Morgunblaðið - 16.12.2005, Page 30
daglegtlíf
ídesember
JÓLALEGT
RAUÐ TRÖNUBER
FRUMLEGT
JÓLASKRAUT
púsluspil er ekki skemmtilegasta
afþreying barna og unglinga á jól-
um, enda miklu fleira í boði nú en
þegar við vorum að alast upp. Þess
vegna hefur vægi púsluspila
minnkað hjá okkur, en kakan verð-
ur að vera á sínum stað á jóladag.
Þetta er jú jólakakan okkar.“
Þau segja að allir í fjölskyldunni
kunni vel að meta kökuna, sér-
staklega þó yngri sonurinn, Arnar.
„Við felum hana yfirleitt, en krakk-
arnir eru slyngir að finna felustað-
ina og taka smáforskot á sæluna.
Við erum heldur ekki alveg saklaus
sjálf.“
Þau viðurkenna að jólakakan í ár
sé búin. Anna Sigríður segist þó
ekki óttast að stemninguna vanti á
jóladag, því tengdamóðir sín hafi
gefið sér uppskriftina. „Auk þess
kemur hún alltaf með aukaköku til
okkar á aðfangadag.“
Jólakakan okkar
„Upprunalega uppskriftin er miðuð
við að bakaðir séu þrír fremur
þunnir botnar. Á seinni árum hefur
tengdamóðir mín einfaldað upp-
skriftina með því að hafa botnana
tvo og örlítið þykkari. Mér finnst
kakan ekki síðri þannig, svo ég
hallast að einfaldari gerðinni.“
Botnar:
110 g sykur
220 g smjörlíki
110 g púðursykur
3 egg
220 g hveiti
1 tsk matarsódi
2 tsk kanill
1 tsk negull
Krem:
75–100 g smjör, stofuheitt
2½ dl flórsykur
2 eggjarauður
1–2 tsk vanilludropar
Smjörlíki, sykur og púðursykur
er hrært vel saman. Eggjum er
síðan bætt saman við, einu í einu,
og hrært saman. Þá er hveiti, mat-
arsóda og kryddi bætt út í og
hrært þar til deigið hefur samlag-
ast vel.
Deiginu er skipt í tvo eða þrjá
hluta og bakað í smurðum kringl-
óttum mótum við 200° hita í 20
mínútur.
Meðan botnarnir eru að kólna er
tilvalið að gera kremið. Smjör, syk-
ur og vanilludropar er hrært vel
saman. Eggjarauðum er síðan bætt
saman við, einni í einu.
Kreminu er smurt á botnana og
þeir lagðir saman þannig að krem-
ið sé á milli.
Þessi kaka geymist ágætlega (á
góðum felustað), en einnig má
setja hana í plastpoka og frysta.
Þetta er gamaldags brún-kaka sem ég smakkaðifyrst fyrir 27 árum þegarvið Halldór Ragnar vor-
um að draga okkur saman. Mér
fannst hún strax góð og í mínum
huga er hún ennþá ómissandi hluti
af jólunum,“ segir Anna Sigríður
Magnúsdóttir, sem átti þó góðu að
venjast, enda dóttir bakarans í
Björnsbakaríi við Hringbraut.
Hún segir að tengdamóðir sín
Björg Hafsteinsdóttir hafi um ára-
bil bakað þessa köku á aðventunni.
„Eftir að við Halldór Ragnar hóf-
um búskap hefur hún alltaf gefið
okkur köku fyrir jólin.“
Með púsluspil og kökusneið
Á æskuheimili Halldórs Ragnars
var til siðs í kringum jólin að púsla,
gjarnan með kryddkökusneið og
mjólkurglas við höndina. Þau Anna
Sigríður héldu þeim sið lengi vel.
„Við komumst síðan að því að
Kryddkaka frá tengdamömmu
JÓLAHEFÐ
Hjónin Halldór Ragnar
Halldórsson og Anna
Sigríður Magnúsdóttir
tengja jóladag við sneið
af gamaldags krydd-
köku. Þau trúðu Brynju
Tomer fyrir því að ann-
aðhvort þyrfti að fela
kökuna á aðventunni
eða baka fleiri en eina.
Morgunblaðið/Ómar
Halldór Ragnar og Anna Sigríður ásamt Arnari sem hefur sérstakt dálæti á jólaköku ömmu sinnar.
Að lifa jólin afVerið skipulögð
Á þessum árstíma er mikið um gjafir, mat,
fjölskyldiboð og aðrar veislur. Allt getur þetta
verið mjög ánægjulegt en það getur einnig
skapað álag og streitu. Hér eru nokkur góð ráð
til að draga úr streitu.
Skrifið lista yfir allt það sem
þið þurfið að gera og forgangs-
raðið verkefnum. Setjið það
nauðsynlegasta efst á listan og
það sem hægt er að sleppa neðst.
Gerið raunsæjar áætlanir um
það hversu mikinn tíma þið
þurfið til hvers verks. Setjið
ykkur tímatakmörk
Skiptið með ykkur verkum og
látið börnin gera það sem þau
geta. Nýtið ykkur þá þjónustu
sem er í boði. Látið pakka gjöfum
í verslunum. Kaupið tilbúinn mat
og tilbúnar kökur til að hafa í
bakhöndinni.
Eyðið ekki um efni fram í
gjafir. Forðist að steypa ykkur í
skuldir.
Haldið ykkur á fjárhags-
áætlun. Verslið snemma og
nýtið ykkur útsölur. Hlaupið
ekki eftir skyndihugdettum.
Gerið fjárhagsáætlun
Stundið líkamsrækt.
Látið ekki annríkið koma í
veg fyrir gönguferð,
sundsprett, jógatíma eða
aðra þægilega líkamsrækt.
Gefið ykkur tíma til að
slaka á á hverjum degi,
þannig að þið getið verið
ein, lesið, hugleitt eða
fengið ykkur blund.
Haldið sambandi við
vinina. Gefið ykkur tíma til
að hitta fólk eða tala við
það í síma. Félagslegur
stuðningur hjálpar mikið.
Dekrið við ykkur
Í BYRJUN desember var opn-
aður nýr Grýluvefur hjá Náms-
gagnastofnun. Á vefnum er
hlýtt á Grýlukvæði Stefáns
Ólafssonar í Vallanesi í flutn-
ingi Ingólfs Steinssonar og
Jóns Guðmundssonar, ritstjóra
hjá Námsgagnastofnun. Nem-
endur í Norðlingaskóla mynd-
skreyttu kvæðið.
Vefurinn var opnaður í
Norðlingaskóla í byrjun des-
ember en flestir nemendur
skólans fengu tækifæri til að
koma að verkefninu. Þeir túlka
Grýlu á skemmtilegan hátt
enda gefur kvæðið tilefni til
þess að ímyndunaraflið fari á
flug. Samkvæmt kvæðinu var
Grýla litrík kerling og ófrýni-
leg. Sögusviðið er Fljótsdals-
hérað og berst sagan að Víði-
völlum í Fljótsdal.
Morgunblaðið/Golli
Grýluvefur
NETIÐ
www.nams.is
KRISTNIR menn gerðu
kertið snemma að tákni sínu
vegna augljósrar tengingar
við orð Krists þar sem hann
segir: Ég er ljós heimsins. Á
þrettándu öld voru kerti
notuð til skreytinga á trjám.
Á síðari tímum hafa kerti
orðið eitt helsta tákn
jólanna.
Kertaljósið
TÁKN JÓLANNA