslenskum
unglingabókmenntum.
Hér er á ferðinni flott og kúl bók um stelpu
sem þjáist af mikilli ástsýki og feimni og
tilraunum hennar til að næla í Danna,
sætasta strákinn í skólanum ...