Fréttablaðið - 16.01.2003, Síða 2

Fréttablaðið - 16.01.2003, Síða 2
2 16. janúar 2003 FIMMTUDAGUR Sigurður G. Guðjónsson er sjónvarpsstjóri á Stöð 2. Því er fljótsvarað. Ég hef einkar gaman af „Six feet under“ sem er ótrúlega vel gerður þáttur með skemmtilegum og kaldhæðnum húmor. Ég læt heldur ekki fram hjá mér fara „The mind of the married man“ sem er á miðvikudögum. Hann er karlavægið við „Sex and the city“ og er feikilega vel gerður og skemmtilegur þáttur. SPURNING DAGSINS Sigurður, hvað er uppáhalds sjónvarpsþátturinn þinn? Þorsteinn Már Baldvinsson tók á móti áhöfn Vilhelms Þorsteinssonar í Grindavík: Forstjórinn fer á sjó SJÁVARÚTVEGUR „Þetta lofar auð- vitað góðu en það er fullsnemmt að spá fyrir um hvort Vilhelm verði aflahæsta skipið á þessu fiskveiðiári. En það hlýtur að vera markmið áhafnarinnar í sjálfu sér,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í samtali við Fréttablaðið. Vilhelm Þorsteinsson EA bar að landi mesta aflaverðmæti ís- lenskra skipa á síðasta ári, alls um 1.147 milljónir króna, sam- kvæmt heimildum Hagstofu og virðist ætla að halda sínu striki en landað var úr skipinu 2.600 tonnum í Grindavík í gær. Það er einn stærsti farmur sem landað hefur verið hérlendis. Þorsteinn tók á móti mönnum sínum og fékk sér kaffi þeim til samlætis. „Ætli hlutverk stjórnenda sé ekki að vita hvernig hlutirnir ganga fyrir sig. Ég ætla að bregða mér í einn loðnutúr nú í vetur. Það er orðið langt síðan ég fór síðast – allt of langt,“ segir Þorsteinn Már. Umfjöllun um Vilhelm Þor- steinsson og áhöfnina verður að finna í helgarblaði Fréttablaðs- ins. ■ Smáríki óttast áhrifaleysi Tillögur Þjóðverja og Frakka um að kosinn verði forseti Evrópusam- bandsins til að leiða starf þess vekur ugg meðal minni ríkja. Varað er við því að breytingar geti leitt til átaka innan sambandsins. BRUSSEL, AP Forystumenn í minni ríkjum Evrópusambandsins óttast að tillögur Frakka og Þjóðverja um breytt skipulag sambandsins verði til þess að draga úr áhrifum minni ríkja í samstarf- inu. Það sem fer fyrir brjóstið á þeim er að forseta- kerfi leiði til auk- ins pólitísks þrýst- ings og verði til þess að stærri ríki Evrópusambandsins fái aukin völd á kostnað minni ríkja. Meðal þeir- ra sem hafa lýst áhyggjum eru Hollendingar, Belgar og Finnar. Tillögurnar litast af því að Þjóðverjar vilja sterka fram- kvæmdastjórn Evrópusambands- ins og Frakkar vilja að leiðtogar aðildarríkjanna kjósi forseta Evr- ópusambandsins til að tala fyrir þess hönd á alþjóðlegum vett- vangi og veita stefnumótun þess forystu. Bæði ríkin vilja leggja af það fyrirkomulag að aðildarríkin skiptist á um að veita Evrópusam- bandinu forystu í hálft ár hverju sinni og stjórna vinnu þess. For- setinn á að koma í stað þessa kerf- is. Forsetinn yrði samkvæmt til- lögunum annar af tveimur aðal- mönnunum í starfsemi Evrópu- sambandsins. Hinn verður forseti framkvæmdastjórnarinnar, sem lagt er til að verði hér eftir kosinn af þingmönnum á Evrópuþinginu, en hann er nú skipaður af leiðtog- um aðildarríkjanna. Anders Fogh Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, lagði í gær til að reglur um kosningu for- setans yrðu hannaðar með þeim hætti að tryggja áhrif minni og meðalstórra aðildarríkja sam- bandsins. Jonathan Todd, talsmaður framkvæmdastjórnarinnar, sagði menn þurfa að fara varlega. „Við verðum að tryggja að við sitjum ekki uppi með tvær valdamið- stöðvar í samkeppni hvor við aðra,“ sagði hann og varaði við því að tillögurnar gætu leitt til innri átaka innan Evrópusambandsins ef þær ná fram að ganga óbreytt- ar. Francois Bayrou, leiðtogi stjórnmálaflokksins Fransks lýð- ræðis og samstarfsmaður Jacques Chiracs Frakklandsfor- seta, tók öllu sterkar til orða. „Ef það verður tvöfalt forsetakerfi kæmi einn dag upp átök um lög- mæti og samstarf. Mér virðist sem við séum að taka óráðlega áhættu í Evrópu sem er þegar erfitt að skilja.“ ■ Járniðnaðarmenn vilja að viðgerð á Bjarna Sæmundssyni fari fram á Íslandi: Segja viðgerð hér ódýrari IÐNAÐUR Fundur trúnaðarmanna í Félagi járniðnaðarmanna krefst þess að reiknuð verði þjóðhags- leg hagkvæmni þess að gera við rannsóknaskipið Bjarna Sæ- mundsson hér á landi áður en lit- ið verði til þess að taka erlendum tilboðum. Í ályktun járniðnaðar- manna er lýst áhyggjum yfir miklum samdrætti í málmiðnaði og fleiri iðngreinum. Eru stjórn- völd hvött til aðgerða gegn vax- andi atvinnuleysi. Þá segir að á sama tíma og verkefnaskortur sé í málmiðnaði hafi farið fram út- boð á viðgerð á Bjarna Sæmunds- syni og að miklu skipti að verk- efnið verði unnið hér á landi. Minnt er á að þegar íslensku varðskipin voru send til viðgerða í Póllandi fyrir tveimur árum hafi verið sýnt fram á að ódýrara væri að gera við þau hér heima þegar dæmið var reiknað til enda. Alls bárust tólf tilboð í við- gerðirnar, þar af fjögur frá inn- lendum aðilum. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 122,5 milljónir króna og voru öll tilboð utan eitt yfir áætlun. ■ Á VERKFALLSVAKTINNI Verkfallsverðir reyna að halda á sér hita fyrir framan flugvélahreyflaverksmiðju General Electrics. Deilt um tryggingar: Þúsundir gengu út SCHENECTADY, BANDARÍKIN, AP Þús- undir starfsmanna bandaríska stórfyrirtækisins General Elect- ric hófu tveggja daga verkfall á þriðjudagsmorgunn til að mót- mæla þeirri ákvörðun fyrirtækis- ins að láta starfsmenn greiða meira fyrir sjúkratryggingar en hingað til hefur tíðkast. Stjórnendur fyrirtækisins segja kostnað vegna sjúkratrygg- inga starfsmanna hafa hækkað um 45% frá árinu 1999. Verka- lýðsforkólfar segja fyrirtækið rekið með miklum hagnaði og enga ástæðu til að flytja kostnað- inn yfir á starfsmenn. Þetta er í fyrsta skipti frá 1969 sem starfsmenn General Electric fara í verkfall um gjörvöll Banda- ríkin. Þá stóð verkfallið í fjórtán vikur. ■ Fugladauði í Svíþjóð: Drykkjulæti hjá fuglum STOKKHÓLMUR, AP Um 50 fuglar hafa drepist eftir að hafa flogið á glugga háskólans í Karlstad und- anfarna daga. Talsmaður skólans segir að mun fleiri fuglar hafi flogið á skólann og kennir því um að fuglarnir séu drukknir. Það sem veldur drykkjulátum fuglanna er að þeir hafa borðað ber sem hafa gerjast. Fuglarnir virðast ekki gera sér grein fyrir því hvenær þeir hafa fengið nóg og því orðið drukknir. Í kjölfarið hafa þeir svo flogið á glugga há- skólans svo þúsundum skiptir. Hans Jensen, talsmaður skólans, telur þó að það versta sé afstaðið þar sem berin séu að klárast. ■ RANN Á KYRRSTÆÐA BÍLA Sjö kyrrstæðir bílar skemmdust mik- ið þegar slökkviliðsbíll rann nið- ur Gilið svonefnda á Akureyri. Mikil hálka var á veginum. Hafði slökkviliðsbíllinn stöðvast í beygju fyrir ofan Myndlistarskól- ann og runnið niður brekkuna. Bílarnir sem skemmdur voru all- ir í eigu nemenda Myndlistar- skólans. Varað við hryðjuverkum: Zanzibar hugsanlegt skotmark LONDON, AP Breska utanríkisráðu- neytið hefur varað við hugsanleg- um hryðjuverkaárásum á eynni Zanzibar úti fyrir ströndum Aust- ur-Afríku. Eyjan, sem tilheyrir Tanzaníu, er vinsæll áfangastaður ferðamanna frá Vesturlöndum og er mælst til þess að vestrænir rík- isborgarar sem þar eru staddir séu á varðbergi. Á vefsíðu ráðuneytisins kemur fram að yfirvöld hafi undir hönd- um upplýsingar sem gefa til kynna að alþjóðleg hryðjuverka- samtök séu að skipuleggja árásir á Zanzibar. Talsmenn ráðuneytis- ins hafa þó ekki viljað veita nán- ari upplýsingar um tildrög viðvör- unarinnar. Bandaríska utanríkisráðuneyt- ið gaf út sambærilega yfirlýsingu í síðustu viku en átta manns létust árið 1998 þegar al Kaída-hryðju- verkasamtökin vörpuðu sprengju á bandaríska sendiráðið í Tanz- aníu. ■ Barist gegn spillingu: Ekki múta útlendingum TAIPEI, TÆVAN, AP Tævanska þingið hefur samþykkt löggjöf sem bannar þarlendum viðskipta- mönnum að múta erlendum emb- ættismönnum. Þeir sem verða fundnir sekir um brot gegn lögun- um mega vænta allt að fimm ára fangelsisdóms. Alþjóðlegar eftirlitsstofnanir hafa löngum sakað tævönsk fyrir- tæki um að nota mútur til að ná hagstæðum samningum og er lög- gjöfin samþykkt til að bæta ímynd landsins á erlendum vett- vangi. ■ MEIRIHLUTINN ÁNÆGÐUR 58% Bandaríkjamanna eru ánægð með störf George. W. Bush Banda- ríkjaforseta samkvæmt nýrri könnun. Það er í fyrsta skipti eft- ir hryðjuverkaárásirnar 11. sept- ember 2001 sem innan við 60% eru ánægð með störf hans. Varn- armál eru sterkasta hlið hans en efnahagsmál veikleiki hans. SMÁSALA EYKST Smásala í Bandaríkjunum jókst um 1,2% í desember. Það sem stendur helst undir aukningunni er fimm pró- senta aukning í sölu bíla. ÞORSTEINN MÁR BALDVINSSON Kampakátur með mönnum sínum í borðsal Vilhelms Þorsteinssonar þar sem skipið lá við festar í Grindavíkurhöfn. TVEIR STJÓRNENDUR RÆÐAST SAMAN Romano Prodi, forseti framkvæmdastjórnarinnar, og Costas Simitis, forsætisráðherra Grikklands sem er í forsæti fyrir Evrópusambandinu um þessar mundir, ræða saman á fundi í Evrópuþinginu. „Mér virðist sem við séum að taka óráð- lega áhættu í Evrópu sem er þegar erfitt að skilja.“ TILBOÐ Í VIÐGERÐIR Á BJARNA SÆMUNDSSYNI RE-30 Íslenskar krónur % af áætlun 1. Skipapol Sp. Zoo 109.066.693 89 2. Pasaia Shipyard SL 135.851.162 111 3. Morska Shiprepair 140.951.579 115 4. Gjörvi Vélaverkstæði 145.451.000 119 5. Slippstöðin ehf. 145.381.000 119 6. VOOV SKIP ehf 165.456.000 135 7. Nordship 173.817.268 142 8. Vs Framtak - Stálsmiðjan ehf. 157.257.440 143 9. Vélsm. Orms og Víglundar ehf. 177.120.500 145 10. Gdynja Shipyard Nauta 197.846.752 162 11. P & S Ship Repair Yard Ltd. 214.997.006 176 12. Bergen Mekanisk Verksted AS 263.919.150 216 AP /C H R IS TI AN L U TZ LÖGREGLUFRÉTTIR APM YN D /M IC H AEL D W YER FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M BANDARÍKIN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.