Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
0
0
7
SJÓN:ARGÓARFLÍSIN
„ALVEG FANTASKEMMTILEG BÓK“
– Illugi Jökulsson, Talstöðinni
„ÞETTA ER LISTILEGA SKRIFUÐ SAGA“
– Silja Aðalsteinsdóttir, TMM
NÝ BÓK EFTIR
NORÐURLANDA-
MEISTARANN
Í BÓKMENNTUM
Yf ir l i t
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir Vörustjórnunarblaðið.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga
Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
MARGT VEKUR ATHYGLI
Yfirtökunefnd Kauphallar Íslands
hefur óskað eftir því við Landsbank-
ann að fá að sjá afrit af afleiðusamn-
ingnum sem gerður var vegna
kaupa bankans á 10% hlut Odda-
flugs og Baugs í FL Group. Við-
skiptaráðherra segir margt vekja
athygli sína hvað varðar viðskiptin
og segir ástæðu til að vera á varð-
bergi.
Kosningar í Írak
Írakar kusu nýtt þing í gær, kjör-
sókn var mun meiri en vænst hafði
verið. Að þessu sinni var þátttakan
síst minni í héruðum súnní-araba.
Mikil öryggisgæsla var í landinu í
gær vegna hótana hryðjuverka-
manna en fáar árásir voru gerðar á
kjörstaði. Forseti Íraks sagði að um
hátíðardag allrar þjóðarinnar væri
að ræða. Víða ríkti mikill fögnuður
og var jafnvel dansað við kjörstaði.
Kröfum hafnað
Héraðsdómur Reykjavíkur hafn-
aði í gær kröfum sakborninga í
Baugsmálinu um niðurfellingu máls-
ins, en verjendur höfðu sett fram þá
kröfu vegna ítrekaðrar útivistar af
hálfu ákæruvaldsins.
Uppreisn í Fatah
Ungir menn í Fatah, flokki
Mahmouds Abbas, forsætisráðherra
Palestínumanna, ætla að bjóða fram
eigin lista vegna óánægju með áhrif
eldri flokksleiðtoga sem skipa efstu
sætin á listum samtakanna fyrir
þingkosningarnar í janúar.
GYLFI Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðusam-
bands Íslands, segir að sam-
bandið teldi brýnt að stjórnvöld
breyttu um aðferðafræði við
verndun landbúnaðar. Inn-
flutningshöftin og þær sam-
keppnishömlur sem séu í grein-
inni hafi leitt til þess að
neytendur beri mjög skarðan
hlut frá borði.
„ASÍ tók þátt í því, í sam-
starfi við landbúnaðarráðuneytið og garðyrkju-
bændur, að breyta fyrirkomulagi nefndar á græn-
metisframleiðslu og þær aðgerðir leiddu til þess að
grænmetisverð lækkaði mikið. Þar var horfið frá
innflutningsvernd og tilteknum fjármunum beint í
niðurgreiðslur til bænda sem þeir hafa þá sem að-
stoð til að bæta sér upp aðstöðumun. Að öðru leyti
eru bændur að keppa við innfluttar vörur og það
hefur leitt til bæði hagræðingar og meiri sam-
keppni og það merkilega við þetta var að ávextir
sem aldrei höfðu borið tolla eða vernd lækkuðu í
verði. Þetta undirstrikar þann málflutning sem
ASÍ hefur verið með, að það getur farið saman að-
stoð við bændur og aukin samkeppni og innflutn-
ingur í greininni, það þarf ekki að vera mótsögn,“
segir Gylfi.
Gylfi segir að innan Evrópusambandsins fái
bændur beingreiðslur og síðan sé byggt á frjálsum
viðskiptum á markaði. „Þegar Finnar og Svíar
gengu í Evrópusambandið var breytt um aðferða-
fræði þar og opnað fyrir samkeppni innan Evrópu-
sambandsins og jafnframt var beinn stuðningur til
bænda. Þar hefur vöruverð lækkað talsvert mikið
án þess að ganga á kjör bænda. Hér á landi eru
bæði ríkisstyrkir og tollar, eitt er það að nota rík-
isstyrki til að styrkja bændur og jafna aðstöðumun
þeirra en ef líka er beitt innflutningsvernd er verið
að útiloka samkeppni og það eitt og sér leiðir til
hærra vöruverðs,“ segir Gylfi.
Skortir innsýn í hvar
verðmunurinn liggur
„Ég hefði viljað sjá samanburð á afkomu í þess-
um verslunargreinum, það dugar ekki endalaust að
vitna til flutningskostnaðar og smæðar. Eitthvað er
það sem veldur því að vöruverð á Íslandi, á vörum
sem ættu að vera fullkomlega samkeppnishæfar, er
sýnilega miklu hærra hér á landi. Því verður versl-
unin að svara með einhverjum öðrum hætti. Það
eru ekki verndartollar á mjög stórum hluta þeirra
matvara sem hér eru í matvöruverslunum. Þessi
rök geta dugað að einhverju leyti gagnvart land-
búnaðarafurðum. En það er greinilegt að við neyt-
endur höfum ekki yfirsýn yfir það hvar þessi mun-
ur liggur. Það geta menn ekki útskýrt í burtu þegar
svona skýrsla kemur fram. Það hlýtur að vera
verkefni stjórnvalda, þá samkeppnisyfirvalda, að
leita haldbærra skýringa. ASÍ hefur lengi óskað
eftir því að fá heildsöluvísitölu frá Hagstofunni og
meiri innsýn í verðlagningu og verðákvarðanir á
markaðnum. Í gegnum okkar verðlagseftirlit erum
við á vaktinni og verðum sýnilegar varir við þetta
en eins og aðra neytendur skortir okkur meiri inn-
sýn í það hvar þessi mikli verðmunur verður til.“
Gylfi segir þó mikið fagnaðarefni þegar sam-
keppnisyfirvöld fari yfir þessi mál og birti skýrslu
um þau. „Skýrslan sýnir það og sannar að verð-
munurinn er þarna og við þurfum að borga 42%
hærra verð fyrir matvöru. Ég get fullyrt það sem
framkvæmdastjóri Alþýðusambandsins að laun
hér á landi eru ekki 42% hærri en hjá nágranna-
löndunum. Þetta kemur því auðvitað niður á lífs-
kjörum okkar félagsmanna,“ segir Gylfi.
Horfið verði frá innflutn-
ingsvernd á búvörum
Gylfi
Arnbjörnsson
EINAR Haralds-
son, 18 ára piltur,
sem lögreglan í
Reykjavík og
björgunarsveitir
leituðu að í gær
fannst látinn við
ylströndina í
Nauthólsvík um
hádegið í gær.
Ekki er uppi grunur um að lát hans
hafi borið að með saknæmum hætti.
Lögreglan í Reykjavík og aðstand-
endur Einars heitins vilja koma á
framfæri þakklæti til allra þeirra
sem aðstoðuðu við leitina.
Fannst látinn
í Nauthólsvík
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráð-
herra segir að fregnir af því að er-
lend fiskiskip séu að laumast inn í ís-
lenska lögsögu sýni enn og sanni að
eftirliti verði ekki haldið úti á hafinu
nema með rekstri skipa og flugvéla.
„Þessar fréttir sýna enn og sanna,
að eftirliti verður ekki haldið úti á
hafinu nema með rekstri skipa og
flugvéla, þótt fjareftirlit sé öflugt og
raunar á heimsmælikvarða hjá
Landhelgisgæslunni.“ Björn segir
unnið að því að efla Gæsluna.
Fjareftirlit
ekki nóg
MEÐALDAGVINNULAUN Efl-
ingarfólks verða tæp 69% af með-
allaunum leikskólakennara hjá
Reykjavíkurborg skv. nýgerðum
kjarasamningum að því er fram
kemur í útreikningum Starfs-
mannaskrifstofu Reykjavíkurborg-
ar á áhrifum samninganna.
Unnið er að greinargerð um
heildaráhrif samninganna sem lögð
verður fram í borgarráði í næstu
viku en skv. tölulegum upplýsing-
um sem þegar hafa verið unnar
voru meðaldagvinnulaun Eflingar-
fólks um 74% af meðallaunum leik-
skólakennara í október árið 2000, í
mars sl. var hlutfallið tæp 59% en
eftir nýju samningana verður það
69% eins og áður segir.
Í upplýsingum borgarinnar kem-
ur fram að samningarnir ná til um
1.900 starfsmanna innan Eflingar
og rúmlega 2.300 starfsmanna í
Starfsmannafélagi Reykjavíkur-
borgar. Þar af starfa hátt í 700
manns á leikskólum. Á meðal þess
starfsfólks eru guðfræðingar, líf-
fræðingar og fleira háskólafólk.
Fram kemur í upplýsingum
borgarinnar sem Morgunblaðið
fékk síðdegis í gær, að sumum
þessara starfsmanna sem hafa
langa starfsreynslu og gegna
stjórnunarstöðum innan leikskól-
anna, gefst kostur á hærri launum
en leikskólakennurum í sömu
stöðu. Þar sé um að ræða samtals
128 starfsmenn, eða um 3% þeirra
sem samningarnir ná til. Af þeim
séu 106 uppeldismenntaðir starfs-
menn innan StfR og 22 eru Efling-
arfélagar.
Meðaldagvinnulaun
69% af meðallaunum
leikskólakennara
FÁ MANNVIRKI virðast sleppa við veggjakrot af ein-
hverju tagi. Nýja göngubrúin yfir Hringbrautina, til
móts við Hljómskálagarðinn, er þar engin undantekn-
ing. Í gær var unnið við að þrífa krotið af, enda stendur
til á næstunni að opna nýju Hringbrautina formlega
með pompi og prakt.
Morgunblaðið/Ásdís
Krotið þrifið af krafti
Í dag
Fréttaskýring 8 Menning 38/39
Viðskipti 18/20 Umræðan 40/43
Úr Verinu 20 Minningar 44/55
Erlent 22/23 Skák 59
Minn staður 24 Myndasögur 60
Höfuðborgin 26 Víkverji 60
Suðurnes 26 Dagbók 60/63
Akureyri 28 Staður og stund 62
Austurland 29 Leikhús 64
Daglegt líf 30/35 Bíó 66/69
Forystugrein 34 Ljósvakamiðlar 70
Viðhorf 38 Veður 70
Af listum 38 Staksteinar 70
* * *