Morgunblaðið - 03.12.2005, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 39
Komnar í næstu verslun
NÝJAR GLÆSILEGAR
PLÖTUR FYRIR KOMANDI JÓLAHÁTÍÐ
Diana Krall · Christmas Songs
Grammverðlaunahafinn og íslandsvinurinn Diana Krall er
hér með glæsilega jólaplötu. Henni til halds og trausts á
plötunni er hjómsveitin The Clayton/Hamilton Jazz
Orchestra.
1. Jingle Bells
2. Let It Snow
3. The Christmas Song
4. Winter Wonderland
5. I'll Be Home For Christmas
6. Christmas Time Is Here
7. Santa Claus Is Coming To Town
8. Have Yourself A Merry Little Christmas
9. White Christmas
10. What Are You Doing New Year's Eve
11. Sleigh Ride
12. Count Your Blessings Instead of Sheep
Sissel Kyrkjebø · Nordisk Vinternatt
Glæný hljóðversplata frá norsku söngkonunni
Sissel Kyrkjebø. Platan er 13 laga og inniheldur
þekkt þjóðlög frá norðurlöndunum, þar á meðal
íslensku vögguvísuna Sofðu unga ástin mín eftir
Jóhann Sigurjónsson, sem Sissel syngur á íslensku.
Fyrsta upplagi fylgir DVD diskur með tónleikum
hennar og Kringkastingsorkestret og gestum hennar.
CD+DVD
Inniheldur
vögguvísun
a
Sofðu unga
ástin mín
sem Sissel
syngur á
íslensku
BÍLALEIGAN Hertz hefur kynnt
gervitunglastaðsetningarkerfi í Evr-
ópu sem á að koma í veg fyrir að fólk
villist á ferðalögum sínum.
Á vefsíðunni www.eyefortravel.com
segir að hægt sé að leigja Hertz-bíl
með staðsetningarkerfi í Frakklandi,
Þýskalandi, Írlandi, Ítalíu, Hollandi og
Bretlandi en árið 2006 stefna þeir á að
kerfið verði komið í 26 Evrópulöndum.
Þetta kerfi hefur verið í Bandaríkj-
unum í sex ár.
Samsvarandi kerfi í Evrópu mun
bjóða upp á ellefu tungumál og gefur
skipanir gegnum hljóðkerfi sem sjálf-
krafa lagast að hávaðanum inn í bíln-
um, svo það heyrist í gegnum vind eða
umferðarhljóð.
„Með ellefu tungumál að velja úr og
kerfi sem skiptist óaðfinnanlega við
landamæri er þetta tilvalið fyrir sjálf-
stæða ferðamenn sem vilja vita hvert
þeir eru að fara.
Kerfið hefur nákvæmt kort, snerti-
skjá í lit sem er auðveldur í notkun og
gefur gott og mjög nákvæmt aðgengi
að öllum áttum og er einfaldlega notað
með því að snerta skjáinn. Fljótvirk
málfarsgeta kerfisins hjálpar með
ókunnug nöfn og með margþættum
leitarmöguleikum getur þú leitað að
hótelum og veitingastöðum eftir mat-
arflokkum með lítilli fyrirhöfn,“ segir
fyrirtækið.
Ekki villast
FERÐALÖG
Kínaklúbbur Unnar
Nú er hægt að panta vor- og haust-
ferð til Kína með Kínaklúbbi Unnar.
Vorferðin er dagana 18. maí til 8. júní
og farið verður til höfuðborgarinnar
Beijing, til eyjunnar Putushan, siglt á
Keisaraskurðinum og Kínamúrinn
skoðaður ásamt fleiru.
Haustferðin er dagana 7. til 28. sept-
ember og þá verður meðal annars Tíb-
et heimsótt og Kínamúrinn skoðaður
ásamt fleiri merkilegum stöðum.
Heildarverð á ferð er 350 þúsund
krónur og er allt innifalið. Unnur Guð-
jónsdóttir verður fararstjóri en hún fór
með fyrsta hópinn til Kína árið 1992
og er því orðin vel kunn landi og þjóð.
Spennandi í sveitinni
Í Vogafjósi í Mývatnssveit verður
margt að gerast á aðventunni. Fjósið
verður opið frá fimmtudegi til sunnu-
dags út aðventuna kl. 14–20. Íslensku
jólasveinarnir kíkja í heimsókn á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 17:30 en
þá hefst líka mjaltatími.
Á staðnum er einnig Sveitabúðin –
Heimagerði sem hefur alls konar af-
urðir til sölu eins og kökur, hangikjöt,
ost og silung og í búðinni má líka fá ís-
lenskt handverk.
Í tilefni af jólakomunni er tilboðspakki í
gistingu að Vogum og fylgir miði í jarð-
böðin við Mývatn gistipakkanum.
Jólamarkaður
Um helgina er tilvalið að kíkja á jóla-
markaðinn á Bjarteyjarsandi í Hval-
firði. Opið er laugardag og sunnudag
frá kl. 13:00 til 18:00.
Á jólamarkaðnum má finna handunna
muni eftir fagurkera sveitarinnar. Í
boði verður jafnframt lifandi tónlist,
nýbakaðar kökur og ekta heitt súkku-
laði.
VÍTT OG BREITT
Upplýsingar um Kínaferðina má
finna á www.simnet.is/kinaklubb-
ur og hjá Kínablúbb Unnar, Njáls-
götu 33, sími. 551 2596
Gisting að Vogum í Mývatnssveit.
Upplýsingar í hraunberg@simnet-
.is og í síma 4644303 og
8473968. Einnig er sniðugt að
kíkja á vefinn www.sveit.is.
Vefsíða: www.bjartey.is
DAGLEGT LÍF
UNGLINGAR sem reykja
maríjúana eiga á hættu að eyði-
leggja þær brautir í heilanum
sem tengjast tungumálinu og
þeir sem eru í áhættuhópi fyrir
geðklofa geta veikst af sjúk-
dómnum snemma, að því er ný
rannsókn gefur til kynna. Á
heilsuvef MSNBC er greint frá
því að heilasneiðmyndir af ung-
lingum sem reyktu mikið
maríjúana sýndu þetta, en rann-
sóknin var gerð við læknadeild
Albert Einstein háskólans í
New York. Myndir af heilum
114 unglinga voru skoðaðar, þar
af 26 sem greindir höfðu verið
með geðklofa. Af þeim 26 höfðu
15 reykt maríjúana. Aðrir 15
voru ekki með geðklofa en
reyktu maríjúana og á þeim
myndum sáust frávikin í heila-
brautunum sem tengjast tungu-
málinu. Þær þroskast á ung-
lingsárunum og eru viðkvæmar
fyrir eiturefnum sem maríjú-
anareykingar hafa í för með sér.
Vísindamennirnir sögðu að
frekari langtímarannsókna væri
þörf til að athuga hvort heila-
skemmdirnar væru varanlegar
eða ekki.
Maríjúana
eyðilegg-
ur brautir
í heila
HEILSA