Morgunblaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 36
DAGLEGT LÍF 36 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Ný könnun Neytendasamtakanna og SFR sýnir að allt að 300% verðmunur er á sumum þjónustuliðum banka og sparisjóða. Þetta kemur fram á vef Neytendasamtakanna, ns.is. Landsbankinn var oftast með hæsta verðið en Íslandsbanki og KB banki voru oftast með það lægsta. Mestu munaði á stofngjaldi fyrir greiðslu- þjónustu, það var 2.500 kr. hjá SPRON en ekk- ert stofngjald er hjá hinum bönkunum. Hjá SPRON kostaði mest að útvega veðbók- arvottorð fyrir viðskiptavini, 1.600 kr., en ódýrast var það hjá Íslandsbanka, 400 kr. Þetta er 300% verðmunur. Það kostar líka sitt að láta útbúa skulda- eða tryggingabréf. Hjá KB banka er slík þjónusta dýrust, 3.500 kr., í SPRON fær maður slíkt bréf fyrir 1.750 kr., sem var lægsta verðið. Það er því 100% verðmunur á þeirri þjónustu milli hæsta og lægsta verðs. Einnig var 100% verðmunur á hæsta og lægsta verði þegar kom að því að breyta áætl- un í greiðsluþjónustu. Dýrast var það hjá SPRON, kostaði 1.000 kr., en ódýrast hjá Ís- landsbanka, 500 kr. Þegar sambærilegar kannanir frá árunum 1997 og 2002 eru skoð- aðar kemur í ljós að flest þjónustugjöld hafa hækkað og sum hafa hækkað verulega umfram verðlagsþróun. Þess má að lokum geta að neytendur geta sparað sér útgjöldin vegna veðbókarvottorða með því að sækja þau sjálfir til sýslumanns.     *+,                  - -. * *- / *   - *0   / . 0 *  - 0 * *- / * / / / *0 /0  /  0 *      1+1                  - . * * / -   - *0 /.  -0  * *   *-+0             222     - 0 * *- / * *  / *0 /0  -0 * 0 *   !"# *+,                                       ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! !    !     "      # ""$   %     "   &' (    ")  *   ""  +$ # "    ,, - #   #     $+ (           !"#                                                                                                           %      &  $         $   3  4 %  5     3 6  6            7     4  8    7   &  22 9%&:  (   ; 8            '  6     < $% %      '  %  <  % =   %  >8  6 ? * @ !  '  A 6     2222 A 6 $     $  %  &   ' & () &   *++* *++,  %  $  -./0   %   *++* *++,1& %  '    -+/02  NEYTENDUR | Hvað kostar að fara í bankann? 300% verðmunur á útvegun veðbókarvottorðs Í VERÐKÖNNUNINNI sem Neytendasamtökin og SFR (Stéttarfélag í almannaþjón- ustu) gerðu á þjónustugjöldum bankanna er Netbankinn ekki tilgreindur. Því vill Netbank- inn koma eftirfarandi á fram- færi: „Einstaklingar geta fengið debetkort hjá Netbankanum án nokkurra gjalda, hvort sem er stofn-, árgjalda eða færslu- gjalda. Þess má geta að kortið ber lægri yfirdráttarvexti og hærri innlánsvexti en almenn- ir debetkortareikningar bank- anna.“ Einnig tekið fram að Net- bankinn hefur þá stefnu að að bjóða lág þjónustugjöld og að ávallt séu mjög góð vaxtakjör á inn- og útlánum. Netbank- inn ekki með  ATHUGASEMD FYRIRTÆKIÐ Hollusta úr haf- inu ehf. hefur hafið markaðs- setningu á vörum, sem unnar hafa verið úr þara og ætlaðar eru í matargerð. Vörur þessar eru nú þegar komnar í Heilsuhúsið, Mela- búðina og Fjarðarkaup og munu sjást víðar á næstunni. Sjávargróður hefur verið nýttur hér á landi frá upphafi byggðar enda vaxa að minnsta kosti ellefu tegundir þara við Ísland sem not- aðar hafa verið til matar hér á ár- um áður. Að sögn Eyjólfs Friðgeirssonar, líffræðings og drifkrafts fyrirtæk- isins, verður í fyrstunni byrjað að bjóða upp á þessar fjórar teg- undir, en greina má ört vaxndi áhuga á þara sem hágæða holl- ustuvöru. Þaranum er safnað í hreinum ómenguðum fjörum fjarri mannabyggðum og hann verkaður og unninn við bestu aðstæður. Rannsóknastofan Sýni ehf. hefur annast efnagreiningar og úttekt á örverum. Áformað er að vera með þrjár vörutegundir úr þara sem eru þa- rakrydd, þarasósa og frystur hakkaður þari. Hægt er að styðjast við upp- skriftina hér að neðan vilji menn prófa sig áfram með þara í brauð- baksturinn. Súrbrauð með marinkjarna 4 bollar rúgmjöl 1 bolli hafrar 3-4 bollar spelt 2 msk. púðursykur 1 bolli marinkjarni ¼-½ bolli olía 1 msk. vínsteinslyftiduft súrdeigskveikir Hakkaður marinkjarni er soðinn í 4-5 bollum af vatni í hálftíma og kælt. Rúgmjölið, höfrum og kveikjunni hrært út í soðið og það látið standa yfir nótt til að súrna. Olían, vínsteinslyftiduftið, púð- ursykurinn og speltið hrært út í. Hnoðað upp úr speltinu þar til deigið er mátulegt. Bakað í einn klukkutíma við 180°C. Marinkjarn- inn gerir brauðið bragðbetra og mýkra en ella.  ÍSLENSKT | Þarakrydd, þarasósa og frystur, hakkaður þari Morgunblaðið/Árni Sæberg Eyjólfur Friðgeirsson notar þara í matseldina og brauðbaksturinn. Þarinn er hollustuvara join@mbl.is Í DAG mun Ásta Guðmundsdóttir fatahönnuður opna verslun með hönnun sinni, Ásta Créative Clothes, á Laugaveginum. „Verslunin verður á sama stað og vinnustofan mín. Það verður samt aðskilið þar á milli,“ segir Ásta, þetta er fyrsta verslunin sem hún opnar hér á landi en hönnun hennar hefur hingað til fengist í Kirsuberjatrénu og á Nordica hótel. „Það hefur lengi staðið til að ég opnaði mína eigin verslun, mig hefur alltaf langað til að búa til rétta umgjörð fyrir fötin og veita góða þjónustu á staðnum. Ég ætla samt að vera áfram í Kirsu- berjatrénu. En fatalín- an mín er orðin það stór að í eigin verslun er hægt að vera með meira úrval af kjólum og aðeins aðrar vörur en ég er með á hinum stöðunum.“ Ásta segir margt verða til sölu í nýju versluninni. „Það verða peysur, buxur og pils ásamt fleiru en ég mun þó leggja aðaláherslu á fínar flíkur. Ég er líka með skemmtileg föt fyrir herramenn.“ Kvenleg tíska Eftirspurn eftir fötum frá Ástu hef- ur aukist mikið að und- anförnu enda er hún orðin þekkt nafn í tísku- heiminum. Hún segir að í sinni hönnun sé hún alltaf upptekin af því að vinna efnið. „Áferðin á efninu er mik- ilvæg fyrir mig. Ég vil líka hafa ákveðinn einfald- leika í flíkunum og svo finnst mér mjög mikilvægt að fötin séu kvenleg og klæðileg.“ Ásta hefur selt hönnun sína er- lendis, meðal annars í Japan, Danmörku, Sví- þjóð, Þýskalandi, Englandi, Írlandi og Kanada og fengið góðar við- tökur alstaðar. „Ég var nýlega að sýna sumarlín- una 2006 á tísku- viku í New York, kjólarnir í henni vöktu athygli og fékk ég margar pantanir eftir sýninguna. Mér finnst mjög gaman að gera kjólana og því var þetta skemmtilegt.“ Að sögn Ástu sýnist henni jóla- fötin í ár vera hátíðleg. „Það virð- ast vera mikið af fínum kjólum og flottum pilsum í kvenlegum stíl. Ég er mikið með litina svartan, gráan, hvítan og rauðan núna fyrir jólin, svo er líka nokkuð í ljósum litum.“ Ásta hefur verið að hanna sína eigin línu í fjögur ár og hefur það gengið vel þótt hún segi þetta krefjast þolinmæði og baráttu.  TÍSKA | Ásta Guðmundsdóttir opnar verslun og vinnustofu Hátíðleg jólaföt Morgunblaðið/Golli Ásta með sína eigin hönnun í nýrri verslun sinni sem hún opnar í dag. Verslunin, Ásta Créative Clothes, verður opnuð í dag kl. 14.00 á Laugavegi 25, 3. hæð, og eru allir velkomnir á opnunina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.