Fréttablaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 4
4 16. janúar 2003 FIMMTUDAGUR MIÐAUSTURLÖND KJÖRKASSINN Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Hvar finnst þér best að versla? Spurning dagsins í dag: Er rétt hjá borgarstjóra að samþykkja að Reykjavík gangi í ábyrgð lána til Kárahnjúkavirkjunar? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 26,4%í Kringlunni 34,3% MIÐBÆRINN Þátttakendum í kjör- kassanum finnst flest- um best að versla í miðbænum. Í miðbænum 19,4%Annars staðar 19,9%Í Smáral ind VIÐSKIPTI Lokadagur söluferlis vegna útgöngu Orca-hópsins úr Íslandsbanka var í gær. Íslands- banki fékk í hendur óafturkræft umboð til að selja bréf hópsins í ágúst í fyrra. Sölu lauk í gær. Gengið í viðskiptunum var 5,175 og keypti bankinn sjálfur 400 milljónir að nafnvirði. Yfirlýst stefna var að nota þá fjármuni til að færa niður hlutafé bankans. Samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka er búið að selja áfram öll bréf sem tengdust við- skiptunum. Erfitt er að gera sér grein fyrir núvirtu gengi í þessum viðskiptum. Það mun samkvæmt heimildum vera á bilinu 4,8 til 5. Gengi bréfa Íslandsbanka var 4,65 í gær. Viðskiptin fóru ýmist fram með beinum viðskiptum eða skipt- um á bréfum í öðrum félögum. Umfang þeirra var rúmir ellefu milljarðar. Núvirt greiðsla til Orca-hópsins er 10,4 til 10,8 millj- arðar, sem er þrjú til sjö hundruð milljónum yfir markaðsvirði gær- dagsins. Einhverjir hluthafar Íslands- banka voru ósáttir við að bankinn skyldi mismuna hluthöfum þegar ákveðinn hópur var keyptur út úr bankanum. Töldu þeir að sambæri- legt kauptilboð hefði átt að berast öllum hluthöfum bankans. ■ Ólöglegur ferðalangur: Faldi sig í ferðatösku HONG KONG, AP Pakistanskur mað- ur sem faldi sig í ferðatösku í þeim tilgangi að komast ólöglega inn í Hong Kong hefur verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi. Manninum, sem er 24 ára gamall, hafði verið vísað úr landi í Hong Kong og meinað að snúa þangað aftur. Hann lét það þó ekki aftra sér heldur tróð sér í ferðatösku. Indverskur félagi hans reyndi síðan að komast yfir landamæri Kína og Hong Kong með töskuna. Stærð töskunnar vakti athygli tollvarða og komst þannig upp um þessa tilraun mannanna. ■ Reykjavík: Erfðagrip- um stolið INNBROT Brotist var inn í fyrirtæki í Holtunum snemma á sunnudags- morgun. Þjófarnir spenntu upp hurð og stálu eggjum, brauði, sal- ati og fleiru matarkyns. Maturinn fannst síðan í ruslagámi bak við húsið en búið var að koma þessu öllu haganlega fyrir. Höfðu þjóf- arnir sjálfsagt ætlað að sækja þýfið síðar. Þá var farið inn um glugga í Mýrahverfi á sunnudagskvöld. Hafði þjófurinn á brott með sér mikið af skartgripum. Um var að ræða erfðagripi, nokkur arm- bandsúr og fleira dýrmætt. Til- kynnt var um innbrot í Þingholt- unum. Gluggi var spenntur upp og stolið rafmagnsverkfærum, ljósa- krónu og fleiru. Um er að ræða húsnæði sem verið er að gera upp og enginn býr í. ■ KONUR FÁ AÐGANG AÐ VERÐ- BRÉFAMARKAÐI Ákveðið hefur verið að leyfa konum að versla með verðbréf í kauphöllinni í Kúvæt. Hingað til hafa konur í landinu ekki getað tekið þátt í viðskiptum með verðbréf með beinum hætti en nú hefur verið útbúið sérstakt herbergi fyrir þær í kauphöllinni. ELDUR Á SJÚKRAHÚSI Tæma þurfti aðalbarnaspítalann í Kaíró í gær þegar eldur kom upp í tveimur geymslum. Eitt unga- barn lét lífið og 40 sjúklingar og starfsmenn voru fluttir á önnur sjúkrahús vegna reykeitrunnar. RÚTUSLYS Í ÍRAN Tvær rútur rák- ust á í norðvesturhluta Íran með þeim afleiðingum að 22 létust og 40 slösuðust. Að því er fram kom í ríkisútvarpi Írans í gær heldur lögreglan því fram að bílstjórarn- ir beri ábyrgð á slysinu en yfir- völd segja að lélegum vegum sé um að kenna. Yfir 200.000 óhöpp verða árlega á vegum landsins og hátt í 20.000 banaslys. ATVINNUMÁL Kristján Ólafsson hef- ur verið skipaður skiptastjóri í þrotabúi Kraftvaka ehf., sem lýst var gjaldþrota í síðustu viku. Hann hefur þegar hafist handa við að rýna í þrotabúið. Kraftvaki var aðalverktaki við endurbyggingu húss Þjóðminjasafnsins en gafst upp á verkinu í haust. Þá tóku Framkvæmdasýsla ríkisins og Tryggingamiðstöðin verkið yfir og sömdu við undirverktaka Kraft- vaka um áframhaldandi starf. Meðal þeirra sem tryggingafélagið og Framkvæmdasýslan yfirtóku samning við var fyrirtækið Kvarði vélsmiðja, sem annast raflagnir í húsinu. Eigendur Kvarða eru þeir sömu og eiga Kraftvaka. Frétta- blaðið hefur undir höndum samn- ing sem Kraftvaki gerði við Kvarða í maí síðastliðnum. Undir- skriftir forsvarsmanna fyrirtækj- anna tveggja, sem reyndar eru þeir sömu, eru óskiljanlegar. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins leituðu fyrrverandi starfsmenn Kraftvaka til Ríkis- endurskoðunar í því skyni að benda embættinu á ýmis þau atriði sem þeim þótti ekki samræmast eðlilegum rekstri hjá Kraftvaka. Meðal þess sem þeir bentu á voru meint undanskot á eignum Kraft- vaka, sem skilur eftir sig launa- skuldir sem nema á öðrum tug milljóna króna auk annarra van- skila. Ríkisendurskoðun mun ekki hafa áform um að skoða málið enda mun það vera mat manna þar að Framkvæmdasýslan tapi ekki neinum fjármunum á vanefndum Kraftvaka. Ábyrgðasjóður launa mun væntanlega þurfa að greiða hátt í 15 milljónir króna vegna gjald- þrots Kraftvaka. Björgvin Stein- grímsson, deildarstjóri hjá sjóðn- um segir að þar á bæ fari menn ekki sérstaklega ofan í mál Kraft- vaka. Það sé verkefni skiptastjóra að fara ofan í bækur fyrirtækis- ins. „Það er hlutverk skiptastjóra að meta hvor réttmætt sé að fara í málaferli til að ná inn eignum,“ segir Björgvin. Ekki náðist samband við Krist- ján Ólafsson skiptastjóra vegna þessa máls. ■ VIÐSKIPTI Heimild Móa til greiðslu- stöðvunar rennur út í dag. Krist- inn Gylfi Jónsson, stjórnarfor- maður Móa, segir að fyrirtækið hafi sótt um framlengingu og að það komi í ljós í dag hvort hún fáist. Kristinn Gylfi segir að verið sé að vinna að fjárhagslegri endur- skipulagningu fyrirtækisins. Bók- færðar skuldir þess séu 1.450 milljónir króna og eignir metnar á um 1.100 milljónir. Hann segir að eigendur fyrirtækisins séu bjart- sýnir á að endurskipulagningin gangi eftir. „Hins vegar vilja okkar keppi- nautar okkur feiga og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að drepa fyrirtækið,“ segir Kristinn Gylfi. „Ég tel að Móar, sem eru elsti starfandi kjúklingaframleið- andinn í landinu, eigi fullt erindi inn á þennan markað og að fyrirtækinu sé ekkert ofaukið.“ Í Fréttablaðinu í fyrradag gagnrýndi Jónatan S. Svavarsson, framkvæmdastjóri Reykjagarðs, Móa fyrir að bjóða kjúklinga und- ir kostnaðarverði, sérstaklega í ljósi þess að fyrirtækið væri í greiðslustöðvun. Kristinn Gylfi segir þetta ekki rétt. Verð á kjúklingum hafi verið mjög lágt undanfarna þrjá til fjóra mánuði. Kílóið hafi verið selt á innan við 300 krónur í sumum verslunum, en tilboðin einskorðist ekki við vöru frá Móum heldur sé einnig þar um að ræða vöru frá öðrum framleiðendum. „Þó fyrirtækið sé í greiðslu- stöðvun heldur það áfram rekstri,“ segir Kristinn Gylfi. „Ég vísa því alfarið á bug að Móar hafi leitt þessa verðlækkun. Okkar skoðun er sú að Reykjagarður hafi byrjað að lækka verð strax í september þegar framleiðslan jókst hjá þeim.“ Þá segir hann ekki rétt að bændur fái 280 krónur fyrir kílóið eins og Jónatan hafi haldið fram, heldur séu þeir að fá í kringum 200 krónur. trausti@frettabladid.is Ágúst Ólafur: Stefnir að endurkjöri STJÓRNMÁL Ágúst Ólafur Ágústs- son, formaður Ungra jafnaðar- manna, gefur kost á sér til áfram- haldandi setu. Landsþing Ungra jafnaðarmanna verður haldið á Selfossi helgina 24.-26. janúar næstkomandi. Ágúst Ólafur hefur verið formaður Ungra jafnaðar- manna síðan í október 2001. Hann mun skipa 4. sæti á lista Samfylk- ingarinnar í Reykjavíkurkjör- dæmi suður og er þar af leiðandi í baráttusæti þess kjördæmis. ■ Kringlumýrarbraut: Hundur olli árekstri LÖGREGLUMÁL Hundur sem hljóp út á Kringlumýrarbraut olli því að árekstur varð milli tveggja bíla. Til að forða því að aka á hundinn snarhemlaði ökumaður en fékk við það annan bíl aftan á sig. Öku- menn bílanna gengu báðir frá sín- um málum en þegar sá fyrrnefndi var kominn heim til sín tók hann eftir því að hundurinn hafði elt hann heim. Lögreglan var kölluð til og tók hún hundinn og kom fyr- ir í hundageymslu. Skömmu eftir hafði eigandinn samband. Hafði hundurinn hlaupist á brott. ■ Uppreisnarmenn í Kongó: Neyddu fólk til mannáts KINSHASA, AP Uppreisnarmenn í norðaustanverðu Kongó stunduðu nauðganir, pyntingar og morð á óbreyttum borgurum með skipu- lögðum hætti, segir Patricia Tome, talsmaður sendinefndar Samein- uðu þjóðanna sem hélt til Kongó til að kanna ásakanir þessa efnis. Tome sagði fjölmörg dæmi um morð, nauðganir hvoru tveggja á fullorðnum konum og börnum, pyntingar og önnur voðaverk. Þá væru dæmi þess að fólk hefði ver- ið neytt til að borða líkamsleifar ættingja sinna. Leiðtogi uppreisnarmanna sagði eftir að fréttirnar bárust út að hann hefði látið handtaka fimm meðlimi hreyfingar sinnar. ■ Aðalverktaki í Þjóðminjasafninu: Skiptastjóri skoðar bækur Kraftvaka ÞJÓÐMINJASAFNIÐ Þegar aðalverktakinn hrökklaðist frá verkinu gerðist fyrirtæki í eigu hans undirverktaki. Lokadagur Orca-viðskipta: Ellefu milljarða viðskiptum lokið ORCA ÚT Í gær var lokadagur viðskipta með bréf í Íslandsbanka sem tengjast útgöngu Orca- hópsins í bankanum. Bréfin voru seld áfram til fjárfesta. Keppinautarnir vilja okkur feiga Móar hafa sótt um framlengingu á heimild til greiðslustöðvunar. Stjórn- arformaðurinn segir keppinautana reyna allt til að drepa fyrirtækið. Það skuldar 1.450 milljónir króna en eignirnar eru metnar á 1.100 milljónir. HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS Heimild Móa til greiðslustöðvunar rennur út í dag. Kristinn Gylfi Jónsson, stjórnarformaður Móa, segir að verið sé að vinna að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins og eig- endur þess séu bjartsýnir á að hún gangi eftir. ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON Hefur verið formaður síðan í október 2001 og stefnir að áframhaldandi setu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.