Morgunblaðið - 16.12.2005, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 35
DAGLEGT LÍF
Ég fékk uppskrift frá góð-vinkonu minni fyrir nokkr-um árum að sérlega góm-
sætu meðlæti sem inniheldur
þurrkuð trönuber og passar með
nánast hvaða kjöti sem er og allt í
einu varð þetta meðlæti nauðsynlegt
með rjúpunum að mínu mati. Áður
hafði ég þurft að sníkja nokkur ber í
poka frá þessari sömu konu, en hún
bjó svo vel að eiga góða að í Banda-
ríkjunum og fékk árlega sendan
vænan skammt af þessu góssi.
Reyndar eru ekkert endilega allir
fjölskyldumeðlimir jafn spenntir fyr-
ir þessu og ég, en það vill svo heppi-
lega til að það er ég sem elda jóla-
matinn og get því ráðið þessu nánast
alfarið sjálf. Trönuber minna svo
mikið á jólin, þau eru svo fallega rauð
og alveg einstaklega bragðgóð og
bráðholl þar að auki. Má sérstaklega
benda þeim sem eru viðkvæmir í
blöðru að drekka mikið af trönu-
berjasafa, hann getur jafnvel komið í
veg fyrir svæsnustu blöðrubólgu ef
hann er drukkinn reglulega. Ég vona
að vinkonu minni sé sama þótt ég
deili þessari gómsætu uppskrift með
lesendum.
Sveskju- og
trönuberjamauk
1½ msk smjör
2 tsk sykur
6 skallottulaukar, smátt saxaðir
1 msk balsamedik
½ b kjúklingasoð
4 msk þurrkuð trönuber
18 sveskjur
1½ msk rósmarín, smátt saxað
salt og pipar
Látið smjör, sykur og smátt sax-
aða skallottulauka malla saman í
u.þ.b. 15 mínútur. Edikið er síðan lát-
ið gufa upp að mestu í laukmaukinu.
Restinni af hráefnunum er bætt út
í og þetta látið malla þar til allt hefur
samlagast vel og er orðið að þykku
mauki. Berið fram með jólasteikinni,
hvort sem hún er rjúpur, hamborg-
arhryggur, endur eða gamla, góða
lambalærið.
Svo við höldum áfram með trönu-
berin þá fylgir hér ein sérlega góm-
sæt uppskrift sem er upplögð á að-
ventunni til að komast í
smájólafíling.
Svínslega góðar
svínakótilettur
4 svínakótilettur
1 msk smjör
1 msk matarolía
1 msk rósmarín, smátt saxað
salt og pipar
4 skallottulaukar, smátt saxaðir
1 dl púrtvín
1 b kjúklingasoð
3 msk þurrkuð trönuber
Lemjið aðeins kótiletturnar og
kryddið vel með salti, pipar og smátt
söxuðu rósmaríni. Steikið vel báðum
megin á heitri pönnu upp úr blöndu
af smjöri og matarolíu. Takið af
pönnunni og haldið heitum í ofni á
lágum hita. Setjið laukinn út á pönn-
una og bætið kannski smásmjöri við
ef vantar, lækkið hitann og látið
malla í um 10 mínútur. Hækkið hit-
ann og hellið púrtvíni yfir. Látið það
sjóða niður til hálfs og bætið þá kjúk-
lingasoði saman við og látið malla í
smástund. Bætið trönuberjunum út í
sósuna og leggið kótiletturnar út í.
Berið fram strax t.d. með góðu kart-
öflugratíni.
Að lokum kemur hér auðveld en
góð uppskrift að mauki úr trönuberj-
um.
Trönuberjamauk
1 poki trönuber
appelsínusafi
sykur
Setjið trönuberin í pott og hellið
alvöru appelsínusafa með aldinkjöti
yfir þannig að rétt fljóti yfir berin.
Látið suðuna koma upp og smakkið
til með sykri. Trönuberjamaukið er
ómissandi með kalkún og passar vel
með nánast hverju sem er.
MATUR
Trönu-
berja-
veisla
Morgunblaðið/Kristinn
„Ég hoppaði hæð mína
þegar ég kom auga á
þurrkuð trönuber í stór-
mörkuðum hér á landi,“
segir Margrét Þóra Þor-
láksdóttir sem gefur hér
uppskrift að meðlæti
sem passar með nánast
hvaða kjöti sem er.
Höfundur er matgæðingur.
2G
88
8)
8*
8;
!
9>
9<<
<8*?
H
DI 0
2@
0
J
!
6
'
4
@
K
>*+
'0!6K334$0
2@
0
J
!
6
'
4
@
K
>*+
89
8?