Morgunblaðið - 03.12.2005, Side 75
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 75
ÞAÐ DYLST víst fæstum að jólin eru á næsta leiti
og margir farnir að huga að jólaundirbúningi hver
með sínu nefi.
Kl. 15 í dag opna myndlistarmennirnir Lóa
Hjálmtýsdóttir og Hugleikur Dagsson Jólasýningu
Lóu og Hulla í Gallerý Humar og frægð við Lauga-
veg.
Hér er á ferðinni myndlistasýning með jólaþema.
Að eigin sögn hafa listamennirnir ekki enn komist
að niðurstöðu um hverskonar stefnu þau fylgja í list-
sköpuninni en ný hugtök eins og „nastykitch“ og
„tyggjógoth“ hafa fæðst meðal listamannanna í ferl-
inu, segir meðal annars í fréttatilkynningu frá að-
standendum sýningarinnar, en aðrir segja að hér
séu einfaldlega tveir myndasöguhöfundar af krútt-
kynslóðinni að krota á veggi og hengja upp jóla-
skraut.
Jólasýning
Lóu og Hulla
Lóa og Hulli eru farin að undirbúa jólin.
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Rúnar Þórisson – Ósögð orð og ekkert
meir …
Tónlistarmenn sem við sögu koma eru
Rúnar Þórisson, Sigtryggur Baldursson,
Haraldur Þorsteinsson, Jens Hansson,
Karl Henry, Birgir Örn Steinarsson, Katr-
ína Mogensen, Daði Birgisson, Lára Rún-
arsdóttir, Björgvin Gíslason, Eyþór Kol-
beins, Helga Ágústsdóttir, Ágústa
Jónsdóttir, Ríkharður H. Friðriksson, Egill
Rafnsson og Ragnar Sólberg Rafnsson.
Tónlist og textar eru eftir Rúnar Þórisson
utan að Karl Henry á hlut í einu lagi og
Lára Rúnarsdóttir í öðru. Upptökumenn
voru Rúnar Þórisson, Egill Örn Rafnsson
og Ragnar Sólberg Rafnsson.
HANN er ósvikinn, metnaðurinn
sem umleikur þessa fyrstu sóló-
plötu Rúnars Þórissonar. Rúnar
er best þekktur
sem gítarleikari
Grafíkur en er
jafnframt klass-
ískt menntaður á
því sviði. Eftir
að Grafík logn-
aðist út af á sín-
um tíma hvarf Rúnar af rokksvið-
inu en átti svo endurkomu inn á
það árið 2000. Þá gerðu hann og
Rafn heitinn Jónson, Rabbi, plöt-
una Í álögum og var hún geysivel
heppnuð. Rúnar hefur ekki getað
látið rokkið í friði síðan, tók þátt í
endurvakningu Grafíkur og starf-
aði með Rabba að síðustu sóló-
plötu hans, Fuglar geta ekki flogið
á tunglinu.
Rúnar fær fjölmarga hljómlist-
armenn í lið með sér hér, bæði
unga og eldri, og hann virðist hafa
raunverulegan áhuga á að hagnýta
krafta sér yngra fólks. Auðheyr-
anlegt er að Rúnar er ekki gamall,
örvæntingarfullur karl sem vill
vera með, þvert á móti stígur hér
fram leitandi tónlistarmaður,
óhræddur að sækja á ókunn mið.
Tónlistin er framsækin og flúr-
uð nokk, greina má áhrif frá fram-
sæknu rokki áttunda áratugarins
en einnig frá samtíma „listarokks-
sveitum“ á borð við Radiohead og
jafnvel Sigur Rós. Ógrynni af
hljóðfærum flökta um hljóðrás-
irnar, stíga upp og niður, leysast
upp, hverfa og koma svo aftur.
Bragur plötunnar er nánast loft-
kenndur, ekki nóg með að und-
irspil sé svífandi og draumkennt
heldur styðja söngvararnir það
ástand, sérstaklega Karl Henry úr
Without Gravity, sem teygir og
togar orðin af mikilli list. Textar
Rúnars eru í takt við áðurnefnt,
ljóðrænar pælingar um lífið og til-
veruna. Afstrakt setningar eins og
„Lifað á meðan er, – eitt andartak
lifa þær þar“ úr „Lífsklukkunni“
og „Dagsins skíma horfin bak við
sjónarrönd/lífsins þræði finnur
leysast upp í höndum þér“ úr „Þar
sem sólin sest“ gefa ágæta mynd
af inntaki textanna. Lög eins og
„Kaldur ísinn, rósin rauð“ og „Þar
sem sólin sest“ eru tilkomumikil
og dramatísk, hið fyrrnefnda er
borið uppi af þungri undiröldu, hið
síðara hægstreymt, bjart og fal-
legt. Stundum er þó eins og laglín-
an hafi hálfpartinn gleymst í öllu
hljóðfærakraðakinu og sum lögin
verða því fullflöt og óspennandi.
Nefna má lögin „Á lárvið-
arlaufum“ og „Lífsklukkan“ sem
dæmi þar um. Þannig er platan
nokkuð ójöfn frá lagi til lags en
heildarsvipurinn og um margt ný-
stárleg aðkoma Rúnars og félaga
að rokk/poppforminu hífir hana
upp.
Rúnar sagði í viðtali við Morg-
unblaðið að stefnan væri tekin á
fimm plötur á næstu tíu árum. Hið
besta mál þar sem Rúnar virðist
hafa fullt fram að færa í þessum
geira þótt það örli á nokkrum
agnúum á þessu „byrjunarverki“.
Arnar Eggert Thoroddsen
Þræðir
leysast
upp
50 Cent, Eminem, Dr.Dre og G-Unit stýra New
York með harðri hendi! Brutal og brilliant leikur!
*m
eð
an
b
irg
ði
r e
nd
as
t!
Einnig fáanleg tónlistin úr Get Rich or
Die Tryin kvikmyndinni - inniheldur hið
vinsæla Window Shopper!
1.899
CD
50CENT
DVD FY
LGIR
MEÐ LE
IK!* PS2
4.799
BRÚTA
L
LEIKUR
!
13 NÝ
LÖG!