Morgunblaðið - 28.12.2005, Síða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Vantar vélstjóra
og háseta
Vantar vélstjóra og háseta á Skálafell ÁR 50
sem gerir út á net frá Þorlákshöfn. Vélarstærð
589 kW (800 hestöfl).
Upplýsingar í síma 898 3285.
Vantar matsvein
Vantar matsvein á Arnarberg ÁR 150 sem gerir
út á línu með beitningarvél frá Þorlákshöfn.
Upplýsingar í síma 898 3285.
Styrktarfélag vangefinna
Þroskaþjálfar
Skemmtilegt og krefjandi starf með
börnum og unglingum.
Dagheimilið Lyngás
óskar eftir þroskaþjálfum til starfa. Um
er að ræða 100% stöður en hlutastörf
koma til greina. Æskilegt er að umsækj-
endur geti hafið störf sem fyrst eða eftir
nánara samkomulagi.
Lyngás er sérhæft dagheimili, staðsett í Safamýri 5 og er
opið frá 8.00-16.30 á virkum dögum. Þangað sækja börn og
unglingar á aldrinum 1-18 ára þjónustu. Á Lyngási fer fram
sérhæfð þjálfun í gegnum leik og starf, s.s. þroskaþjálfun,
örvun á skynhreyfigetu, atferlisþjálfun og sjúkraþjálfun.
Áhersla er m.a. lögð á athafnir daglegs lífs, eflingu líkams-
vitundar, tengsla og boðskipta, Teacch vinnuverkefni og at-
ferlisþjálfun. Lögð er áhersla á samstarf við foreldra/
aðstandendur, ráðgjafa og tengslastofnanir.
Upplýsingar gefa Birna Björnsdóttir og
Hrefna Þórarinsdóttir í símum 553-8228
og 553-3890. Hægt er að nálgast upplýs-
ingar um Lyngás á heimasíðu félagsins
http://www.styrktarfelag.is
Laun eru samkvæmt gildandi kjara-
samningum Þroskaþjálfafélags Íslands
og Styrktarfélagsins.
Styrktarfélag vangefinna
Bjarkarás
óskar eftir þroskaþjálfum og stuðningsfull-
trúum til starfa. Um er að ræða 100% stöð-
ur og æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf í byrjun janúar 2006. Bjarkarás er
staðsettur í Stjörnugróf 9 og vinnutími er
frá 8.30 til 16.30 virka daga. Um er að ræða
störf á deild sem ætluð er einhverfum ein-
staklingum sem þurfa sértæka þjónustu.
Starfsmönnum er boðin sérhæfð fræðsla
og kennsla varðandi vinnubrögð. Skipu-
lagður er tími til undirbúnings og ágæt
starfsaðstaða er til staðar.
Karlmenn eru sérstaklega hvattir til að
sækja um til að gæta jafnvægis milli kynja
í starfsmannahópnum og þar sem meiri-
hluti þjónustuþega eru karlmenn.
Nánari upplýsingar veita Þórhildur Garð-
arsdóttir og Valgerður Unnarsdóttir í síma
568-5330.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum
Þroskaþjálfafélags Íslands eða Starfs-
mannafélags ríkisstofnana og Styrktarfé-
lags vangefinna.
Samgönguráðuneytið
Laus staða
upplýsingafulltrúa
ráðuneytisins
Samgönguráðuneyti auglýsir laust til umsókn-
ar nýtt starf upplýsingafulltrúa ráðuneytisins.
Um er að ræða fullt starf.
Leitað er að háskólamenntuðum einstaklingi
með starfsreynslu úr fjölmiðlun og færni í tölvu-
notkun og textagerð. Frumkvæði, sjálfstæð
vinnubrögð og góð kunnátta í ensku og einu
Norðurlandamáli eru nauðsynlegir kostir ásamt
hæfni í mannlegum samskiptum. Í starfinu felst
umsjón með heimasíðu ráðuneytisins, ritstjórn
og útgáfa vefrits og annars efnis, ræðuskrif og
fleira þess háttar.
Nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf
fljótlega. Laun greiðast samkvæmt launakerfi
Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórn-
arráðsins.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Gunnarsdóttir
skrifstofustjóri ráðherraskrifstofu.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
starfsferil, merktar upplýsingafulltrúi, sendist
samgönguráðuneyti, Hafnarhúsinu við Tryggva-
götu, 150 Reykjavík (postur@sam.stjr.is).
Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2006.
Samgönguráðuneyti, 21. desember 2005.
Oddur bakari auglýsir eftir
sölufólki
virka daga frá og með áramótum. Um er að
ræða afgreiðslu á Grensásvegi 26, Reykjavík
og Reykjavíkurvegi 62, Hafnarfirði. Upplýsingar
gefur Oddur í síma 699 3677 og 588 8801.
Laus staða
íþróttakennara
Við óskum að ráða íþróttakennara í 100% stöðu
við Grunnskóla Reyðarfjarðar. Æskilegt er að
starfsmaður geti hafið kennslu 4. janúar en
í síðasta lagi 20. febrúar. Umsóknarfrestur er
til 3. janúar næstkomandi.
Í Grunnskóla Reyðarfjarðar eru 124 nemendur
frá 1.-10. bekk, 15 kennarar og 7 aðrir starfs-
menn. Íþróttahúsið er á skólalóðinni og salurinn
er að hluta byggður yfir sundlaug. Íþróttir í sal
eru kenndar fram að páskum en sund eftir
páska. Ný líkamsræktarstöð verður opnuð í hús-
inu í byrjun janúar. Næsta haust verður tekið
í notkun fjölnota íþróttahús með gervigrasvelli
og frjálsíþróttaaðstöðu og stórglæsilegt skóla-
húsnæði til að mæta væntanlegri fjölgun nem-
enda. Í því húsnæði verður einnig rekinn tónlist-
arskóli og bókasafn. Skólinn vinnur að þróunar-
verkefni um Einstaklingsmiðað nám og lýðræð-
islega starfshætti og fær ráðgjöf frá Rannsókn-
ardeild Háskólans á Akureyri.
Nánari upplýsingar veitir Þóroddur Helgason,
skólastjóri, í s. 474 1247 eða 863 1247 og Ásta
Ásgeirsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma
474 1247.
Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofur
Fjarðabyggðar á Reyðarfirði.
Raðauglýsingar 569 1100
Kennsla
Landakotsskóli SES
v/Túngötu,
101 Reykjavík
Landakotsskóli
Getum bætt við nemendum frá 4. janúar 2006.
Innritun í síma 510 8200 eða regina@landakot.is.
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Heiðarvegi
15, Vestmannaeyjum, fimmtudaginn 5. janúar 2006
kl. 9:30 á eftirfarandi eignum:
Ásavegur 28, 218-2403, 010101, þingl. eig. Árni Magnússon og Erna
Fannbergsdóttir, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.
Ásavegur 30, 218-2406, 010101, þingl. eig. Ásta Steinunn Ástþórsdótt-
ir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Íslandsbanki-FBA hf.
Ásavegur 7, 218-2374, 010001, þingl. eig. Auður Einarsdóttir, gerðar-
beiðendur Íbúðalánasjóður og Ríkisútvarpið, innheimtudeild.
Áshamar 63, 218-2513, 040102, þingl. eig. Sverrir Fannbergsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Bárustígur 1, 3. hæð, 218-2609, 010301, þingl. eig. Kristbjörn Hjalti
Tómasson, gerðarbeiðandi Sparisjóður Vestmannaeyja.
Bárustígur 11, 218-2625 (010201), þingl. eig. Dominik Lipnik, gerðar-
beiðandi Íbúðalánasjóður.
Birkihlíð 20, jarðhæð, 218-2701, þingl. eig. Árni Sigurður Pétursson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Boðaslóð 7, efri hæð, 218-2724, þingl. eig. Bogi Hreinsson, gerðarb-
eiðandi Íbúðalánasjóður.
Fjólugata 5, 218-3307, þingl. eig. Rósa Hrönn Ögmundsdóttir og
Gylfi Birgisson, gerðarbeiðandi Ríkisútvarpið, innheimtudeild.
Hásteinsvegur 36, 218-3622, 010201, þingl. eig. Ágúst Örn Gíslason,
gerðarbeiðandi Vestmannaeyjabær.
Hásteinsvegur 48, 218-3638, 010101, þingl. eig. Sigurjón Júlíusson,
gerðarbeiðandi Olíufélagið ehf.
Hásteinsvegur 50, 218-3654, þingl. eig. Birgir Þór Sigurjónsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hilmisgata 1, 218-3902, 010201, þingl. eig. Helga Dís Gísladóttir,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Tryggingamiðstöðin hf.
Hólagata 8, 218-3924, 010101, þingl. eig. Guðný Björk Ármannsdóttir,
gerðarbeiðandi Og fjarskipti hf.
Kirkjuvegur 70b, 218-4434, 010101, þingl. eig. Sturla Arnarsson,
gerðarbeiðendur Olíuverslun Íslands hf. og Tryggingamiðstöðin
hf.
Miðstræti 16, 218-4479, þingl. eig. Kristbjörn Hjalti Tómasson og
Bjarney Ágústsdóttir, gerðarbeiðandi Dvergsmíð ehf.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
27. desember 2005.
Tilkynningar
Heilsugæslan
Barónsstíg 47, 101 Reykjavík
sími 585-1300 www.hr.is
Því er fólki sem fætt er á þessu árabili boðið upp á
fría bólusetningu gegn hettusótt og getur það snúið
sér til heilsugæslustöðvar í sínu hverfi.
Bólusetning gegn hettusótt
Reykjavík, 28. desember 2005.
Undanfarnar vikur hefur hettusótt gengið,
einkummeðal fólks fætt á árunum 1981 til 1985.
Þessi hópur fór á mis við bólusetningu gegn
hettusótt auk þess sem hann hefur ekki fyrr verið
útsettur fyrir hettusóttarfaraldri.
Ráðgert er að þessum hettusóttarbólusetningum
verði lokið á næstu þrem vikum. Sóttvarnalæknir
hveturofangreint fólk tilaðfásérþessabólusetningu.
Konur sem eru þungaðar, eða hyggja á þungun
næstu þrjá mánuði eftir bólusetningu, mega
ekki láta bólusetja sig.
Atvinnuhúsnæði til sölu
í Bæjarlind, 100 fm. Leigutekjur 100 þús. á
mánuði. Verð 17,9 millj.
Upplýsingar í síma 847 0875.
Atvinnuhúsnæði