Morgunblaðið - 28.12.2005, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 19
MINNSTAÐUR
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Spirulina
FRÁ
Orka og vellíðan
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
3
07
71
12
/2
00
5
debenhams
S M Á R A L I N D
debenhams
útsalan
hefst í dag
kl. 10.00
30-50%
afsláttur af völdum vörum
Komdu og gerðu góð kaup!
LANDIÐ
Selfoss | Samkomulag hefur tekist
milli Landspítala - háskólasjúkra-
húss og Heilbrigðisstofnunar Suð-
urlands um myndgreiningarþjón-
ustu og um aukið samstarf á sviði
heilbrigðisþjónustu, kennslu og
rannsókna. Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra heimsótti stofn-
unina og tók í notkun nýtt stafrænt
myndgerðarkerfi fyrir röntgen-
myndir, ásamt búnaði til gagna-
flutnings milli HSu og (LSH). Jafn-
framt hefur HSu gert samkomulag
við LSH um myndgreiningarþjón-
ustu, sem felur í sér þjónustu rönt-
genlæknis, úrlestur röntgenmynda.
Yfirmenn Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands og Landspítala – há-
skólasjúkrahúss hafa undirritað
samkomulag um aukið samstarf í
heilbrigðisþjónustu, kennslu og
rannsóknum sem styrkja mun heil-
brigðisþjónustu á Suðurlandi. Með
samningnum eru skilgreind þau
verkefni, sem samningsaðilar ætla
að eiga samstarf um, skipulag og
þróun þeirra, hvernig staðið skuli að
upptöku nýrra samstarfsverkefna
og ábyrgðarsvið aðila.
Samstarf LSH og HSu leiðir af
sér samvinnu við skipulagningu og
framkvæmd heilbrigðisþjónustu og
á sviði starfsmannamála. Þannig
munu aðilar skapa forsendur til
samstarfs um ákveðna starfsþætti
og starfsmannaskipti. Yfirstjórn
samstarfsins er í höndum sam-
starfsnefndar sem er skipuð 3
fulltrúum frá hvorum samningsað-
ila. Samstarfsnefnd fer með ákvörð-
unarvald í öllum málum sem samn-
ingur þessi fjallar um og hefur
yfirumsjón með framgangi og þróun
einstakra verkefna.
Víðtæk samvinna
Stofnanirnar áforma að hafa sam-
starf á sviðum er ná til þjónustu við
sjúklinga. Það verður jafnframt
metið hvernig æskilegt sé að flytja
sjúklinga og starfsfólk á milli
sjúkrahúsanna ef óvænt atvik leiða
til að slíkt verði nauðsynlegt. Starf-
semi heilbrigðisvísindagreina Há-
skóla Íslands fer að mestu leyti
fram í tengslum við LSH. Vegna
þess hafa LSH og Háskóli Íslands
komið sér saman um víðtæka sam-
vinnu á sviði kennslu og vísinda með
gerð samstarfssamnings. HSu er
kennslustofnun fyrir heilbrigð-
isstarfsfólk og nema samkvæmt sér-
stöku samkomulagi við HÍ. HSu og
LSH telja æskilegt að styðja við
kennslu í heilbrigðisvísindagreinum
utan Reykjavíkur og munu skoða, í
samráði við HÍ, möguleika sam-
starfs á sviði kennslu. Unnið verður
að auknu samstarfi í fræðslumálum,
m.a. með því að nýta fjarfund-
arbúnað til miðlunar á fræðslu og
kennslu á milli stofnananna.
Á LSH eru í gildi reglur um vís-
indarannsóknir. LSH og HSu stefna
að samræmingu reglna á þessu
sviði, til að styðja við vísindarann-
sóknir og auðvelda samstarf ein-
stakra vísindamanna. LSH og HSu
munu þróa samstarf á sviði gæða-
mála og leitað verður leiða til að
hafa samræmda staðla á þjónustu
stofnananna þar sem það á við.
Stofnanirnar hafa unnið að upptöku
rafrænna sjúkraskrárkerfa und-
anfarin misseri. Til að nýta þekk-
ingu sem best munu þær eiga sam-
starf um þessi mál til að miðla
upplýsingum og tækni og til að
draga úr tvíverknaði. Þá er stefnt
að pappírslausum samskiptum við
miðlun sjúkraupplýsinga á milli
stofnananna. Til að stuðla að mark-
vissu samstarfi á sviði heilbrigð-
isþjónustu og við vísindarannsóknir
munu aðilar hafa samstarf í málum
er lúta að persónuvernd.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Samstarf Jón Kristjánsson tók í
notkun nýtt myndgerðarkerfi Heil-
brigðisstofnunar Suðurlands.
Aukið samstarf í
heilbrigðisþjónustu,
kennslu og rannsóknum
Eftir Sigurð Jónsson