Morgunblaðið - 16.12.2005, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
María er sú fyrsta úrhópi spjallverja áspjallrásinniwww.hlad.is sem gef-
ur villibráðaruppskriftir á aðvent-
unni. Veiðimenn ræða málefni sín
af kappi á þessari spjallrás og
tóku vel í beiðni um uppskriftir
þegar eftir því var falast.
María er merkiskona og var í
fréttunum síðastliðið sumar þegar
hún skaut sauðnaut á Grænlandi.
Það þótti tíðindum sæta, því þær
eru eingöngu tvær konurnar sem
hafa farið á sauðnautaveiðar á
vesturströnd Grænlands, hin er
dönsk. Nautið vó 450 kíló og hefur
nú verið stoppað upp, en kjötið
varð eftir á Grænlandi þar sem
heimamenn njóta góðs af, enda
bannað að flytja hrátt kjöt til
landsins.
„Ég byrjaði sem unglingur að
fara á veiðar með pabba mínum og
tók síðan nokkurra ára hlé meðan
börnin voru lítil. Síðustu 30 árin
höfum við hjónin farið saman á
veiðar og njótum þess ávallt að
ganga til rjúpna auk þess að fara
öðru hvoru á hreindýraveiðar og
gæsa- og andaveiðar.“ Eiginmaður
Maríu er Sigurgeir Sigurgeirsson
og segjast þau eiga margar dýr-
mætar stundir saman við veiðar.
Leið ykkur þá ekki illa síðustu
tvo vetur þegar bannað var að
veiða rjúpu? „Nei, nei,“ segir hún
og hlær hressilega. „Þá fórum við
með myndavél og fylgdumst með
rjúpunum. Stór hluti veiði-
mennsku er að geta lesið náttúr-
una og að skilja hana. Það skiptir
máli að vita hvernig fugl hegðar
sér, hvar hann heldur sig, hvað
hann étur og hvernig hann
bregst við veðri og vindum. Við
höfðum mjög gaman af því að
fara með myndavélina upp á
fjöll.“
María tekur veiðimennskuna
alvarlega, ekki nóg með að hún
veiði villibráð, geri að henni og
matreiði hana eins og listakokk-
ur, heldur hleður hún einnig
skotin sín sjálf, en því líkja skot-
veiðimenn við fluguhnýtingar
meðal laxveiðimanna.
Það eru náttúrlega rjúpur á
borðum hjá ykkur á aðfanga-
dagskvöld, eða hvað?
„Raunar ekki, því börnin okkar
borða með okkur á aðfangadags-
kvöld og þau kunna ekki að meta
rjúpuna. Af öllu kjöti sem til er í
heiminum eldum við kalkún á að-
fangadagskvöld.
Rjúpuna borðum við hins vegar
á gamlárskvöld og njótum þess í
botn.“
VILLIBRÁÐ
Veiðir villibráð
og matreiðir
María Björg Gunnarsdóttir er í hópi þeirra
fjölmörgu sem kunna að meta íslenska náttúru.
Hún er einlæg áhugakona um veiðar og kann
sannarlega að matreiða villibráð. Brynja
Tomer fékk hjá henni girnilegar uppskriftir.
Morgunblaðið/Ómar
María Björg Gunnarsdóttir við uppstoppaðan haus sauðnautsins.
Hreindýrasteik
með ferskjusósu
Fyrir 6
1,2 kg snyrtur hreindýravöðvi
salt og pipar
smjör til steikingar
Ferskjusósa
½ l villibráðarsoð (úr fugla- eða
hreindýrabeinum)
50 g sólberjasulta
1 dl púrtvín
2 ferskjur ferskar, afhýddar, skorn-
ar í báta
50 g kalt smjör
1 súputeningur (Maggi) eða kjöt-
kraftur, sósujafnari, salt og pipar
Meðlæti
600 g litlar soðnar kartöflur
1 knippi timían, ferskt
4 gulrætur
150 g sykurbaunir
1 dl rjómi
Aðferð
Skerið kjötið í 100 g sneiðar og
steikið í smjöri á pönnu. Takið af
pönnunni og haldið heitu í um 100°
heitum ofni meðan sósan og með-
lætið er útbúið.
Vín og soð er sett á pönnuna
sem notuð var til að steikja kjötið.
Steikarskófin leyst upp með vökv-
anum. Sólberjasultu og maukuðum
ferskjum er bætt saman við og
soðið við vægan hita. Sósan er
þykkt svolítið og kalt smjör sett í
klípum út í rétt áður en sósan er
borið fram. Hún á ekki að sjóða
eftir að smjörið er komið út í
hana.
Gulrætur eru skornar í strimla
og soðnar ásamt baunum í léttsölt-
uðu vatni í 4–5 mínútur. Litlu
soðnu kartöflurnar eru soðnar
áfram í rjóma og timíani í smá-
stund, eða þar til rjóminn þykkn-
ar.
Hreindýrapottréttur
Fyrir 6
1 kg hreindýravöðvi, gjarnan fram-
partur
1 dl blönduð íslensk ber, t.d. blá-
ber, hrútaber, sólber og rifsber
250 g sveppir, blandaðir villi-
sveppir eða ræktaðir sveppir eða
hvort tveggja
6–8 vorlaukar
6 einiber, grófsteytt
2 lárviðarlauf
nokkrir kvistir af nýju timíani eða
blóðbergi
1 msk olía
1 msk hindberjaedik
1 msk sólberjasíróp eða óþynnt
sólberjasaft
2 dl bragðmikið villibráðarsoð
(heimalagað eða íslenskur villi-
bráðarkraftur frá Oscari)
1 dl sýrður rjómi 18%
salt og pipar
Aðferð
Hreinsið allar sinar og fitu af
hreindýravöðvanum. Skerið ör-
þunnar sneiðar, þvert á vöðvann.
Best er að vöðvinn sé hálffrosinn
þegar hann er skorinn, því þá er
auðveldara að skera þunnar sneið-
ar.
Skerið sveppina í grófar sneiðar
og vorlaukinn á ská í um ½ cm
bita.
Snöggsteikið kjötsneiðarnar í
vel heitum víðum potti eða djúpri
pönnu, annaðhvort á teflonhúð eða
í ögn af olíu. Takið kjötið úr pott-
inum og setjið það til hliðar.
Hitið olíu í pottinum og snögg-
steikið sveppi og vorlauk ásamt
einiberjum, lárviðarlaufi og timí-
ani. Þegar þetta er orðið fallega
brúnað er hindberjaediki og sól-
berjasaft eða -sírópi hellt saman
við.
Látið sjóða saman og hellið síð-
an soðinu í pottinn sem notaður
var til að steikja kjötið. Hrærið
sýrða rjómann mjúkan og blandið
saman við.
Hitið að suðumarki og hrærið
vel í með sleif þar til sósan er orð-
in jöfn.
Setjið loks berin út í, hrærið
eftir það mjög varlega í sósunni til
að berin merjist ekki. Bragðbætið
með salti og pipar eins og þurfa
þykir.
Þá er sósan tilbúin. Setjið sneið-
arnar út í heita sósuna rétt áður
en rétturinn er borinn fram. Með
réttinum er gott að bera fram glæ-
nýjar íslenskar kartöflur og græn-
meti. Einnig er gott að hafa Wal-
dorfsalat.
Sósuna má gera daginn áður og
einnig má steikja kjötið daginn áð-
ur. Þetta er því tilvalinn réttur til
að taka með sér í sumarbústað eða
á villibráðarkvöld með félögunum.
Hreindýrasúpa Maríu
Fyrir fjóra
800 g hreindýraskanki, sagaður í
hæfilega bita
2 laukar, meðalstórir
75 g gulrætur
75 g sellerírót
2½ dl rjómi, léttþeyttur
150 g smjör
1½ dl gin
salt og pipar
3 lárviðarlauf
4 einiber
hvít og svört piparkorn
3 msk. blóðberg
2 msk. þriðja kryddið
smjörbolla
Allt grænmetið hreinsað og
grófskorið.
Smjörið brætt í potti og skank-
arnir brúnaðir.
Kryddað vel með salti og pipar
og grænmetinu bætt út í. Vatni
bætt við þannig að það fljóti vel
yfir skankana. Þegar suðan kemur
upp er fleytt ofan af soðinu og af-
ganginum af kryddinu bætt út í.
Látið sjóða við vægan hita í tvær
klst.
Soðið síað og bakað upp með
smjörbollu, þannig að villibráð-
arbragðið haldi sér. Soðið varlega
í sex mínútur. Bragðbætt með of-
annefndu kryddi og gini bætt út í
(sumir vilja láta smágráðaost með,
en mér finnst það yfirgnæfa hrein-
dýrabragðið). Kjötið skorið af
skönkunum í hæfilega strimla og
borið fram í súpunni. Léttþeyttum
rjóma blandað í súpuna og að síð-
ustu er hálfmuldum einiberjum
sáldrað yfir.
Morgunblaðið/Þorkell
Morgunblaðið/Árni Torfason