Morgunblaðið - 16.12.2005, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 65
MENNING
Green Tea
Í mörgum löndum, sérstaklega við Miðjarðarhafið, ef gestum er
boðið upp á bolla af grænu tei þá er það ekki aðeins hefð, heldur
einnig tákn um gestrisni, vinskap og hlýhug.
Jólastjörnur til að
setja ilm á
Green tea ilmurinn er ferskur og
mildur. Sturtusápa, body lotion,
Eau de Toilette, kerti og fleira.
Laugavegi 76 - 101 Reykjavík
JÓLASPRENGJA
VINNUFATABÚÐIN
Laugavegi 76 ◆ sími 551 5425
Verð, gæði og persónuleg þjónusta
Ef varan ekki passar er
viðskiptavinum boðið að skila
flíkinni eftir jól og fá annað í
staðinn eða aðra stærð ef
því er að skipta.
20-30% afsláttur
af öllum kuldaflíkum
- f l tt r
f ll l flí
VEGNA gríðarlegrar eftirspurnar
eftir miðum á Fullkomið brúðkaup
og fjölda áskorana hefur seinni hluti
leikársins 2005–2006 hjá Leikfélagi
Akureyrar verið endurskipulagður
og stokkaður upp. Ákveðið hefur
verið að halda áfram sýningum á
Fullkomnu brúðkaupi í janúar og
febrúar. Til að gera þessa breytingu
mögulega þarf að fresta frumsýn-
ingu á söngleiknum Litlu hryllings-
búðinni en hún verður frumsýnd 24.
mars. Frumsýningu á Maríubjöll-
unni er á hinn bóginn flýtt til 17.
febrúar en sú sýning verður frum-
sýnd í nýju leikrými sem LA tekur í
notkun og getur því gengið samhliða
sýningum á Fullkomnu brúðkaupi.
Magnús Geir Þórðarson, leikhús-
stjóri Leikfélags Akuryrar, segir að í
fyrra hafi verið tekið upp nýtt sýn-
ingakerfi hjá Leikfélaginu og sýn-
ingatími hvers verks ákveðinn fyrir-
fram, frá frumsýningu til lokasýn-
ingar. Innan þess ramma hafi þó
verið svigrúm til að bæta við auka-
sýningum. Þá hafi verið sýnt eins
þétt og aðsókn leyfi og aukasýning-
um bætt inn eftir þörfum. „Í tilviki
Fullkomins brúðkaups hefur þetta
þó ekki dugað til, þrátt fyrir að við
höfum bætt inn fjöldanum öllum af
aukasýningum. Við höfum verið að
sýna verkið allt að fimm sinnum í
viku en sýningar seljast upp jafn-
óðum. Það er greinilegt að við höfum
ekki getað annað eftirspurninni. Því
ákváðum við að svara kallinu og
hrókera sýningum, og sýnum verkið
til 18. febrúar.“
Magnús Geir segir, að vegna nýja
sýningarýmisins sem brátt verði tek-
ið í notkun, séu menn farnir að spýta
í lófana til að hafa allt klárt. Hann
segir aðsóknina á Fullkomið brúð-
kaup hafa verið gríðarlega góða en
að aðsókn á aðrar sýningar hafi einn-
ig verið góð. „Nú um áramótin verða
komnir sjö þúsund áhorfendur á
Fullkomið brúðkaup. Gestasýning-
arnar okkar á Edith Piaf og Belgíska
Kongó, sem komu frá Þjóðleikhúsinu
og Borgarleikhúsinu, gengu líka vel
og færri komust á þær en vildu, þrátt
fyrir að við höfum bætt við aukasýn-
ingum. Sama er að segja um Ævin-
týrið um Augastein sem við sýndum í
síðustu viku. Leikhúsaðsóknin hefur
því verið með eindæmum góð og ekki
hægt að segja annað en að það sé
gaman í leikhúsinu.“
Leikhús | Uppstokkun á sýningum vegna góðrar aðsóknar
Dugði ekki til að bæta inn
ótal aukasýningum
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Álfrún Örnólfsdóttir í hlutverki sínu í Fullkomnu brúðkaupi eftir Hawdon.
STJÓRN og forstöðumaður Gunn-
arsstofnunar sendu í gær frá sér svo-
hljóðandi yfirlýsingu vegna blaða-
skrifa sem fram hafa farið um
Gunnar Gunnarsson og Nóbels-
verðlaunin að undanförnu:
„Stofnun Gunnars Gunnarssonar
fagnar því að loksins skuli komnar
fram upplýsingar sem varpa ljósi á
ástæður þess að Gunnar Gunnarsson
varð ekki þess heiðurs aðnjótandi að
taka við Nóbelsverðlaunum í Stokk-
hólmi 1955. Svo virðist sem skáldið
hafi ekki verið metið af framlagi sínu
til heimsbókmenntanna heldur hafi
óréttmæt sjónarmið verið lögð til
grundvallar við ákvörðun sænsku
akademíunnar. Nú þegar hálf öld er
liðin frá því Íslendingar eignuðust
Nóbelskáld er tímabært að hið sanna
komi fram og gögn akademíunnar
munu væntanlega leiða sannleikann í
ljós þegar leynd verður létt af þeim.
Staðreyndin er hins vegar sú að Ís-
lendingar áttu tvo framúrskarandi
rithöfunda á 20. öld sem báðir voru
álitnir verðugir kandídatar til að taka
við æðstu viðurkenningu í bók-
menntum. Aðeins öðrum þeirra
hlotnaðist heiðurinn en verk beggja
lifa. Gunnarsstofnun hvetur til mál-
efnalegrar umræðu og umfjöllunar
um ævi og verk stórskáldanna sem
eiga annað og betra skilið en aðdrótt-
anir og upphrópanir fyrir ómetanlegt
framlag sitt til íslenskrar menningar.
Þjóðin hefur með veglegum hætti
heiðrað minningu þeirra með því að
koma á fót menningarsetri að Skriðu-
klaustri og safni að Gljúfrasteini. Á
báðum stöðum gefst gestum tækifæri
á að kynna sér skáldin en andagiftin
og orðsnilldin lifa í verkum þeirra.
Helgi Gíslason, formaður
Gunnar Björn Gunnarsson
Hrafnkell A. Jónsson
Sigríður Sigmundsdóttir
Stefán Snæbjörnsson
Skúli Björn Gunnarsson,
forstöðumaður.“
Yfirlýsing frá Gunnarsstofnun
NÚ STENDUR yfir sýning á verk-
um Bjargar Þorsteinsdóttur mynd-
listarmanns á 1. hæð Grófarhúss,
Tryggvagötu 15. Sýningin er sjötta
í röð sýninga á verkum listamanna
sem eiga listaverk í Artóteki – list-
hlöðu í Borgarbókasafni.
Björg sækir sér endurnýjun og
tilbreytingu með því að breyta um
tækni. Undanfarið hefur hún ein-
beitt sér að vatnslitum þar sem yrk-
isefnið er oft leikur vatns og ljóss;
endurteknar hreyfingar, sjónrænar
heildir þar sem gagnsæir litir og
birta eru í öndvegi. Myndirnar eru
málaðar beint á pappírinn án nokk-
urra frumdraga. Á sýningunni, sem
stendur til áramóta, eru 10 vatns-
litamyndir.
Björg sýnir
í Artóteki
www.artotek.is