Fréttablaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 28
eru heimilisprýði 10 Að leggja parket: Undirbúningur Hreinsa þarf veggi af öllum múrögnum og ójöfnum áður en byrjað er. Ganga þarf úr skugga um að gólfið sé hreint, slétt og þurrt. Undirlaginu er rúllað út og skorið í rétta stærð. Ekki má brjóta upp á hornin - undirlagið kemur í veg fyrir skelli í parketinu þegar gengið er á því auk þess sem það verður þægilegra. Parketið Skoða þarf hvert borð vel áður en byrjað er. Fyrsta borðið er lagt með raufina upp við einn vegg. Setja þarf litla og þunna fleyga (um 5 millimetra á breidd) milli veggs og fyrsta borðs. Það er til að gera bil frá veggnum svo parketið geti hreyfst svolítið. Þetta bil hverfur svo þegar gólflistar koma á. Ef veggurinn er undinn eða kverk rúnnuð, þ.e. ekki rétt horn, þarf að mæla sveigjuna og saga endana eftir því. Ávallt þarf að hafa 5 millimetra bil út til veggja, allan hringinn. Líming Þegar búið er að setja saman fyrstu þrjú borðin, eru þau tekin varlega í sundur og límd. Líma á borð númer tvö við fyrsta borðið, sem er ekki límt við vegginn. Límrönd er sprautuð inn í raufina á númer tvö og á listann á númer eitt og svo koll af kolli. Notið hamar og viðarkubb til að banka borðin létt saman. Listar Límið er látið þorna í um sex klukkutíma áður en millileggin eru fjarlægð út til veggja. Gólflistarnir eru notaðir þar sem parketið mætir öðrum samskeytum eða öðru gólfefni. Bora þarf fyrir skrúfum á gólflistum áður en þeir eru skrúfaðir niður. Þessi grein er hugsuð sem hugmynd um verkferlið en er ekki fullnaðarleiðbeiningar. Við mælum ávallt með að leitað sé til fagmanna. RÁÐLEGGINGAR - Parket má leggja hvar sem er, ofan á keramik- flísar, bera steypu eða gólfdúk. Einnig má leggja það ofan á teppi, svo fremi að það sé snögg- hært. Á baðherbergjum þarf að taka tillit til raka og leka, þá þarf að þétta vel með köntum. - Ef handsög er notuð til að saga borðin verður að snúa lakkhliðinni niður. Ef notuð er vélsög á lakkhliðin að snúa upp, því þá eru minni líkur á að skemma parketið. - Þegar borðin eru límd saman þrýstist límið aðeins upp á þau. Þurrka verður límið af með rökum klút.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.