Fréttablaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 46
JARÐARFARIR 13.30 Bogi Ólafsson skipstjóri, Dalbraut 18, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju. 13.30 Hjördís Geirdal, Laufengi 3, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík. 13.30 Kristjana Gunnarsdóttir, Lindar- götu 61, Reykjavík, verður jarð- sungin frá Bústaðakirkju. MINNINGARATHÖFN 13.30 Minningarathöfn um Guðmund Sigurjón Hjálmarsson frá Græn- hól, Barðaströnd, verður í Foss- vogskapellu. ANDLÁT Erna Geirlaug Árnadóttir Mathiesen, Hringbraut 2a, Hafnarfirði, lést á Land- spítalanum við Hringbraut sunnudaginn 12. janúar. Guðbjörg Júlíusdóttir andaðist á heim- ili sínu Linby 17, 27493, Skurup, Svíþjóð, laugardaginn 11. janúar. Guðni Baldur Ingimundarson, húsa- smíðameistari, Langholtsvegi 96, Reykja- vík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skóg- arbæ mánudaginn 13. janúar. 34 16. janúar 2003 FIMMTUDAGUR Komst yfir hljóðfæri eftir kynni á snyrtingu Gunnar Kvaran sellóleikari er 59 ára í dag. Það er nóg að gera hjá honum þessa dagana. Hann er að fara að stjórna alvöru tónleikum. Sagan af hljóðfærinu hans er lyginni líkust. 59 ÁRA „Þetta verður frekar róleg- ur dagur hjá mér en ég ætla að fara á Sinfóníutónleika í kvöld,“ segir Gunnar Kvaran, afmælis- barn dagsins. Það er nóg að gera hjá Gunnari þessa dagana. Fram undan eru tónleikar hér heima og erlendis., auk þess sem hann er að fara að stjórna fyrstu alvöru tónleikum sínum í Neskirkju á sunnudaginn kemur. Gunnar hóf tónlistarnám sitt þegar hann var tíu ára. Þá byrjaði hann að spila á svokallað gígju, sem er barrokkhljóðfæri. Þegar hann var tólf ára var honum nán- ast skipað af tónlistarkennara sín- um að leggja sellóið fyrir sig þótt Gunnar vildi það ekki sjálfur. Þegar Gunnar var rétt rúmlega tvítugur ætlaði hann að fjárfesta í nýju hljóðfæri, sem hann og gerði. Sagan bak við hljóðfærið er þó lyginni líkust. „Ég var staddur á snyrtingu á aðaljárnbrautarstöðinni í Kaup- mannahöfn. Þar hitti ég mann sem segir mér að hann eigi besta hljóð- færi í Danmörku. Ég var að flýta mér í lestina og ræddi því ekki nánar við manninn. En til að gera langa sögu stutta þá liðu um þrjú ár þar til mér áskotnaðist þetta hljóðfæri sem maðurinn var að tala um,“ segir Gunnar. „Hljóðfær- ið var selt öðrum manni í millitíð- inni en maðurinn sem ég hitti á snyrtingunni reyndist mér eins og verndarengill því hann ætlaði mér hljóðfærið. Þegar hann bauð mér svo hljóðfærið á endanum, eftir miklar krókaleiðir, sagði ég honum að það væri allt of dýrt.“ Maðurinn af snyrtingunni hafði reiknað út hvernig Gunnar kæmist yfir hljóðfærið og ákvað Gunnar að slá til með því að taka bankalán og selja gamla hljóðfærið. „Ég hugsa alltaf til þessa manns með hlýju þegar ég hugsa um hljóðfær- ið mitt,“ segir Gunnar. Gunnar ákvað að sýna kennara sínum, Erling Blöndal Bengts- syni, hljóðfærið. Þá kom í ljós að Erling hafði lært í Kaupmanna- höfn og kennari hans þar hafði átt hljóðfærið áður. Til að kóróna sög- una átti Erling hljóðfæri frá manni sem hét LePau. LePau þessi hafði nemanda, Sylvestre, sem hafði smíðað forláta hljóð- færið hans Gunnars. „Það er svo furðulegt í þessum heimi hvað hlutirnir virðast tengj- ast, bæði á dularfullan og augljós- an hátt. Það var í raun ótrúlegt hvernig ég eignaðist hljóðfærið en það er búið að fylgja mér síð- an.“ kristjan@frettabladid.is AFMÆLI HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR „Þeir sem sáu þetta þegar ég keypti héldu að ég væri ekki með fulde fem,“ seg- ir Atli Gíslason hæstaréttarlög- maður og vísar þarna til kaupa sinna á malargryfju austur í Grímsnesi árið 1973 sem hann ræktaði upp. „Þegar ég lauk menntaskóla fór ég að starfa við garðyrkju og hélt því áfram sam- hliða námi. Þá vaknaði áhugi á um- hverfismálum.“ Atli Gíslason er úr Sogamýrinni. „Móðir mín - aðal konan í lífi mínu - hét Ingibjörg Jónsdóttir og var skólastjóri í Húsmæðraskólanum Ósk á Ísafirði, var svo við barna- uppeldi í 20 ár en starfaði síðar sem matráðskona og í fiskvinnslu.“ Atli er einn sex systkina en faðir hans hét Gísli Guðmundsson, kennari og leiðsögumaður, kallaður Gísli gæd. Atli á þrjú uppkomin börn. Hann telur það ekki undarlega blöndu að vera vinstri grænn og lögfræðingur og þrátt fyrir að Sjálf- stæðisflokkurinn hafi nánast eignað sér stéttina segir hann blessunar- lega undantekningar þar á. „Ég held að flestir viti hvar þeir hafa mig. Ég hef aldrei leynt skoðunum mínum: herstöðvarandstæðingur, friðar- sinni og hef áhuga á pólitík.“ Atli hefur starfað í 25 ár sem lög- fræðingur. Hann var hjá Ríkisskatt- stjóra frá 1976 til 1980. „Þá fór ég í lögmannsstörf og lungann af mínu lögmannsstarfi hef ég verið á vett- vangi launamanna, til dæmis sem lögmaður Dagsbrúnar og Eflingar í 22 ár. Ég þekki kjör venjulegs fólks en ekki þeirra sem koma við sögu í greinum Agnesar Bragadóttur.“ Atli vakti þjóðarathygli þegar hann var skipaður Ríkislögreglu- stjóri í máli Franklíns Steiners. „Ég hef oft farið í djúpu laugina áður.“ Og talandi um djúpar laugar: „Ég stunda sund á hverjum degi í Vest- urbæjarlauginni og sæki mikla póli- tíska leiðsögn þangað. Svo stunda ég stundum golf hjá múrurum í Öndverðarnesi, Grímsnesi.“ ■ Atli Gíslason lögmaður skipar 2. sæti á lista VG í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir komandi kosningar á eftir Kolbrúnu Halldórsdóttur. Persónan Pólitísk leiðsögn í Vesturbæjarlauginni GUNNAR KVARAN „Af svokölluðum jarðneskum hlutum er sellóið besti vinur minn,“ segir Gunnar Kvaran. „Þetta er framlenging af mér sjálfum. Það er óskaplega náið samband milli manneskju og hljóðfæris sem er með manni svo langan tíma, mikinn hluta ævinnar.“ Að gefnu tilefni skal tekið fram að 5. sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík veitir ekki aðgang að kjötkötlunum – nema annað sé ákveð- ið fyrir fram. Leiðrétting ATLI GÍSLASON Þekkir kjör venjulegs launafólks en ekki þeirra sem koma við sögu í greinum Agn- esar Bragadóttur. KROSSGÁTA FR ÉT TA B LA Ð IÐ / VI LH EL M Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 H el ga rf er ›i r H el ga rf er ›i r Barcelona Prag Búdapest 46.200 kr. 44.490 kr. 51.580 kr. 6. og 27. mars 13. og 20. mars 27. mars og 3. apríl Innif.: Flug, gisting í 3 nætur með morgunverður, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Ferðir til og frá flugvelli erlendis kosta 1.700 kr. og eru valkvæðar. Innifalið er flug, gisting, morgunverður, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Ferðir til og frá flugvelli erlendis kosta 1.600 kr. Innifalið er flug, gisting, morgunverður, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Ferðir til og frá flugvelli erlendis kosta 1.600 kr. TÍMAMÓT LÁRÉTT: 1 undirmaður, 4 ögnin, 9 hægir, 10 togvinda, 12 tröll, 13 tötrar, 15 einhvers, 17 ánægja, 19 bekkur, 20 rúmmálseining, 22 hindra, 24 fífl, 25 vitleysa, 27 labb, 29 drollar, 32 bikkja, 34 sauðskinn, 35 frægur, 36 þvengir, 37 fjas. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 tjóa, 4 fátæki, 9 styrkur, 10 stál, 12 eiði, 13 særast, 15 ansi, 17 gein, 19 gón, 20 rifar, 22 ósinn, 24 ana, 25 klak, 27 ugla, 29 árát- ta, 32 klugt, 34 naut, 35 erindið, 36 mágana, 37 raki. Lóðrétt: 1 túss, 2 ósár, 3 at- laga, 4 freti, 5 Áki, 6 tuða, 7 æringi, 8 ilminn, 11 tæring, 14 serk, 16 sónötu, 18 ask- ar, 20 raunum, 21 falleg, 23 skánir, 26 látna, 28 aura, 30 taða, 31 atti, 33 gin. LÓÐRÉTT: 1 vandræði, 2 grunir, 3 dingull, 4 vagn, 5 bleyta, 6 pár, 7 örugg, 8 sindra, 11 oblátudiskur, 14 álpist, 16 mætar, 18 biti, 20 hljóður, 21 geisli, 23 skordýr, 26 sundfæri, 28 óhreinindi, 30 flytja, 31 afturendi, 33 bergmála. FR ÉT TA B LA Ð IÐ / VI LH EL M Valgerður Sverrisdóttir. Vladimír Pútín. Eminem. 1. 2. Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 3.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.