Morgunblaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 33
unar Suðurlands. Hópurinn á að skila niðurstöðu fyrir næsta aðalfund SASS. Aðalfundurinn krefst þess að tryggt verði fjármagn til að ljúka við- byggingu Heilbrigðisstofnunar Suð- urlands á Selfossi á tilsettum tíma. Stefnt verði jafnframt að því að koma á fót sérhæfðri öldrunarlækn- ingadeild er þjónusti bæði íbúa á hjúkrunarheimilum og þá sem búa sjálfstætt í fjórðungnum. Þá leggur aðalfundurinn til að þegar verði haf- ist handa um byggingu hjúkr- unarheimilis á Selfossi í takt við þær kröfur um aðbúnað sem eðlilegt þyk- ir í dag að gera til slíkra heimila. Jafnframt verði ráðist hið fyrsta í brýnar endurbætur á hjúkrunar- heimilum víðar í fjórðungnum til að mæta þeim kröfum sem gerðar eru um aðbúnað og aðstaða verði færð til nútímans. Þess er og krafist að rekstr- argrundvöllur dvalar- og hjúkrunar- heimila á Suðurlandi verði tryggður og upphæð daggjalda endurskoðuð reglulega í takt við kostnaðarhækk- anir. Bent er á að geðheilbrigðisþjón- usta er ein af grunnstoðum heilbrigð- iskerfisins og óviðunandi að íbúar á Suðurlandi þurfi að sækja þá þjón- ustu til Reykjavíkur. Koma þurfi upp skipulagðri geðheilbrigðisþjónustu á Suðurlandi. Þá skoraði fundurinn á sveitarfélög á Suðurlandi að leggja sitt af mörkum til að gera fötluðu fólki mögulegt að njóta sömu tæki- færa og aðrir íbúar. Ekki lögheimili í frístundabyggð Aðalfundurinn telur ljóst að ef lög standa óhögguð um heimild til að skrá lögheimili í frístundabyggð muni þau kalla á verulega aukna þjónustu og kostnað sveitarfélag- anna. Skoraði fundurinn á félags- málaráðherra að beita sér fyrir því að lög nr. 21/1990 verði endurskoðuð með það í huga að komið verði í veg fyrir að hægt sé að skrá lögheimili í skipulagðri frístundabyggð. a sveitarfélaga MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 33 MINNSTAÐUR Eyrarbakki | Mikil ásókn hefur und- anfarið verið í byggingalóðir á Eyr- arbakka. Þrjú hús eru í smíðum og nokkrum lóðum til viðbótar hefur ver- ið úthlutað. Í fyrrverandi verslunar- húsi KÁ hafa þegar verið útbúnar tvær íbúðir og aðrar tvær eru á loka- stigi. Hinn 25. nóvember sl. rann út frestur til að gera athugasemdir við nýtt aðalskipulag fyrir Sveitarfélagið Árborg. Allmargar athugasemdir bárust skipulagsyfirvöldum sveitarfé- lagsins en hvergi hafa þó mótmæli verið meiri og fleiri mótmælt þessu nýja skipulagi en á Eyrarbakka, en alls hafa þaðan borist mótmæli frá 358 manns. Hvar á að byggja? Mótmælin snúast einkum um það hvernig eigi að skipuleggja landið fyr- ir nýja byggð. Samkvæmt tillögu að skipulagi á að stefna að byggð með- fram sjónum, einkum í vesturátt, en ekki ofan við þorpið, milli núverandi byggðar og þjóðvegarins, eins og íbúaþing sem haldið var fyrir fáum árum lagði til. Þetta landsvæði ofan þorpsins, á samkvæmt skipulagstil- lögunni að verða óbyggt, en að nokkru skipulagt sem opið svæði til sérstakra nota. Rökstuðningur fyrir þessu er að ný byggð megi ekki byrgja útsýni til gömlu byggðarinnar. Þessu nýtingarleysi landsins er mót- mælt, enda telja margir íbúar æski- legt fyrir þróun byggðar að þarna verði skipulagt byggingaland. Gert er ráð fyrir því að íbúar geti orðið í lok skipulagsins um 800, eða fjölgun um 230 manns. Hönnuðir skipulagsins ganga út frá íbúatölunni 570, en nú þegar eru íbúar Eyrar- bakka óðum að nálgast 6. hundraðið. Þessi spá fyrir byggðaþróun á Bakk- anum er hlutfallslega verulega lægri en annars staðar í sveitarfélaginu. Gera mótmælendur kröfu til að jafn- an verði til byggingarhæfar lóðir á Eyrarbakka til að mæta eftirspurn og að skipulagið komi ekki í veg fyrir eðlilega þróun byggðarinnar. Eins og kunnugt er, þá státa Eyr- bekkingar af einna samfelldastri götumynd frá lokum 19. aldar og fyrrihluta þeirrar tuttugustu. Þá byggð hafa þorpsbúar lagt áherslu á að varðveita, en krefjast þess jafn- framt að kröfum um verndun þeirrar byggðar sé haldið aðskildum frá upp- byggingu þorpsins að öðru leyti. Á fjórða hundrað mótmæla skipulagi Eftir Óskar Magnússon Öxarfjörður | Sveitarstjórn Öxar- fjarðarhrepps hefur samþykkt ályktun um lausagöngu búfjár þar sem skorað er á alla landeigendur í Öxarfirði og Núpasveit að halda við girðingum sínum sem liggja að þjóðvegi 85 og gæta þess að búpeningur gangi ekki laus með veginum. Þá mælist sveitarstjórn til þess að búfjáreigendur virði það sjónarmið vegfarenda að halda þeim vegum sem girt er með fjárlausum. Á þetta við hvort sem um er að ræða girðingu beggja vegna eða öðrum megin þjóðvegar. Í þessu sambandi minnir sveit- arstjórn á að skólabílar eru á ferðinni innan sveitarfélagsins snemma morguns og á daginn, þéttsetnir af nemendum og kenn- urum. „Það er ólíðandi að þeim, sem og öðrum vegfarendum, skuli stafa hætta af sauðfé á vegum í svartasta skammdeginu, sér- staklega í ljósi þess að sveitar- stjórn lítur almennt svo á að lausaganga búfjár með þjóðvegi 85 sé ekki æskileg þar sem girt er, þ.e.a.s. á þjóðvegi 85 frá Jök- ulsá á Fjöllum norður að Kópa- skeri. Nægi þessi tilmæli ekki má búast við að viðbrögð sveitar- stjórnar verði á þann veg að sam- þykkt um lausagöngu búfjár verði hert til muna,“ segir í ályktun og er vísað til gildandi laga um bú- fjárhald. Sveitarstjórn minnir jafnframt á að algert bann við lausagöngu stórgripa gildir í sveitarfélaginu. Ólíðandi að vegfarendum stafi hætta af lausagöngu sauðfjár Bose SoundDock: Hlustaðu á uppáhalds tónlistina þína í einstökum gæðum Tengdu saman iPod og Bose SoundDock Ný reynsla af iPod byrjar með Bose SoundDock. Þú smellir iPod í SoundDock með einföldum hætti og þú getur hlustað á uppáhalds tónlistina þína í einstökum gæðum. Hljómtæki fyrir þinn iPod SoundDock er fágað hljómtæki, nýtískulegt og sérstaklega hannað fyrir iPod. Það hleður einnig iPod á meðan þú ert að hlusta. Þú stjórnar SoundDock hljómtækinu með fjarstýringu sem virkar jafnframt fyrir iPod. Nýherji hf. · Borgartúni 37 · 105 Reykjavík · Sími 569 7700 · www.nyherji.is Kíktu í verslun Nýherja, Borgartúni 37, og heyrðu hljóminn í Bose. Opið alla virka daga frá 09:00 – 18:00 og á laugardögum frá 10:00 – 16:00. Veldu Bose hljómgæði fyrir tölvuna þína Bose Companion 2 tölvuhátalarar búa yfir framúrskarandi hljóðgæðum og taka lítið pláss á skrifborðinu. Einstök hljómgæði með Bose heyrnartólum Bose TriPort, hágæða heyrnartól, einstök hljómgæði. Létt og þægileg, aðeins 142 gr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.