Morgunblaðið - 28.12.2005, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 37
DAGBÓK
Það er í mörg horn að líta hjá Körfuknatt-leikssambandi Íslands um jólahátíðinaog segir Hannes Birgir Hjálmarsson,framkvæmdastjóri KKÍ, að spennandi
verði að fylgjast með þeirri nýbreytni sem tekin
verður upp í ár en heil umferð í úrvalsdeild karla,
Iceland Express-deildinni, er á dagskrá 29.–30.
desember. „Það hefur oft verið talað um að nýta
tímann á milli jóla og nýárs til keppnishalds og í ár
verður í fyrsta sinn boðið upp á leiki í efstu deild
karla. Á árum áður var þessi tími oft nýttur fyrir
vináttulandsleiki en slíkir leikir eru ekki lengur á
dagskrá á alþjóðavettvangi á þessum árstíma. Við
vonumst til þess að áhugafólk um íþróttir taki vel í
þessa nýbreytni en það eru margir áhugaverðir
leikir á dagskrá. Má þar nefna leik KR og Grinda-
víkur á fimmtudagskvöldið og grannaslag Njarð-
víkur og Keflavíkur á föstudagskvöldið 30. desem-
ber. Félögin eru öll með erlenda leikmenn á sínum
snærum og margir þeirra fengu tækifæri til þess
að dvelja um jólin hjá vinum og vandamönnum en
þeir eru flestir að koma til baka þessa dagana og
verða með sínum liðum í næsta leik. Vonandi tekst
þessi tilraun vel og verður til þess að efla áhuga
fólks á íþróttum og þá sérstaklega körfuknattleik
enda eru fátt um að vera í íslensku íþróttalífi á
þessum árstíma. Vissulega er mikið lagt á þá sem
koma að skipulagi heimaleikja viðkomandi liða,
stjórnarmenn, þjálfara og auðvitað starfsmenn
leiksins, dómara og ritara. En ég er sannfærður
um að þessi tilraun á eftir að heppnast vel,“ segir
Hannes en hann leggur einnig áherslu á það að
flest af yngri landsliðum KKÍ æfi um þessar
mundir. „Við á skrifstofu KKÍ komum ekki mikið
að þeirri framkvæmd en það er mikið um vera hjá
afreksfólki á þessum tíma og stífar æfingar hjá
stúlkum og drengjum í ýmsum aldursflokkum.
Það er í verkahring þjálfara liðanna að skipuleggja
æfingarnar sem eru flestar á höfuðborgarsvæðinu
og á Suðurnesjum.“ Framkvæmdastjórinn segir
að á skrifstofu KKÍ séu drög að leikjadagskrá
tímabilsins lögð fram í lok júlí og smávægilegar
breytingar eigi sér stað eftir að það er hafið. „Það
hefur ekki verið venjan hjá sérsamböndum innan
ÍSÍ að samhæfa leikjadagskrá vetrarins enda er-
um við með fasta leikdaga í efstu deild karla, á
fimmtudögum og sunnudögum. Það hefur því ekki
skarast mikið við stórleiki í sjónvarpi og ég tel að
það sé erfitt að koma í veg fyrir slíka árekstra þar
sem framboð á íþróttaviðburðum í sjónvarpi er
það mikið að það er alltaf eitthvað um að vera. Við
skipuleggjum okkar dagskrá í úrslitakeppninni í
samvinnu við sjónvarpsstöðina SÝN enda eru þeir
með leiki frá Meistaradeild Evrópu og við erum
því ekki með leiki á þeim leikdögum,“ sagði Hann-
es Birgir Hjálmarsson.
Íþróttir | Körfuknattleikssambandið slær ekki slöku við um hátíðirnar
Skotið á körfu og æft af kappi
Hannes Birgir Hjálm-
arsson er fæddur árið
1963 og er á öðru
starfsári sínu sem
framkvæmdastjóri
Körfuknattleiks-
sambands Íslands.
Hannes er kvæntur
Höllu Sigrúnu Arnar-
dóttur hjúkrunar-
fræðingi og eiga þau 3
börn.
Hannes útskrifaðist sem íþróttakennari ár-
ið 1990. Lauk BA-prófi í Alþjóðasamskiptum
frá Schiller International University, Heidel-
berg, Þýskalandi árið 1993. MA í Alþjóðasam-
skiptum frá Boston University, Brussel, Belg-
íu 1994. MSM í Rekstrarfræðum frá sama
skóla árið 1997. Markaðsstjóri Útflutnings-
ráðs, 1997–1999, Rauða kross Íslands 1999–
2004.
Beðið eftir jólasveininum
HÉR í leikskólanum Krílakoti á
Ólafsvík er venja að jólasveinar kíki
í heimsókn á jólaballið okkar og er
hans beðið af mikilli eftirvæntingu. Í
þeim er mikilli galsi og leikur líkt og
góðum jólasveinum sæmir. Þessi
mynd náðist af þremur drengjum í
glugganum þegar þeir fylgdust agn-
dofa með sveinunum leika sér í garð-
inum okkar. Hlátur barnanna ómaði
um stofur okkar yfir uppátækjum
jólasveinanna og kom okkur full-
orðna fólkinu í hið sanna jólaskap.
Árdís Kristín Ingvarsdóttir.
Einstök börn
MÉR finnst Birgitta Haukdal og
hljómsveitin Írafár hafa sýnt ein-
stakan kjark og dugnað við að fara
hringinn í kringum landið á aðeins
13 dögum með jafn marga tónleika
nú í svartasta skammdeginu. Öll inn-
koma af tónleikunum gáfu þau svo til
Félags einstakra barna sem er
stuðningsfélag foreldra langveikra
barna með sjaldgæfa alvarlega sjúk-
dóma.
Þetta var höfðinglegt af þeim.
Elsa amma.
Sjónvarpsdagskrá
fyrir vinnandi fólk?
ÉG er aðdáandi þáttar Jay Leno á
Skjá einum og horfði á hann eins oft
og ég gat, á meðan hann var sýndur
um hálfellefu á kvöldin – þangað til í
vetur að þessir þættir, sem oftast
eru splunkunýir, voru færðir til hálf-
tólf, og þættirnir „Sex and the city“
– sem er endursýnt efni – hafðir á
undan.
Í Morgunblaðinu í dag sé ég svo
að Jay Leno er auglýstur kl. 24.25.
Ég spyr: Er þetta ágæta sjón-
varpsefni ekki fyrir vinnandi fólk?
Er markhópurinn e.t.v. vaktavinnu-
fólk, eða þeir sem eru hættir að
vinna? Eða er þetta e.t.v. ekkert vin-
sæll þáttur?
Erla.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Fæðing | Garðar í Ósló í Noregi eign-
aðist lítinn bróður 14. desember sl.
Foreldrar þeirra eru Charlotte V.
Benneche og Thorsteinn Jörundsson,
Skansbo.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Heiti Potturinn
Trompmiði er auðkenndur með bókstafnum B en einfaldir miðar með E, F, G
og H. Gangi vinningar ekki út bætast þeir við Heita pott næsta mánaðar.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
12. flokkur, 27.desember 2005
34716 B kr. 21.035.000,-
34716 E kr. 4.207.000,-
34716 F kr. 4.207.000,-
34716 G kr. 4.207.000,-
34716 H kr. 4.207.000,-
1. e4 c5 2. d3 Rc6 3. g3 g6 4. Bg2 Bg7 5.
f4 e6 6. Rf3 Rge7 7. c3 0-0 8. Be3 b6 9.
0-0 Ba6 10. Bf2 Hc8 11. He1 d6 12. Ra3
b5 13. Rc2 b4 14. cxb4 cxb4 15. d4 d5
16. e5 Db6 17. Dd2 Hc7 18. Hec1 Hfc8
19. Be1 Rf5 20. Kh1
Staðan kom upp í heimsbikarmóti
FIDE sem lauk fyrir skömmu í
Khanty-Mansiysk í Rússlandi. Stór-
meistarinn Alexander Areschenko
(2.653) frá Úkraínu hafði svart gegn
Alexander Stripunsky (2.576) sem
teflir fyrir Bandaríkin. 20. … Rcxd4!
21. Rcxd4 engu betra var að leika 21.
Rfxd4 vegna 21. … Rxd4 og hvítur tap-
ar óumflýjanlega peði. 21. … Hxc1 22.
Hxc1 Hxc1 23. Dxc1 Rxd4 24. Bf2
Dc6! Svartur hefur nú unnið tafl þar
sem hann er peði yfir og með betri
stöðu. 25. De1 Rxf3 26. Bxf3 Da4 27.
Bxa7 Bf8 28. Bg1 Dxa2 29. Bd4 Dc4
30. Df2 b3 31. Kg2 Bb4 32. f5 gxf5 33.
Bd1 Dd3 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
JÓLAMESSA Kvennakirkjunnar
verður í Dómkirkjunni fimmtudag-
inn 29. desember kl. 20.30.
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir,
prestur Kvennakirkjunnar, prédik-
ar. Hallfríður Ólafsdóttir og Arna
Kristín Einarsdóttir leika saman á
flautur. Aðalheiður Þorsteinsdóttir
stjórnar söng á jólalögum og leikur á
píanó.
Njótum friðar jólanna og góðrar
samveru þegar mesta annríkið er
yfirstaðið og kominn er tími hvíldar
og upplyftingar. Á eftir verður kaffi
og samverustund á kirkjuloftinu.
Verið velkomin.
Morgunblaðið/Ásdís
Jólamessa
Kvenna-
kirkjunnar
Fréttasíminn 904 1100