Morgunblaðið - 28.12.2005, Síða 16
Reykjavík | Mikilvægt er að
umferðarljósin séu í lagi og
hrein og fín svo umferðin gangi
greiðlega fyrir sig í svartasta
skammdeginu. Starfsmenn
gatnamálastofu Reykjavík-
urborgar unnu að lagfæringum
á götuvita við Hverfisgötu. Atli
Freyr var í stiganum en nafn-
arnir Ingimar Bragi og Ingimar
Þór stóðu á götunni og ræddu
málin.
Morgunblaðið/Kristinn
Umferðarljósin lagfærð
Göturnar
Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes
Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórs-
dóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland
Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir,
austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi-
@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Enn og aftur hefur umræðan um fíkni-
efnavandann á Akureyri komist í hámæli.
Það er því ekki laust við að ég og aðrir for-
eldrar barna og unglinga í bænum fáum í
magann og það nokkuð hastarlega. Þrátt
fyrir ástandið hefur lítið sem ekkert verið
gert til þess að ráðast gegn vandanum.
Lögreglan fær ekki það fjármagn sem til
þarf en þar á bæ reyna menn vafalaust að
gera allt sem hægt er til að stöðva þennan
ófögnuð. Hins vegar er það í raun alveg
óþolandi að svo og svo margir aðilar í bæn-
um skuli hafa lífsviðurværi sitt af fíkni-
efnasölu, eins og fram kom í viðtali við yf-
irlögregluþjóninn á Akureyri á dögunum.
Eru þessir aðilar látnir óáreittir við iðju
sína, ef vitað er með vissu hverjir þar eru á
ferð?
Það veit enginn sem ekki hefur reynt það
af eigin raun hversu skelfilegt það er að
missa barn sitt í fíkniefnaneyslu. Í því sam-
bandi er ekki spurt um stétt eða stöðu og
enginn veit hver er næstur. Það sýnir vel
hversu ríkisvaldið gerir lítið til þess að ráð-
ast gegn vandanum að tvö fyrirtæki í bæn-
um, KEA og Sparisjóður Norðlendinga,
sáu ástæðu til að taka sig saman og leggja
fram fjármagn til kaupa á fíkniefnahundi
til handa lögreglunni. Fíkniefnahundar
hafa reynst mjög vel í baráttunni gegn
fíkniefnum og því ætti að vera einn slíkur í
flestum stærri sveitarfélögum landsins.
Við foreldrar þurfum að fylgjast vel með
því sem börnin okkar eru að gera og veita
þeim allan þann stuðning sem við getum.
Við þurfum jafnframt að hvetja þau til
góðra verka og frá mínum bæjardyrum séð
er íþróttaiðkun af hvaða tagi sem er ein-
hver besta forvörn sem til er. Hér á Ak-
ureyri eru aðstæður til íþrótta- og tóm-
stundaiðkunar með því besta sem gerist og
því ættu flestir að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi. Stuðningur að heiman er hins
vegar gríðarlega mikilvægur börnum á öll-
um aldri. Bæjarbúar þurfa allir sem einn
að halda vöku sinni gagnvart þeim óhugn-
aði sem fíkniefni eru og aðstoða lögregluna
í baráttunni. Þá má heldur ekki gleyma því
að áfengisneysla er oft undanfari fíkni-
efnaneyslu meðal unglinga.
Úr
bæjarlífinu
AKUREYRI
Eftir Kristján Kristjánsson blaðamann
Grunnskólabörn á Akranesi tóku þátt í
umferðargetraun Um-
ferðarstofu og var þátttaka
mjög góð, um 80% barna í
fyrsta til fimmta bekk skiluðu
úrlausn.
Lögreglan leitaði til fjölda
fyrirtækja á Akranesi til að
fjármagna kaup á verðlaun-
um þannig að hægt var að
veita fimmtíu börnum verð-
laun.
Dregið hefur verið úr úr-
lausnum og lögreglumenn
aka verðlaununum til vinn-
ingshafa.
Heimilisfólk 50 heimila
þarf því ekki að láta sér
bregða þótt laganna verði
standi í dyragættinni. Myndin
var tekin þegar Silvía
Llorens og Jóhanna Heiður
Gestsdóttir drógu í getraun-
inni.
Dregið
í getraun Friðrik Stein-grímsson orti á af-mæli konu sinnar:
Þótt hin fræga tímans tönn
töngli sjaldan linni
fimmtíu ára finnst mér Hrönn
fegurri en nokkri sinni.
Hjálmar Freysteinsson
gerði afhendur fyrir jólin:
Feikn öll skilst mér fína og
ríka fólkið éti
af Húsavíkurhangiketi.
Heppnuð best mun hátíð jóla
helg og fögur
lesirðu góðar glæpasögur.
Eitt er það sem öruggt reyn-
ist á að stóla
að flatskjár eykur fögnuð
jóla.
Ertu búinn með yfirdráttinn?
Þú átt samt von.
Létt er að taka lán í Spron.
Pétur Stefánsson yrkir:
Lengir daginn, lyftist sólin,
landans bíða reikningsskil.
Búin eru blessuð jólin,
bankar fara’að hlakka til.
Tímans tönn
pebl@mbl.is
Vestmannaeyjar | Um 800 manns sóttu
guðsþjónustur í Landakirkju í Vestmanna-
eyjum um jólin, á aðfangadag, jólanótt og
jóladag, og er það meiri kirkjusókn en á
síðasta ári. Þá tóku nokkur hundruð manns
þátt í helgistund í Kirkjugarði Vestmanna-
eyja kl. 14 á aðfangadag þegar rofaði til og
gerði stillu um klukkustund áður en stund-
in átti að fara fram. Samtals hafa því á ann-
að þúsund manns sótt þessar helgu stundir
á einum sólarhring, segir í frétt á vef
Landakirkju.
Flest var við aftansöng á aðfangadag eða
um 350 manns, á jólanótt voru um 200 og
ríflega 250 sóttu jóladagsmessuna. Vel var
lagt í tónlistarflutning með einsöng og ein-
leik. Á aðfangadag lék Védís Guðmunds-
dóttir einleik á flautu og á jóladag flutti
Lúðrasveit Vestmannaeyja jólalög frá kl.
13.30 og spilaði mikið undir með orgelinu í
sálmasöng, forspili og eftirspili.
800 sóttu
guðsþjónustur
í Landakirkju
Ísafjörður | Forsvarsmenn söfnunar fyrir
sneiðmyndatæki á Fjórðungssjúkrahúsið á
Ísafirði hafa afhent yfirmönnum sjúkra-
hússins áfangagreiðslu til kaupa á tækinu.
Fram kom við það tækifæri að söfnunin
hefði gengið vonum framar og þegar hefðu
safnast sautján milljónir. Umframféð verð-
ur nýtt til frekari tækjakaupa, að því er
fram kemur í frétt á vef Bæjarins besta.
Sneiðmyndatækið er svokallað fjögurra
sneiða tæki og var í notkun í læknamið-
stöðinni Domus Medica. Það er nú komið á
sjúkrahúsið en eftir er að setja það upp.
Fram kom hjá Eiríki Finni Greipssyni,
einum af forsvarsmönnum söfnunarinnar,
þegar áfangagreiðslan var afhent, að gerð
yrði frekari grein fyrir söfnuninni þegar
tækið yrði formlega afhent.
Söfnunin gekk
vonum framar
♦♦♦
Hólmavík | Dómsmálaráðherra hefur
skipað Kristínu Völundardóttur, deildar-
stjóra í dómsmálaráðuneytinu, til þess að
vera sýslumaður á Hólmavík.
Embættið var nýlega auglýst laust til
umsóknar og voru umsækjendur þrír. Auk
Kristínar sóttu um Birna Salóme Björns-
dóttir, aðstoðardeildarstjóri hjá sýslu-
manninum í Reykjavík, og Þorsteinn Pét-
ursson, fulltrúi sýslumannsins á Selfossi.
Skipuð sýslumað-
ur á Hólmavík
♦♦♦
Dagskrá fundarins er
· Nýjar samþykktir sjóðsins
· Önnur mál
Sjóðfélagafundur
Allir sjó›félagar, jafnt grei›andi sem lífeyrisflegar,
eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjó›félagar eru hvattir til a› mæta á fundinn.
Stjórn Söfnunarsjó›s l ífeyrisréttinda
Sjóðfélagafundur Söfnunarsjó›s lífeyrisréttinda
ver›ur haldinn a› Skúlagötu 17, Reykjavík
á 2. hæ›, 28. desember 2005 og hefst kl. 16.00
h
u
n
an
g
Reykjavík 21. nóvember 2005