Morgunblaðið - 03.12.2005, Page 79
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400 KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
TIL F ST S I SI S - I S .
T ! S I S T 400 KR. . 400 KR. .
ÞAÐ SEM KOM FYRIR
EMILY ROSE ER
ÓHUGNANLEGRA EN
NOKKUÐ SEM ÞÚ GETUR
ÍMYNDAÐ ÞÉR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
S.K. DV
Topp5.is
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 3, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Spennutryllir af bestu gerð með
Edward Burns og Ben Kingsley.
hversu langt myndir þú
ganga til að halda lífi
Alls ekki fyrir
viðkvæma
Áætlunin er marg-
brotnari, útfærslan
er flóknari og
leikurinn skelfilegri
en nokkru sinni fyrr
fór beint á toppinn í
bandaríkjunum
Sýnd kl. 3, 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára
FRÁ FRAMLEIÐANDA AM
ERICAN PIE
Sýnd kl. 10.15 B.i. 16 ára Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 3.30 og 5.45
MBL
Þeir voru leiddir
í gildru... nú þarf
einhver að gjalda!
Sýnd kl. 8 B.i. 16 Sýnd kl. 4 Ísl. tal
TOPP5.IS
Alls ekki
fyrir viðkvæma
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
fór beint á toppinn í bandaríkjunum
hversu langt myndir þú
ganga til að halda lífi
Áætlunin er margbrotnari, útfærslan er flóknari
og leikurinn skelfilegri en nokkru sinni fyrr
553 2075Bara lúxus ☎
STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA - ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA
H.J. Mbl.
-M.M.J. Kvikmyndir.com
„In Her Shoes er hreint fínasta mynd,
bæði hugljúf og dramatísk í senn“
-L.I.B.Topp5.is
hörku spennumynd frá leik-
stjóra 2 fast 2 furious og
boyz´n the hood
Sími 551 9000
Miðasala opnar kl. 14.30
3 BÍÓ Á AÐEINS 400 KR.*
* Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 79
ÞAÐ er ekki að spyrja að okkur
karlmönnum. Að sjálfsögðu var
ekki hægt að sjá einlæga, kröft-
uga og, það verður að viðurkenn-
ast, dálítið barnalega krossferð
Evu Ensler fyrir kynfrelsi kvenna
í friði. Í framhaldi af Píkusögum
hlaut að koma Typpatal, og það
gat aldrei orðið annað en stólpa-
grín. Það góða er að grínið er
meira og minna á okkar kostnað,
en engu að síður ber það vott um
að við höfum sterka tilhneigingu
til að mæta alvarlegum vangavelt-
um kvenna um málefni kynjanna
með djúpstæðu alvöruleysi.
Að forminu til er Typpatal fyr-
irlestur, með Power Point sýn-
ingu, kökuritum og öllu, um niðu-
stöður „rannsóknar“ sem
höfundur sýningarinnar segist
hafa gert á netinu. Brandararnir
byggjast á hvernig lagt er út af
niðurstöðunum, og svo nátt-
úrulega eru sum svörin bráð-
hlægileg í sjálfu sér. Viðfangs-
efnin eru gamalkunn: stærð,
úthald, sjálfsfróun, getuleysi,
samkynhneigð, og svo nátt-
úrulega hinir ýmsu vinklar á sam-
skiptum við hitt kynið. Allt er það
frekar hellisbúalegt eins og við er
að búast, og það verður að við-
urkennast að efnið sem þeir Auð-
unn og Sigurður vinna hér með er
ekki upp á sérlega marga fiska.
Alls ekki ónýtt, en dálítið jaskað
og þreytt, kannski ekki ósvipað
ástandinu á manngreyinu sem
samkvæmt sýningunni átti hæsta
„skorið“ í könnuninni um tíðni
sjálfsfróunar.
Góðu fréttirnar eru aftur á móti
frammistaða Auðuns Blöndal, sem
mér hefur hingað til virst vera
svona heldur í aftursætinu meðal
Strákanna hvað varðar skophæfi-
leika. Þar líður hann sjálfsagt fyr-
ir að vera ekki eins trúðslega vax-
inn og Sveppi eða jafneðlis-
fyndinn og Pétur. Kannski
einfaldlega of myndarlegur, sem
hjálpar mönnum ekki alltaf til að
vekja hlátur. Hér sýnir hann hins-
vegar alveg prýðileg tök á list
uppistandarans, tímasetningar
bjuggu iðulega til áhrifarík
„pöns“ úr þunnum bröndurum og
honum tókst vel að virka „spont-
ant“, telja okkur trú um að þau-
læft eintalið væri fullt af hug-
myndum sem kviknuðu á
staðnum. Samband Auðuns við
salinn var gott, það er kraftur og
snerpa í flutningnum. Reikna má
með að hér hafi fjölþætt reynsla
og hæfileikar Sigurðar Sigurjóns-
sonar komið flytjandanum í góðar
þarfir. Staðfærslan og heimfær-
ing efnisins á íslenskan veruleika
er prýðilega lukkuð.
Typpatal er prýðileg léttmet-
issýning, best þegar hún er kjána-
legust, verst þegar hún reynir að
láta eins og verið sé að tala í al-
vöru. Sem betur fer skilur hún
ekkert eftir sig nema innsýn í víð-
tækt notagildi Royal-búðinga og
aukið álit á Auðuni Blöndal sem
uppistandara.
Strákahúmor
LEIKLIST
NASA
Flytjandi: Auðunn Blöndal.
Höfundur: Richard Herring, leikstjóri:
Sigurður Sigurjónsson.
NASA 30. nóvember 2005.
Typpatal
Þorgeir Tryggvason
Morgunblaðið/Þorkell
„Samband Auðuns við salinn var gott, það er kraftur og snerpa í flutn-
ingnum,“ segir m.a. í dómi en sýningin er sögð prýðilegt léttmeti.
Leikkonan Sarah Jessica Parker,þekktust úr þáttaröðinni Beðmál í
borginni, er komin með nýtt áhugamál.
Heimildir herma að hún grípi í prjóna í
öllum lausum stundum eftir að félagi
hennar í þáttunum, Kristin Davies, hafi
kynnt hana fyrir hannyrðunum. Á töku-
stað á nýjustu kvikmynd hennar Spinn-
ing Into Butter eru víst allir prjónandi
því Parker hefur komið af stað hálf-
gerðu prjónaæði á meðal tökuliðsins.
Sarah hefur í nýlegu viðtali skýrt frá
því að þegar hún var að vaxa úr grasi
hafi fjölskyldan verði svo fátæk að það
hafi ekki alltaf verið til aur fyrir jóla-
gjöfum handa henni.
„Við vorum átta systkinin og þegar
maður var orðinn nógu stór til að
höndla sannleikann um jólasveininn
fékk maður það hlutverk að pakka inn
gjöfunum fyrir þá sem yngri voru.“
Fólk folk@mbl.is
Reuters