Morgunblaðið - 28.12.2005, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
SUÐURNES
Grindavík | Grindavíkurkraft-
ur nefnast samtök sem stofnuð
hafa verið. Félagar eru ungir
grindvískir karlmenn sem hafa
það að markmiði að koma sam-
an og láta gott af sér leiða.
Það verða örugglega ein-
hverjir sem hvá þegar ungir
karlmenn taka sig til og ákveða
að styðja á hverju ári einhver
samtök, en svona er það í
Grindavík. Þetta árið stykir fé-
lagsskapurinn Neistann, sam-
tök hjartveikra barna.
Fyrsti ræðumaður kvöldsins
var formaður Golfklúbbs
Grindavíkur, Hjálmar Hall-
grímsson, og sagði hann meðal
annars: „Það er búið að skipa
sjö manna nefnd sem hefur það
hlutverk meðal annars að velja
styrkþega. Það er markmið
okkar að styðja við bakið á þeim
sem eiga undir högg að sækja.
Við byrjum hér á veitingahús-
inu Lukku-Láka. Færum okkur
upp í Festi vonandi fljótlega
vegna plássleysis og endum í
Egilshöll,“ sagði Hjálmar.
Það er greinilegt að í fé-
lagsskapnum er mikið um hæfi-
leikafólk því fréttaritari varð
orðlaus þegar fyrsta skemmti-
atriði kvöldsins hófst. Þar tók
einn félagsmanna 500 króna
seðil og krumpaði hann saman í
lófanum. Eftir nokkurt tipl á
tánum og mikla einbeitingu lét
hann síðan seðilinn svífa í lausu
lofti. Ljóst að hér er á ferðinni
kraftaverkahópur enda safnað-
ist nálægt 90.000 krónum.
Kraftur í
Grindavík-
urkrafti
Reykjanesbær | „Þegar maður fær
bréf á sínu eigin móðurmáli finnst
manni maður vera velkominn,“
sagði heimilislæknirinn Vikas Pet-
hkar frá Indlandi þegar hann var
spurður um framkvæmd fjölmenn-
ingarstefnu Reykjanesbæjar.
Fjölmenningarstefna Reykjanes-
bæjar var samþykkt í bæjarstjórn
Reykjanesbæjar í maí 2004. Mark-
miðið er að íbúar Reykjanesbæjar
af erlendum uppruna verði virkir og
sjálfbjarga þátttakendur í samfélag-
inu og að aðrir íbúar fái notið fjöl-
breytni í mannlífi og menningu þar
sem samskipti fólks af ólíkum upp-
runa einkennist af jafnrétti og virð-
ingu. Í kjölfar samþykktarinnar var
myndaður hópur frá flestum sviðum
Reykjanesbæjar til þess að vinna að
framgangi stefnunnar.
Hulda Björk Þorkelsdóttir, for-
stöðumaður Bókasafns Reykjanes-
bæjar, er meðal þeirra sem starfa í
fjölmenningarhópnum. Bókasafnið
hefur eins og önnur almennings-
bókasöfn í landinu þurft að bregðast
við fjölmenningarlegu samfélagi og
hafa m.a. nokkur þeirra unnið sam-
an að verkefninu „Bækur og móð-
urmál“ þar sem hvert safn hefur
tekið ákveðið tungumál „í fóstur“ og
sér um að útvega bækur á því til að
styrkja móðurmálskennslu grunn-
skólabarna.
Hulda Björk Þorkelsdóttir sagði í
samtali við Morgunblaðið að fjöl-
menningarhópurinn vildi taka mál-
efni íbúa bæjarins af erlendum upp-
runa fastari tökum. „Fyrsta skrefið
var að bjóða þessu fólki á opið hús á
Bókasafni Reykjanesbæjar, þar sem
við kynntum fyrir þeim hefðir ís-
lenskra jóla. Við sögðum þeim frá
jólasiðum, jólasveinar komu í heim-
sókn og boðið var upp á heitt súkku-
laði, laufabrauð og kökur. Dag-
skráin heppnaðist mjög vel og
mæting var góð. Hugmyndin er að
halda fleiri svona opin hús til að
kynna íslenska menningu, mynda
tengsl við fólkið svo við getum rætt
við það um væntingar þess til sam-
félagsins.“
Gott framtak
Vikas Pethkar, heimilislæknir á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, var
einn þeirra sem mættu á opna húsið,
ásamt eiginkonu sinni, rússnesku
leikkonunni Malvinu Chukhlib, og
dóttur, Ashwinu. „Við vorum mjög
ánægð og það er mjög mikilvægt að
fá að kynnast nýju landi og nýrri
menningu á þennan hátt. Núna
höldum við íslensk jól. Ashwina setti
skóinn út í glugga og við höfum
skreytt íbúðina með ljósum og kert-
um,“ sagði Vikas í samtali við blaða-
mann. Vikas hefur náð góðum tök-
um á íslensku máli og á því ekki í
vandræðum með að tjá sig eða
skilja. Hann sagði slíkt þó ekki eiga
við um alla og því væri nauðsynlegt
að fólk hefði aðgang að íslensku-
kennslu. „Mér fannst mjög flott að
það skyldu vera send út bréf vegna
opna hússins á mörgum tungu-
málum. Þegar maður fær bréf á sínu
eigin móðurmáli finnst manni maður
vera velkominn.“
Erfiðlega hefur gengið að full-
manna íslenskunámskeiðin hjá Mið-
stöð símenntunar á Suðurnesjum, ef
til vill vegna kostnaðarins. Reykja-
nesbær hefur nú ákveðið að nið-
urgreiða námskeiðin um 75% fyrir
þá sem ekki eiga kost á nið-
urgreiðslu frá sínu stéttarfélagi eða
vinnuveitanda. „Mér finnst þetta al-
veg frábært og veit ekki til að þetta
sé gert neins staðar annars staðar,
bæði með opnu húsin og tungu-
málanám. Ég held samt að það verði
að koma eitthvað í framhaldi af ís-
lenskunámskeiðunum svo grunn-
urinn frá námskeiðinu glatist ekki.
Það er gott fyrir fólk að koma sam-
an og hafa tilefni til að fara út, tala
saman og kynnast hvert öðru því
fólk er kannski tilbúnara til að tala
íslensku við aðra af erlendum upp-
runa en Íslendinga. Ég held að það
sé feimnara við það. Svo er líka gott
að hafa börnin með til að útskýra
því þau ná góðum tökum á málinu í
skólunum og leikskólunum.“
Hulda Björk sagði að það væri
m.a. markmiðið með opnu húsunum
að heyra frá fólki hvaða þjónustu
það vildi fá og hvað mætti betur fara
í málefnum þess. Þegar Vikas var
spurður að því hvernig honum og
hans fjölskyldu hefði verið tekið
stóð ekki á svari. „Það voru allir
mjög jákvæðir og tóku okkur opnum
örmum og mér finnst alveg frábært
hvernig fólk hefur verið. Meirihluti
fólks er mjög kurteis og jákvæður,
við tölum ekki um fimm prósentin
sem eru það ekki,“ sagði Vikas, sem
í upphafi kom til Íslands til að heim-
sækja mágkonu og svila á Keflavík-
urflugvelli en leist svo vel á að-
stæður að hann ákvað að kanna með
vinnu. Hann hefur starfað á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja frá komu
fyrir rúmum tveimur árum, fyrst
sem aðstoðarlæknir en nú sem
heimilislæknir.
Starfshópur allra sviða vinnur að framkvæmd fjölmenningarstefnu bæjarins
„Viljum vita um væntingar fólksins“
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Fjölmenning Hulda Björk Þorkelsdóttir, forstöðumaður Bókasafnsins, er í
fjölmenningarhópi sem vinnur að málefnum íbúa af erlendum uppruna. Vik-
as Pethkar heimilislæknir er einn af þeim og er ánægður með gang mála.
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Eyjafjarðarsveit | Það væsti ekki
um kirkjugesti sem komu í messu
á Munkaþverá í Eyjafjarðarsveit
á jóladagsmorgun. Sunnangola
var og tíu stiga hiti og gat sókn-
arpresturinn séra Hannes Örn
Blandon þess í upphafi athafnar
að óvanalegt væri að messa í vor-
blíðu á þessum degi. Eftir all-
nokkuð vetrarríki í október og
nóvember hefur desember farið
mildum höndum um Norðlend-
inga og alveg orðið snjólaust upp
í mið fjöll. Hafa sumir kornbænd-
ur notað tækifærið og rúllubund-
ið hálminn á kornökrunum, sem
ekki náðist í haust vegna þess
hve vetur settist fljótt að. Hálm-
urinn er aðallega notaður sem
undirburður.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Messa Á meðan presturinn heilsaði kirkjugestum í anddyri notaði sonur
meðhjálparans, Starkaður Sigurðarson, sem aðeins er tveggja ára, tæki-
færið og steig í stólinn.
Messað í vorblíðu
OG VODAFONE hefur afhent
sex heyrnardaufum börnum í
Lundarskóla á Akureyri Vodafone
live! farsíma að gjöf. Nemend-
urnir fá jafnframt mánaðarlega
inneign í formi Og Vodafone
Frelsis skafkorta og geta sent
SMS og MMS skeyti án endur-
gjalds þar til skólagöngu lýkur.
Þetta er hluti af samstarfi við For-
eldra- og styrktarfélag heyrn-
ardaufra (FSFH) en fyrirtækið
gaf í haust 15 farsíma og mán-
aðarlega inneign til allra nemenda
í 4. til 10. bekkjar á táknmálssviði
Hlíðaskóla í Reykjavík. Skafkort-
ið gerir nemendum mögulegt að
senda 30 SMS og 30 MMS á dag
án endurgjalds.
Með þessum farsíma geta nem-
endur einnig kynnst vinsælli af-
þreyingarþjónustu sem gerir far-
símanotendum mögulegt að spila
tölvuleiki, sækja fréttir og upplýs-
ingar eða ná í skjámyndir.
Farsímar skipta þá sem hafa
táknmál sem sitt fyrsta tungumál
sívaxandi máli í samskiptum við
aðra, en heyrnarlausir og heyrn-
arskertir nota SMS skilaboð um-
talsvert til þess að miðla upplýs-
ingum sín á milli eða til annarra.
Heyrnardaufir fá farsíma
Morgunblaðið/Kristján
Símagjöf Fulltrúar Og Vodafone með nemendum Lundarskóla sem
fengu síma og inneign að gjöf frá fyrirtækinu.
HIN árlega úthlutun úr Afreks- og
styrktarsjóði Akureyrar fer fram í
hófi sem haldið verður í Íþróttahöll-
inni í dag, miðvikudaginn 28. des-
ember kl. 16. Auk úthlutunar úr
sjóðnum verður nokkrum einstak-
lingum veitt sérstök viðurkenning
og einnig verður öllum þeim Ak-
ureyringum er unnið hafa til Ís-
landsmeistaratitils á árinu 2005 af-
hentur minnispeningur Íþrótta- og
tómstundaráðs.
Þá verður og tilkynnt val Íþrótta-
bandalags Akureyrar á íþrótta-
manni ársins. Árangur akureyrskra
íþróttamanna var góður á árinu.
Samkvæmt upplýsingum sem borist
hafa til stjórnar sjóðsins hafa 145
Íslandsmeistaratitlar unnist á árinu
og einnig voru margir Akureyring-
ar valdir til að leika með landsliðum
í hinum ýmsu íþróttagreinum.
Það er von Íþrótta- og tóm-
stundaráðs að þessir glæsilegu af-
reksmenn og þjálfarar þeirra sjái
sér fært að koma til athafnarinnar.
Veitingar verða fram bornar í boði
Akureyrarbæjar, segir í fréttatil-
kynningu.
Akureyrsk-
ir íþrótta-
menn
heiðraðir
Utankjörfundarkosning | Kosið
verður um sameiningu Ólafsfjarðar-
bæjar og Siglufjarðarkaupstaðar
laugardaginn 28. janúar 2006. Vegna
þessa hefur verið efnt til utankjör-
fundarkosningar á skrifstofu Sýslu-
mannsembættisins í Ólafsfirði og á
Siglufirði. Þeir sem ekki geta kosið á
kjördag eru hvattir til að nýta sér at-
kvæðisrétt sinn og kjósa utankjör-
fundar, segir á vef Ólafsfjarðarkaup-
staðar.
Nokkrar athugasemdir hafa verið
gerðar vegna þess að ekki hafi farið
fram kynning á stöðu mála varðandi
kosningar um sameiningu Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar. Staðan í
þessum málum er þannig að beðið er
samantektar frá Rannsóknarstofnun
Háskólans á Akureyri og frá endur-
skoðendum sveitarfélaganna en þeg-
ar þær upplýsingar liggja fyrir verða
málin að sjálfsögðu kynnt fyrir íbú-
um þessara staða, mjög nákvæm-
lega, segir á vef Siglufjarðarkaup-
staðar.
JÓLASTEFNUMÓT verður haldið í
rannsóknarhúsinu Borgum við Há-
skólann á Akureyri í dag, miðviku-
dag, klukkan 15 til 17. Til stefnu-
mótsins er boðið fyrirtækjum og
stofnunum, sem hafa starfsemi sína í
Eyjafirði, og háskólafólki, sem ann-
að hvort stundar nám sitt við Há-
skólann á Akureyri eða við aðra há-
skóla á Íslandi og erlendis. Á
stefnumótinu verða mismunandi
vinnustaðir kynntir og háskólafólk-
inu gefst kostur á að spjalla við
stjórnendur um atvinnulífið. Einnig
verður kynnt þjónusta og þróun á
Akureyri og í Eyjafirði. Tilgangur-
inn er að háskólanemendur geri sér
betur grein fyrir því hvað Eyjafjörð-
ur og atvinnulífið hafa upp á að bjóða
að loknu námi.
Hugmyndin að verkefninu er sótt
til Evrópuverkefnisins Brands, sem
Akureyrarbær er þátttakandi í.
Verkefnið hefur það að markmiði að
bæta ímynd sveitarfélaga og fjölga
íbúum. Einn þáttur í því verkefni er
að efla tengsl ungs fólks og atvinnu-
lífs. Verkefni eins og jólastefnumótið
hafa verið reynd annars staðar og
gefist vel.
Jólastefnumót að Borgum