Morgunblaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 62
62 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Hallgrímskirkja
á aðventu
HELGIHALD í Hallgrímskirkju er
með hefðbundnum hætti á aðventu.
Á virkum dögum eru bæna- og
kyrrðarstundir sem hér segir: Á
þriðjudögum fyrirbænamessa kl.
10.30. Morgunmessa á mið-
vikudögum kl. 8.00 og kyrrð-
arstund í hádegi á fimmtudögum
kl. 12.00. Á aðventu munu síðan
flestir leikskólar og skólar hverf-
isins sækja kirkjuna heim.
Tónlistarhátíð Hallgrímskirkju á
jólaföstu heldur áfram með fjöl-
breyttu tónleikahaldi. Um helgina
verða Jólatónleikar Mótettukórsins
endurteknir tvívegis, laugardag kl.
17.00 og sunnudagskvöld kl. 20.00.
Frönsk orgeljól sunnudag kl. 17.00.
Björn Steinar Sólbergsson leikur
franska jólatónlist.
Messa og barnastarf sunnudags-
ins hefst kl. 11.00. Sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt messuþjónum.
Hörður Áskelsson verður organisti
og Hópur úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju leiðir söng. Ungmenni
tendra tvö ljós á aðventukransi
kirkjunnar, Spádómskertið og
Betlehemskertið.
Heimsókn frá
Færeyjum
UM helgina verður Torleif Jo-
hannesen, sjómannatrúboði í heim-
sókn í Sjómannaheimilinu.
Vegna þessa verður kvöldvaka
laugardaginn 3. des. kl. 20.30. Sýnt
verður myndband frá sjóferð.
Sunnudaginn 4. des. verður sam-
koma kl. 20.30. Kaffi eftir samkom-
una. Allir velkomnir.
Aðventukvöld
Árbæjarsafnaðar
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 4. desem-
ber kl. 20 er aðventukvöld Árbæj-
arsafnaðar.
Kvöldið hefst á forspili, Elisabet
Waage leikur á hörpu. Formaður
sóknarnefndar, Sigrún Jónsdóttir,
flytur ávarp. Tendrað verður á
öðru ljósi aðventukransins. Kirkju-
kór Árbæjarkirkju ásamt Gunnari
Guðbjörnssyni óperusöngvara
flytja verkið Panis angelicus e. Ces-
ar Franck. Ræðumaður kvöldsins
er Ellert Borgar Þorvaldsson,
skólastjóri Ártúnsskóla. Ásamt
honum koma fram börn úr skól-
anum og syngja fyrir aðventuhátíð-
argesti nokkur lög. Eftir að Ellert
hefur lokið máli sínu mun Gunnar
Guðbjörnsson syngja einsöng. Að-
ventuhugleiðing er í höndum sr.
Sigrúnar Óskarsdóttur. Karlaradd-
ir kirkjukórsins flytja verkið Dom-
ine pacem da nobis! E. Jacob Christ.
Stúlkur úr fermingarárgangi vors-
ins 2006 flytja helgileikinn „Kon-
ungurinn þinn kemur til þín“ undir
stjórn sr. Þórs Haukssonar. Kórinn
syngur „Jólahátíð hafin er“, í fram-
haldi af því flytur sr. Þór Hauksson
aðventubæn. Í kjölfar bænarinnar
verður tendrað á kertum kirkju-
gesta og jólasálmur jólasálmanna
„Heims um ból“ sunginn. Organisti
og kórstjórnandi er Krisztina Kalló
Szklenár og kynnir kvöldsins er
Alda Guðmundsóttir sóknarnefnd-
armaður.
Eftir athöfnina í kirkjunni er að-
ventugestum boðið í safnaðarheim-
ilið til að gæða sér á heitu súkku-
laði og ómissandi piparkökum.
Aðventusamkoma
í Mýrdal
AÐVENTUSAMKOMA verður í fé-
lagsheimilinu Leikskálum í Vík,
sunnudaginn 4. desember nk. kl. 15
(Athugið breytta tímasetningu frá
fyrri tilkynningu).
Helgileikur og upplestur, söngur
og tónlist, sem tengist aðventu og
jólum. Léttar kaffiveitingar á eftir í
boði sóknanna í Mýrdal.
Samkoman er samstarfsverkefni
kirkjunnar, þ.e. allra sóknanna í
Mýrdal, barnakórsins, kvennakórs-
ins, kirkjukóranna og allra skól-
anna.
Að lokinni samverunni í Leik-
skálum verður safnast saman á
Guðlaugsbletti þar sem tendruð
verða ljós á jólatré Mýrdælinga.
F.h samstarfshópsins,
séra Haraldur M. Kristjánsson.
Dagur í Íslensku
Kristskirkjunni
SUNNUDAGINN 4. desember verð-
ur „Dagur í kirkjunni“, sem byrjar
með guðsþjónustu kl. 11. Þar verð-
ur kveikt á aðventukransinum.
Friðrik Schram, prestur kirkj-
unnar, kennir. Barnapössun er fyr-
ir börn 1–2 ára. Sunnudagaskóli
fyrir 3–6 ára börn og Krakkakirkja
í Lofgjörðarlandi fyrir 7–13 ára.
Eftir stundina verða grillaðir
hamborgarar og seldir við vægu
verði. Síðan verður föndrað og bak-
aðar piparkökur. Kl. 20 verður svo
samkoma í umsjá unga fólksins í
kirkjunni. Einnig verður Heilög
kvöldmáltíð, þar sem Jesús hefur
lofað að vera sérstaklega nálægur.
Allir eru velkomnir að taka þátt í
starfi kirkjunnar.
Aðventukvöld
Fríkirkjunnar
í Hafnarfirði
Á MORGUN, sunnudaginn 4. des-
ember, sem er annar sunnudagur í
aðventu, verður aðventukvöld í Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði og hefst
dagskrá kl. 20.
Að venju verður boðið upp á fjöl-
breytta dagskrá í tali og tónum sem
tengist aðventu og jólum. Það er
kór Fríkirkjunnar sem syngur og
leiðir sönginn ásamt hljómsveit
kirkjunnar. Stjórnandi er Örn Arn-
arson. Þá munu þau Erna Blöndal,
Guðmundur Pálsson og Örn Arn-
arson öll flytja einsöngslög. Í upp-
hafi stundarinnar munu skátar
bera friðarlogann frá Betlehem inn
í kirkjuna.
Jólakort til
fjáröflunar fyrir
Bústaðakirkju
JÓLAKORTIN eru liður í fjáröflun
fyrir ný gólfefni í kirkjuna. Það eru
nú 34 ár síðan rauða bráða-
birgðateppið var sett á kirkjuna og
forkirkjuna. Engum datt í hug að
þessi teppi ættu eftir að endast öll
þessi ár. Það er því ekki út í bláinn
að þau séu stundum kölluð krafta-
verkateppin. Svo mörg fótspor hafa
þau borið án þess að láta á sjá. En
nú virðist sem þau eigi ekki meira
að gefa og vilji fá hvíld. Arkitekt
kirkjunnar hefur gert tillögur um
stein og eik á gólf kirkjunnar,
forkirkju og ganga. Þess vegna er
nú safnað fyrir nýjum gólfefnum á
kirkjuna. Vonast sóknarnefnd til að
sóknarbörn og aðrir velunnarar
kirkjunnar taki vel á móti sölubörn-
um í hverfinu. Einnig er hægt að
nálgast kortin hjá kirkjuvörðum
kirkjunnar. Bústaðakirkja er opin
frá kl. 9 til kl. 19 alla virka daga og
í kringum helgihald kirkjunnar á
sunnudögum.
Kortin eru 10 í pakka og kostar
pakkinn kr. 1000.
Basar í KEFAS
SUNNUDAGINN 4. desember verð-
ur hinn árlegi basar Fríkirkjunnar
Kefas frá kl. 13–17.
Seldir verða lukkupakkar og
tombólumiðar með stórglæsilegum
vinningum á öllum miðum. Einnig
verða á boðstólum heimabakaðar
kökur, smákökur, handverk, fal-
legar gjafavörur og ýmislegt annað
á mjög góðu verði!
Frábærar veitingar verða til
sölu, rjómavöfflur, rjúkandi kaffi,
gos og annað góðgæti! Hljómsveit
hússins spilar hátíðartónlist og
blokkflautuhópur kemur í heim-
sókn kl. 14 og leikur ljúfa jólatóna!
Allur ágóði af basarnum þetta ár-
ið rennur til kaupa á nýju hljóðkerfi
kirkjunnar. Komið og upplifið
skemmtilega aðventustemningu,
verslið inn til jólanna og styðjið við
tónlistarstarf kirkjunnar.
Aðventukvöld
í Áskirkju
SUNNUDAGINN 4. desember kl.
20, sem er II sunnudagur í aðventu,
verður haldið aðventukvöld í Ás-
kirkju. Það er stutt síðan nýtt
kirkjuár hófst en það fylgir alltaf
byrjun aðventunnar. Við und-
irbúum komu Jesú Krists og fæð-
ingu hans á jólum. Á aðventunni er-
um við hvött til að staldra við og
íhuga líf okkar og lífsstefnu. Þann-
ig krefst aðventan af okkur end-
urmats. Að venju verður vandað
mjög til dagskrár aðventukvölds-
ins. Kór Áskirkju flytur vandaða
tónlist, aðventu- og jólasöngva, auk
þess sem kórinn leiðir almennan
safnaðarsöng. Söngkonurnar Elma
Atladóttir og Oddný Sturludóttir
syngja einsöng og Magnea Árna-
dóttir leikur á þverflautu. Stjórn-
andi er Kári Þormar, organisti Ás-
kirkju. Ræðumaður kvöldsins
verður Sveinn H. Skúlason, for-
stjóri Hrafnistuheimilanna. Hafþór
Jónsson kirkjuvörður les jólaljóð,
fermingarbörn tendra á aðventu-
ljósum, Margrét Svavarsdóttir
djákni les úr spádómsbók Jesaja og
Þórhildur Ólafs, settur sókn-
arprestur, flytur ávarp og fer með
bæn.
Stundinni lýkur með því að sung-
inn verður jólasálmurinn Nóttin
var sú ágæt ein eftir Sigvalda
Kaldalóns. Vonandi fær aðventu-
kvöldið stuðlað að því að við getum
sett jólaundirbúninginn í rétt sam-
hengi og tekið síðan á móti þeim
konungi lífsins sem kemur á jólum í
mynd vanmáttugs barns til þess að
vera ljós heimsins.
Aðventukvöld
í Villingaholtskirkju
í Flóa
AÐVENTUKVÖLD verður nk.
sunnudag kl. 20.30. Söngkór
Hraungerðisprestakalls syngur
undir stjórn Inga Heiðmars Jóns-
sonar. Börn úr Flóaskóla syngja við
hefðbundna athöfn í lok samver-
unnar. Ræðumaður kvöldsins er
Sigríður Jónsdóttir, bóndi í Arn-
arholti í Biskupstungum, en hún
hefur nú sent frá sér sína fyrstu
bók, Einnar báru vatn, sem vakið
hefur verðskuldaða athygli. Sr.
Kristinn Á. Friðfinnsson flytur ör-
hugvekju um aðventuna. Vænst er
þátttöku fermingarbarna og að-
standenda þeirra.
Aðventutónleikar
Kórs Hjallakirkju
HINN 4. desember kl. 20 verða ár-
legir aðventu- og jólatónleikar
Kórs Hjallakirkju. Einsöngvarar
með kórnum verða Kristín R. Sig-
urðardóttir, Gunnar Jónsson, Krist-
ín Halla Hannesdóttir, Árni Jón
Eggertsson, Þóra I. Sigurjóns-
dóttir, Bergvin Þórðarson og Franz
Árni Siemsen. Undirleikari er
Julian Hewlett og söngstjóri Jón
Ólafur Sigurðsson.
Á efnisskránni eru algeng og
þekkt aðventu- og jólalög af ýmsu
tagi og frá ýmsum löndum. Enskir
jólasöngvar verða nokkuð áberandi
í öllum sínum fjölbreytileika með
kórsöng, einsöng, yfirröddum og
almennri þátttökutónleikagesta.
Sigurður Bragason, fyrrum bæj-
arlistamaður Kópavogs, samdi árið
1996 lag við þýðingu Helga Hálf-
dánarsonar á hinum heimsfræga
jólasálmi Stille Nacht. Sigurður
raddsetti lagið í fyrra fyrir ein-
söngvara og kór sem hann tileink-
aði organista og Kór Hjallakirkju
og færði kórnum að gjöf. Kórinn
frumflytur nú þessa gjöf Sigurðar.
Tónleikarnir hafa verið mjög vel
sóttir og eru allir hjartanlega vel-
komnir. Aðgangur er ókeypis.
Aðventuhátíð í
Grindavíkurkirkju
AÐVENTUHÁTÍÐ veðrur sunnu-
dag 4. des. kl. 20. Fjölbreytt söng-
og tónlistardagskrá. Rósalind
Gísladóttir syngur og Sigurjón Al-
exandersson spilar á gítar. Ein-
söngvari með kór Grindavík-
urkirkju er Valdimar Hilmarsson.
Stjórnandi Örn Falkner. Nemendur
úr Tónlistarskólanum spila á hljóð-
færi. Sr. Hjörtur Hjartarson flytur
hugvekju og sóknarprestur les jóla-
sögu. Almennur safnaðarsöngur á
aðventu, sígild jólalög og jólasálma.
Hvetjum söfnuðinn til að fjöl-
menna.
Sóknarnefnd og sóknarprestur.
Aðventukvöld
í Norðfjarðarkirkju
AÐVENTUKVÖLD verður í Norð-
fjarðarkirkju sunnudagskvöldið 4.
desember kl. 20.
Meðal efnis er: Kórsöngur; að-
ventulög og jólasálmar. Ávarp
sóknarprests. Nemendur Tónskól-
ans flytja jólalög. Hugvekja: Guð-
rún M. Jóhannsdóttir, form. sókn-
arnefndar. Fjölbreytt tónlistar-
atriði með jólastemningu.
Komum öll saman í kirkjunni til
að eiga saman gleðistund á að-
ventukvöldinu. Kaffisopi, pip-
arkökur og samvera í safn-
aðarheimili á eftir. Allir velkomnir.
Aðgangur ókeypis.
Þeir eldri borgarar sem þurfa
bílferð til kirkjunnar láti sókn-
arprest vita í símum 477 1127 og
477 1766.
Bráðum koma blessuð jólin!
Sunnudagaskólinn að venju kl. 11 í
safnaðarheimilinu. Kveikt á öðru
aðventukertinu; Betlehemskertinu.
Með ósk um að einlæg birta og
gleði fái að ríkja á aðventunni.
Sóknarprestur og sóknarnefnd
Norðfjarðarkirkju.
Fjölskylduhátíð í
Hafnarfjarðarkirkju
ANNAN sunnudag í aðventu verður
haldin fjölskylduhátíð í Hafn-
arfjarðarkirkju og hefst hún kl.
11.00 en þá sameinast báðir sunnu-
dagaskólar Hafnarfjarðarkirkju.
Kvennakór Hafnarfjarðar kemur í
heimsókn og syngur undir stjórn
Hrafnhildar Blomsterberg við und-
irleik Antoníu Hevesi og hljóm-
sveitin Gleðigjafarnir spila síðan
undir almennum söng eins og þeim
einum er lagið.
Margt verður sér til gamans gert
á fjölskylduhátíðinni. Í tilefni jóla-
söfnunar Hjálparstarfs kirkjunnar
ætlar sr. Þórhallur að fara með alla
kirkjugesti í ferðalag til Afríku og
vonandi koma allir heim á ný heilir
heilsu fyrir klukkan 12. Sr. Gunn-
þór leiðir bænir. Eftir hátíðina er
boðið upp á aðventunammi í safn-
aðarheimilinu.
Kirkjurútan mun aka frá Hval-
eyrarskóla kl. 10.55 og heim aftur
kl. 12.00.
Brúðuleikhús
í Selfosskirkju
NÆSTA sunnudag, hinn annan í
jólaföstu, 4. desember kl. 11 verður
fjölskylduguðsþjónusta í Selfoss-
kirkju.
Björgvin Frans Gíslason leikari
flytur brúðuleikrit aðventunnar,
„Pönnukökuna hennar Grýlu“ eftir
Bernd Ogrodnik.
Hér segir frá hugvitssamri
pönnuköku, sem nær að flýja steik-
arpönnu Grýlu gömlu með það fyrir
augum að ferðast alla leið í fang
Jesúbarnsins og foreldra þess, þar
sem þau dveljast við rýran kost í
gripahúsi í Betlehem. Á vegi henn-
ar verða margir, sem girnst sinn
skerf af „pönnu“-kökunni. Sýning-
artími er 40 mínútur. Áreiðanlegt
er, að börn á öllum aldrei munu
hafa óblandna ánægju af þessum
brúðuleik.
Vonandi verða sem flestir til þess
að sækja kirkju á Selfossi þennan
sunnudag.
Sr. Gunnar Björnsson.
Gerðubergskórinn
og kaffisala
í Breiðholtskirkju
SUNNUDAGINN 4. desember, ann-
an sunnudag í aðventu, fáum við
ánægjulega heimsókn í Breiðholts-
kirkju í Mjódd.
Þá kemur Gerðubergskórinn,
kór félagsstarfsins í Gerðubergi, og
syngur við messu kl. 14, en sú
skemmtilega hefð hefur skapast að
kórinn syngi við messu í kirkjunni
þennan sunnudag og hefur sú heim-
sókn ávallt verið mjög vel heppnuð.
Einnig munu þátttakendur í fé-
lagsstarfinu í Gerðubergi, Anna
Magnea Jónsdóttir, Margrét Eyj-
ólfsdóttir, Sigríður Jónsdóttir og
Valdimar Ólafsson lesa ritning-
arlestra og bænir. Vakin skal at-
hygli á því, að hér er um að ræða
breyttan messutíma frá því sem
venjulegast er í Breiðholtskirkju.
Barnastarfið verður hins vegar á
hefðbundnum tíma kl. 11.
Að messu lokinni verður kaffi-
sala barnakórs Breiðholtskirkju í
safnaðarheimilinu og verður þá
væntanlega jafnframt gripið í
hljóðfæri og jafnvel sungið að hætti
gestanna úr Gerðubergi. Það er
von okkar, að sem flestir safn-
aðarmeðlimir og aðrir velunnarar
kirkjunnar og félagsstarfsins í
Gerðubergi hafi tækifæri til að taka
þátt í guðsþjónustunni og styðja
síðan starf barnakórsins með því að
þiggja veitingar á eftir.
Aðventusamkoma
í Vídalínskirkju
NÆSTKOMANDI sunnudagskvöld,
4. desember, verður aðventu-
samkoma í Vídalínskirkju kl. 20.
Þar verður flutt fjölbreytt tónlist
og m.a. verður fjallað í tónum og
tali um sálminn „Stille Nacht, heil-
ige Nacht“. Sungin verður upp-
runaleg laggerð sálmsins og nýrri
útsetningar við þrjár mismunandi
íslenskar textaþýðingar. Þá verða
fluttir pólskir jólasálmar, þar af
tveir með nýjum texta eftir Guð-
mund Guðbrandsson, og þekkt jóla-
lög í útsetningu Anders Öhrwall.
Hljóðfærahópurinn Camerartica
ásamt kór og organista kirkjunnar
sjá um tónlistina undir stjórn Jó-
hanns Baldvinssonar.
Rúta fer um Hleinar kl. 19.40 og
til baka að lokinni samkomu. Boðið
upp á súkkulaði og piparkökur í
safnaðarheimilinu á eftir. Allir vel-
komnir.
Aukasýning lau. 10/12
Uppselt í kvöld!