Morgunblaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
RAGNARS BOLLASONAR,
Bjargi,
Eyjafjarðarsveit.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalar- og hjúkrun-
arheimilinu Hlíð fyrir vinsemd og hlýju.
Jónína Þórðardóttir,
Ævar Ragnarsson, Ragna Pálsdóttir,
Katrín Ragnarsdóttir, Vífill Valgeirsson,
Bolli Ragnarsson, Laugheiður Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
STEINGRÍMUR BERNHARÐSSON
fv. bankaútibússtjóri,
síðast til heimilis
á Dalbæ,
Dalvík,
lést þriðjudaginn 20. desember.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn
29. desember kl. 13.30.
Friðrik Steingrímsson,
Bergur Steingrímsson, Þóra Ragnheiður Þórðardóttir,
Sigurbjörg Steindórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og bróður,
HELGA LOFTSSONAR,
Krummahólum 57,
Reykjavík,
Ólöf Waage,
Ingólfur Örn Helgason, Edda Bryndís Örlygsdóttir,
Ævar Páll Helgason, Maribeth Ycot,
Guðbjörg Helgadóttir,
barnabörn
og systkini hins látna.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,
SR. ÓLAFUR ODDUR JÓNSSON
sóknarprestur
í Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
30. desember kl. 13.00.
Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim
sem vilja minnast hans er bent á Bjarma, félag um sorg og sorgarferli á
Suðurnesjum (nr. 0142-05-70735).
Birgir Örn Ólafsson, Helga Ragnarsdóttir,
Ólafur Ragnar Ólafsson,
Kristinn Jón Ólafsson, Bergþóra Hallbjörnsdóttir,
barnabörn og systur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ANNA JÓNA RAGNARSDÓTTIR
Blikahöfða 5,
Mosfellsbæ,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn
30. desember kl. 10.30.
Þeir sem vilja minnast hinnar látnu, vinsamlegast
láti Líknardeild Landspítalans í Fossvogi njóta þess.
Úlfhildur Guðmundsdóttir, Sveinn Val Sigvaldason,
Sigrún Guðmundsd. Fenger, Pétur U. Fenger,
Jóhannes Guðmundsson, Björg Guðmundsdóttir,
Ólafur Guðmundsson, Anna Björk Jónsdóttir,
ömmubörnin Anna Ýr, Úlfhildur, Stella, Geir Torfi,
Karitas, Kristjana, Rakel Ýr, Thelma Rut, Ólafur Ingi
og langömmubarnið Þórarinn Sigurður.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
SALVÖR GOTTSKÁLKSDÓTTIR,
Bröttukinn 25,
Hafnarfirði
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtu-
daginn 29. desember kl. 11.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Vilhelm Adólfsson,
Sigrún Vilhelmsdóttir, Vignir Þorláksson,
Grímur Vilhelmsson, Anita Bernhöft,
Gottskálk Vilhelmsson, Ásta Valsdóttir,
Nína Björg Vilhelmsdóttir, Reynir S. Hreinsson,
Adolf Gunnar Vilhelmsson.
✝ Bettý Marsell-íusdóttir fæddist
á Ísafirði 18. desem-
ber 1935. Hún lést á
gjörgæsludeild
Landspítalans
fimmtudaginn 15.
desember síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Marsellíus
Bernharðsson skipa-
smiður frá Valþjófs-
dal í Önundarfirði
og Alberta Alberts-
dóttir, húsfreyja á
Ísafirði. Alsystkini
Bettýjar voru Guðmundur Jón
Daníel Marsellíusson, f. 1927, d.
1994, Kristín Marsellíusdóttir, f.
1928, Sigríður Guðný Marsellíus-
dóttir, f. 1929, d. 1930, Helga Þur-
íður Marsellíusdóttir, f. 1930,
Kristinn Marsellíusson, f. 1932,
Högni Marsellíusson, f. 1933,
Þröstur Marsellíusson, f. 1937,
Sigurður Magni Marsellíusson, f.
1940, d. 1994, Messíana Marsellíus-
dóttir, f. 1942. Sammæðra eru Jón-
ína Jóhanna Kristjánsdóttir, f.
1922, Stefanía Áslaug Kristjáns-
dóttir Tuliníus, f. 1923, Kristján
Sveinn Kristjánsson, f. 1924, d.
2001.
Frá Ísafirði sótti Bettý nám í
Löngumýrarskóla árið 1953. Það-
an fór hún að Hofi á Höfðaströnd
til heiðurshjónanna Sigurlínu og
Jóns í kaupavinnu. Þar kynntist
hún eiginmanni sínum Sigurbirni
Sævald Magnússyni rafvirkja og
giftu þau sig 6. júlí 1954. Hófu þau
búskap í Ásbyrgi á Hofsósi. Á ár-
unum sem hún eignaðist börnin
rak hún gistiþjónustu og veitti
mörgum ferðalangi fæði og húsa-
skjól. Saumaskapur var hennar
aðalstarf með heim-
ilisstörfunum. Marg-
ir leituðu til hennar
með alls konar við-
gerðir og alltaf var
því skilað frá sér
helst samdægurs,
því ekki mátti
standa á henni. Börn
þeirra Bettýjar og
Sigurbjörns eru: 1)
Magnús, f. 9.11.
1954, sambýliskona
Þóranna Guðrún
Óskarsdóttir, börn
þeirra eru Sigur-
björn Hreiðar, sambýliskona hans
er Sigfríður Sigurjónsdóttir og
eiga þau tvö börn, fyrir á Sigfríður
tvö börn; og Linda Rut, f. 28.1.
1983, sambýlismaður Fjólmundur
Karl Traustason og eiga þau einn
dreng, fyrir á Fjólmundur eina
dóttur. 2) Alberta, f. 25.3. 1957,
eiginmaður hennar Jóhann Guð-
brandsson, börn þeirra eru Ingvar
Daði, unnusta hans er Barbara
Wenzl, Elvar Már, Ævar og Bjarni
Þórir. 3) Finnur Bernharð, f. 9.9.
1958, eiginkona hans er Solveig
Pétursdóttir, börn þeirra eru Æg-
ir, Bylgja, unnusti hennar Hjörvar
Árni Leósson, Sjöfn og Sonja. 4)
Guðmundur Kristján, f. 18.2. 1963,
eiginkona hans er Guðrún Elín
Björnsdóttir, börn þeirra eru
Björn Svavar, unnusta Fjóla Dögg
Björnsdóttir, Unnur Bettý og
Brynjar Örn. 5) Sigurlaug Eyrún,
f. 3.4. 1966, sambýlismaður Sveinn
Árnason, börn þeirra eru Sigþór
Smári, Eyþór Fannar og Laufey
Rún.
Útför Bettýjar verður gerð frá
Hofsóskirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 14.
Það er svo margt, ó mamma
í minninganna sjóð,
sem höndum tekur
og heillar fram mín ljóð.
Þú oftast varst sú eina
um ævi minnar vor,
sem lagðir blessuð blómin
svo björt á hvert mitt spor.
Já, svo var einnig nú í byrjun des-
ember þegar kallið kom um að drífa
sig loksins í þessa ferð, sem þú varst
búin að leggja svo mikið á þig til að
tækist vel. Þú varst svo ótrúlega glöð
og létt yfir þér, nú átti loksins að
hugsa um sig sjálfa. Þegar öllum við-
tölum var lokið var farið að kaupa
uppþvottavél, sem í mörg ár hafði
verið ýtt á þig að vilja, en það hafði
ekki verið um það talandi, nú þegar
allir væru farnir úr hreiðrinu gætir þú
nú líklega komist yfir uppvaskið. Ég
átti ekki von á því að vélin ætti ekki
eftir að létta þér starfið á mínu gamla
heimili.
Þú hélst áfram að gera grín að þér
og hafðir á orði að þetta væri nú ekki
eðlilegt hvernig þú létir við þessar að-
stæður. Kvöldið sem við kvöddumst
reyndir þú ítrekað að ná í mig í síma,
en gafst ekki upp og hringdir í símann
hans Sveins, sagðist ekki hafa ætlað
að gefast upp fyrr en þú heyrðir í mér
áður en þú lokaðir endanlega síman-
um þínum og færir að hvíla þig.
Ekki urðu þau fleiri símtölin.
Að vera hjá þér á erfiðri stundu
veitti mér ótrúlegan styrk til að tak-
ast á við aðstæður sem mér voru
greinilega ætlaðar.
Sjóður minninganna er orðinn stór
og hlutverk þitt fullkomið.
Ástarþakkir, mamma mín. Guð
geymi þig.
Eyrún.
Elsku hjartans mamma, tengda-
mamma og amma. Þú varst alltaf svo
yndisleg, en nú ertu farin frá okkur.
Margar voru minningarnar sem við
munum varðveita í hjarta okkar,
hversu góð og umhyggjusöm þú
varst. Þú varst mikið fyrir að taka á
móti fólki og alltaf var hlaðið borð af
kræsingum og ætíð glatt á hjalla hjá
þér.
Það var aldrei langt í brosið hjá
þér, það var alveg yndislegt að sjá þig
brosa, það lífgaði alltaf upp á alla.
Þú varst alltaf að hjálpa öllum,
bæta buxur var oft eitthvað sem þú
gerðir fyrir okkur. Barnabörnin voru
oft hjá þér og voru alltaf ákaflega
hamingjusöm þegar þau komu frá þér
og höfðu frá miklu að segja.
Við munum hvað það var erfitt fyr-
ir þig þegar þú þurftir að láta Bubba á
Dvalarheimilið en alltaf leistu fram á
veginn og sást bara björtu hliðarnar.
Ástarþakkir fyrir allt saman. Við
elskum þig meira en allt og söknum
þín enn meira.
Guð geymi þig.
Guðmundur, Guðrún, Björn
Svavar, Unnur Bettý.
Amma mín er dáin, Bettý Marsell-
íusdóttir, Ásbyrgi, Hofsósi, 69 ára að
aldri. Það er fimmtudagsmorgunn,
norðanvindur og mikið frost í Skaga-
firði þennan dag í desember. Ég er að
vinna úti við ásamt Elvari frænda
mínum, þegar mér verður hugsað til
ömmu og hvernig hún hafi það. Það
eru liðnir fjórir dagar síðan amma fór
til Reykjavíkur, hún ætlaði að
skreppa í aðgerð, þetta væri bara
svipað og skreppa í berjamó sagði
hún og tók þessu með stökustu ró öllu
saman eins og henni einni var lagið.
Ég hringdi í mömmu og pabba, þau
eru með henni til halds og trausts á
meðan hún færi í aðgerðina, og er að
spyrja frétta. Mamma tilkynnir mér
hvers kyns er, hvað hafi komið upp á
og amma sé jafnvel að fara frá okkur.
Mamma er klökk og titrandi í rödd-
inni, og þegar hún, þessi sterka kona,
er orðin þannig, þá sagði það mér allt,
það var mikið að hjá ömmu. Mér
fannst það ómögulegt og gæti engan
veginn verið að amma, þessi góða og
elskulega kona, væri að fara frá okk-
ur, að Guð væri að taka hana frá okk-
ur. Af hverju ömmu? En, jú, við förum
víst öll þessa leið fyrr eða síðar.
Um hádegi hringir pabbi í mig, seg-
ist vera á leiðinni upp á sjúkrahús
með mömmu, þau hafi verið beðin að
koma í hvelli. Biðin var erfið og löng,
og tíminn lengi að líða á meðan ég
beið þess að vita eitthvað frekar um
líðan hennar. Upp úr hádegi fæ ég
símtal frá Guðmundi móðurbróður
mínum og hann tilkynnir mér að allt
sé búið, amma sé dáin. Nú varð mér
ljóst að ég hafði misst þá manneskju
sem mér hafði alltaf þótt vænst um af
öllum í lífinu. En ferðin hjá ömmu
varð lengri en bara til Reykjavíkur.
Amma í Hofsósi eða amma í Ás-
byrgi eins og við krakkarnir kölluðum
hana var glaðlynd, elskuleg og góð
kona. Það var gott að vera í Ásbyrgi
hjá ömmu og afa, amma passaði mig
mikið þegar ég var polli og hjálpaði
mömmu mikið með mig því mamma
var einstæð móðir og þá var gott að
eiga góða mömmu til að hjálpa sér.
Það var alltaf gott að koma til ömmu
og eftir að við fluttum á Krókinn fór-
um við oftast á sunnudögum í Hofsós.
Þegar gesti bar að í Ásbyrgi var alltaf
eins og þar væri fermingarveisla, því
amma vildi alltaf hafa nóg handa öll-
um og að allir borðuðu vel. Ólýsanlegt
er hvað ein kona gat gefið af sér mikla
ást og hlýju. Góðmennskan og hjálp-
semin í garð annarra var ótrúleg, allt-
af vildi hún vera góð við allt og alla, og
enginn var verri en annar hjá henni.
Á hvítasunnunni síðastliðið vor átti
ég leið vestur á Ísafjörð og var svo
lánsamur að amma var einnig stödd
þar í heimsókn hjá Helgu systur
sinni. Mér þótti það í raun og veru
sannur heiður að fá að hitta hana á
hennar bernskuslóðum. Þetta er eitt
af því sem ég hefði alls ekki viljað
missa af í lífinu. Amma hefði orðið sjö-
tug síðastliðinn sunnudag hefði hún
lifað. Við komum saman í Ásbyrgi
börnin hennar og afi, og minntumst
hennar um leið og við héldum upp á
afmælið hennar. Mér þótti tómlegt
þótt húsið væri fullt af fólki eins og oft
var í Ásbyrgi, en það vantaði ömmu.
Það var skrítið að hafa ekki ömmu hjá
sér og skrítið að koma í Ásbyrgi þeg-
ar góða og glaðlega amma kom ekki á
móti mér til að faðma mig og kyssa
eins og hún gerði ævinlega.
En minningin um ömmu er góð og
lifir í hjörtum okkar það sem eftir er.
Þótt við söknum hennar mikið vitum
við þó að henni líður vel og hvílir í friði
hjá Guði. Blessuð sé minning þín,
amma mín. Guð veri með þér.
Sigþór Smári.
BETTÝ MARSELL-
ÍUSDÓTTIR
Fleiri minningargreinar
um Bettý Marsellíusdóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga. Höfundar eru: Brynjar
Örn, Bylgja, Hreiðar, Sigfríður, Sæ-
dís Bylgja, Ingimar, Magnús Logi
og Sigurjón Heiðar, Laufey Rún,
Unnur Bettý, Guðrún H. Tulinius,
Áslaug, Helga systir, Þórður, Finn-
ur og fjölskylda, Magnús, Helga,
Rakel og fjölskylda, Ingibjörg
Kolka og Jón Bjarnason, Steinn
Márus Guðmundsson og Sylvía.