Morgunblaðið - 16.12.2005, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
KÁPUR, JAKKAR, BOLIR, PILS,
JAKKAPEYSUR, SKINNKRAGAR
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Sími 462 3505
Opið virka daga 10-18
laugardag kl. 10-22
sunnudag kl. 13-17Christa
KLÆDDU ÞIG VEL
PÓSTSENDUM
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Spektro
Multivítamín, steinefnablanda
ásamt spirulinu, Lecthini,
Aloe vera o.fl. fæðubótarefnum
Ein með öllu
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
SUÐURNES
Hlíðar | Háteigssöfnuður fagnar
nú á þriðja sunnudegi aðventu
fjörutíu ára vígsluafmæli Háteigs-
kirkju, en hún var vígð á fjórða
sunnudegi aðventu, 19. desember
árið 1965. Af því tilefni stendur nú
yfir sýning í glergangi milli kirkj-
unnar og safnaðarheimilisins þar
sem sjá má bæði myndir úr starfi
safnaðarins og frá undirbúningi og
byggingu kirkjunnar. Þá verður
haldið upp á afmælið með sér-
stakri hátíðarmessu á sunnudag.
Háteigsprestakall var stofnað
árið 1952 og var söfnuðurinn án
kirkju fyrstu þrettán árin. Messað
var í Fossvogskirkju og í hátíð-
arsal Sjómannaskólans. Áður en
langt var liðið komu upp hug-
myndir um að byggja kirkju og
var Halldór H. Jónsson arkitekt
fenginn til að hanna hana, en hann
hannaði einnig grunninn að safn-
aðarheimili kirkjunnar sem var
formlega tekið í notkun árið 1995.
Séra Tómas Sveinsson var kjör-
inn prestur við kirkjuna árið 1976.
Hann segir söfnuðinn hafa fylgt
hraðri uppbyggingu borgarinnar
og það sjáist á þeirri hröðu þróun
sem hafi orðið á byggingu kirkj-
unnar. „Háteigskirkja gekk í
gegnum ferli á fjörutíu árum sem
margar eldri kirkjur í Evrópu
hafa gengið í gegnum á mörgum
öldum,“ segir Tómas. „Það hefur
sannarlega valdið miklu álagi á
sóknarnefnd og starfsmenn kirkj-
unnar, en uppbyggingin hefur ver-
ið afar hröð og mikið starf unnist
á þessum stutta tíma.“ Sem dæmi
um hraðan vöxt safnaðarins og
hverfisins sýnir Tómas blaða-
manni kirkjubækur frá árinu 1966,
en þar má sjá að alls voru tæp 400
börn færð til bókar fædd í sókn-
inni það ár. Þetta er gríðarlegur
fjöldi ef litið er til þess að árgang-
ur á Íslandi á þessum tíma var í
kringum 4.000 börn.
Kvenfélag Háteigssóknar er að
sögn séra Tómasar merkur þáttur
í sögu sóknarinnar, en það var
stofnað árið 1953. Kvenfélagið hélt
lengi vel uppi þróttmiklu starfi og
tók þátt í ýmiss konar hjálpar- og
líknarstarfi. Var það upprunalega
hlutverk kvenfélagsins, líkt og
annarra kvenfélaga, að standa fyr-
ir fjáröflunar- og félagsstarfi í
sókninni.
Kvenfélagið eldist
„Kvenfélagið hefur komið að öll-
um flötum kirkjustarfsins hér og
veitt okkur ómetanlegan stuðning,
en nú er hins vegar kvenfélagið
farið að eldast mjög, eins og ger-
ist með önnur kvenfélög á Ís-
landi,“ segir Tómas. „Kvenfélög
yngjast ekki upp og endurnýjunin
er engin. Þannig er nú meðalald-
urinn í kvenfélaginu orðin um 80
ár. Þetta skrifast líklega á það að
konur eru orðnar mun virkari
þátttakendur í atvinnulífinu í dag.
Áður fyrr var það konum hrein-
lega lífsnauðsynlegt að taka þátt í
svona félagsstarfi, þegar þær voru
heimavinnandi, að eiga sér fé-
lagslíf.“ Tómas segir konur nú fá
næga útrás fyrir félagsþörf og
slíkt á vinnumarkaðinum og stuðn-
ingur fólks við sóknina sé mun
óbeinni, í gegnum sóknargjöld.
Safnaðarstarfið hefur að sögn
Tómasar verið mjög mikið og öfl-
ugt og segir Tómas tilkomu safn-
aðarheimilisins árið 1995 hafa
skipt gríðarlegu máli, enda að-
staða öll batnað til muna. „Áður
en safnaðarheimilið kom höfðum
við bara kirkjuna,“ segir Tómas.
„Hún var að sjálfsögðu ekki full-
komin, í raun var á þessum tíma
sveitakirkjan færð beint í borgina
án þess að hinar ólíku þarfir borg-
arsamfélagsins væru skoðaðar.
Samt vorum við svo heppin að
hafa hér tvær skrifstofur og sal-
erni.“
Tómas segist afar ánægður með
félagsstarf aldraðra, sem fram fer
í „Setrinu“ en einnig með ýmislegt
annað félagsstarf, s.s. barnakórinn
og samfélag fermingarbarna. „Hér
er rekið gott starf fyrir fullorðna,
sem veitir gott samfélag. Gamla
fólkinu finnst gott að vera hér og
njóta samvista hvert við annað og
taka í spil,“ segir Tómas. „Svo er
mjög blómlegt barna- og unglinga-
starf hér og fermingarbörnin hafa
verið að taka mun virkari þátt í
starfinu í ár. Við sjáum hins vegar
ekki eins mikið af fólki á bjarg-
ræðisaldrinum, enda er það mjög
upptekið við að koma undir sig
fótunum og hafa í sig og á. Hins
vegar sjáum við það oft þegar eitt-
hvað bregður út af, og það er líka
okkar hlutverk. Messusóknin hef-
ur ekki verið upp á marga fiska,
en síðan við fórum að bjóða upp á
súpu eftir messu fór að myndast
hér afar sérstakt samfélag barna-
fólks og unglinga og eldri borgara,
sem hefur verið mjög spennandi
að rækta.“
Háteigskirkja fagnar fjörutíu ára vígsluafmæli á sunnudaginn með opnun sýningar
Hrá að innan Vígsla kirkjunnar fór fram við nokkuð kuldalegar aðstæður
19. desember 1965. Í stað hlýlegra kirkjuljósa lýstu ljóshundar kirkjugest-
um og geistlegum embættismönnum leið.
Um 400 börn fæddust í
Háteigssókn árið 1966
Morgunblaðið/Þorkell
Falleg hús Háteigskirkja og safnaðarheimilið setja mikinn svip á hverfið
og eru af mörgum talin dæmi um góða hönnun og fallegt umhverfi.
Kirkjunnar þjónn Séra Tómas
Sveinsson hefur bráðum þjónað Há-
teigssöfnuði í þrjátíu ár og er hann
afar ánægður með safnaðarstarfið.
Reykjanesbær | „Það er bara ánægj-
an, ég hef svo gaman af þessu. Ég
hugsa þetta ekki sem keppni,“ sagði
Hallbjörn Sæmundsson um jóla-
skreytingar á og við hús hans, Tún-
götu 14 í Keflavík. Húsið fékk sér-
staka viðurkenningu sem jólahús
barnanna í samkeppni um Ljósahús
Reykjanesbæjar enda koma þangað
leikskólabörn í hópum til að skoða
jólaskreytingar á húsinu og ýmsa
hluti sem Hallbjörn hefur komið þar
fyrir.
Nefnd á vegum menningar-,
íþrótta- og tómstundaráðs Reykja-
nesbæjar veitti í gær verðlaun fyrir
fallegustu jólaskreytingarnar í ár.
Afar mörg hús eru mikið skreytt í
Reykjanesbæ og bætist við á hverju
ári. Bærinn er orðinn þekktur fyrir
þetta og eru skipulaðar hópferðir
fólks af höfuðborgarsvæðinu til að
skoða auk þess sem margir ein-
staklingar leggja leið sína um bæinn
í þessum tilgangi. Til að auðvelda
fólki að finna verðlaunahúsin og hús
sem tilnefnd eru í samkeppninni um
Ljósahús Reykjanesbæjar hefur
bærinn gefið út kort sem hægt er að
nálgast á vef bæjarins, bens-
ínstöðvum og víðar.
Eigendur Þverholts 18 í Keflavík
fengu aðalverðlaunin þetta árið, við-
urkenninguna sem Ljósahús Reykja-
nesbæjar. Háholt 12 í Keflavík varð í
öðru sæti og Móavegur 1 í Njarðvík í
því þriðja. Eigendurnir fengu líka
peningaverðlaun frá Hitaveitu Suð-
urnesja. Best skreytta gatan var Óð-
insvellir í Keflavík og svo fengu rað-
húsin Ránarvellir 2–6 og
fjölbýlishúsið Aðalgata 5 viðurkenn-
ingar. Þá voru eigendur fallegustu
verslanaglugganna verðlaunaðir og
var Skóbúð Keflavíkur hlutskörpust.
Ýmis önnur sérverðlaun voru
veitt. Meðal annars fékk Myllu-
bakkaskóli verðlaun fyrir skemmti-
legar gluggaskreytingar í áraraðir
og Túngata 14 var verðlaunað sem
Jólahús barnanna.
Hallbjörn á Túngötu 14 hefur
lengi lagt á sig þá vinnu að skreyta
hús sitt fyrir jólin. Hann segir að
húsið bjóði upp á það. Það er gamalt,
rautt hús í gamla bænum í Keflavík,
nokkuð jólalegt að sjá. Hann leggur
mikið upp úr því að vera með jóla-
sveina og ýmsar fígúrur í garðinum,
meðal annars helli með Grýlu og
Leppalúða. Þá er hann með upplýst
líkan að húsinu og þaðan óma jóla-
lögin. „Ég hef smíðað mikið af þessu
sjálfur og reyni að bæta smávegis
við á hverju ári.“ Ekki stendur á við-
brögðunum því vinsælt er hjá börn-
um bæjarins að heimsækja Hall-
björn. „Þau bíða alltaf eftir því að ég
skreyti,“ segir hann. Hallbjörn segir
að einn daginn hafi komið sextíu
börn af leikskólum í heimsókn. Sjálf-
ur nýtur hann þessa tíma.
Jólahús barnanna Hallbjörn Sæ-
mundsson er með skreytt líkan af
húsi sínu í garðinum og þaðan
heyra vegfarendur jólasöngva.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Ljósahús Einbýlishúsið Þverholt 18 í Keflavík var útnefnt Ljósahús
Reykjanesbæjar 2005. Það er fallega skreytt eins og mörg hús í bænum.
Börnin bíða eftir að ég skreyti