Fréttablaðið - 26.08.2002, Page 8
Yfirvöld í Nepal hafa ekkienn borið kennsl á lík þeirra
15 farþega sem fórust í flug-
slysi fyrir þremur dögum. Þeg-
ar það hefur verið gert verður
haft samband við ættingjana og
þeim boðið til Nepal sagði lækn-
ir við sjúkrahús í Katmandu í
gær.
Vægur jarðskjálfti reið yfirKairó á laugardag. Skjálft-
inn mældist 4,7 á Richter og
eftirskjálfti 3,8 á Richter. Að
minnsta kosti tvö hús skemmd-
ust í skjálftanum. Hann olli
engu manntjóni.
26. ágúst 2002 MÁNUDAGUR
ERLENT
Eru peningar vandamál í þínu lífi?
Bókin Ríki pabbi fátæki pabbi,
eftir Robert Kyosaki er innifalin í verði námskeiðsins.
Friðrik Karlsson
Leiðbeiandi
Kári Eyþórsson
Leiðbeinandi
Nánari upplýsingar og
skráning í síma 588-1594
og 659-1492
Netfang:
koe@islandia.is
Hvers virði væri að losna við peningaáhyggjur fyrir fullt og allt?
Lærðu að eignast peninga auðveldlega.
Leystu úr læðingi fjármálasnillinginn í sjálfum þér.
Þú getur lært að breyta viðhorfum þínum til
peninga þannig að peningar vinni fyrir þig.
Dagana 30. og 31. ágúst verður haldið námskeið um hvernig þú
breytir viðhorfum þínum og gildismati til peninga.
„Það kom mér gersamlega á óvart hversu auðvelt er að breyta
hugarfari til peninga þannig að þeir fari að vinna fyrir mann.“
Kristinn Kristinnsson, sölustjóri Eignakaupa
LÖGREGLA Þrír unglingspiltar voru
staðnir að því á laugardagsmorg-
un að hafa próflausir ekið bíl sem
þeir fengu að láni frá ókunnugum
karlmanni í Hafnarfirði.
Maðurinn sem á bílinn sagðist
ekki hafa áttað sig á ungum aldri
drengjanna vegna þess hversu
ölvaður hann var. Hann hafði hitt
piltana miðsvæðis í Hafnarfirði.
Piltarnir óku vítt og breitt með
manninn. Þegar þeir síðan loks
skiluðu honum af sér fengu þeir
að halda bílnum
Lögreglan kom að drengjunum
snemma á laugardagsmorgunn
þar sem þeir voru að bisa við að
losa bílinn. Hann sat þá fastur
utan vegar við Hvaleyrarvatn.
Tveir þeirra játuðu að hafa ekið
bílnum á föstudagskvöldinu og að-
fararnótt laugardags.
Drengirnir, sem eru 14, 15 og
16 ára, voru ómeiddir. Ekki er
talið að þeir hafi verið undir áhrif-
um áfengis eða fíkniefna. Ein-
hverjir þeirra munu áður hafa
komið við sögu lögreglu.
Lögregla telur fullvíst að bíl-
eigandinn sjálfur hafi ekki ekið
bílnum umrædda nótt. Hann má
þó búast við eftirmálum því
stranglega bannað er að setja bíla
í hendur mönnum sem ekki hafa
gild ökuréttindi.
Dráttarbíl þurfti til að losa bíl-
inn. Í gær beið hann þess enn að
vera sóttur á lögreglustöðina af
eigandanum.
Drukkinn maður í Hafnarfirði óheppinn með bílstjóra:
Próflausir unglingar
festu bíl utan vegar
SKINAIÐNAÐUR „Það væri heppi-
legra að sameina þessi tvö fyrir-
tæki. Við munum hins vegar ekki
hafa frumkvæði að sameiningar-
viðræðum en erum opnir fyrir öll-
um hugmyndum,“ segir Baldvin
Valtýsson, sérfræðingur á fyrir-
tækjasviði Búnaðarbankans og
starfandi framkvæmdastjóri Loð-
skinns á Sauðárkróki.
Rekstrarfélag í eigu Búnaðar-
bankans hefur annast rekstur
Loðskinns síðan fyrirtækið fór í
þrot undir lok árs 1999. Sama á
við um rekstur skinnaiðnaðar á
Akureyri, þar tók rekstrarfélag í
eigu Landsbankans við í kjöfar
gjaldþrots í september í fyrra.
Nýtt félag í eigu Akureyrarbæjar,
Kaldbaks hf., Landsbankans og
einstaklinga, tekur hins vegar við
rekstrinum á næstu dögum og
telja menn einboðið að viðræður
um frekari samvinnu eða samein-
ingu verði teknar upp í kjölfarið.
„Þetta hefur lítillega verið rætt
en ekkert komið út úr því enn,“
segir Ormarr Örlygsson, fram-
kvæmdastjóri Skinnaiðnaðar á
Akureyri og einn eigenda hins
nýja félags.
Árlega falla til um 500 þúsund
sauðagærur í landinu. Aðeins
helmingur þeirra er unnin hjá
skinnafyrirtækjunum tveimur, hitt
er flutt út. Loðskinn á Sauðárkróki
kaupir um það bil 100 þúsund gær-
ur árlega og Skinnaiðnaður á Ak-
ureyri kaupir 150 þúsund gærur.
„Við þyrftum að vinna að
minnsta kosti 250 til 300 þúsund
gærur svo afkoman yrði viðun-
andi,“ segir Ormarr Örlygsson.
Heldur hefur rofað til í iðnað-
inum og þykjast menn nú sjá til
lands.
„Við höfum fært okkur meira í
gæðavinnslu. Það hefur verið að
skila sér, verðið er þokkalegt. Af-
koman er því þokkaleg og við
erum réttu megin við núllið, sam-
kvæmt sex mánaða uppgjöri,“
segir Baldvin Valtýsson.
„Markaður er núna í jafnvægi,
ekki ólíkt því sem var fyrir hrun-
ið sem varð 1998. Mokkafatnaður
verður sífellt vinsælli, þó ekki sé
hægt að tala um einhverja tísku-
sveiflu. Verð hefur hins vegar
ekki hækkað mikið,“ segir Orm-
arr Örlygsson.
Alls starfa um 100 manns við
skinnaiðnað hjá fyrirtækjunum
tveimur, 30 hjá Loðskinni og 60 til
70 manns á Akureyri.
the@frettabladid.is
Sameining skinna-
fyrirtækja í deiglunni
Skinnafyrirtæki í eigu banka í kjölfar gjaldþrota. Nýtt félag tekur við á
Akureyri á næstunni. Bjartara framsundan að sögn forsvarsmanna
skinnafyrirtækjanna. Vinsældir mokkafatnaðar aukast.
RÍKISBANKARNIR HAFA REKIÐ SKINNAIÐNAÐ Í LANDINU UNDANFARIN MISSERI
Landsbankinn losar sig að stærstum hluta út úr rekstrinum á Akureyri á næstunni. Búnaðarbankinn segist opinn fyrir öllu í sambandi við
rekstur Loðskinns á Sauðárkróki. Birgðir og aðrar eignir Loðskinns eru metnar á 240 milljónir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/J
AN
U
S
Kvöldskóli
BHS
Innritun í kvöldskóla Borgarholtskóla
verður eftirfarandi daga:
föstudaginn 23. ágúst frá 17 – 19
miðvikudaginn 28. ágúst frá 10 – 16
laugardaginn 24. ágúst frá 10 – 13
fimmtudaginn 29. ágúst frá 10 – 16
mánudaginn 26. ágúst frá 10 – 16
föstudaginn 30. ágúst frá 17 – 19
þriðjudaginn 27. ágúst frá 10 – 16
laugardaginn 31. ágúst frá 10 – 13
Eftirtaldir áfangar verða í boði fyrir almennt bóknám og málmiðn-
greinar:
DAN – 102 EFM –102 GRT - 103
ENS - 102 CAD –113 GRT - 203
ENS - 202 GÆV-102 MÆM-101
ÍSL - 102 ITM - 114 ITM- 213
STÆ – 102 VFR- 102 TTÖ - 102
TÖL – 102 ITB- allir áfangar
Einnig eru kenndar allar suðugreinar, ss. MIG/MAG, TIG, log og
rafsuða.
Námið er ætlað málm- og véltækninemum en einnig eru almenn-
ar greinar opnar öllum sem vilja hefja framhaldsskólanám. Þeim
sem eru að fara í sveinspróf í málmiðngreinum gefst hér einnig
kostur á að bæta sig.
Upphaf kennslu:
mánudaginn 2. september ( frá kl. - 1810 – 2230 )
Lok kennslu:
laugardaginn 7. desmber
Ath: Ofantaldir áfangar geta fallið niður náist ekki nægur fjöldi í
hópa.
Innritunargjald verður kr. 14.000 og til viðbótar kr. 1250 á bók-
lega einingu og kr. 2500 á einingu í verklegum áföngum.
Nánari upplýsingar á heimasíðu: www.bhs.is
Viltu verða
skipstjóri?
Námskeið til 30
rúml./65 brúttótonna
skipstjórnarréttinda
hefst 4. sept.
Ekki missa af þessu
námskeiði.
Siglingaskólinn
Sími 898 0599 og 588 3092
8