Fréttablaðið - 16.01.2003, Side 1
FRAMBJÓÐANDI
Pólitísk leiðsögn
í lauginni
bls. 34
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 16. janúar 2003
Tónlist 22
Leikhús 22
Myndlist 22
Bíó 24
Íþróttir 18
Sjónvarp 26
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
TÓNLEIKAR Á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands kl. 19.30 í Há-
skólabíói verða flutt verk eftir Béla
Bartok, Hauk Tómasson og Charles
Ives. Hljómsveitarstjóri er Ilan
Volkov, einleikari Sharon Bezaly.
Kór Langholtskirkju syngur með.
Hljómsveit
og kór
KÖRFUBOLTI Fjórir leikir verða leikn-
ir í úrvalsdeild karla í körfubolta í
kvöld. Haukar taka á móti UMFN á
Ásvöllum. Tindastóll tekur á móti
Keflavík á Sauðárkróki, UMFG
sækir ÍR heim í Seljaskóla og Valur
og KR mætast í Valsheimilinu.
Leikirnir hefjast allir klukkan
19.15.
Fjórir leikir
í körfubolta
FUNDUR Ólafur Helgi Þorgrímsson,
meistaranemi í fjármálum, kynnir
meistararitgerð sína: Nýbyggingar
og viðhald eldri bygginga á mið-
bæjarsvæðinu. Málstofan fer fram
í Kaffistofu Odda, þriðju hæð og
hefst klukkan 12.
Nýbyggingar
og viðhald
MYNDLIST Tumi Magnússon opnar
sýningu í Kúlunni í Ásmundarsafni
við Sigtún klukkan 17 í dag og Frið-
rik Tryggvason ljósmyndari opnar
sýningu á Mokka kaffi við Skóla-
vörðustíg.
Tvær opnanir
TÍSKA
Frumlegt
í Hong Kong
FIMMTUDAGUR
13. tölublað – 3. árgangur
bls. 24
KVIKMYNDIR
Puð í
Detroit
bls. 32
VEIÐIHEIMILDIR Smábáturinn Ás SU í
Mjóafirði er miðstöð stórfelldra við-
skipta með veiðiheimildir. Alls hafa
148 færslur með veiðiheimildir far-
ið um trilluna síðan í
upphafi kvótaársins
í september á síð-
asta ári eða rúmlega
ein færsla á dag. Á
síðasta kvótaári
voru færslurnar alls
334. Ás, sem er um
þrjár rúmlestir að
stærð og skráður
sem smábátur á
aflamarki, er í eigu Sigfúsar Vil-
hjálmssonar, hreppstjóra og oddvita
á Brekku í Mjóafirði. Það er Kvóta-
bankinn í Garðabæ sem er að baki
millifærslunum með kvótann. Fyr-
irtækið er sennilega umsvifamesta
einkafyrirtæki á landinu í viðskipt-
um með kvóta. Viðskiptin eru fólgin
í því að fyrirtækið leigir til sín
kvóta og framleigir hann síðan til
þeirra sem stunda fiskveiðar. Oft
getur verið nokkur mismunur á
kaupverði og söluverði.
Sigfús Vilhjálmsson í Mjóafirði
segir að millifærslurnar um bátinn
séu með sínu leyfi. Hann segist ekk-
ert hafa upp úr þessu sjálfur. „Það
er bara í greiðaskyni að ég hef leyft
að safnað sé á bátinn. Eina sem ég
veit af þessu er að Fiskistofa sendir
mér yfirlit í pósti með hverri
færslu,“ segir Sigfús, sem vikulega
fær póst frá Fiskistofu.
Hann kveðst hafa fullvissað sig
um að þetta væri löglegt áður en
millifærslurnar hófust árið 2001.
Enginn afli er skráður á smábát-
inn Ás frá upphafi kvótaársins en
báturinn hefur yfir að ráða um 20
tonna kvóta. Sigfús segist veiða
þann kvóta sjálfur á vorin. Hann
segist reyndar vera andsnúinn því
að veiðiheimildir gangi kaupum og
sölum.
„Ég skil ekki af hverju leyft var í
upphafi að selja og kaupa óveiddan
fisk. En ég sé ekki hvernig hægt
verður að losna út úr þessu kerfi,“
segir Sigfús hreppstjóri.
Lögum samkvæmt er heimilt að
leigja í burtu helming varanlegra
aflaheimilda einstakra skipa. Auð-
unn Ágústsson, forstöðumaður
veiðiheimildasviðs Fiskistofu, segir
að þar á bæ sé grannt fylgst með því
að reglum sé fylgt.
„Það er engin takmörkun á því
hve margar færslur eru fram og til
baka á meðan aflaheimildirnar á
bátnum á hverjum tíma eru ekki
umfram áætlaða veiðigetu,“ segir
Auðunn.
Jón Karlsson, eigandi Kvóta-
bankans, vildi ekkert tjá sig um
millifærslurnar þegar leitað var eft-
ir því.
rt@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Átök eru nú meðal Fram-
sóknarmanna í Reykjavíkurkjör-
dæmi suður. Þar hefur uppstilling-
arnefnd ekki enn komist að niður-
stöðu en hverfandi líkur eru taldar á
að Guðjón Ólafur Jónsson verði
settur í 2. sæti á framboðslista þar.
Þyngst vegur framganga hans á
kjördæmisþingi fyrr í vetur. Hart
er lagt að uppstillingarnefnd að
velja einhvern annan en Guðjón og
hefur þeim skilaboðum verið komið
rækilega á framfæri að meirihluti
félagsmanna Framsóknarfélags
Reykjavíkur suður sé að öðrum
kosti tilbúinn að stofna nýtt félag.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins er undirbúningur vegna
þess kominn vel á veg. Þá þykir
mönnum ekki ganga að hafa þrjá
karlmenn í fjórum efstu sætum
Reykjavíkurkjördæmanna.
Fyrir liggur að Halldór Ásgríms-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, leiðir í norðurkjördæminu og
Árni Magnússon verður í öðru sæti.
Þá mun Jónína Bjartmarz leiða í
Reykjavíkurkjördæmi suður. Björn
Ingi Hrafnsson, forstöðumaður
kynningarmála flokksins og skrif-
stofustjóri þingflokks, og Guðjón
Ólafur Jónsson, formaður kjördæm-
issambands flokksins í suðurkjör-
dæminu, hafa verið nefndir í annað
sætið en sterk krafa er nú uppi um
að Vigdís Hauksdóttir varaþing-
maður skipi annað sætið. Rökin fyr-
ir því eru meðal annars sögð að
jafna þurfi hlutföll kynja efstu
manna í Reykjavíkurkjördæmun-
um.
Þá er vaxandi óánægja með að
þrír af fimm starfsmönnum flokks-
skrifstofunnar skuli á leið í framboð
en Dagný Jónsdóttir, Árni Magnús-
son og Björn Ingi Hrafnsson eru öll
orðuð við framboð eða þegar komin
á lista. ■
REYKJAVÍK Sunnan 5-10 m/s.
Skýjað og slydda. Hiti 0 til 5
stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 18-23 Snjókoma 3
Akureyri 13-18 Snjókoma 3
Egilsstaðir 13-18 Snjókoma 3
Vestmannaeyjar 5-10 Rigning 3➜
➜
➜
➜
-
-
-
+
ÞETTA ER OKKAR LAND LÍKA Ungmenni fylktu liði við Alþingishúsið í gær og mótmæltu stóriðjuáformum stjórnvalda. Mótmæli unga
fólksins voru táknræn, þau röðuðu sér upp og báru vatn í bakgarð Alþingishússins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Átök meðal framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi suður:
Nýtt félag ef Guðjón skipar 2. sæti
Miðstöð kvóta-
brasks í Mjóafirði
Þriggja tonna trilla í eigu hreppstjórans á Brekku notuð sem milliliður í stórfelldum kvótavið-
skiptum Kvótabankans. Útgerðarmaðurinn segist leyfa kvótafærslurnar í greiðaskyni en vera
andvígur því að óveiddur fiskur gangi kaupum og sölum.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
28%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
fimmtu-
dögum?
53%
72%
Alls hafa 148
færslur með
veiðiheimildir
farið um trill-
una síðan í
upphafi kvóta-
ársins.
Keppinautarnir vilja okkurfeiga, segir stjórnarformaður
Móa, en greiðslustöðvun fyrir-
tækisins rennur út í dag. bls. 2
Sýklalyfjanotkun meðal barnahefur minnkað um þriðjung
hér en óvíða er algengara að rör
séu sett í eyru barna. bls. 4
Kúabændur borga 100 krónurmeð hverju kílói af nautakjöti í
dag. Væntingar eru um að jafnvægi
náist brátt á kjötmarkaði. bls. 6
ÞETTA HELST