Fréttablaðið - 26.08.2002, Síða 23

Fréttablaðið - 26.08.2002, Síða 23
MÁNUDAGUR 26. ágúst 2002 Dr. Birgit Kirkebæk: Mannkynbót og þroskaheftir FYRIRLESTUR Dr. Birgit Kirkebæk, prófessor í sagnfræði við Oslóarhá- skóla, flytur í dag fyrirlestur í boði Sagnfræðistofnunar. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina: „Fra galesten til gen. Handicaphistoriske erfaringer og nutidige betragtninger. Attituder til - og behandling af - mennesker med mentale handicap.“ Viðfangsefnið er mikilvægt og í brennidepli nú, þegar erfðavísindi eru í örum vexti, og sú þekking sem þar fæst miðar að því að gera við fóstur eða fjarlægja „gölluð“ fóst- ur“, án mikillar yfirvegunnar leik- manna og læknavísinda. Hér á landi er þetta svið sagnfræði og fötlunar- fræða nánast órannsakað, en þær hugmyndir sem hafa mótað félags- legar aðstæður fatlaðra og opinber- ar aðgerðir í þeirra þágu eiga sér rætur í danskri hefð, stjórnsýslu og lögum langt fram eftir 20. öldinni. Dr. Kirkebæk er brautryðjandi á sviði rannsókna á fötluðum á Norð- urlöndum. Hún stofnaði og rak um árabil Institut for handikap historie forskning í Danmörku og gaf út tímarit á því sviði. Hún er einnig mikilvirk í skrifum um þetta efni. Doktorsritgerð dr. Kirkebæks, Da de aandsvage ble farlige, sem út kom árið 1993, er brautryðjanda- verk um aðstæður og hugmyndir varðandi þroskaheft fólk í Dan- mörku 1884-1902. Þar skoðar Kirkebæk meðal annars hugmyndir mannkynbótahreyfingarinnar og afleiðingar þeirra fyrir þroskaheft fólk í Danmörku. Fyrirlesturinn verður klukkan 16.15 í stofu 201 í Odda og er öllum opinn.  ÚTBÚA ÞÚSUND STYTTUR Indverjinn Ramesh Rajabhai af ættflokkn- um Marvari leggur lokahönd á styttu af Hindúa- guðinum Ganesha. Þetta er ein af þúsund styttum sem gerðar verða af Ganesha. Marvari-ættflokkurinn útbýr þær allar og notar við hátíðahöld til heilla guð- inum sem hefst 10. september. Standa há- tíðarhöldin í eina viku. Liverpool: Árleg hátíð helguð minn- ingu George Harrison BÍTLAHÁTÍÐ Árleg Mathew Street- hátíð, sem haldin er í Liverpool, fæðingarbæ Bítlanna, verður í ár helguð minningu Bítilsins George Harrison. Upphaflegur trommu- leikari Bítlanna, Pete Best, mun verða fyrstur til að stíga á svið, en hátíðin verður haldin á götum úti, þar sem hljómsveitin kom fyrst fram. Meira en 150 hljómsveitir munu leika á fimm útisviðum og á fjölda uppákoma innanhúss, sem allar verða á gömlum slóðum hljómsveitarinnar í Liverpool. Stjórnendur hátíðarinnar segja hana stærstu tónlistarhátíð innan borgarmarka sem haldin er í Bretlandi. Í ágúst í fyrra tóku 300.000 manns þátt í gleðinni og í ár er búist við Bítlaaðdáendum hvaðanæva úr heiminum. Heið- ursgestur hátíðarinnar verður systir Georges Harrisons, Louise, sem kemur frá Illinois til að heiðra minningu bróður síns, svo og annarra hljómsveitarmeðlima. Tveggja tonna mósaíkmynd eftir John Lennon, sem hlotið hefur heitið The Magic Eye, verður af- hjúpuð á hátíðinni. Þá verður há- tíðin aðgengileg tölvunotendum um víða veröld, sem munu hafa aðgang að lifandi vef um hátíða- höldin þá þrjá daga sem þau stan- da yfir. Harrison lést úr krabba- meini á síðasta ári.  GEORGE HARRISON Hefur verið kallaður feimni Bítillinn. Er hér með Bob Dylan á tónleikum í Bangladesh.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.