Morgunblaðið - 16.12.2005, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 29
MINNSTAÐUR
AUSTURLAND
Seyðisfjörður | Gert er ráð
fyrir að umhverfisráðherra
kveði upp úrskurð varðandi
umhverfismat Fjarðarárvirkj-
unar við Seyðisfjörð skömmu
fyrir jól, en úrskurðar hefur
verið beðið um hríð.
Í ágúst sl. ákvað Skipulags-
stofnun að ný virkjun við
Seyðisfjörð, Fjarðarárvirkjun,
þyrfti ekki í umhverfismat.
Kærufrestur til umhverf-
isráðherra rann út um miðjan
september og eru nú fimm
kærur til meðferðar hjá ráð-
herra og ákvörðunar að
vænta.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Rennur lygn Fjarðará leitar til sjávar í Seyðisfjarðarkaupstað.
Úrskurðar að vænta um Fjarðarárvirkjun
Reyðarfjörður | Nánast allir
starfsmenn Bechtel við álvers-
bygginguna á Reyðarfirði fara til
síns heima í jólaleyfi og verður
engin vinna á svæðinu frá 22. des-
ember til 2. janúar. Nærfellt 1.000
manns hafa unnið á álverssvæðinu
það sem af er vetri. 90% af erlend-
um starfsmönnum sem fara í leyfi
gera það á milli 17. og 20. desem-
ber og fljúga frá Egilsstöðum á
Keflavíkurflugvöll til framhald-
andi flugs út. 2. janúar kemur svo
fyrsta fólkið til baka. Þeir fáu sem
verða á svæðinu yfir hátíðarnar
verða þar til eftirlits og örygg-
isgæslu.
Það er ýmislegt sem hefur gerst
í kringum álversbygginguna frá
því að henni var ýtt úr vör. Búið
er að elda þrjú hundruð þúsund
máltíðir í starfsmannaþorpinu, búa
um rúmin ríflega þrettán þúsund
sinnum og þrífa herbergi í yfir
tuttugu og sex þúsund skipti. Og
Reyðfirðingar hafa áttað sig á að
lítið þýðir að fara í ríkið á föstu-
dögum því erillinn er slíkur að
búðin hefur á stundum tæmst eftir
viðkomu álversmanna. Fer þó ekki
sögum af öðru en að allt séu þetta
indælismenn og prúðir velflestir.
Þorpið tæmist Brátt leggst kyrrð hátíðanna yfir starfsmannaþorpið.
Engin
vinna við
álver yfir
hátíðar
Jólasögur | Bóndi nokkur í sjáv-
arplássi á Austfjörðum átti ung
börn og þurfti stundum að hafa
hemil á þeim. Um jólaleytið var
það Grýla sem mest ógn stóð af,
enda bjó hún með hyski sínu uppi í
bæjarfjallinu og hræddust börnin
hana mjög. Magnaðist skelfingin
svo að börnin þorðu vart út fyrir
bæjardyrnar og tók steininn úr
þegar þau þóttust sjá hana á bát
skammt úti í firðinum. Brá bóndi á
það ráð að snara byssu á öxl sér og
arka ofan í fjöru, þar sem hann
miðaði vandlega og skaut Grýlu
dauða. Hefur síðan ekki til hennar
spurst í firðinum og börnin óttalaus
og nú uppkomin.
Í öðrum firði er það haft fyrir
satt að hátt í tugur jólasveina birt-
ist jafnan á Þorláksmessu á vél-
sleðum og fari milli húsa. Fá þeir
dreitil af brjóstbirtu á hverjum bæ
og þegar degi hallar er aksturslag
þeirra orðið meira en lítið skrykkj-
ótt og sveinarnir farnir að syngja
við raust. Það fylgir sögunni að
lögreglan á staðnum hafi einatt
tekið þá í karphúsið.
Fréttir
í tölvupósti
Jón Yngvi Jóhannsson í Kastljósi
„Þessi ótrúlega Kjarvalsbók slær öll met í
vandvirkni og metnaði
í útgáfu á Íslandi“
Við óskum Nesútgáfunni og höfundum
bókarinnar til hamingju með tilnefninguna