Morgunblaðið - 16.12.2005, Síða 62
62 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 fyndni, 4 borð
um þveran bát, 7 gægj-
ast, 8 óverandi, 9 lík, 11
tala, 13 vegur, 14
menntastofnun, 15 smá-
brellur, 17 ástargyðja, 20
frostskemmd, 22 refsa,
23 heldur, 24 lélegan, 25
árás.
Lóðrétt | 1 sjónauki, 2
skóflað, 3 straumkastið, 4
svall, 5 halda á lofti, 6
hindra, 10 svipað, 12 ílát,
13 skorningur, 15 stúfur,
16 bætir við, 18 leyfi, 19
líkamshlutar, 20 sár, 21
kvendýr.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 útitekinn, 6 sting, 9 nátta, 10 jón, 11 aftra, 13
arman, 15 spöng, 18 skrum, 21 lok, 22 glufa, 23 efnað, 24
útsmoginn.
Lóðrétt: 2 tvist, 3 tygja, 4 kenna, 5 notum, 6 Ásta, 7
vagn, 12 Rán, 14 ryk, 15 segg, 16 öfugt, 17 glaum, 18
skegg, 19 runan, 20 mæða.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Einhver sem hrúturinn þekkir er vanur
að sjá hann í tilteknu hlutverki og áttar
sig ekki á því hversu fjölhæfur hann er.
Hristu upp í hlutunum til þess að kanna
viðbrögðin, skiptu um „búninga“ eða
„leikmynd“ til þess að sjást í nýju ljósi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Frábær samvinna eykur velsæld á með-
an vont samband gerir hið gagnstæða.
Ef ástvinur hagar sér eins og fórn-
arlamb, ekki láta plata þig út í bjarg-
vættarrulluna. Hjálpaðu öðrum til að
hjálpa sér sjálfir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Sumir eru ánægðir með hlutina eins og
þeir hafa alltaf verið. Tvíburinn veit bet-
ur. Hjálpaðu fólki í kringum þig að vera
með á nótunum. Heill heimur bíður eftir
því að vera kannaður.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þiggðu bestu ráð sem fáanleg eru.
Kannski stendur krabbanum stuggur af
fólki sem nýtur velgengni, en það er ekk-
ert ósnertanlegt. Þeir sem hafa náð
lengst eru oft lítillátastir og hjálpsam-
astir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er þess virði að kynda undir ástinni í
lífi sínu, er það ekki? Ljónið þarf ekki
einu sinni að reyna, þegar út í það er far-
ið. Allt sem þarf er að vera opinn. Ef ein-
hver gerir á hlut þinn skaltu leyfa við-
komandi að bæta þér það upp. Gefðu
annað tækifæri hægri og vinstri.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einfaldaðu líf þitt. Bættu sambandið við
eina manneskju, einbeittu þér að einu
verkefni, eða hringdu eitt símtal. Það
skilar meiri árangri en að reyna að gera
allt í einu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það gildir einu hversu gott þú hefur það,
dagurinn í dag gengur út á það að skapa
enn meiri gæsku í lífi þínu. Leynd-
ardómurinn á bakvið ástina er að sjá
hana og finna hvert sem litið er.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það eru um það bil hundrað ástæður fyr-
ir því að sporðdrekinn getur ekki fengið
það sem hann vill. Og bara ein ástæða
fyrir því að hann getur það. Hugsaðu já-
kvætt og syntu gegn straumnum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Mistök verða hjá öllum, en það sem gerir
bogmanninn einstakan er það, að hann
nýtir sér reynsluna sem af þeim hlýst.
Punktaðu stöðuna hjá þér, innan tíðar
verður þú langt frá núverandi aðstæðum
og snýrð ekki aftur, nema kannski í hug-
anum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er uppbyggilegt að stunda sjálfs-
gagnrýni. Þú einbeitir þér að grundvall-
aratriðinu, sem er að bæta sig. Æfðu þig
í að skiptast á viðhorfum við einhvern
sem þú vilt hafa áhrif á, það er eina leiðin
til þess að ná árangri.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Himintunglin raða sér upp og hjálpa
vatnsberanum að einbeita sér, hugs-
anlega svo um munar. Að vera heltekinn
og hvatvís er ekki alltaf til vansa. Allt
hæfileikafólk hefur snert af slíku.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er engu líkara en að andstæðir pólar
togist á um sál fisksins. Endurheimtu
vald þitt. Náðu stjórn á hugsuninni.
Ekki elta hana niður skuggasund. Not-
aðu viljann til þess að beina þeim inn á
brautir gleði, léttleika og undrunar.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Júpíter (útþensla) og Sat-
úrnus (samdráttur) togast
á og gætir þess bæði í vesk-
inu og samviskunni. Útgjöld tengd kom-
andi hátíðum eru aðalviðfangsefnið, dul-
inn og aukinn kostnaður hefur áhrif á
fjárhagsáætlanir og líklega þarf maður
mun meira en maður ætlaði af einhverju
sem kostar lítið ofan á allt annað. Allt
blessast með smávegis aðhaldi og alveg
óþarfi að æsa sig.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Café Rosenberg | Tónleikar kl. 24 til minn-
ingar um Szymon Kuran sem hefði orðið
fimmtugur í dag. Hann lék nokkrum sinn-
um með SRB og vill bandið heiðra minn-
ingu hans.
Gallerí Humar eða frægð! | Jólanjólarnir
eru nokkrir vel kunnir og vel valdir tónlist-
armenn sem munu troða upp næstu daga. Í
dag spilar Úlpa kl. 18 og Jan Mayen kl. 21.
Kaffi hljómalind | Hljómsveitirnar Bob,
Morðingjarnir, Mania Locus og The Oak So-
ciety spila. Fjölbreytt tónlist – Surf-Indie
og Hardcore. Byrjar kl. 19, frítt inn og ekk-
ert aldurstakmark.
Langholtskirkja | 27. Jólasöngvar Kórs og
Gradualekórs Langholtskirkju 16. des. kl.
23, 17. des. kl. 20 og 23 og 18. des. kl. 20,
einsöngvarar Eivör Pálsdóttir, Garðar Thór
og Ólöf Kolbrún. Frumflutt verður „Jóla-
nótt“, lag og texti Eivarar. Jólasúkkulaði og
piparkökur í hléi.
Listaháskóli Íslands | Jólatónleikar tón-
listardeildar í Skemmtihúsinu við Lauf-
ásveg 22 kl. 18. Gróa Margrét Valdimars-
dóttir, fiðla, Björk Óskarsdóttir, fiðla, Selma
Guðmundsdóttir, píanó, Eygló Dóra Davíðs-
dóttir, fiðla, og Gerrit Schuil, píanó.
Listaháskóli Íslands | Jólatónleikar tón-
listardeildar í tónleikasalnum Sölvhólsgötu
kl. 20. Tónlist, samfélag og nám – loka-
tónleikar.
Myndlist
101 gallery | Jólasýning til 6. jan.
Artótek Grófarhúsi | Sýning á verkum
Bjargar Þorsteinsdóttur til áramóta.
Aurum | Ásta Júlía Guðjónsdóttir sýnir
ljósmyndir til 17. des. 0pið er mán.–fös. 10–
18 og lau. 11–16.
BV Rammastúdíó innrömmun | Guð-
munda H. Jóhannesdóttir með sýningu á
vatnslitamyndum til jóla. Opið kl. 10–18
virka daga, 11–14 laugardaga.
Café Babalu | Claudia Mrugowski – Even if
tomorrow is not granted, I plant my tree –
á Skólavörðustíg 22a. (www.Mobileart.de.)
Gallerí BOX | Jón Sæmundur Auðarson
sýnir verk sín til 18. des. Opið fim.–lau. frá
14–17.
Gallerí Húnoghún | Soffía Sæmundsdóttir
til 5. jan.
Gallerí I8 | Þór Vigfússon til 23. des.
Gallerí Sævars Karls | Sex myndlist-
arkonur verða með samsýningu í desem-
ber: Hrund Jóhannesdóttir, Hlaðgerður Íris
Björnsdóttir, Kolbrá Bragadóttir, Kristín
Helga Káradóttir, Margrét M. Norðdahl og
Ólöf Björg Björnsdóttir.
Grafíksafn Íslands | Samsýning 17 fé-
lagsmanna á íslenskri grafík. Verk unnin á
pappír. Opið á föstudag, laugardag og
sunnudag, kl. 14–18. Sýningin stendur til 18.
desember.
GUK+ | Hartmut Stockter til 16. jan.
Hafnarborg | Jón Laxdal til 31. desember.
Hallgrímskirkja | Kristín Gunnlaugsdóttir
og Margrét Jónsdóttir til febrúarloka.
Handverk og hönnun | Sýningin Allir fá þá
eitthvað fallegt í Aðalstræti 12. Þetta er
sölusýning þar sem 39 aðilar sýna íslenskt
handverk og listiðnað úr fjölbreyttu hrá-
efni. Sýningunni lýkur 20. des. Aðgangur
ókeypis.
Hitt húsið | Sýningin Skúlprút í Galleríi
Tukt, Hinu húsinu, Pósthússtræti 3–5. Þar
sýna nemendur af listnámsbraut í FB verk
sín. Sýningarsalurinn er opinn alla virka
daga frá 9–17 til 5. janúar.
Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir
sýnir í Menningarsal til 7. febrúar.
Iða | Sölusýning á málverkum Þóru Guð-
rúnar Benediktsdóttur til loka janúar
2006.
Kaffi Mílanó | Ingvar Þorvaldsson sýnir
vatnslitamyndir til áramóta.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýn-
inguna Týnda fiðrildið til loka apríl 2006.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýning.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist II –
Um rými og frásögn. Sýning á verkum 13
ísl. samtímalistamanna. Til 12. feb. 2006.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið, yfirlitssýning. Til 2006.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Bernd Koberling til 22. janúar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Guð-
rún Vera Hjartardóttir til 30. des. Erró til
23. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Jóhannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá
fæðingu málarans. Til 19. mars.
Listasmiðjan Þórsmörk Neskaupstað | 10
listakonur frá Neskaupstað sýna á Egils-
staðaflugvelli. Til jan.
Listhús Ófeigs | Dýrfinna Torfadóttir, Rósa
Helgadóttir og Þorbjörg Valdimarsdóttir til
ársloka.
Norræna húsið | Ósýnileiki: Jonas Wilén,
Henrika Lax og Annukka Turakka til 18.
des.
Nýlistasafnið | Snorri Ásmundsson til 19.
desember.
Ráðhús Reykjavíkur | Helga Birgisdóttir –
Gegga. Málverkasýning sem stendur til
áramóta.
Safn | Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir, Krist-
inn E. Hrafnsson – Stöðug óvissa. Jón Lax-
dal – Tilraun um mann. Opið mið.–fös. kl.
14–18, lau.–sun. 14–17. Út desembermánuð.
SAFN, Laugavegi 37, www.safn.is.
Skaftfell | Rúna Þorkelsdóttir – Postcards
to Iceland. Opið mán.–föst. 13–16, sun. 15–
18.
Smekkleysa plötubúð – Humar eða frægð
| Jólasýning Lóu og Hulla er myndlist-
arsýning með jólaþema. Hér eru tveir
myndasöguhöfundar af krúttkynslóðinni
að krota á veggi.
Sundlaugin í Laugardal | Ólafur Elíasson
sýnir olíulandslagsmyndir til jóla. Árni
Björn Guðjónsson sýnir 18 landslagsmyndir
í olíu í anddyri sundlaugarinnar í Laug-
ardal. Sýningin verður opin fram yfir jól.
Yggdrasill | Tolli til 25. jan.
Þjóðarbókhlaðan | Brynjólfur Sveinsson til
áramóta.
Þjóðminjasafn Íslands | Huldukonur í ís-
lenskri myndlist í Bogasal, til 28. maí. Ljós-
myndir Marco Paoluzzo í Myndasal og ljós-
myndir Péturs Thomsen í Myndasal. Til 20.
febrúar.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga nema mánudaga í
vetur frá kl. 10–17. Vönduð hljóðleiðsögn,
margmiðlunarsýning og gönguleiðir.
www.gljufrasteinn.is.
Þjóðmenningarhúsið | Handritin – saga
handrita og hlutverk um aldir, Þjóðminja-
safnið – svona var það, Fyrirheitna landið –
fyrstu Vestur-Íslendingarnir; mormónar
sem fluttust til Utah, Bókasalur – bók-
minjasafn, Píputau, pjötlugangur og dig-
gadaríum – aldarminning Lárusar Ingólfs-
sonar, og fleira. Veitingastofa, safnbúð.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Þjóðminjasafni
Íslands er boðið upp á fjölbreytta fræðslu
og þjónustu fyrir safngesti. Þar eru nýstár-
legar og vandaðar sýningar auk safnbúðar
og kaffihúss. Hlutverk safnsins er að auka
og miðla þekkingu á menningararfi Íslend-
inga frá landnámi til nútíma. Opið alla daga
nema mánudaga kl. 11–17.