Morgunblaðið - 03.12.2005, Page 71
iðnað úr fjölbreyttu hráefni. Sýningunni
lýkur 20. des. Aðgangur ókeypis.
Jónas Viðar Gallerí | Þórarinn Blöndal til
4. des.
Kling og Bang gallerí | Örn J. Auðarson –
Miðgarður – Blárauður – Afgirtur reitur. Op-
ið fim–sun. kl. 14–18. Til 4. des.
Listasafn ASÍ | Magnús V. Guðlaugsson og
Örn Þorsteinsson með myndlistarsýningu.
Opið kl. 13–17 alla daga nema mánudaga. Til
4. des.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýning.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist II –
Um rými og frásögn. Sýning á verkum 13
ísl. samtímalistamanna. Til 12. febrúar
2006.
Listhús Ófeigs | Dýrfinna Torfadóttir, Rósa
Helgadóttir, Þorbjörg Valdimarsdóttir til
ársloka.
Listvinafélagið Skúli í túni | Arngrímur
Borgþórsson sýnir „200 myndir“. Opnað 3.
des. kl. 15. Opið fimmtudaga til sunnudaga
14–17. Lýkur 20. des.
Norræna húsið | Ósýnileiki: Jonas Wilén,
Henrika Lax og Annukka Turakka til 18. des.
Nýlistasafnið | Snorri Ásmundsson til 19.
des.
Ráðhús Reykjavíkur | Helga Birgisdóttir –
Gegga. Málverkasýning sem stendur til
áramóta.
Ráin Keflavík | Erla Magna er með sýningu
undir heitinu RÝMI á Ránni Keflavík til 15.
des.
Safn | Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir, Krist-
inn E. Hrafnsson – „Stöðug óvissa“, Jón
Laxdal – „Tilraun um mann“. Opn-
unartímar: mið.–fös. 14–18, lau.–sun. 14–17.
Til 11. des.
Skaftfell | Rúna Þorkelsdóttir – „Postcards
to Iceland“. Opið mán.–föst. 13–16, sun. 15–
18.
Suðsuðvestur | Þóra Sigurðardóttir og
Anne Thorseth til 11. des.
Þjóðarbókhlaðan | Brynjólfur Sveinsson til
áramóta.
Þrastalundur, Grímsnesi | Reynir Þor-
grímsson til 15. des.
Leiklist
Bókasafn Kópavogs | Brúðuleiksýningin
Pönnukakan hennar Grýlu verður sýnd 3.
des., í Lindasafni Núpalind 7, kl. 13 og Bóka-
safni Kópavogs Hamraborg 6a kl. 15. Sýn-
ing fyrir 8 ára og yngri. Allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Bækur
Bókabúð Máls og menningar | Dagskráin
er tileinkuð börnum á öllum aldri kl. 14–
16.30. Sérstakt tilboð verður á barnabók-
um yfir helgina í öllum verslunum Pennans.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opinn alla
daga nema mánudaga í vetur frá kl. 10–17.
Vönduð hljóðleiðsögn, margmiðlunarsýn-
ing og gönguleiðir. www.gljufrasteinn.is.
Þjóðmenningarhúsið | Handritin – saga
handrita og hlutverk um aldir, Þjóðminja-
safnið – svona var það, Fyrirheitna landið –
fyrstu Vestur-Íslendingarnir; mormónar
sem fluttust til Utah, Bókasalur – bókminja-
safn, Píputau, pjötlugangur og diggadar-
íum – aldarminning Lárusar Ingólfssonar,
og fleira. Veitingastofa, safnbúð.
Skemmtanir
Cafe Catalina | Hermann Ingi Her-
mannsson jr. spilar og syngur.
Café Aroma | Hljómsveitin Menn ársins
skemmta í kvöld. Aðgangur ókeypis.
Ingólfscafe | Hljómsveitin Tilþrif spilar.
Kringlukráin | Stuðbandalagið frá Borg-
arnesi verður með dansleik 2. og 3. des.
sem hefst bæði kvöldin kl. 23.
Mannfagnaður
Hallveigarstaðir | Kvenréttindafélag Ís-
lands og Kvennasögusafn Íslands verða
með kvöldvöku 5. des. kl. 20. Ávarp flytur
Þorbjörg Inga Jónsdóttir, formaður KRFÍ.
Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson
skemmta. Erindi halda: Kristín Ástgeirs-
dóttir, Auður Þorbergsdóttir, Sigríður
Snævarr, Guðrún Ásmundsdóttir og Helga
Guðmundsdóttir.
Háteigskirkja – starf eldri borgara | Jóla-
fundur Kvenfélagsins verður 6. des. kl. 19, í
Setrinu. Þátttaka tilkynnist í síma
511 5405, fyrir 5. des. Matur, upplestur og
söngur og muna eftir jólapakka.
Kvenfélagið Heimaey | Jólafundur 5. des. í
Sunnusal, Hótel Sögu kl. 19. Tilkynna þarf
þátttöku og taka jólapakka með.
SÁÁ félagsstarf | Félagsstarf SÁÁ verður
með félagsvist og dans í Ásgarði, Stang-
arhyl 4 (hús eldri borgara) 3. desember og
hefst kl. 20. Að lokinni spilamennsku verða
veitt verðlaun og síðan dansað fram eftir
nóttu. Jóhann Larsen leikur fyrir dansi.
Seljakirkja | Árlegt jólaball Neistans,
styrktarfélags hjartveikra barna, verður
haldið í Seljakirkju í dag kl. 14.30–17. Bjóðið
afa og ömmu með. Nánar, www.neistinn.is.
Fréttir
Happdrætti bókatíðinda | Númer dagsins
3. desember er 37782.
Waldorfskólinn í Lækjarbotnum | Jólabas-
ar og kaffisala kl. 14–17 í Ásgarði, Mos-
fellsbæ.
Fundir
Vinstrihreyfingin grænt framboð | VG
standa fyrir fundi um málefni heimilislausa
kl. 14–15.30. Fundurinn verður haldinn á
Suðurgötu 3. Framsögumenn verða: Björk
Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi, Erla Björg
Sigurðardóttir félagsráðgjafi og Guðbjörg
Sveinsdóttir geðhjúkrunarfræðingur. Allir
velkomnir.
Útivist
Fugla- og náttúruverndarfélag Álftaness
| Gönguferð á Álftanesi, gengið verður frá
íþróttahúsinu 4. des. kl. 13. Í lok göngunnar
verður komið við í náttúruleikskólanum
Krakkakoti og spjallað um fjörur. Allir vel-
komnir.
Sýningar
Húsið á Eyrarbakka | Jólasýning Byggða-
safns Árnesinga verður opin 4. des. kl. 14–
17. Á sýningunni eru gömul jólatré, jólakort
frá fyrri hluta 20. aldar og jólasveina-
brúður. Á sýningunni er elsta varðveitta
jólatré landsins sem er spýtujólatré frá
1873. Þá er hægt að skoða sýninguna eftir
samkomulagi fram á þrettánda.
Basar
Kristniboðssalurinn | Basar Kristniboðs-
félags kvenna verður kl. 14–17, í Kristni-
boðssalnum Háaleitisbraut 58–60. Á boð-
stólum verða kökur, handunnir munir,
jólakort, skyndihappdrætti o.fl. Einnig verð-
ur selt kaffi og vöfflur. Allur ágóði rennur til
kristniboðsstarfs í Eþíópíu og Kenýa.
Sýningar
Minjasafnið á Akureyri | Sýningarnar Eyja-
fjörður frá öndverðu, Akureyri – bærinn við
Pollinn og Af norskum rótum. Sýning um
gömul timburhús í Noregi og á Íslandi.
www.akmus.is.
Þjóðmenningarhúsið | Kristnihátíðar-
sjóður hefur opnað sýninguna „Hin forna
framtíð – Verkefni styrkt af Kristnihátíð-
arsjóði 2001–2005“ í bókasal Þjóðmenn-
ingarhússins. Sjá má sýnishorn af árangri
fornleifarannsókna og kynningu á tugum
annarra rannsókna á menningar- og trú-
ararfi þjóðarinnar.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 71
DAGBÓK
70 ÁRA afmæli. Í dag, 3. desem-ber, er sjötug Hanna Elíasdótt-
ir, Grandavegi 47, Reykjavík.
70 ÁRA afmæli. Á morgun, sunnu-daginn 4. desember, verður sjö-
tug Ólöf Geirsdóttir, Skúlagötu 14,
Borgarnesi. Í tilefni dagsins býður
Lóló vinum og vandamönnum uppá
kaffi og pönnsur á sunnudag kl. 15–18
á heimili dóttur sinnar á Gunnlaugs-
götu 6, Borgarnesi.
70 ÁRA afmæli. Þorgeir Ólafsson(Doddi) verður sjötugur 5. des-
ember. Hann, og fjölskylda hans, taka
á móti gestum í dag, laugardaginn 3.
desember, frá kl. 17–19 í Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15, Reykjavík, í húsi
Borgarbókasafns, 6. hæð. Gengið inn
undir vesturvegg við bílaplan.
Gullbrúðkaup | Í dag, 3. desember,
eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin
Ólöf Árnadóttir og Þorvaldur Ólafs-
son, Breiðási 11, Garðabæ.
Dáleiðsla.
Norður
♠1096
♥Á6
♦ÁK875
♣G63
Vestur Austur
♠K82 ♠D43
♥KG42 ♥10973
♦D103 ♦962
♣1094 ♣D82
Suður
♠ÁG75
♥D85
♦G4
♣ÁK75
Suður spilar þrjú grönd og fær út lítið
hjarta.
Þegar litið er á allar hendur sést að
horfur sagnhafa eru góðar. Hann hleyp-
ir hjartanu heim á drottninguna og get-
ur hvort heldur spilað upp á tígulinn eða
spaðann. Tígullinn brotnar 3-3 og með
tvísvíningu í spaða má fá þar þrjá slagi.
Spilið er frá haustleikunum í Denver
og á einu borði „dáleiddi“ vörnin sagn-
hafa niður. Út kom hjarta, sem suður
fékk á drottninguna, fór inn í borð á tíg-
ulás og lét spaðatíuna rúlla til vesturs.
En vestur afþakkaði slaginn snarlega.
Spaðanían kom næst og austur lét
drottninguna. Suður var handviss um að
austur hefði byrjað með spaðahjónin og
dúkkaði drottninguna. Austur spilaði
blindum inn á hjartaás og þá innkomu
notaði sagnhafi til að svína fyrir spaða-
kónginn.
Eftir þessa ólánlegu íferð var engin
leið að fá meira en átta slagi.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. d4 Rf6 2. Bg5 g6 3. Bxf6 exf6 4. c4 f5
5. Rc3 d6 6. e3 Rd7 7. Rge2 Rf6 8. g3 h5
9. h4 Bh6 10. Bg2 O-O 11. b4 He8 12.
Dd3 Hb8 13. a4 c5 14. Hb1 f4 15. gxf4
cxb4 16. Hxb4 Bf5 17. Dd2 Be6 18. Dd3
Bf5 19. Dd2 Be6 20. Kf1 a5 21. Hxb7
Bxc4 22. Db2 Hxb7 23. Dxb7 d5 24. Bf3
He7 25. Db1 Re4 26. Dc2 Rxc3 27.
Dxc3 Hb7 28. Kg2 Hb4 29. Dc2 Bb3 30.
Dc6 Bf8 31. f5 Hb6 32. Dc3 gxf5 33. Rf4
Bh6 34. Rxh5 Bxa4 35. Ha1 Bd7 36.
Hxa5 Dxh4 37. Dc7
Staðan kom upp í 1. deild þýsku
deildarkeppninnar. Oliver Reeh (2449)
hafði svart gegn Ilja Schneider (2392).
37... Bxe3! 38. Ha8+ Kh7 39. Rg3 bisk-
upinn var friðhelgur vegna 39…Hb2+
og hvítur yrði mát. 39…Bxf2? Svartur
hefði unnið örugglega eftir 39…Hb2.
40. Kxf2? Hvítur hefði eygt von til að
ná jafntefli eftir 40. De5! þar sem
svartur yrði þá þvingaður til að leika
40…Dxg3. 40…Hb2+ 41. Kf1 Dh2 og
hvítur gafst upp enda getur hann ekki
varist máti með góðu móti.
Svartur á leik.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Árskógar 4 | Kynningarfundur um
menningar- og listahátíð eldri borg-
ara í Breiðholti 4. des. kl. 15.
Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er
öllum opið. Fastir liðir eins og venju-
lega. Kíktu við, líttu í blöðin og láttu
þér líða vel. Komdu t.d. í morg-
unkaffið fræga alla virka daga og og
skoðaðu dagskrána. Jólaferð mánu-
dagskvenna 12. des. Jólaferð hverf-
isins 13. des. Nokkrir miðar til á Vín-
arhljómleikana. Uppl. 588 9533.
Félag áhugafólks um íþróttir aldr-
aðra | Aðalfundur félagsins haldinn
að Árskógum 4 laugardaginn 3. des.
kl. 14. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20.
Caprí-tríó leikur fyrir dansi.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Að-
ventustund verður 10. desember kl.
14–16. Hugvekju flytur séra Guð-
mundur Þorsteinsson. Upplestur
Björn G. Eiríksson. Barnakór syngur
jólalög. Anna H. Norðfjörð flytur jóla-
hugleiðingu, jólalög sungin við undir-
leik Sigurðar Jónssonar.
Félag kennara á eftirlaunum |
Fræðslu- og skemmtifundur í Ás-
garði í Stangarhyl 4 kl. 13.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Myndlist-
arsýning Sólveigar Eggerz er opin kl.
13–16, listakonan er á staðnum 6.
des. Vinahjálp með sölu á hand-
unnum jólavörum kl. 10. Strætó S4
og 12 stansa við Gerðuberg. Allar
uppl.á staðnum s. 575 7720 og
wwwgerduberg.is.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Fastir liðir eins og venju-
lega. Skráning hafin á jólahlaðborð
sem verður föstudaginn 9. des. kl.
17. Skráningu lýkur 5. des.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Fastir liðir eins og venju-
lega. Líttu við, kíktu í blöðin, hittu
fólk og skoðaðu dagskrána. Jóla-
hlaðborð 9. des. kl. 17. Skráningu lýk-
ur 5. des. Enn er hægt að panta
miða á Vínarhljómleika Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands 6. janúar
2006. Frábær jólagjöf! Sími
568 3132.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuð-
borgarsvæðinu | Félagsheimilið
Hátúni 12: Jólahlutavelta / kaffisala
kl. 13–17.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | Jólafundur Kven-
félags Árbæjarkirkju 5. des. kl. 20.
Jólamatur, jólasaga, aðventuhugleið-
ing, happdrætti. Maturinn kostar
1.500 kr. Takið með ykkur gesti.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
BJÖRN Steinar Sól-
bergsson leikur franska
orgeltónlist frá ýmsum
tímum tengda aðventu
og jólum á Jólatónlist-
arhátíð í Hallgríms-
kirkju á sunnudag kl.
17. Efnisskráin er fjöl-
breytt og hátíðleg og
gefur organistanum, að
því er segir í kynningu,
ríkuleg tækifæri til að
nýta sér hljómauðgi
Klaisorgelsins, stærsta
hljóðfæris landsins. Meðal höfunda
verkanna má nefna Louis-Claude
Daquin, Claude Balbastre, Felix
Alexandre Guilmant, Marcel Dupré
og Jean Langlais.
Franska orðið „Noël“ þýðir ein-
faldlega jól en getur einnig merkt
jólalag. Frakkar eiga mikinn fjár-
sjóð jólalaga frá 15. og 16. öld og
segja má að sérstaða
þeirra sé að þau eru
alþýðleg þjóðlög sem
rötuðu inní tónlist kirkj-
unnar og nutu gífur-
legra vinsælda og skipa
enn þann dag í dag ríkan
sess í jólahaldi Frakka.
Þau eru mjög fjöl-
breytt og innihalda
þekkt minni fagn-
aðarboðskaps jólanna.
Þar má finna Maríu að
syngja vögguvísu fyrir
nýfætt Jesúbarnið, gleðisöng engl-
anna – hinna himnesku hersveita,
fögnuð hirðanna, sem dansa og
leika á hjarðpípur sínar, úlfaldalest
vitringanna, sem líður áfram í næt-
urhúminu og fylgir Betlehemstjörn-
unni og lotningu vitringanna þegar
þeir krjúpa fyrir hinum nýfædda
frelsara.
Björn Steinar í
Hallgrímskirkju
JÓN Laxdal Halldórsson opnar
myndlistarsýningu á Café Karólínu
í dag klukkan 14.
Á sýningunni gefur að líta verk
unnin að mestu upp úr ljóðum sem
birst hafa í Lesbók Morgunblaðsins
auk einnar eldhússkúffu.
Jón hefur haldið eða tekið þátt í
um 30 myndlistarsýningum á Akur-
eyri, í Reykjavík og erlendis. Nú
standa yfir sýningar á verkum Jóns
í Hafnarborg í Hafnarfirði og á
Safni í Reykjavík og 2. febrúar
2006 mun hann setja upp sýningu í
Spielhaus Morrison Galerie í Berl-
ín.
Verk hans eru einkum collage-
myndir með upplímdum texta, letri
og myndum.
Sýning Jóns Laxdal á Café
Karólínu stendur til 6. janúar á
næsta ári.
Jón Laxdal sýnir
á Café Karólínu MYNDLISTARKONAN Elísabet
Stefánsdóttir opnar sýninguna
Mjúkar línur í dag á Thorvaldsen
Bar, við Austurvöll. Opnunin er frá
17–19 og mun sýningin standa yfir
til 7. janúar. Hekludúkarnir henn-
ar mömmu öðlast nýtt líf og mjúk-
ar línur kvenlíkamans, sem eru
málaðar undir áhrifum textans
Woman eftir Saktisangama
Tantra, eru aðalyrkisefni sýning-
arinnar.
Elísabet útskrifaðist frá mynd-
listadeild Listaháskóla Íslands
2002 og frá Kennaranámi Listahá-
skóla Íslands 2003.
Hún hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga en þetta er hennar
fyrsta einkasýning. Elísabet rekur
vinnustofuna deild 33b ásamt fleir-
um listamönnum og starfar sem
myndlistarkennari við Varmár-
skóla í Mosfellsbæ.
Mjúkar línur á
Thorvaldsen Bar
Hönnunarsafn Íslands
Sýning á framleiðslu Málmsteypu
Ámunda Sigurðssonar sem staðið
hefur í sýningarsal Hönnunarsafns
Íslands við Garðatorg síðan 19. nóv-
ember sl. verður framlengd til
sunnudagsins 11. desember nk. Sýn-
ingin er opin frá kl. 14–18 alla daga
næstu viku nema mánudaginn 5.
desember en þá er sýningarsalurinn
lokaður.
Sýning
framlengd