Morgunblaðið - 16.12.2005, Qupperneq 20
ÍSLANDSBANKI áformar að opna
skrifstofu í Shanghai í Kína á næsta
ári. Þetta kemur fram í frétta-
tilkynningu frá bankanum en skrif-
stofan mun heyra undir alþjóða- og
fjárfestingasvið.
„Meginhlutverk skrifstofu okkar
verður að þróa viðskiptasambönd
við viðskiptavini okkar í Kína.
Áhersla verður fyrst og fremst á
matvælamarkaðinn, endurnýt-
anlega orku og skipaiðnaðinn. enda
eru þetta þær atvinnugreinar sem
Íslandsbanki leggur megináherslu á
á alþjóðlegum mörkuðum,“ segir
Magnús Bjarnason, framkvæmda-
stjóri yfir starfsemi bankans í Asíu
og Ameríku.
Að hans sögn er stefnt á að skrif-
stofan verði opnuð á síðari hluta árs-
ins en starfsmenn verða til að byrja
með 3–4.
Magnús segir þrjár meginsá-
stæður vera fyrir því að Íslands-
banki opnar skrifstofur þar. „ Í
fyrsta lagi er Kína stærsti framleið-
andi fiskafurða og mikilvægasti
framleiðandi á frosnum sjávaraf-
urðum fyrir Japan, Bandaríkin og
Evrópu og í auknum mæli sem al-
hliða matvöruframleiðandi. Í öðru
lagi, er talsverð eftirspurn eftir
lausnum fyrir endurnýtanlega orku
í Kína, og á þessu sviði er bankinn
þegar þátttakandi. Í þriðja og síð-
asta lagi er skipaiðnaðurinn að flytj-
ast í auknum mæli til Kína. Það er
því mikilvægt að bankinn skilji
þennan mikilvæga markað og á
sama tíma að geta stutt við bakið á
íslenskum, norskum og alþjóðlegum
viðskiptavinum bankans til að ná
fótfestu þar.“
Magnús segir opnun skrifstof-
unnar vera hluta af uppbyggingu
fjárfestinga- og alþjóðasviðs Ís-
landsbanka.„Við erum að auka þjón-
ustu við núverandi viðskiptavini og
ná betur utan um þær greinar sem
við leggjum áherslu á alþjóðlega.
Þetta er mjög í anda uppbyggingar
bankans á undanförnum árum, en
alþjóðleg starfsemi okkar utan
heimamarkaða hefur verið byggð
upp með öflugum innri vexti og er
sú starfsemi þegar orðin verulegur
hluti af umsvifum bankans.“
ÍSB opnar skrifstofu í Shanghai
20 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
M Fashions hf.
6.000.000.000 kr.
1. flokkur 2005
Heildarnafnverð flokksins er 6.000.000.000 kr.
Verðtryggð skuldabréf 1. flokks 2005 eru gefin út til rúmlega 5 ára og endur-
greiðist höfuðstóll í einu lagi þann 1. október 2010. Vextir greiðast 1. apríl og
1. október ár hvert, fyrst 1. apríl 2006 og síðast 1. október 2010. Útgáfudagur
bréfanna er 1. júní 2005. Skuldabréfið ber 5,60% fasta ársvexti. Auðkenni
flokksins í Kauphöll Íslands verður MOSAIC 05 1.
Kauphöll Íslands mun taka bréfin á skrá þann 22. desember 2005.
Umsjón með sölu skuldabréfanna og skráningu í Kauphöll Íslands hefur Verð-
bréfamiðlun Landsbanka Íslands, Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík. Skráningar-
lýsing og önnur gögn sem vitnað er til í lýsingunni er hægt að nálgast hjá
Landsbanka Íslands.
NAFNVERÐ ÚTGÁFU:
SKILMÁLAR SKULDABRÉFA:
SKRÁNINGARDAGUR:
Skráning skuldabréfa
í Kauphöll Íslands
410 4000 | www.landsbanki.is
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N/
SI
A.
IS
L
BI
3
06
45
1
2/
20
05
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N/
SI
A.
IS
L
BI
3
06
45
1
2/
20
05
HEILDARAFLI íslenskra skipa í
nýliðnum nóvembermánuði var
97.400 tonn sem er 40.200 tonnum
minni afli en í nóvember 2004 en þá
veiddust 137.600 tonn. Milli nóvem-
bermánaða 2004 og 2005 dróst verð-
mæti fiskaflans saman um 11,1%, á
föstu verði ársins 2003. Það sem af
er árinu 2005 hefur verðmæti fiskafl-
ans, á föstu verði ársins 2003, dregist
saman um 3% miðað við 2004, sam-
kvæmt upplýsingum Hagstofunnar.
Botnfiskafli var rúm 44.300 tonn
samanborið við rúm 46.600 tonn í
nóvember 2004 og dróst því saman
um tæp 2.300 tonn. Þar af nam
þorskaflinn ríflega 20.400 tonnum og
er það tæpum 2.100 tonnum minna
en í fyrra. Ýsuaflinn nam tæplega
9.400 tonnum sem er tæpum 600
tonnum minni afli en 2004. Hins veg-
ar jókst ufsaafli um rúm 600 tonn frá
fyrra ári, var tæp 7.900 tonn í nóv-
ember í ár. Flatfiskafli var tæp 1.500
tonn sem er samdráttur um ríflega
600 tonn frá fyrra ári, þar af veidd-
ust rúm 600 tonn af grálúðu, rúm 300
tonn af skarkola og rúm 160 tonn af
sandkola. Á sama tíma í fyrra nam
grálúðuaflinn rúmum 700 tonnum og
skarkola- og sandkolaflinn, hvor um
sig, ríflega 400 tonnum.
Síldaraflinn var rúmlega 50.700
tonn og dróst saman um 4.700 tonn
frá fyrra ári. Samdráttur hélst
áfram í kolmunnaveiðunum og var
einungis rúmum 300 tonnum landað
í nóvember miðað við ríflega 31.000
tonn á sama tíma í fyrra.
Skel- og krabbadýraafli var rúm
500 tonn og dróst saman um 1.200
tonn frá 2004. Rækjuafli var um 400
tonn og dróst saman um tæp 200
tonn. Mestu munar þó um kúfiskafla
en engum kúfiski var landað í nóv-
ember miðað við 1.000 tonna afla á
sama tíma í fyrra.
Heildarafli íslenskra skipa það
sem af er árinu 2005 nemur
1.595.700 tonnum og er það tæplega
47.200 tonna minni afli en á sama
tímabili í fyrra. Botnfiskafli var
455.100 tonn sem er 2.400 tonnum
minna en árið áður. Flatfiskafli dróst
saman, nam 25.500 tonnum í ár mið-
að við 29.300 tonn árið 2004. Upp-
sjávarafli dróst einnig saman, um
22.900 tonn. Stafar það af 149.500
tonna samdrætti í kolmunnafla sem
þó er veginn upp af aukningu í síld-
arafla um 49.000 tonn og loðnuafla
um 77.200 tonn. Skel- og krabba-
dýraafli var tæpum 18.100 tonnum
minni í ár en í fyrra.
!
"##$
"##%
&
'
( )
( !*
+
"##$
$, ,"-
" .."
%% $$-
,,-
/. #$$
. 0"-
.
$$ /$.
. $-#
%# 0/.
#
//.
%/#
",
+
"##%
1 !
"##$
1 !
"##%
$%0 %#2
"- "%-
.-- #2,
%.2 .%$
$#, -%2
/. ,.0
/.2
$%% ..2
"% $-/
"$2 #2-
%-% /".
"%0 $00
./ %".
,-#
$
"
!
#
%
Enn dregst
fiskaflinn saman
Skýringin fyrst og fremst mikill
samdráttur í veiðum á kolmunna
ÚR VERINU
ÞRETTÁN bátar voru sviptir veiði-
leyfi í nóvember. Bátarnir voru
sviptir leyfinu fyrir afla umfram
heimildir og vanskil á afladagbók í
flestum tilfellum. Þá var heimavigt-
unarleyfi Fiskmarkaðs Suðurnesja í
Grindavík afturkallað ótímabundið
vegna brota gegn reglum um vigtun
sjávarafla.
Eftirtaldir bátar voru sviptir leyfi
vegna afla umfram heimildir unz
aflamarksstaða þeirra hafði verið
lagfærð: Kolbeinsey BA, Síldin AK,
Una SU, Margrét ÍS og Gylfi BA.
Eftirtaldir bátar voru sviptir leyfi
í tvær vikur vegna vanskila á afla-
dagbók: Sævar Guðjóns ST, Monica
GK, Forrá ÞH, Hrannar EA, Krist-
inn SH og Sæunn HF. Loks var Haf-
borg KE svip veiðileyfi í tvær vikur
þar sem afli var ekki færður til vigt-
unar á hafnarvog við löndun.
Þrettán sviptir leyfi
VERÐBRÉFASTOFAN hefur
fengið leyfi Fjármálaeftirlitsins til
þess að reka lánastarfsemi og er hún
því orðin fjárfestingarbanki. Í kjöl-
farið verður nafni fyrirtækisins
breytt í VBS fjárfestingarbanki en
að sögn Jafets Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra, verður núverandi
nafn áfram notað.
Hann segir að þessi breyting muni
ekki hafa stór áhrif á starfsemi fyr-
irtækisins. „Möguleikar okkar til
þess að veita viðskiptavinum þjón-
ustu munu aukast og í raun er þetta
eðlilegt framhald af þeirri starfsemi
sem við höfum haldið úti frá stofnun
fyrirtækisins árið 1996. Við munum
halda áfram að veita viðskiptavinum
okkar óháða og góða þjónustu,“ seg-
ir Jafet en að hans sögn er það fyr-
irtækinu mjög mikilvægt að vera
óháður aðili. Verðbréfastofan stund-
ar mjög lítil hlutabréfaviðskipti fyrir
eigin reikning og aðspurður segir
Jafet að svo muni áfram verða.
Samkvæmt upplýsingum frá
Verðbréfastofunni nemur efnahags-
reikningur fyrirtækisins nú um 5,5
milljörðum króna og eigið fé þess sé
rúmur milljarður. Stjórn félagsins er
skipuð þeim Frosta Bergssyni (for-
manni), Bolla Kristinssyni, Eiríki
Tómassyni, Gísla Kjartanssyni og
Magnúsi Gunnarssyni.
Verðbréfastofan var sem áður
segir stofnuð árið 1996 og í nóvem-
ber það ár fékk hún starfsleyfi sem
löggilt verðbréfafyrirtæki. Alls
starfa 24 manns hjá fyrirtækinu.
Verðbréfastofan fær
fjárfestingarbankaleyfi
Morgunblaðið/Þorkell
Auknir möguleikar Jafet Ólafsson segir að þótt VBS hafi fengið fjárfestingarbankaleyfi muni fátt breytast.