Morgunblaðið - 28.12.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 11
FRÉTTIR
ÞAÐ ER ekki rétt að það sé hærra
gjald af listaverkasölu á Íslandi en í
öðrum EES-löndum. Öll Norðurlönd
hafa nýtt sér heimild í tilskipun Evr-
ópusambandsins sem gerir ráð fyrir
að þjóðirnar geti sett 5% fylgiréttar-
gjald á endursölu listaverka í at-
vinnuskyni. Samkvæmt breytingum
á lögum um verslunaratvinnu er gert
ráð fyrir að fylgiréttargjald skuli
vera 10% á sölu listaverka allt að
3.000 evrum en síðan 5% og stiglækk-
andi í samræmi við tilskipun ESB.
Rökin fyrir því að gjald þetta er haft
hærra á verðlægstu myndverkunum
á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum
er að hér er listaverkamarkaður agn-
arlítill í samanburði við listaverka-
markaði á hinum Norðurlöndunum.
Söluskattur var felldur niður
Þetta kemur m.a. fram í athuga-
semdum sem stjórn Myndstefs hefur
gert við frétt Samtaka verslunar og
þjónustu þess efnis að samkvæmt til-
skipuninni eigi listaverkasalar að inn-
heimta 10% gjald af flestum gömlum
listaverkum sem seld eru á uppboði
sem renni til höfunda verkanna eða
ættingja þeirra. Frétt um sjónarmið
SVÞ voru birt í Morgunblaðinu í gær,
þriðjudag.
Stjórn Myndstefs þykir rétt að
leggja áherslu á að þegar fylgirétt-
argjöld voru sett í íslensk lög (þ.e.
10% ofan á endursöluverð listaverka í
atvinnuskyni) var söluskattur á þeim
tíma nú virðisaukaskattur, felldur
niður við endursölu á málverkum.
Hins vegar er virðisaukaskattur á
endursölu listaverka á hinum Norð-
urlöndunum. Þetta eitt og sér leiðir
til þess að gjaldtaka vegna endursölu
á listaverkum er hærri þar en hér,
segir í athugasemdum stjórnarinnar.
Ekki hefur farið fram athugun á því
hvernig fylgiréttargjald skiptist nið-
ur hvað hundraðshluta varðar miðað
við heildarsölu á listaverkamarkaði
eða á uppboðum á Íslandi. Niðurstöð-
ur úr slíkri athugun myndu sennilega
leiða í ljós að 5% fylgiréttargjald
kæmi á mun stærra hlutfall af heild-
arsölu listaverka á íslenskum mark-
aði.
Ekki eigendur sem
greiða gjaldið
Stjórnin segir það misskilning sem
komi fram í frétt frá SVÞ að gjaldið
skerði hagsmuni eldri borgara, „sem
hafa fjárfest í listaverkum á yngri ár-
um og selja til að drýgja tekjurnar á
efri árum“, þar sem hvorki söluaðilar
né eigendur greiði fylgiréttargjald
heldur kaupendur.
Listaverkamarkaður á Íslandi hef-
ur gengið í gegnum miklar hremm-
ingar á undanförnum árum sem ná-
grannar okkar á hinum
Norðurlöndunum hafa hins vegar
verið lausir við, segir í athugasemd-
um Myndstefs. Skemmst sé að minn-
ast „Stóra málverkafölsunarmálsins“
sem hafði mikil og neikvæð áhrif á
listaverkamarkaðinn. „Auk þess hafa
íslenskir listaverkasalar skotið sér
undan því að innheimta og greiða lög-
fest fylgiréttargjöld vegna endursölu
á listaverkum í galleríum. Á þessu er
þó ein heiðarleg undantekning sem er
að forráðamenn Stúdíó Stafns sem
nýlega hóf starfsemi sína í Ingólfs-
stræti 5 í Reykjavík hafa staðið skil á
fylgiréttargjöldum innheimt þau og
skilað þeim í fullu samræmi við lög og
reglur,“ segir stjórn Myndstefs.
Listamenn fái
hlutdeild í hagnaði
„Það er grundvallaratriði til þess
að lesendur skilji hvaða rök liggja að
baki innheimtu fylgiréttargjalda að
þau byggjast á höfundarétti viðkom-
andi listamanns og sem þýðir m.a. að
eigandi frumverks á engan höfunda-
rétt að verkinu, aðeins frumeintakið.
Rökin fyrir því að fylgiréttargjald
(Droit de Suite) varð til í nokkrum
Evrópulöndum snemma á seinustu
öld og hefur nú m.a. verið lögfest í öll-
um löndum ESB eru þau að það sé
réttmætt að ungur og óþekktur höf-
undur listaverks fái hlutdeild í end-
ursölu verðmætis verksins þegar það
er endurselt á listaverkamarkaði á
miklu hærra verði, þegar listamaður-
inn hefur náð frægð á löngum starfs-
ferli.
Á sama hátt og eigendur listaverka
og listaverkasali hagnast mjög á end-
ursölu listaverka þegar hæfileikarík-
ir listamenn verða frægir er talið eðli-
legt að listamenn fái einnig hlutdeild í
þessum hagnaði,“ segir í athuga-
semdum stjórnarinnar.
„Að lokum þykir rétt að taka fram
að þessi vanskil á innheimtu og skil-
um á fylgiréttargjöldum eru sérís-
lenskt fyrirbrigði en listaverkasalar á
öðrum Norðurlöndum hafa staðið skil
á þessum gjöldum án þess að til vand-
ræða hafi komið milli söluaðila og
þeirra samtaka myndhöfunda sem
þar annast innheimtu gjaldanna,“
segir stjórnin.
Athugasemdir frá Myndstefi vegna fréttar SVÞ um fylgiréttargjald á listaverkum
Agnarlítill listaverkamark-
aður skýrir verðmuninn
RAFLAGNA
ÞJÓNUSTA
RAFSÓL
Skipholti 33 • 105 Reykjavík
Sími:
553 5600
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
2
6
6
.0
0
2
lögg i l tu r ra fverk tak i
GENGIÐ var nýverið formlega frá
samningum um kaup Landsnets á
flutningsvirkjum raforkukerfisins
af Landsvirkjun, Rafmagnsveitum
ríkisins og Orkubúi Vestfjarða.
Samtals greiðir Landsnet tæpa 27
milljarða króna fyrir flutnings-
virkin í formi hlutabréfa og
skuldabréfa, en Landsvirkjun á
69,44% hlut í Landsneti, Rarik
24,15% og Orkubúið 6,41%. End-
urmetið stofnverð þess flutnings-
kerfis sem hér um ræðir er 66
milljarðar króna.
Landsnet hefur einkarétt á
flutningi raforku í landinu og
gegnir lykilhlutverki í þeirri skipu-
lagsbreytingu á raforkukerfinu
sem varð við það að ákveðið var að
skilja á milli raforkuframleiðslu
annars vegar og raforkudreifingar
hins vegar.
Upphaflega stóð til að Orkuveita
Reykjavíkur og Hitaveita Suð-
urnesja yrðu einnig hluthafar í
Landsneti, en þau fyrirtæki
ákváðu að leigja frekar Landsneti
flutningskerfi sín en að leggja þau
formlega inn í fyrirtækið eins og
ofangreind fyrirtæki hafa gert.
Landsnet tók til starfa í árs-
byrjun og um næstu áramót geta
landsmenn valið að kaupa orku af
hvaða framleiðenda sem er óháð
búsetu. Landsnet sér um rekstur
dreifikerfis raforku á landinu öllu
og til kerfis þess teljast öll flutn-
ingsvirki þar sem spenna er meiri
66 kV, auk nokkurra flutnings-
virkja með 33 kV spennu.
Landsnet kaupir flutnings-
kerfi á 27 milljarða
Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, Tryggvi Þór Haraldsson, rafmagnsveitustjóri RARIK, og
Kristján Haraldsson, orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða.
MENNINGAR- og ferðamálaráð
Reykjavíkurborgar úthlutaði ný-
verið styrkjum og útnefndi tónlist-
arhópa Reykjavíkurborgar árið
2006.
Alls var úthlutað 21 milljón
króna. Tónlistarhóparnir eru
KASA hópurinn og kammerkórinn
Schola Cantorum og fær hvor hóp-
ur um sig 2 milljónir króna í sinn
hlut.
Styrki hlutu eftirfarandi aðil-
ar:
Myndhöggvarafélagið í Reykja-
vík kr. 1.500.000, vegna samvinnu-
verkefnis sex Evrópuþjóða, Site
Ations-Sense in Place, er opnar
sýningu í Viðey á Listahátíð í
Reykjavík í maí. Alþjóðleg kvik-
myndahátíð í Reykjavík fékk einn-
ig 1.500.000 kr. til rekstrar og þró-
unar kvikmyndahátíðarinnar er
haldin verður að hausti. Tónlist-
arþróunarmiðstöðin hlaut
1.200.000 kr. til rekstrar miðstöðv-
arinnar er hýsir TÞM, tónleikasal,
aðstöðu fyrir unga tónlistarmenn
til æfinga- og tónleikahalds og ým-
iss konar menningar- og félagsað-
stöðu.
Þá hlaut Strengjaleikhúsið eina
milljón króna til uppsetningar óp-
erunnar Skugginn, þar sem Karól-
ína Eiríksdóttir semur tónlistina,
Sjón byggir textann á samnefndri
sögu H.C. Andersen og Messíana
Tómasdóttir leikstýrir og annast
umgjörð óperunnar. Form Ísland
hlaut 900.000 kr. til uppbyggingar
á þjónustu félagsins og Kling og
Bang gallerí 700.000 kr. til áfram-
haldandi gallerírekstrar að Lauga-
vegi 23.
56 milljónir bundnar í
starfssamningum árið 2006
500 þúsund króna styrk hlutu
Kynningarmiðstöð íslenskrar
myndlistar til nýmæla í starfsem-
inni, leikfélagið Annað svið til
frumsamda verksins Mamma eftir
Maríu Ellingsen og Charlotte Bø-
ving, Panic Productions til nútíma-
legs dansleikhúss með áherslu á
samruna ólíkra listgreina og Hið
íslenska bókmenntafélag til starf-
semi og útgáfumála.
400 þúsund króna styrk hlutu
Kór Langholtskirkju, Listvina-
félag Hallgrímskirkju og Smekk-
leysa til starfsemi gallerísins
Humar eða frægð.
300 þúsund króna styrk hlutu
Kammerkórinn Carmina, Sinfóníu-
hljómsveit áhugamanna, Sinfóníu-
hljómsveit unga fólksins, Sönghóp-
urinn Hljómeyki, Söngsveitin
Fílharmónía, Blásarasveit Reykja-
víkur, Draumasmiðjan, Leikfélagið
Hugleikur, Rauði þráðurinn, Greg-
ersen ehf., Listasafn ASÍ, Hinseg-
in bíódagar í Reykjavík og Bóka-
útgáfan Hólar.
200 þúsund króna styrk hlutu
15:15 Tónleikasyrpan í Borgarleik-
húsinu, Aminamúsík, Camerarc-
tica, Dean Richard Ferrell, Félag
íslenskra tónlistarmanna, Snorri
Sigfús Birgisson, Vox Academica,
johann/filippia productions, Kven-
félagið Garpur, Sari Maarit Ceder-
gren, Tangófélagið, Friðarhús
SHA, Húsfélag alþýðu og IBBY á
Íslandi.
100 þúsund króna styrk hlutu
Kvennakórinn Léttsveit Reykja-
víkur, Söngfélag Félags eldri
borgara í Reykjavík og leikfélagið
Snúður og Snælda.
Fram kemur í fréttatilkynningu
frá ráðinu að sífellt stærri hluta
styrkveitinga menningar- og
ferðamálaráðs sé nú varið til
starfssamninga til fleiri ára og til
þeirra eru þegar bundnar í samn-
inga tæpar 56 milljónir árið 2006.
Þriggja ára samningar ráðsins
verða næst auglýstir haustið 2006
vegna áranna 2007–2009.
KASA og Schola Cantorum
tónlistarhópar ársins 2006