Fréttablaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 18
18 16. janúar 2003 FIMMTUDAGUR TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 310 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2003 Kjölmiðar Með ártalinu 2003 PILOT SUPER GRIP kúlupenni Verð 75 kr/stk STABILO kúlupenni 10 í pakka. Verð 299 kr/pk Skilblöð númeruð, lituð, stafróf eða eftir mánuðum. Geisladiskar í miklu úrvali☞ Teygjumöppur af flestum gerðum Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Beinn sími sölumanna 5628501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is Vandaður 80 gr fjölnotapappír / 500 blöð í búnti 298.- Á tilboði núna Sölumenn okkar eru við símann frá kl. 8:00 – 17:00. Hringdu í síma 520 6666 eða líttu á úrvalið í stórverslun okkar að Réttarhálsi 2. Opið mán. – fös. 8:00 – 18:00. SKRIFSTOFUVÖRUR HANDBOLTI Þorbergur Aðalsteins- son, fyrrverandi landsliðsþjálfari í handknattleik, telur að íslenska landsliðið eigi eftir að ná ágætum árangri á heimsmeistaramótinu í Portúgal sem hefst á mánudag. Hann telur raunhæft að Ísland nái öðru sæti í sínum riðli og kom- ist þar með í milliriðla. „Þrír fyrstu leikirnir ættu að vinnast, gegn Katar, Ástralíu og Græn- landi,“ segir landsliðsþjálfarinn fyrrverandi. „Síðan kemur lykil- leikur mótsins fyrir Ísland, gegn Portúgal. Sá leikur verður að vinnast. Ef það tekst ætti liðið að komast í átta liða úrslit með því að vinna Túnis eða Pólverja.“ Þor- bergur telur að leikurinn gegn Þjóðverjum verði sá erfiðasti. Þorbergur segir að undirbún- ingstímabilið hafi verið eins gott og mögulegt er. Landsliðið hafi leikið gegn sterkum þjóðum, á sterkum mótum. Hann segir lítils háttar meiðsli leikmanna þó skyggja svolítið á. „Á móti kemur að hópurinn ætti að geta spilað sig saman í þremur fyrstu leikjum mótsins þar sem það eru frekar léttir leik- ir,“ segir Þorbergur. Einar Örn Jónsson er eini hægri hornamaðurinn sem fór með til Portúgals og gæti það skapað nokkurt vandamál. Þor- bergur segir þjálfara alltaf lenda í því að svelta eina stöðu í liðinu. „Þjálfarinn hefur 16 manna hóp til að moða úr en síðan minnk- ar hann alltaf þegar kemur að leikjum. Það er nú oft þannig að það er aðeins einn maður um stöð- una. Það eru margir sem geta leyst Einar Örn af. Heiðmar Felixson og Gústaf Bjarnason koma þar báðir til greina,“ segir Þorbergur. Þorbergur telur íslenska lands- liðið eiga eftir að standa sig vel á heimsmeistaramótinu. Hann vildi þó ekki spá um sæti, vildi sjá hvernig mótið færi af stað. „Það er svo erfitt að sjá hvernig þetta blandast fram að milliriðlum en ég tel að við gætum náð einu af sjö efstu sætunum og þar með sæti á Ólympíuleikunum.“ ■ Ísland ætti að ná ólympíusæti Þorbergur Aðalsteinsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari í handknattleik, telur að íslenska landsliðið eigi eftir að standa sig vel á heimsmeistara- mótinu í Portúgal. Íslenska landsliðið leikur æfingaleik við Svía í dag. Alvaran tekur við á mánudag. EINAR ÖRN JÓNSSON Mikið mun mæða á Einar Erni í hægra horninu á HM. Þorbergur hefur þó ekki miklar áhyggjur af því. ÞORBERGUR AÐALSTEINSSON Íslenska landsliðið mætir Svíum í æfinga- leik í dag í Svíþjóð. Þorbergur spilaði þar um árabil. „Ég hugsa að Svíarnir leggi mikið í leikinn því það hefur verið erfitt hjá þeim undanfarið. Þeir vilja því sjá hvar þeir standa.“ SÍÐUSTU 6 LANDSLEIKIR ÍSLANDS Ísland-Egyptaland 35:25 Ísland-Danmörk 23:32 Ísland-Pólland 29:22 Ísland-Slóvenía 25:32 Ísland-Slóvenía 26:26 Ísland- Slóvenía 37-29 HANDBOLTI Íslenska landsliðið í handknattleik leikur fimm leiki í B-riðli á heimsmeistaramótinu í Portúgal. Landsliðið ætti að hafa sigur í tveimur fyrstu leikjunum. Fyrsti leikurinn verður 20. janúar gegn Ástralíu og daginn eftir er leikið gegn Grænlandi. Einn mik- ilvægasti leikur riðilsins verður gegn heimamönnum í Portúgal 23. janúar. Daginn eftir er frí og síðan er auðveld viðureign gegn Katar þann 25. janúar. Síðasti leikurinn, og væntan- lega sá erfiðasti, verður gegn Þjóðverjum 26. janúar. Liðin mættust síðast á Evrópumótinu í hörkuviðureign og þá höfðu þeir þýsku betur. Liðin sem lenda í fyrsta og þriðja sæti undanriðils fara sam- an í milliriðil. Liðin í öðru og fjórða sæti fara saman í milliriðil. Það lið sem hefur betur úr inn- byrðisviðureign liðanna tekur tvö stig með sér í milliriðla. Milliriðl- ar hefjast 29. janúar. ■ Heimsmeistara- mótið í Portúgal: Fimm leikir á sjö dögum TÍMATAFLA Í UNDANRIÐLUM 20. janúar Ísland - Ástralía 17.00 21. janúar Ísland - Grænland 17.00 22. janúar Frí 23. janúar Ísland - Portúgal 19.00 24. janúar Frí 25. janúar Ísland - Katar 17.15 26. janúar Ísland - Þýskaland 16. 15 FÓTBOLTI Enska knattspyrnusam- bandið hefur ákveðið að velja - Wayne Rooney, leikmann Everton, ekki í landsliðshópinn fyrir heims- meistarakeppni leikmanna 20 ára og yngri sem hefst í Sameinuðu ar- abísku furstadæmunum í mars. David Moyes, knattspyrnu- stjóri Everton, hafði neitað því að senda Rooney á mótið. Var hann óánægður með að missa strákinn á sama tíma og fimm mikilvægir leikir með Everton færu fram, þar á meðal heimaleikur gegn Liver- pool og útileikur gegn Arsenal. Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hafði hótað því að setja Rooney í leikbann í ensku úrvals- deildinni ef Everton neitaði að senda hann á mótið. Ákvörðun enska knattspyrnu- sambandsins þykir benda til þess að Rooney verði valinn í enska A- landsliðið fyrir leiki í undankeppni HM gegn Liechtenstein og Tyrk- landi sem háðir verða á svipuðum tíma og HM 20 ára og yngri fer fram. ■ Hart deilt um Wayne Rooney: Ekki valinn í piltalandsliðið ROONEY Wayne Rooney hefur slegið í gegn með Everton á þessari leiktíð. BARÁTTA Stephon Marbury, leikmaður Phoenix Suns, reynir körfuskot í leik gegn San Ant- onio Spurs í fyrrakvöld. Tim Duncan, mið- herjinn sterki í liði Spurs, er til varnar. Spurs vann leikinn 108:100 eftir að grípa þurfti til framlengingar. Mörkinni 6, sími 588 5518. Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga. Stórútsalan Yfirhafnir í úrvali 20-50% afsláttur Fyrstir koma, fyrstir fá Allt á að seljast

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.